Leit hafin að þátttakendum í aðra seríu af Fyrsta blikinu Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Ása Ninna Pétursdóttir skrifa 5. nóvember 2021 15:12 Ef þú ert tuttugu ára og eldri getur þú freistað þess að sækja um í annarri seríu stefnumótaþáttanna Fyrsta blikið á Stöð 2. Íris Dögg Einarsdóttir „Ef þú hefur náð tuttugu ára aldri og ert í leit að ástinni og ævintýrum, þá erum við að leita að þér,“ segir í auglýsingu frá aðstandendum stefnumótaþáttanna Fyrsta blikið.
Búið að opna fyrir umsóknir Í dag opna umsóknir fyrir seríu tvö af þessum íslensku stefnumótaþáttum en fyrsta serían var sýnd á Stöð 2 nú fyrr í haust. Í þáttunum fá áhorfendur að kynnast einhleypu fólki á öllum aldri sem eru í leit að ástinni og ævintýrum. Þátttakendum er kynnst meðal annars í gegnum skemmtileg og einlæg viðtöl og í hverjum þætti er fólk svo parað saman á blint rómantískt stefnumót á fallegum veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Lúðvík Páll framleiðandi þáttanna segist nú þegar finna fyrir miklum áhuga fyrir seríu tvö og hann sé mjög spenntur fyrir því að byrja ævintýrið aftur. „Við erum mjög þakklát fyrir góðar viðtökur á seríu eitt og það sem gladdi okkur hvað mest var hvað þátturinn virtist höfða til breiðs hóps. Ég hugsa að fólk hafi fljótt áttað sig á því að við vorum ekki að gera vandræðalegt sjónvarp heldur alvöru mannlífsþátt, ..segir Lúðvík Páll Lúðvíksson framleiðandi þáttanna. Umsóknarfrestur til 15. nóvember Umsóknarfresturinn er til 15. nóvember og fyrir áhugasama er hægt að sækja um HÉR. Geta allir sótt um eða eruð þið að leita eftir einhverju sérstöku? „Já, næstum. Eða allir sem eru tuttugu ára og eldri og eru í leit að ástinni. Við erum að leita eftir fólki á öllum aldri og bara allskonar áhugaverðu fólki.“ Lúðvík segist nú þegar finna fyrir miklum áhuga fyrir seríu tvö og eðlilegt að fólk hafi margar spurningar varðandi ferlið og þátttökuna. „Fólki er velkomið að senda okkur fyrirspurnir á Instagram síðu Fyrsta bliksins en þar er líka hægt að fylgjast með ferlinu sem er framundan, skemmtilegar klippur og slíkt. Svo er líka hægt að hafa samband í gegnum netfangið [email protected].“ Í lokaþætti fyrstu seríu var sýnt frá stefnumóti þeirra Helgu og Garðars og er óhætt að segja að amor hafi bankað hressilega upp á þar á bæ. Garðar lýsti upplifun sinni af þátttökunni við það að vinna í lottóinu. Hér fyrir neðan er hægt að sjá viðtal við parið í Íslandi í dag. Hægt að er sjá alla umfjöllun Vísis um þættina, ásamt myndbandsbrotum hér.
Fyrsta blikið Bíó og sjónvarp Ástin og lífið Tengdar fréttir „Ef þú elskar sjóinn þá elskarðu mig“ Fjölmiðlakonan Sigga Lund var ein af þeim sem fór á blint stefnumót í fjórða þætti fyrsta bliksins en hún og bókasafnsfræðingurinn Jón Tryggvi áttu svo sannarlega nokkra gullmola þetta kvöld. 22. september 2021 19:47 Mest lesið Einhleypan: „Veit ekki hvort ég kunni ekki að skammast mín“ Makamál Einhleypan: Fangavörður, einlæg og skemmtileg Makamál Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi Makamál Einhleypan: „Borða, ríða, elska“ Makamál „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Makamál Sönn íslensk makamál: Gellugengisfall Makamál Einhleypan: Útskrifaðist með háði úr leikskóla Makamál Spurning vikunnar: Hefur þú ákveðið að fyrirgefa framhjáhald? Makamál 57 ára á OnlyFans: „Ég sýni erótískar hreyfingar en ekki kynlíf“ Makamál Siggi Sól fann ástina: „Kynntumst í hestaleigunni hjá pabba“ Makamál Fleiri fréttir „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Einhleypan: „Borða, ríða, elska“ Einhleypan: Fangavörður, einlæg og skemmtileg Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi Einhleypan: „Veit ekki hvort ég kunni ekki að skammast mín“ Sjá meira
„Ef þú elskar sjóinn þá elskarðu mig“ Fjölmiðlakonan Sigga Lund var ein af þeim sem fór á blint stefnumót í fjórða þætti fyrsta bliksins en hún og bókasafnsfræðingurinn Jón Tryggvi áttu svo sannarlega nokkra gullmola þetta kvöld. 22. september 2021 19:47