Matur

Kokka­lands­liðið stefnir aftur á gullið

Árni Sæberg skrifar
Kokkalandsliðið ætlar sér stóra hluti á heimsmeistaramótinu í matreiðslu.
Kokkalandsliðið ætlar sér stóra hluti á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Klúbbur matreiðslumanna

Íslenska kokkalandsliðið hefur keppni á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í dag. Liðið vann til gullverðlauna á síðasta heimsmeistaramóti árið 2018 og stefnir ótrautt á að endurtaka leikinn.

Heimsmeistaramótið var sett í gær í Lúxemborg og leikar hefjast í dag með keppni í þriggja rétta heitum matseðli sem eldaður er fyrir 110 manns. Þá verður keppt í þrettán rétta „fine-dining“ máltíð fyr­ir 12 manns, svokölluðu „Chef’s Table“ á þriðjudag, að því er segir í fréttatilkynningu frá Klúbbi matreiðslumanna, sem rekur kokkalandsliðið.

Haft er eftir Þóri Erlingsyni, forseta klúbbsins, að undirbúningur og ferðalagið hafi gengið vel og æfingar síðustu mánaða gefi ekki annað en ástæðu til bjartsýni.

Þá gefur ekki síður ástæðu til bjartsýni að liðið hafi staðið sig vel í síðustu stóru keppni, Ólympíuleikunum í Stuttgart árið 2020, þar sem liðið fékk bronsverðlaun fyrir samanlagðan árangur.

Í tilkynningunni segir að keppn­ismat­reiðsla sé í raun­inni frá­drátt­ar­keppni og fyrirkomulagið sé þannig að  all­ir byrji með 100 stig sem lækk­a síðan með til­liti til snyrti­mennsku, fag­mennsku, út­lits rétta og bragðs. Gull­frammistaða sé 90 stig, silf­ur 80 stig og brons 70 stig. Á mót­inu í ár séu um 20 lönd sem taka þátt. Úrslit verði svo kynnt í Lúxemborg á fimmtudaginn og liðið komi aftur heim á föstudag.

Íslenska kokkalandsliðið er skipað eftirfarandi:

  • Þjálfari: Ari Þór Gunnarsson, Fastus
  • Fyrirliði: Sindri Guðbrandur Sigurðsson, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
  • Aron Gísla Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
  • Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
  • Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides
  • Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan
  • Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac
  • Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu
  • Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum
  • Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt
  • Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum
  • Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu
  • Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides
  • Marteinn Rastrick, Lux Veitingum







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.