Norður-Írar komnir á blað | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júní 2016 17:45 Gareth McAuley fagnar marki sínu. Vísir/Getty N-Írland bar sigurorð af Úkraínu með tveimur mörkum gegn engu í C-riðli EM 2016 í Lyon í dag. Þetta er fyrsti sigur Norður-Íra í lokakeppni EM frá upphafi en keppnin í Frakklandi er þeirra fyrsta í sögunni. Gareth McAuley kom N-Írlandi í 1-0 á 49. mínútu. Miðvörðurinn sterki stangaði þá aukaspyrnu Olivers Norwood í netið. Þetta var þriðja mark McAuleys í síðustu sex keppnisleikjum fyrir N-Írland. Úkraínumenn voru miklu meira með boltann en fundu engar leiðir í gegnum norður-írsku vörnina sem stóð sig vel í dag. Þá var Michael McGovern öruggur á milli stanganna. Þrátt fyrir að vera mun minna með boltann voru Norður-Írar hættulegri aðilinn í leiknum og þá sérstaklega í föstum leikatriðum. Það rigndi mikið í Lyon á meðan á leiknum stóð og eftir tæpan klukkutíma kom haglél, svo mikið að tékkneski dómarinn Pavel Královec þurfti að gera nokkurra mínútna hlé á leiknum. Úkraína sótti og sótti en skapaði sér ekki nógu góð færi til að skora. Það var svo varamaðurinn Niall McGinn sem gulltryggði sigur Norður-Íra þegar hann skoraði annað mark þeirra þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. McGinn fylgdi þá eftir skoti Stuart Dallas sem Andriy Pyatov varði. Lokatölur 2-0, N-Írlandi í vil. Norður-Írar eru nú komnir með þrjú stig í C-riðli en Úkraínumenn eru enn án stiga.Úkraína 0-1 N-Írland Enn 1-0 fyrir Norður-Írlandi gegn Úkraínu. Hér er markið sem kom á 49. mínútu. #EMÍsland https://t.co/hy9DZPE3EI— Síminn (@siminn) June 16, 2016 Úkraína 0-2 N-Írland Mark á 6. mínútu uppbótartíma! 2-0 fyrir Norður-Írlandi gegn Úkraínu. #EMÍsland https://t.co/2qN3s6MfBp— Síminn (@siminn) June 16, 2016 EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Enski boltinn Fleiri fréttir Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjá meira
N-Írland bar sigurorð af Úkraínu með tveimur mörkum gegn engu í C-riðli EM 2016 í Lyon í dag. Þetta er fyrsti sigur Norður-Íra í lokakeppni EM frá upphafi en keppnin í Frakklandi er þeirra fyrsta í sögunni. Gareth McAuley kom N-Írlandi í 1-0 á 49. mínútu. Miðvörðurinn sterki stangaði þá aukaspyrnu Olivers Norwood í netið. Þetta var þriðja mark McAuleys í síðustu sex keppnisleikjum fyrir N-Írland. Úkraínumenn voru miklu meira með boltann en fundu engar leiðir í gegnum norður-írsku vörnina sem stóð sig vel í dag. Þá var Michael McGovern öruggur á milli stanganna. Þrátt fyrir að vera mun minna með boltann voru Norður-Írar hættulegri aðilinn í leiknum og þá sérstaklega í föstum leikatriðum. Það rigndi mikið í Lyon á meðan á leiknum stóð og eftir tæpan klukkutíma kom haglél, svo mikið að tékkneski dómarinn Pavel Královec þurfti að gera nokkurra mínútna hlé á leiknum. Úkraína sótti og sótti en skapaði sér ekki nógu góð færi til að skora. Það var svo varamaðurinn Niall McGinn sem gulltryggði sigur Norður-Íra þegar hann skoraði annað mark þeirra þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. McGinn fylgdi þá eftir skoti Stuart Dallas sem Andriy Pyatov varði. Lokatölur 2-0, N-Írlandi í vil. Norður-Írar eru nú komnir með þrjú stig í C-riðli en Úkraínumenn eru enn án stiga.Úkraína 0-1 N-Írland Enn 1-0 fyrir Norður-Írlandi gegn Úkraínu. Hér er markið sem kom á 49. mínútu. #EMÍsland https://t.co/hy9DZPE3EI— Síminn (@siminn) June 16, 2016 Úkraína 0-2 N-Írland Mark á 6. mínútu uppbótartíma! 2-0 fyrir Norður-Írlandi gegn Úkraínu. #EMÍsland https://t.co/2qN3s6MfBp— Síminn (@siminn) June 16, 2016
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Enski boltinn Fleiri fréttir Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjá meira