Golf Sex úr Ryder-liði Evrópu á Abu Dhabi mótinu Það verður mikill stjörnufans á Abu Dhabi golmótinu sem fram fer í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum um helgina, en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu á laugardags- og sunnudagsmorgun. Golf 17.1.2007 16:57 Norman dustar rykið af kylfunum “Hvíti hákarlinn” eða hinn gamalreyndi ástralski kylfingur Greg Norman hefur boðað þáttöku sína á Dubai-Classic mótinu í golfi sem fram fer í næsta mánuði. Tilkynning Norman kemur mikið á óvart, enda hefur hann að mestu einbeitt sér að eigin viðskiptum á síðustu misserum og lítið sem ekkert keppt á opinberum vettvangi. Golf 15.1.2007 19:45 16 ára gutti komst í gegnum niðurskurð Tadd Fujikawa, 16 ára strákur frá Hawaai, varð í gær næst yngsti kylfingurinn frá upphafi til að komast í gegnum niðurskurð á PGA-mótaröðinni í golfi. Fujikawa lék þá á þremur höggum undir lágmarkinu á Sony-meistaramótinu í Honolulu og skyggði algjörlega á Michelle Wie, stöllu sína frá Hawaii, sem var langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Golf 13.1.2007 14:45 Wie á ekki möguleika í karlana Ástralinn Stuart Appleby segir að ungstirnið Michelle Wie eigi ekki möguleika á að keppa á karlamótum og segir allt of snemmt fyrir hana að reyna fyrir sér á þeim vettvangi. Wie tekur þátt í sínu 13. móti um næstu helgi sem fram fer á Havaí. Golf 10.1.2007 15:44 Tiger verður pabbi á árinu Tiger Woods hafði tvöfalda ástæðu til að gleðjast í fyrradag því auk þess að halda upp á 31 árs afmæli sitt tilkynnti hann á heimasíðu sinni að hann ætti von á barni með eiginkonu sinni Elin. Tiger segir árið rétt er liðið hafa verið það erfiðasta á sinni ævi. Golf 1.1.2007 13:00 Persónuleg vandamál hrjá Singh Ekki er langt síðan kylfingurinn Vijay Singh var fyrir ofan Tiger Woods á heimslistanum í golfi eftir að hafa unnið 17 mót á árunum 2003-2005. Á síðustu misserum hefur Singh horfið af sjónarsviðinu, vegna þess sem hann sjálfur kallar “persónuleg vandamál.” Golf 29.12.2006 20:15 Tiger: Af hverju vann ekki Federer? Kylfingurinn Tiger Woods er steinhissa á að hann skuli hafa verið tekinn framyfir tenniskappann Roger Federer sem íþróttamaður ársins að mati AP fréttastofunnar. Kjör AP, sem þykir með þeim virtari í íþróttaheiminum, var gert opinbert í gær. Golf 27.12.2006 14:15 Wie fer í háskóla Kvennakylfingurinn Michelle Wie hefur tilkynnt að hún hafi fengið inngöngu í Stanford-háskólann í Bandaríkjunum og hefji þar nám næsta haust, eftir að hún útskrifast úr menntaskóla. Margir bjuggust við því að Wie myndi einbeita sér að golf-íþróttinni eftir menntaskóla en hún ákvað sjálf að setja menntun í fyrsta sætið. Golf 22.12.2006 21:00 Woosnam íhugaði að segja af sér Ian Woosnam, fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-keppninni fyrr á þessu ári, segist hafa íhugað að segja af sér eftir að danski kylfingurinn Thomas Bjorn gagnrýndi hann harðlega fyrir að velja sig ekki í lið Evrópu. Golf 22.12.2006 15:15 Ætlar að skáka Tiger Woods Suður-Afríkubúinn Ernie Els hefur sett í gang þriggja ára markmið til að skáka Tiger Woods. Woods er langefstur á heimslista kylfinga þar sem Els situr í fimmta sæti. Golf 21.12.2006 00:01 Woods sigraði á mótinu sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sigraði í nótt á Target World mótinu í golfi sem fram fór í Kaliforníu, en hann skipuleggur mótið sjálfur. Woods lauk keppni á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Ástralanum Geoff Ogilvy. Aðeins 16 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sigurinn sá annar á þremur árum hjá Woods á mótinu. Hann gaf verðlaunaféð allt til góðgerðamála. Golf 18.12.2006 13:39 Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. Golf 17.12.2006 17:31 Birgir Leifur lauk keppni á pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á SA Airlines mótinu í golfi í morgun á sléttu pari. Hann lék lokahring sinn á mótinu á þremur höggum yfir pari og endaði í 82. sæti á mótinu sem var partur af Evrópumótaröðinni og verður það að teljast mjög góður árangur á þessu sterka móti. Golf 17.12.2006 13:47 Birgir Leifur í þremur undir pari Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila vel á SA Airlines mótinu í golfi í Portl Elizabeth í Suður-Afríku, en hann lauk þriðja hringnum í morgun á 70 höggum eða tveimur undir pari. Hann er því á samtals þremur höggum undir pari á mótinu og er í kring um 57. sæti í mótinu. Golf 16.12.2006 13:49 Sjöland efstur - Birgir Leifur áfram Sænski kylfingurinn Patrik Sjöland er í efsta sæti á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku þegar tveimur fyrstu hringjunum er lokið. Sjöland er samtals á 12 höggum undir pari eftir að hann lék á 8 undir í dag. Birgir Leifur tryggði sér naumlega áframhaldandi keppni eftir góðan leik í dag. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu sem halda áfram í fyrramálið. Golf 15.12.2006 16:15 Birgir Leifur í góðri stöðu Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með annan fótinn í gegn um niðurskurðinn á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk öðrum hring í dag á þremur höggum undir pari og er því á höggi undir pari samanlagt. Hann er sem stendur í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum þegar skammt er eftir af öðrum hring og komast 70 efstu menn áfram á mótinu. Golf 15.12.2006 15:44 Birgir Leifur á tveimur yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta keppnisdeginum á SA Airways mótinu í golfi á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari í dag. Mótið fer fram í Suður-Afríku og er hluti af evrópsku mótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu næstu daga. Golf 14.12.2006 15:32 Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit. Golf 11.12.2006 19:51 Quiros sigraði á Dunhill mótinu Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn. Golf 10.12.2006 14:59 Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk keppni í dag á þremur höggum yfir pari eða 75 höggum. Birgir kemst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu og lýkur keppni á 8 höggum yfir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. Golf 8.12.2006 17:13 Birgir á pari á fyrstu 9 holunum Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú leikið fyrri 9 holurnar á öðrum hringnum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku og er á pari vallar. Hann er því enn á fimm höggum yfir pari og þarf að leika fullkomlega á síðari 9 holunum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. Golf 8.12.2006 14:07 Birgir Leifur á fimm yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku í dag en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Birgir lauk fyrsta hringnum á 77 höggum eða 5 yfir pari og er því á meðal neðstu manna á móginu. Birgir verður því að leika óaðfinnanlega á morgun ef hann á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu þar sem 70 kylfingar halda áfram keppni. Golf 7.12.2006 15:06 Birgir Leifur í beinni á Sýn í fyrramálið Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér fyrir skömmu keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni í golfi og hann verður í eldlínunni innan um marga af bestu kylfingum heims á tveimur mótum sem haldin verða í Suður-Afríku fyrir jól. Fyrra mótið hefst í fyrramálið og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Golf 6.12.2006 15:14 Enn fellur Michelle Wie úr keppni Bandaríska undrabarnið Michelle Wie náði sér ekki á strik á Casino World Open mótinu í japan sem nú stendur yfir og komst ekki í gegn um niðurskurð á mótinu. Wie lék fyrstu tvo hringina á 17 höggum yfir pari og endaði í næst síðasta sæti. Hún hefur því fallið úr keppni á 11 af 12 karlamótum sem hún hefur tekið þátt í. Wie er aðeins 17 ára gömul en er staðráðin í að halda áfram að reyna sig með körlunum þrátt fyrir mótlætið. Golf 24.11.2006 13:18 Enn einn sigurinn hjá Tiger Woods Tiger Woods vann í nótt sinn 7. sigur á Hawai mótinu í golfi þegar hann lauk keppni á átta höggum undir pari og sá við sínum helsta keppinaut Jim Furyk sem var þar tveimur höggum á eftir. Woods lék lokahringinn á sex undir pari en leiknar voru 36 holur. Golf 23.11.2006 14:29 Harrington hafði betur í bráðabana Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum. Golf 19.11.2006 14:15 Þrautagöngu Birgis loksins lokið Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í gær fyrstur íslenskra kylfinga í karlaflokki til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Golf 17.11.2006 13:30 B&L og GR semja um BMW mótaröðina Bílaumboðið B&L og GR gerðu nýlega með sér samstarfssamning um að GR sjái um framkvæmd alþjóðlegu mótaraðarinnar BMW Golf Cup International hér á landi. Samningurinn er til þriggja ára og er jafnframt sá fyrsti sem samningsaðilar gera með sér. Golf 16.11.2006 22:24 Birgir Leifur á Evrópumótaröðina Birgir Leifur Hafþórsson náði í dag langþráðum áfanga þegar hann varð fyrsti íslendingurinn í karlaflokki til að vinna sér sæti á Evrópumótaröð atvinnukylfinga á næsta ári. Birgir lauk keppni á þremur höggum undir pari á sjötta og síðasta hringnum á lokaúrtökumótinu á Spáni og verður því örugglega á meðal 30 efstu manna, sem tryggði sæti á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Golf 16.11.2006 15:32 Birgir Leifur náði sér ekki á strik Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á 5. hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék hringinn á 3 höggum yfir pari í dag og er því samtals á 2 yfir pari á mótinu. Hann er því í 45.-63. sæti á mótinu, en 30 efstu kylfingarnir tryggja sig á Evrópumótaröðina eftir 6. hringinn. Golf 15.11.2006 16:02 « ‹ 172 173 174 175 176 177 178 … 178 ›
Sex úr Ryder-liði Evrópu á Abu Dhabi mótinu Það verður mikill stjörnufans á Abu Dhabi golmótinu sem fram fer í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum um helgina, en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu á laugardags- og sunnudagsmorgun. Golf 17.1.2007 16:57
Norman dustar rykið af kylfunum “Hvíti hákarlinn” eða hinn gamalreyndi ástralski kylfingur Greg Norman hefur boðað þáttöku sína á Dubai-Classic mótinu í golfi sem fram fer í næsta mánuði. Tilkynning Norman kemur mikið á óvart, enda hefur hann að mestu einbeitt sér að eigin viðskiptum á síðustu misserum og lítið sem ekkert keppt á opinberum vettvangi. Golf 15.1.2007 19:45
16 ára gutti komst í gegnum niðurskurð Tadd Fujikawa, 16 ára strákur frá Hawaai, varð í gær næst yngsti kylfingurinn frá upphafi til að komast í gegnum niðurskurð á PGA-mótaröðinni í golfi. Fujikawa lék þá á þremur höggum undir lágmarkinu á Sony-meistaramótinu í Honolulu og skyggði algjörlega á Michelle Wie, stöllu sína frá Hawaii, sem var langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Golf 13.1.2007 14:45
Wie á ekki möguleika í karlana Ástralinn Stuart Appleby segir að ungstirnið Michelle Wie eigi ekki möguleika á að keppa á karlamótum og segir allt of snemmt fyrir hana að reyna fyrir sér á þeim vettvangi. Wie tekur þátt í sínu 13. móti um næstu helgi sem fram fer á Havaí. Golf 10.1.2007 15:44
Tiger verður pabbi á árinu Tiger Woods hafði tvöfalda ástæðu til að gleðjast í fyrradag því auk þess að halda upp á 31 árs afmæli sitt tilkynnti hann á heimasíðu sinni að hann ætti von á barni með eiginkonu sinni Elin. Tiger segir árið rétt er liðið hafa verið það erfiðasta á sinni ævi. Golf 1.1.2007 13:00
Persónuleg vandamál hrjá Singh Ekki er langt síðan kylfingurinn Vijay Singh var fyrir ofan Tiger Woods á heimslistanum í golfi eftir að hafa unnið 17 mót á árunum 2003-2005. Á síðustu misserum hefur Singh horfið af sjónarsviðinu, vegna þess sem hann sjálfur kallar “persónuleg vandamál.” Golf 29.12.2006 20:15
Tiger: Af hverju vann ekki Federer? Kylfingurinn Tiger Woods er steinhissa á að hann skuli hafa verið tekinn framyfir tenniskappann Roger Federer sem íþróttamaður ársins að mati AP fréttastofunnar. Kjör AP, sem þykir með þeim virtari í íþróttaheiminum, var gert opinbert í gær. Golf 27.12.2006 14:15
Wie fer í háskóla Kvennakylfingurinn Michelle Wie hefur tilkynnt að hún hafi fengið inngöngu í Stanford-háskólann í Bandaríkjunum og hefji þar nám næsta haust, eftir að hún útskrifast úr menntaskóla. Margir bjuggust við því að Wie myndi einbeita sér að golf-íþróttinni eftir menntaskóla en hún ákvað sjálf að setja menntun í fyrsta sætið. Golf 22.12.2006 21:00
Woosnam íhugaði að segja af sér Ian Woosnam, fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-keppninni fyrr á þessu ári, segist hafa íhugað að segja af sér eftir að danski kylfingurinn Thomas Bjorn gagnrýndi hann harðlega fyrir að velja sig ekki í lið Evrópu. Golf 22.12.2006 15:15
Ætlar að skáka Tiger Woods Suður-Afríkubúinn Ernie Els hefur sett í gang þriggja ára markmið til að skáka Tiger Woods. Woods er langefstur á heimslista kylfinga þar sem Els situr í fimmta sæti. Golf 21.12.2006 00:01
Woods sigraði á mótinu sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sigraði í nótt á Target World mótinu í golfi sem fram fór í Kaliforníu, en hann skipuleggur mótið sjálfur. Woods lauk keppni á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Ástralanum Geoff Ogilvy. Aðeins 16 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sigurinn sá annar á þremur árum hjá Woods á mótinu. Hann gaf verðlaunaféð allt til góðgerðamála. Golf 18.12.2006 13:39
Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. Golf 17.12.2006 17:31
Birgir Leifur lauk keppni á pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á SA Airlines mótinu í golfi í morgun á sléttu pari. Hann lék lokahring sinn á mótinu á þremur höggum yfir pari og endaði í 82. sæti á mótinu sem var partur af Evrópumótaröðinni og verður það að teljast mjög góður árangur á þessu sterka móti. Golf 17.12.2006 13:47
Birgir Leifur í þremur undir pari Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila vel á SA Airlines mótinu í golfi í Portl Elizabeth í Suður-Afríku, en hann lauk þriðja hringnum í morgun á 70 höggum eða tveimur undir pari. Hann er því á samtals þremur höggum undir pari á mótinu og er í kring um 57. sæti í mótinu. Golf 16.12.2006 13:49
Sjöland efstur - Birgir Leifur áfram Sænski kylfingurinn Patrik Sjöland er í efsta sæti á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku þegar tveimur fyrstu hringjunum er lokið. Sjöland er samtals á 12 höggum undir pari eftir að hann lék á 8 undir í dag. Birgir Leifur tryggði sér naumlega áframhaldandi keppni eftir góðan leik í dag. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu sem halda áfram í fyrramálið. Golf 15.12.2006 16:15
Birgir Leifur í góðri stöðu Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með annan fótinn í gegn um niðurskurðinn á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk öðrum hring í dag á þremur höggum undir pari og er því á höggi undir pari samanlagt. Hann er sem stendur í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum þegar skammt er eftir af öðrum hring og komast 70 efstu menn áfram á mótinu. Golf 15.12.2006 15:44
Birgir Leifur á tveimur yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta keppnisdeginum á SA Airways mótinu í golfi á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari í dag. Mótið fer fram í Suður-Afríku og er hluti af evrópsku mótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu næstu daga. Golf 14.12.2006 15:32
Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit. Golf 11.12.2006 19:51
Quiros sigraði á Dunhill mótinu Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn. Golf 10.12.2006 14:59
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk keppni í dag á þremur höggum yfir pari eða 75 höggum. Birgir kemst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu og lýkur keppni á 8 höggum yfir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. Golf 8.12.2006 17:13
Birgir á pari á fyrstu 9 holunum Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú leikið fyrri 9 holurnar á öðrum hringnum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku og er á pari vallar. Hann er því enn á fimm höggum yfir pari og þarf að leika fullkomlega á síðari 9 holunum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. Golf 8.12.2006 14:07
Birgir Leifur á fimm yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku í dag en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Birgir lauk fyrsta hringnum á 77 höggum eða 5 yfir pari og er því á meðal neðstu manna á móginu. Birgir verður því að leika óaðfinnanlega á morgun ef hann á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu þar sem 70 kylfingar halda áfram keppni. Golf 7.12.2006 15:06
Birgir Leifur í beinni á Sýn í fyrramálið Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér fyrir skömmu keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni í golfi og hann verður í eldlínunni innan um marga af bestu kylfingum heims á tveimur mótum sem haldin verða í Suður-Afríku fyrir jól. Fyrra mótið hefst í fyrramálið og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Golf 6.12.2006 15:14
Enn fellur Michelle Wie úr keppni Bandaríska undrabarnið Michelle Wie náði sér ekki á strik á Casino World Open mótinu í japan sem nú stendur yfir og komst ekki í gegn um niðurskurð á mótinu. Wie lék fyrstu tvo hringina á 17 höggum yfir pari og endaði í næst síðasta sæti. Hún hefur því fallið úr keppni á 11 af 12 karlamótum sem hún hefur tekið þátt í. Wie er aðeins 17 ára gömul en er staðráðin í að halda áfram að reyna sig með körlunum þrátt fyrir mótlætið. Golf 24.11.2006 13:18
Enn einn sigurinn hjá Tiger Woods Tiger Woods vann í nótt sinn 7. sigur á Hawai mótinu í golfi þegar hann lauk keppni á átta höggum undir pari og sá við sínum helsta keppinaut Jim Furyk sem var þar tveimur höggum á eftir. Woods lék lokahringinn á sex undir pari en leiknar voru 36 holur. Golf 23.11.2006 14:29
Harrington hafði betur í bráðabana Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum. Golf 19.11.2006 14:15
Þrautagöngu Birgis loksins lokið Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í gær fyrstur íslenskra kylfinga í karlaflokki til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Golf 17.11.2006 13:30
B&L og GR semja um BMW mótaröðina Bílaumboðið B&L og GR gerðu nýlega með sér samstarfssamning um að GR sjái um framkvæmd alþjóðlegu mótaraðarinnar BMW Golf Cup International hér á landi. Samningurinn er til þriggja ára og er jafnframt sá fyrsti sem samningsaðilar gera með sér. Golf 16.11.2006 22:24
Birgir Leifur á Evrópumótaröðina Birgir Leifur Hafþórsson náði í dag langþráðum áfanga þegar hann varð fyrsti íslendingurinn í karlaflokki til að vinna sér sæti á Evrópumótaröð atvinnukylfinga á næsta ári. Birgir lauk keppni á þremur höggum undir pari á sjötta og síðasta hringnum á lokaúrtökumótinu á Spáni og verður því örugglega á meðal 30 efstu manna, sem tryggði sæti á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Golf 16.11.2006 15:32
Birgir Leifur náði sér ekki á strik Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á 5. hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék hringinn á 3 höggum yfir pari í dag og er því samtals á 2 yfir pari á mótinu. Hann er því í 45.-63. sæti á mótinu, en 30 efstu kylfingarnir tryggja sig á Evrópumótaröðina eftir 6. hringinn. Golf 15.11.2006 16:02