Sport

Tekur barnið sitt úr leik­skóla svo að skíðakonan geti haldið jólin með þeim

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svíinn Ebba Andersson óskar hér hinni norsku Heidi Weng til hamingju með góðan árangur sinn í skíðagöngukeppni.
Svíinn Ebba Andersson óskar hér hinni norsku Heidi Weng til hamingju með góðan árangur sinn í skíðagöngukeppni. Getty/Federico Modica

Norska skíðakonan Heidi Weng mun eyða jólunum í faðmi fjölskyldunnar í ár en því fylgja fórnir hjá fjölskyldumiðlum hennar.

Heidi sagði norska ríkissjónvarpinu frá því að systir hennar ætli að passa upp á það að skíðakonan kræki ekki í flensu eða einhverja pest yfir hátíðirnar. Það gerir hún með því að taka barnið sitt úr leikskóla löngu fyrir hátíðirnar.

Ekki í æfingabúðum yfir jólin

Weng er vön því að eyða jólum og áramótum í æfingabúðum í mikilli hæð til að undirbúa sig sem best fyrir tímabilið.

Hún ákvað hins vegar að vera heima í ár en verður auðvitað að passa sig að veikjast ekki. Allir lunga- og kvefsjúkdómar eru skelfilegir fyrir íþróttafólk í úthaldsíþrótt eins og skíðagöngu.

Heidi Weng er öflug skíðagöngukona og stjarna í heimalandi sínu Noregi.Getty/Federico Modica

Eins og flestir foreldrar þekkja þá eru krakkarnir duglegir að næla sér í alls konar flensu og pestir í leikskólanum. Weng væri því í talsverði smithættu í kringum frænda sinn.

Hlakkar mikið til

„Systir mín á tveggja ára strák. Hann fær ekki að fara í leikskólanum í dágóðan tíma fyrir jólin. Við munum halda jólin heima í ár og ég hlakka mikið til,“ sagði Heidi Weng.

Tour de Ski er skíðagönguhátíð í Austur-Evrópu sem fer fram yfir áramótin, byrjar vanalega milli jóla og nýárs og nær aðeins inn á nýtt ár. Weng fórnar henni í ár.

Skiptir hana miklu máli

„Þetta skiptir mig miklu máli. Einu sinni átti ég að fara og keppa á Tour de Ski en fékk magapest og þurfti að fara í einangrun. Þá var ég ein á Aðfangadagskvöld og það kemur ekki til greina í ár. Þetta var mjög leiðinlegt Aðfangadagskvöld. Núna ætla ég því að vera heima,“ sagði Weng.

„Þetta verður samt erfitt. Ég hef eiginlega alltaf tekið þátt í Tour de Ski síðan 2011 og þetta er því mikil breyting. Á sama tíma þá fæ ég að upplifa það að æfa heima. Markmiðið er að keyra mig út fyrir jólin og meta síðan stöðuna eftir það,“ sagði Weng.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×