Innlent

Loka­tölur í Suðvestur­kjör­dæmi: Willum Þór úti í kuldanum

Kjartan Kjartansson skrifar
Rósa Guðbjartsdóttir og Jónína Björk Óskarsdóttir eru jöfnunarþingmenn Suðvesturkjördæmis.
Rósa Guðbjartsdóttir og Jónína Björk Óskarsdóttir eru jöfnunarþingmenn Suðvesturkjördæmis. vísir/hjalti

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut afgerandi bestu kosningu sína í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi formanns og varaformanns flokksins. Willum Þór Þórsson, sem var ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, datt út af þingi.

Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tæpum sjö prósentustigum frá því í þingkosningunum 2021 hélt hann sínum fjóru þingmönnum í Suðvesturkjördæmi. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður sem færði sig yfir í kjördæmið fyrir kosningarnar, Bryndís Haraldsdóttir, sitjandi þingmaður og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði verða þingmenn flokksins.

Viðreisn náði einnig sínum besta árangri í þessum kosningum í Suðvesturkjördæmi og hlaut 20,1 prósent atkvæða þar. Flokkurinn fær þrjá þingmenn, bætir við sig einum. Auk Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns, náði Sigmar Guðmundsson endurkjöri sem þingmaður og Eríkur Björn Björgvinsson kemur nýr inn.

Rétt á eftir hægriflokkunum tveimur kom Samfylkingin með 19,3 prósent atkvæða. Það var bæting um 8,1 prósent frá kosningunum 2021 og tvo þingmenn. Þrír þingmenn Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi verða þau Alma Möller, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Miðflokkurinn hlaut tólf prósent atkvæða og tvo þingmenn þar sem hann hafði ekki áður. Bergþór Ólason, annar tveggja þingmanna flokksins á síðasta kjörtímabili, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir taka sæti fyrir flokkinn í suðvestri.

Flokkur fólksins bætti við sig atkvæðum og einum þingmanni. Hann hlaut ellefu prósent atkvæða og tvo þingmenn, þau Guðmund Inga Kristinsson og Jónínu Björk Óskarsdóttur.

VG með 0,4 prósentustigum meira en Lýðræðisflokkurinn

Framsóknarflokkurinn missti báða þingmenn sína í kjördæminu og hlaut 5,9 prósent atkvæða, 8,6 prósentustigum minna en í síðustu alþingiskosningum. Um tíma leit út fyrir að Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra í síðustu ríkisstjórn, skriði inn sem jöfnunarþingmaður en á endanum voru þau Rósa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Jónína Björk fyrir Flokk fólksins sem tóku tvö jöfnunarsæti.

Vinstri græn misstu sinn eina þingmann í kjördæminu líkt og alls staðar annars staðar á landinu. Flokkurinn hlaut aðeins 1,5 prósent atkvæða, 0,4 stigum meira en Lýðræðisflokkurinn en 1,3 stigi minna en Sósíalistaflokkurinn.

Píratar töpuðu báðum þingmönnum sínum og fengu aðeins 2,8 prósent atkvæða.


Tengdar fréttir

Lokatölur úr Suður­kjör­dæmi: Sigur Flokks fólksins

Söguleg tíðindi urðu í Suðurkjördæmi þar sem Flokkur fólksins stóð uppi sem stærsti flokkurinn þegar lokatölur voru birtar klukkan hálf átta í morgun. Formaður Framsóknarflokksins náði inn sem kjördæmakjörinn þingmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×