Helena hrökk í gang og stelpurnar tryggðu sér silfur á fimmtu leikunum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2017 12:06 Helena Sverrisdóttir var nálægt þrennunni í dag með 21 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Vísir/Stefán Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tryggði sér silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum í San Marinó eftir fimmtán stiga sigur á Lúxemborg í lokaleik liðsins á leikunum. Ísland vann leikinn 59-44 en þetta var óopinber úrslitaleikur um silfrið þar sem Malta hafði þegar tryggt sér gullverðlaunin með sínum þriðja sigri í röð í gær. Helena Sverrisdóttir minnti á sig og var með 21 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar en Emelía Ósk Gunnarsdóttir var næststigahæst með 10 stig. Íslenska liðið hafði ekki spilað í hálft ár fyrir þessa leiki á Smáþjóðaleikunum og lykilmenn eins og Helena Sverrisdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir hafa allar ekkert verið með liðinu í meira en fimmtán mánuði. Það sást vel á mjög slökum fyrsta leik en liðið hefur síðan spilað betur með hverjum leik. Landsliðsfyrirliðinn Helena Sverrisdóttir lék ekki í tapinu á móti Möltu í fyrsta leik vegna meiðsla og klikkaði síðan á öllum átta skotum sínum utan af velli í öðrum leiknum á móti Kýpur. Helena fann aftur á móti taktinn í dag þar sem hún hitti úr 5 af 9 skotum sínum og öllum sjö vítunum. Hún var að vinna sín fimmtu silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum í dag. Keflvíkingurinn Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur staðið sig vel á mótinu en hún skoraði 10 stig í þessum leik sem var hennar fyrsti landsleikur í byrjunarliði. Íslenska liðið komst í 9-0 í byrjun leiksins, var 13-9 yfir eftir fyrsta leikhlutann, vann síðan annan leikhlutann 18-10 og var tólf stigum yfir í hálfleik, 31-19. Íslenska liðið var síðan með gott tak á leiknum í seinni hálfleiknum og sigurinn var aldrei í mikilli hættu.Atkvæðamestar í íslenska liðinu í leiknum: Helena Sverrisdóttir 21 stig, 7 stoðsendingar, 7 fráköst Emelía Ósk Gunnarsdóttir 10 stig Sara Rún Hinriksdóttir 6 stig, 6 fráköst Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 5 stig, 10 fráköst Hildur Björg Kjartansdóttir 5 stig, 8 fráköst Berglind Gunnarsdóttir 5 stig Sandra Lind Þrastardóttir 5 stig Thelma Dís Ágústsdóttir 2 stigÍslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleikum í gegnum tíðina: 1989 á Kýpur - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1991 í Andorra - bronsverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1993 á Möltu - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1995 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1997 á Íslandi - gullverðlaun 2003 á Möltu - bronsverðlaun (Malta vann gull) 2005 í Andorra - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2009 á Kýpur - silfurverðlaun (Malta vann gull) 2013 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2015 á Íslandi - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2017 í San Marínó - silfurverðlaun (Malta vann gull)Samantekt hjá íslenska kvennalandsliðinu: Gull - 1 - (1997) Silfur - 8 - (1989, 1993, 1995, 2005, 2009, 2013, 2015, 2017) Brons - 2 - (1991, 2003)Flest gullverðlaun: 7 - Lúxemborg (1989, 1991, 1993, 1995, 2005, 2013, 2015) 3 - Malta (2003, 2009, 2017) 1 - Ísland (1997) Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims Handbolti Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Körfubolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Jenas missir annað starf Fótbolti Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Í beinni: Tindastóll - Álftanes | Tvö heitustu lið landsins Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Leik lokið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Í beinni: Keflavík - Grindavík | Stórleikur á Sunnubrautinni Leik lokið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Leik lokið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Í beinni: Tindastóll - Álftanes | Tvö heitustu lið landsins Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Sjá meira
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tryggði sér silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum í San Marinó eftir fimmtán stiga sigur á Lúxemborg í lokaleik liðsins á leikunum. Ísland vann leikinn 59-44 en þetta var óopinber úrslitaleikur um silfrið þar sem Malta hafði þegar tryggt sér gullverðlaunin með sínum þriðja sigri í röð í gær. Helena Sverrisdóttir minnti á sig og var með 21 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar en Emelía Ósk Gunnarsdóttir var næststigahæst með 10 stig. Íslenska liðið hafði ekki spilað í hálft ár fyrir þessa leiki á Smáþjóðaleikunum og lykilmenn eins og Helena Sverrisdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir hafa allar ekkert verið með liðinu í meira en fimmtán mánuði. Það sást vel á mjög slökum fyrsta leik en liðið hefur síðan spilað betur með hverjum leik. Landsliðsfyrirliðinn Helena Sverrisdóttir lék ekki í tapinu á móti Möltu í fyrsta leik vegna meiðsla og klikkaði síðan á öllum átta skotum sínum utan af velli í öðrum leiknum á móti Kýpur. Helena fann aftur á móti taktinn í dag þar sem hún hitti úr 5 af 9 skotum sínum og öllum sjö vítunum. Hún var að vinna sín fimmtu silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum í dag. Keflvíkingurinn Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur staðið sig vel á mótinu en hún skoraði 10 stig í þessum leik sem var hennar fyrsti landsleikur í byrjunarliði. Íslenska liðið komst í 9-0 í byrjun leiksins, var 13-9 yfir eftir fyrsta leikhlutann, vann síðan annan leikhlutann 18-10 og var tólf stigum yfir í hálfleik, 31-19. Íslenska liðið var síðan með gott tak á leiknum í seinni hálfleiknum og sigurinn var aldrei í mikilli hættu.Atkvæðamestar í íslenska liðinu í leiknum: Helena Sverrisdóttir 21 stig, 7 stoðsendingar, 7 fráköst Emelía Ósk Gunnarsdóttir 10 stig Sara Rún Hinriksdóttir 6 stig, 6 fráköst Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 5 stig, 10 fráköst Hildur Björg Kjartansdóttir 5 stig, 8 fráköst Berglind Gunnarsdóttir 5 stig Sandra Lind Þrastardóttir 5 stig Thelma Dís Ágústsdóttir 2 stigÍslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleikum í gegnum tíðina: 1989 á Kýpur - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1991 í Andorra - bronsverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1993 á Möltu - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1995 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1997 á Íslandi - gullverðlaun 2003 á Möltu - bronsverðlaun (Malta vann gull) 2005 í Andorra - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2009 á Kýpur - silfurverðlaun (Malta vann gull) 2013 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2015 á Íslandi - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2017 í San Marínó - silfurverðlaun (Malta vann gull)Samantekt hjá íslenska kvennalandsliðinu: Gull - 1 - (1997) Silfur - 8 - (1989, 1993, 1995, 2005, 2009, 2013, 2015, 2017) Brons - 2 - (1991, 2003)Flest gullverðlaun: 7 - Lúxemborg (1989, 1991, 1993, 1995, 2005, 2013, 2015) 3 - Malta (2003, 2009, 2017) 1 - Ísland (1997)
Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims Handbolti Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Körfubolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Jenas missir annað starf Fótbolti Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Í beinni: Tindastóll - Álftanes | Tvö heitustu lið landsins Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Leik lokið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Í beinni: Keflavík - Grindavík | Stórleikur á Sunnubrautinni Leik lokið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Leik lokið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Í beinni: Tindastóll - Álftanes | Tvö heitustu lið landsins Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Sjá meira