Handbolti

Fullt af mögu­leikum í þessu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Andrea Jacobsen hleður í skot
Andrea Jacobsen hleður í skot VÍSIR / PAWEL

Andrea Jacobsen er spennt fyrir komandi leikjum hjá íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á EM í Innsbruck. Liðið mætir Úkraínu í kvöld.

„Ég verð að vera hreinskilin, ég var bara ógeðslega súr. Ég trúi eiginlega ekki að við höfum tapað þessu. Ég hélt þetta myndi koma þarna, sem er mjög skrýtin tilfinning líka af því að þetta er svo sterk þjóð. Hollendingar, að tapa bara með tveimur, það er rosalega jákvætt fyrir okkar vegferð,“ segir Andrea um tapið fyrir Hollandi í fyrrakvöld. Strax í hádeginu í gær, þegar blaðamenn bar að garði, var hugurinn þó kominn við næsta leik við Úkraínu sem fram fer í kvöld.

„Ég gef mér bara tvo til þrjá tíma til að vera í fýlu. Þetta er bara næsti dagur og næsti leikur.“

Úkraína tapaði fyrir Þýskaland, 30-17, í fyrrakvöld en Andrea kveðst ekki hafa séð leikinn.

„Ég fann engan aðgang að því. Ég sá bara niðurstöðurnar,“ segir Andrea, farið hafi verið yfir úkraínska liðið í gær.

„Við eigum tvo fundi núna í dag (í gær) og ég býst við að annar þeirra sé um Úkraínu að vissu leyti.“

Stórt tap þeirra úkraínsku segi ekki endilega mikið fyrir leik kvöldsins. Þýskaland sé með gríðarsterkt lið.

„Þýskaland er líka með mjög sterkt lið. Ég veit ekkert hvar við stöndum í samanburði við þær heldur. Þessi úrslit gefa mér í rauninni ekki neitt,“ segir Andrea. Má þá búast við bandbrjáluðum úkraínskum leikmönnum sem mæta til leiks í dag?

„100 prósent. Án efa.“

Andrea er þá spennt fyrir framhaldinu eftir flottan fyrsta leik hjá íslenska liðinu.

„Ég er ótrúlega spennt. Ef það gengur vel núna á móti Úkraínu, þá förum við í úrslitaleik á móti Þýskalandi. En, það er auðvitað bara einn leikur í einu. Ég er mjög spennt fyrir þessu,“

„Það eru bara smáatriði sem gera að verkum að við töpum. Ég segi að ef við spilum svona á móti Úkraínu og Þýskalandi eru fullt af möguleikum í þessu,“ segir Andrea.

Klippa: Möguleikarnir til staðar

Fleira kemur fram í viðtalinu við Andreu sem má sjá í heild sinni í spilaranum.

Ísland mætir Úkraínu klukkan 19:30 í kvöld. Leiknum verður lýst beint á Vísi og íslenska liðinu fylgt vel eftir fram að leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×