Innlent

Ölfus­á orðin bakkafull af ís

Kjartan Kjartansson skrifar
Gróður meðfram Ölfusá er byrjaður að fara undir vatn vegna klakastíflunnar við brúna.
Gróður meðfram Ölfusá er byrjaður að fara undir vatn vegna klakastíflunnar við brúna. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands

Vatnsyfirborð Ölfusár heldur áfram að hækka vegna klakastíflunnar sem hefur myndast í henni. Farvegurinn er nú sagður bakkafullur af ís og vatn komið yfir gróður nærri Hótel Selfossi.

Klakastíflan er við Ölfusárbrú og fyrir neðan hana. Edlfjalla og náttúruvárhópur Suðurlands segir í Facebook-færslu að klaki hlaðist nú upp frá brúnni og að Jórukletti fyrir ofan hana. Ísinn brotni svo upp og skolist niður að stíflunni sem þykkni við það.

Klakastíflan við Ölfusárbrú. Áfram bætist klaki við hana.Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands

Vatnsstaðan í Ölfusá hefur ekki verið hærri frá árinu 2020 en á enn um áttatíu sentímetra í að ná þeirri sem var þegar áin flæddi yfir bakka sína 21. desember árið 2006. Þá flæddi vatn meðal annars ofan í kjallara Selfosskirkju. Flóðið náði yfir stór svæði meðfram Ölfusá og Hvítá.

Aðstæður nú eru allt aðrar en í flóðinu fyrir tæpum tuttugu árum. Það kom í kjölfar hlýinda og rigninga. Klakastíflan nú kemur í kjölfar samfellds kuldakafla án leysinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×