Sjálfsmark frá Zlatan og tvö rauð spjöld í sex marka leik Arnar Geir Halldórsson skrifar 23. október 2021 20:51 Allt í öllu í kvöld. vísir/Getty Síðasti leikur dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni var viðureign Bologna og AC Milan og er óhætt að segja að áhorfendur hafi fengið allt fyrir peninginn.
Rafael Leao kom gestunum frá Milanó yfir snemma leiks eftir stoðsendingu Zlatan Ibrahimovic. Á 20.mínútu fékk Adama Soumaoro, varnarmaður Bologna, að líta rauða spjaldið. Davide Calabria kom AC Milan í 0-2 fyrir leikhlé og því fóru gestirnir manni fleiri og með tveggja marka forystu í leikhléið. Heimamönnum barst hjálp úr óvæntri átt snemma í síðari hálfleik þegar Zlatan Ibrahimovic setti boltann í eigið net. Sjálfsmark frá Svíanum markheppna og Bologna komið inn í leikinn. Einum færri tókst Bologna að jafna metin því Musa Barrow skoraði á 52.mínútu og staðan orðin 2-2. Eftir klukkutíma leik fékk Roberto Soriano, miðjumaður Bologna, að líta rauða spjaldið og heimamenn því orðnir tveimur mönnum færri. Það tók AC Milan drjúgan tíma að nýta sér liðsmuninn en það hafðist þó því Ismael Bennacer kom AC Milan í 2-3 á 84.mínútu og það var svo Zlatan sjálfur sem átti lokaorðið, nú með því að setja boltann í mark andstæðinganna og tryggði þar með AC Milan 2-4 sigur.
Ítalski boltinn Mest lesið Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Handbolti Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Handbolti Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Steinlágu á móti neðsta liðinu Handbolti Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Þór Þ. 124-82 | Þórsarar kjöldregnir í Garðabænum Körfubolti Fleiri fréttir Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern AC Milan aftur á sigurbraut Mark dæmt af Elíasi en liðið upp um fjögur sæti Þrenna og vítaþrenna í leikjum dagsins Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Börsungar töpuðu óvænt á heimavelli Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ Sjá meira