Theódór Elmar klár í slaginn með KR Sindri Sverrisson skrifar 2. júlí 2021 09:57 Theódór Elmar Bjarnason er orðinn leikmaður KR á nýjan leik. kr.is Theódór Elmar Bjarnason verður með KR þegar liðið mætir KA í Pepsi Max-deildinni í fótbolta á mánudagskvöld. Elmar hefur æft með KR undanfarið og í dag greindi félagið frá því að samningar hefðu náðst um að hann spili með KR í sumar. Elmar, sem er 34 ára, klæðist þar með KR-treyjunni að nýju eftir að hafa alist upp hjá félaginu og leikið með því til ársins 2004 þegar hann var seldur til Celtic í Skotlandi. Á löngum ferli sínum sem atvinnumaður hefur Elmar leikið í Skotlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Tyrklandi og Grikklandi. Elmar lék síðast með liði Lamia í grísku úrvalsdeildinni, fram í miðjan maí. Hann á að baki 41 A-landsleik og var í hópnum sem spilaði á EM í Frakklandi 2016, þar sem hann lagði meðal annars upp sigurmarkið gegn Austurríki eins og frægt er. Elmar og Kjartan Henry Finnbogason, sem sneri einnig heim úr atvinnumennsku í byrjun sumars, sameina því krafta sína á ný eftir að hafa báðir byrjað atvinnumannaferil sinn hjá Celtic á sínum tíma.
Elmar hefur æft með KR undanfarið og í dag greindi félagið frá því að samningar hefðu náðst um að hann spili með KR í sumar. Elmar, sem er 34 ára, klæðist þar með KR-treyjunni að nýju eftir að hafa alist upp hjá félaginu og leikið með því til ársins 2004 þegar hann var seldur til Celtic í Skotlandi. Á löngum ferli sínum sem atvinnumaður hefur Elmar leikið í Skotlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Tyrklandi og Grikklandi. Elmar lék síðast með liði Lamia í grísku úrvalsdeildinni, fram í miðjan maí. Hann á að baki 41 A-landsleik og var í hópnum sem spilaði á EM í Frakklandi 2016, þar sem hann lagði meðal annars upp sigurmarkið gegn Austurríki eins og frægt er. Elmar og Kjartan Henry Finnbogason, sem sneri einnig heim úr atvinnumennsku í byrjun sumars, sameina því krafta sína á ný eftir að hafa báðir byrjað atvinnumannaferil sinn hjá Celtic á sínum tíma. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
KR Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Handbolti Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Handbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira