Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2024 07:50 Hinn 27 ára Marius Borg Høiby er sonur Mette-Marit, eiginkonu Hákonar krónprins, úr fyrra sambandi. EPA Lögregla í norsku höfuðborginni Osló handtók í gær Marius Borg Høiby, stjúpson Hákonar krónprins, á ný, nú vegna vegna gruns um nauðgun.
Norskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun og vísa í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Hann var handtekinn þegar hann var á ferð í bíl sínum í Osló á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þetta er í þriðja sinn sem Borg Høiby er handtekinn á skömmum tíma, en lögregla hefur nú víkkað út rannsóknina og er hann nú einnig grunaður um nauðgun. Borg Høiby var fyrst handtekinn í ágúst vegna gruns um að hafa beitt konu ofbeldi í íbúð þann 4. ágúst síðastliðinn. Konan sem hann er grunaður um að hafa beitt ofbeldi var með honum í bílnum þegar hann var handtekinn í gær. Lögregla greinir einnig frá því að húsleit hafi verið gerð í tengslum við málið og að maðurinn gisti nú fangageymslu á lögreglustöð í hverfinu Grønland í miðborg Oslóar. Dagbladet greinir frá því að Borg Høiby sé grunaður um að hafa nauðgað konu þegar hún var meðvitundarlaus eða gat ekki af öðrum ástæðum veitt mótstöðu. Hinn 27 ára Marius Borg Høiby er sonur Mette-Marit, eiginkonu Hákonar krónprins, úr fyrra sambandi.
Noregur Kóngafólk Mál Mariusar Borg Høiby Tengdar fréttir Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Marius Borg Høiby stjúpsonur Hákonar krónprins af Noregi var handtekinn um helgina vegna líkamsárásar og skemmdarverka sem áttu sér stað síðastliðinn laugardag. Samkvæmt upplýsingum norskra fjölmiðla þekkir Høiby þann sem varð fyrir árásinni. 7. ágúst 2024 11:37 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Innlent Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Innlent Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Innlent Fleiri fréttir Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Sjá meira
Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Marius Borg Høiby stjúpsonur Hákonar krónprins af Noregi var handtekinn um helgina vegna líkamsárásar og skemmdarverka sem áttu sér stað síðastliðinn laugardag. Samkvæmt upplýsingum norskra fjölmiðla þekkir Høiby þann sem varð fyrir árásinni. 7. ágúst 2024 11:37