Innlent

For­menn gera upp kosninga­úr­slitin í beinni á Stöð 2

Heimir Már Pétursson skrifar
Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verða allar hjá Heimi í spjalli í kvöld.
Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verða allar hjá Heimi í spjalli í kvöld. Vísir/Vilhelm

Formenn og leiðtogar flokka sem náðu inn á þing eða féllu af þingi í kosningunum í gær mæta í spjall hjá Heimi Má á Stöð 2 strax að loknum kvöldfréttum. Stjórnarflokkarnir þrír biðu afhroð í kosingunum en þrír stjórnarandstöðuflokkar með Samfylkinguna í broddi fylkingar unnu stóra sigra.

Þetta eru verstu kosningaúrslit í sögu Sjálfstæðisflokksins sem aldrei áður hefur fengið fylgi undir tuttugu prósentum. Vinstri græn féllu af þingi eftir 25 ára veru þar og Píratar sömuleiðis eftir fimmtán ár á þingi. 

Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins gætu auðveldlega myndað ríkisstjórn með rúmum meirihluta á þingi ef aðeins er horft á fjölda þingmanna. Þegar kemur að því að mynda ríkisstjórn eru það hins vegar málefnin og samningahæfileikar forystufólks sem ráða för.

Viðreisn getur tekið þátt í myndun ríkisstjórna til bæði vinstri og hægri.Vísir/Vilhelm

Það er líka sögulegt að flokkarnir sem unnu stærstu sigrana eru allir leiddir af konum. Þær Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Inga Sæland formaður Flokks fólksins mæta fyrstar til Heimis Más. Þessir þrír flokkar hafa samanlagt 36 þingmenn og því rúman meirihluta á Alþingi.

Í örðum hluta þáttarins mæta þeir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og halda spjallinu áfram með Þorgerði Katrínu. Þessir þrír flokkar gætu einnig myndað ríkisstjórn með 33 þingmönnum en lágmarks meirihluti á Alþingi eru 32 þingmenn.

Flokkur fólksins vann góðan sigur og getur eins og Viðreisn ýmist myndað ríkisstjórn með þátttöku Samfylkingar eða Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins sem var með þeim síðustu til að detta inn á þing sem jöfnunarþingmaður þegar öll atkvæði höfðu verið talin mætir í þriðja og síðasta hluta formannaspjallsins. Með honum verða Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna sem féllu af þingi í kosningunum og Björn Leví Gunnarsson fráfarandi þingmaður Pírata sem einnig féllu af þingi.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur kallað formenn flokka sem náðu kjöri á sinn fund á morgun. Í framhaldi af þeim fundum mun forsetinn væntanlega veita einum formannanna umboð til að mynda nýja ríkisstjórn.


Tengdar fréttir

Kosninga­vaktin: Lands­menn kjósa sér nýtt þing

Eftir snarpa baráttu eru sögulegar Alþingiskosningar að baki. Sjálfstæðisflokkur fékk sína verstu kosningu frá upphafi og Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í annað sinn í sögunni. Þá eru bæði Vinstri græn og Píratar dottin af þingi á meðan Viðreisn og Flokkur fólksins uppskáru ríkulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×