Innlent

Stefnir enn í hríðar­veður á Austfjörðum á kjör­dag

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Gert er ráð fyrir hríðarveðri á Austfjörðum á kjördag.
Gert er ráð fyrir hríðarveðri á Austfjörðum á kjördag. Vísir/Vilhelm

Gul veðurviðvörun tekur gildi síðdegis fyrir Suðausturland og klukkan átta í kvöld á Austfjörðum, þar sem spáð er norðaustan hríðarveðri þar sem vindhraði verði 15 til 20 metrar á sekúndu.

Með þessu er snjókoma, jafnvel talsverð um tíma, skafrenningur og lélegt skyggni. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru því líklegar. 

Veðrið á að standa yfir nóttina á Suðausturlandi en á Austfjörðum á hinsvegar ekki að slota fyrr en annað kvöld, á kjördag. 

Veðurstofa Íslands

Menn hafa því haft af því áhyggjur að veðrið gæti haft áhrif á kosningarnar sem framundan eru á laugardag og hefur fólk í Múlaþingi þannig verið hvatt til þess að kjósa snemma, til að draga úr líkum á því að veðrið setji strik í kosningareikninginn. 

Vakin er athygli á því á heimasíðu Múlaþings að hægt er að kjósa utan kjörfundar á fleiri stöðum en áður, eða í öllum byggðakjörnum sveitarfélagsins, á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Á Djúpavogi og á Borgarfirði eystra. 

Þar er opið í dag en einnig verður hægt að kjósa utan kjörfundar á Seyðisfirði og á Egilsstöðum á sjálfan kjördag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×