Átta fjallgöngumenn látnir á eldfjalli á Kamtsjaka Atli Ísleifsson skrifar 5. september 2022 07:32 Mjög kalt er á svæðinu og getur kuldinn farið niður í fjórtán stiga frost á nóttunni. Myndin er úr safni. Getty Átta fjallgöngumenn eru látnir eftir að hafa reynt að klífa eldfjallið Klyutsjevskaja Sopka á Kamtsjaka-skaga, austast í Rússlandi, um helgina.
Fjórir fjallgöngumenn til viðbótar eru sagðir vera í sjálfheldu á fjallinu og hafa gríðarlegir vindar og kuldi torveldað björgunarstörf. Tveir leiðsögumenn voru hluti af hinum tólf manna hópi sem reyndi að klífa fjallið sem er um 4.754 metrar á hæð og hæsta, virka eldfjall Evrasíu. Hópurinn lagði af stað á þriðjudag, en lenti í vandræðum á laugardag þegar nokkrir úr hópnum hröpuðu til bana í um 4.200 metra hæð. Björgunarlið gerði tilraun til að ná til hópsins í gær en varð frá að hverfa þar sem of vindasamt var fyrir björgunarþyrluna að lenda. Reiknað er með að önnur tilraun verði gerð til að ná til hópsins í dag. Mjög kalt er á svæðinu og getur kuldinn farið niður í fjórtán stiga frost á nóttunni, að því er segir í frétt Guardian.
Rússland Fjallamennska Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Kennaraverkfalli frestað Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Innlent Fleiri fréttir Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Sjá meira