Körfubolti

Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Páll Sigmarsson og Frank Booker voru góðir vinir. Booker segir frá vinskap þeirra í þætti kvöldsins.
Jón Páll Sigmarsson og Frank Booker voru góðir vinir. Booker segir frá vinskap þeirra í þætti kvöldsins. Getty/ PA Images/Kaninn

Í öðrum þætti Kanans í kvöld verður fjallað um sprenginguna sem varð á áhuga á körfubolta í upphafi tíunda áratugarins þegar NBA-æðið reið yfir og goðsögnin Michael Jordan varð stærsti íþróttamaður í heimi.

Erlendir leikmenn voru leyfðir aftur í deildinni hér heima undir lok níunda áratugarins og hingað komu bandarískir leikmenn sem festu sig í sessi, léku sumir um langt skeið og urðu jafnvel stórstjörnur hér á landi. 

Í þætti kvöldsins verður rætt við nokkra þeirra eins Rondey Robinson sem lék með Njarðvík um sex ára skeið, John Rhodes sem lék hér með ÍR og Haukum og Frank Booker sem spilaði með Val, ÍR og Grindavík.

Þeir nutu mikilla vinsælda bæði innan og utan vallar, léku í auglýsingum og voru vinsælt viðtalsefni á síðum blaðanna.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Frank Booker ræða tíma sinn hér og vináttuna við Jón Pál Sigmarsson, aflraunamann og fjórfaldan sigurvegara í Sterkasti maður heims.

Kaninn er á dagskrá Stöð 2 og Stöð 2 Sport næstu sunnudagskvöld. Þátturinn er sýndur klukkan 20.00 á Stöð 2 í kvöld og klukkan 18.40 á Stöð 2 Sport.

Klippa: Vinátta Jóns Páls og Franks Booker



Fleiri fréttir

Sjá meira


×