Finnar bjóða Íslendinga velkomna Atli Ísleifsson skrifar 11. júní 2020 10:36 Frá finnsku höfuðborginni Helsinki. Getty
Finnsk stjórnvöld hafa opnað á ferðir einstaklinga frá sex löndum til Finnlands frá og með 15. júní næstkomandi. Ísland er eitt þeirra ríkja, en athygli vekur að grannlandið Svíþjóð er ekki á lista. Fulltrúar finnsku ríkisstjórnarflokkanna hafa setið á fundi í morgun og samið um hvernig skuli slaka á lokun landsins og sömuleiðis samkomubanni. YLE segir frá því að frá og með næsta mánudegi verði landamærin opnuð fyrir fólk frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Danmörku og Íslandi. Reglum um sóttkví fyrir fólk sem kemur frá þessum löndum verður sömuleiðis aflétt. Engar breytingar verða hins vegar gerðar fyrir ferðir einstakliga frá Svíþjóð. „Því miður er ástand faraldursins í Svíþjóð svo slæmt að verið getum enn ekki slakað á hömlunum varðandi Svíþjóð. Svíþjóð er enn mjög mikilvægt fyrir okkur og við munum slaka á takmörkunum eins fljótt og hægt er,“ sagði innanríkisráðherrann Maria Ohisalo. Vissar undantekningar gilda þó varðandi ferðir fólks frá Svíþjóð. Þannig mega einstaklingar í Svíþjóð koma til Finnlands eigi þeir fasteign þar. Sömuleiðis má fólk í Svíþjóð koma til landsins eigi þeir í ástarsambandi við einstakling í Finnlandi. Ohisalo segir að tilkynnt verði um frekari tilslakanir að tveimur vikum liðnum.
Finnland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðalög Íslendingar erlendis Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Kennaraverkfalli frestað Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Fleiri fréttir Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Sjá meira