Aron kvaddi Kiel með meistaratitli | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2015 19:31 Leikmenn Kiel fögnuðu 20. meistaratitli félagsins vel og innilega. vísir/getty Aron Pálmarsson lék sinn síðasta leik með Kiel þegar liðið vann öruggan fjögurra marka sigur, 33-29, á Lemgo á heimavelli í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Með sigrinum gulltryggði Kiel sér Þýskalandsmeistaratitilinn, fjórða árið í röð, og sjötta sinn alls undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Aron skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar leiknum í kvöld sem var, eins og áður sagði, hans síðasti með Kiel. Landsliðsmaðurinn er sem kunnugt er á leið til Veszprém í Ungverjalandi. Aron varð alls fimm sinnum þýskur meistari með Kiel. Kiel tapaði ekki leik eftir áramót og vann 14 af 15 síðustu leikjum sínum í þýsku deildinni. Alfreð, Aron og félagar fengu alls 65 stig, tveimur meira en Rhein-Neckar Löwen sem vann fimm marka sigur, 27-32, á Geir Sveinssyni og lærisveinum hans í Magdeburg.Kiel vann 14 af síðustu 15 deildarleikjum sínum á tímabilinu.vísir/gettyAlexander Petersson lék ekki með Löwen í kvöld og Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Uwe Gensheimer var markahæstur í liði Ljónanna með níu mörk. Magdeburg endaði í 4. sæti deildarinnar en liðið tapaði þremur síðustu leikjum á tímabilinu. Dagur Sigurðsson stýrði Füchse Berlin í síðasta sinn í kvöld þegar Berlínarrefirnir töpuðu 29-32 fyrir Flensburg. Fuchse Berlin endaði í 7. sæti en Flensburg í því þriðja. Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk og Rúnar Kárason eitt þegar Hannover-Burgdorf tapaði 29-26 fyrir Melsungen á útivelli. Hamburg vann eins marks sigur á Gummersbach á heimavelli, 32-31. Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt marka Gummersbach. Sigurbergur Sveinsson lék ekki með Erlangen sem tapaði fyrir Lübbecke á útivelli, 28-23. Erlangen féll úr deildinni ásamt Minden, Friesenheim og Bietigheim.Filip Jicha, fyrirliði Kiel, lyftir skildinum góða.vísir/getty Handbolti Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Fleiri fréttir Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Sjá meira
Aron Pálmarsson lék sinn síðasta leik með Kiel þegar liðið vann öruggan fjögurra marka sigur, 33-29, á Lemgo á heimavelli í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Með sigrinum gulltryggði Kiel sér Þýskalandsmeistaratitilinn, fjórða árið í röð, og sjötta sinn alls undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Aron skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar leiknum í kvöld sem var, eins og áður sagði, hans síðasti með Kiel. Landsliðsmaðurinn er sem kunnugt er á leið til Veszprém í Ungverjalandi. Aron varð alls fimm sinnum þýskur meistari með Kiel. Kiel tapaði ekki leik eftir áramót og vann 14 af 15 síðustu leikjum sínum í þýsku deildinni. Alfreð, Aron og félagar fengu alls 65 stig, tveimur meira en Rhein-Neckar Löwen sem vann fimm marka sigur, 27-32, á Geir Sveinssyni og lærisveinum hans í Magdeburg.Kiel vann 14 af síðustu 15 deildarleikjum sínum á tímabilinu.vísir/gettyAlexander Petersson lék ekki með Löwen í kvöld og Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Uwe Gensheimer var markahæstur í liði Ljónanna með níu mörk. Magdeburg endaði í 4. sæti deildarinnar en liðið tapaði þremur síðustu leikjum á tímabilinu. Dagur Sigurðsson stýrði Füchse Berlin í síðasta sinn í kvöld þegar Berlínarrefirnir töpuðu 29-32 fyrir Flensburg. Fuchse Berlin endaði í 7. sæti en Flensburg í því þriðja. Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk og Rúnar Kárason eitt þegar Hannover-Burgdorf tapaði 29-26 fyrir Melsungen á útivelli. Hamburg vann eins marks sigur á Gummersbach á heimavelli, 32-31. Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt marka Gummersbach. Sigurbergur Sveinsson lék ekki með Erlangen sem tapaði fyrir Lübbecke á útivelli, 28-23. Erlangen féll úr deildinni ásamt Minden, Friesenheim og Bietigheim.Filip Jicha, fyrirliði Kiel, lyftir skildinum góða.vísir/getty
Handbolti Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Fleiri fréttir Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Sjá meira