Payet bjargaði Frökkum með geggjuðu marki í opnunarleiknum Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. júní 2016 21:00 Dmitri Payet var aðalmaðurinn í kvöld. vísir/afp Frakkland hafði betur gegn Rúmeníu, 2-1, í opnunarleik Evrópumótsins í fótbolta í kvöld en leikurinn fór fram á Stade de France í Saint-Denis. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Oliver Giroud Frökkum yfir með skallamarki á 57. mínútu. Hann stökk upp samhliða rúmenska markverðinum Tatarusanu og stangaði boltann í netið eftir sendingu frá Dmitri Payet. Kannski hefði átt að dæma aukaspyrnu á Giroud sem fór með olnbogann í hendurnar á markverðinum áður en hann skallaði boltann í autt netið. Hann slapp með skrekkinn og Frakkar komnir í 1-0. Giroud hefur verið í miklum ham fyrir Frakka að undanförnu og skorað átta mörk í síðustu sex leikjum fyrir franska landsliðið. Á 65. mínútu fengu Rúmenar vítaspyrnu þegar Patrice Evra braut klaufalega af sér í teignum. Bogdan Stancu fór á punktinn og skoraði örugglega framhjá Hugo Lloris í markinu. Þegar allt stefndi í 1-1 jafntefli kom Dimitri Payet, leikmaður West Ham í ensku úrvalsdeildinni, gestgjöfunum til bjargar með algjörlega frábæru marki á 89. mínútu. Payet fékk sendingu fyrir utan teiginn frá N'Golo Kante og þrumaði boltanum hnitmiðað með vinstri fæti í samskeytin fjær. Algjörlega óverjandi og gæti verið eitt af mörkum keppninnar. Lokatölur, 2-1, og Frakkarnir byrja á sigri. Payet lagði upp fyrra markið, skoraði sigurmarkið og átti í heildina frábæran leik. Hann lagði upp átta færi fyrir félaga sína í leiknum en Giroud skoraði úr því sjötta sem hann lagði upp. EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Fleiri fréttir Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjá meira
Frakkland hafði betur gegn Rúmeníu, 2-1, í opnunarleik Evrópumótsins í fótbolta í kvöld en leikurinn fór fram á Stade de France í Saint-Denis. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Oliver Giroud Frökkum yfir með skallamarki á 57. mínútu. Hann stökk upp samhliða rúmenska markverðinum Tatarusanu og stangaði boltann í netið eftir sendingu frá Dmitri Payet. Kannski hefði átt að dæma aukaspyrnu á Giroud sem fór með olnbogann í hendurnar á markverðinum áður en hann skallaði boltann í autt netið. Hann slapp með skrekkinn og Frakkar komnir í 1-0. Giroud hefur verið í miklum ham fyrir Frakka að undanförnu og skorað átta mörk í síðustu sex leikjum fyrir franska landsliðið. Á 65. mínútu fengu Rúmenar vítaspyrnu þegar Patrice Evra braut klaufalega af sér í teignum. Bogdan Stancu fór á punktinn og skoraði örugglega framhjá Hugo Lloris í markinu. Þegar allt stefndi í 1-1 jafntefli kom Dimitri Payet, leikmaður West Ham í ensku úrvalsdeildinni, gestgjöfunum til bjargar með algjörlega frábæru marki á 89. mínútu. Payet fékk sendingu fyrir utan teiginn frá N'Golo Kante og þrumaði boltanum hnitmiðað með vinstri fæti í samskeytin fjær. Algjörlega óverjandi og gæti verið eitt af mörkum keppninnar. Lokatölur, 2-1, og Frakkarnir byrja á sigri. Payet lagði upp fyrra markið, skoraði sigurmarkið og átti í heildina frábæran leik. Hann lagði upp átta færi fyrir félaga sína í leiknum en Giroud skoraði úr því sjötta sem hann lagði upp.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Fleiri fréttir Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjá meira