Viðskipti innlent

Álf­rún leiðir almannatengslin hjá Íslandsstofu

Árni Sæberg skrifar
álfrún

Álfrún Pálsdóttir hefur tekið við starfi fagstjóra almannatengsla á markaðssamskiptasviði Íslandsstofu. Álfrún mun leiða almannatengsl Íslandsstofu með áherslu á að efla og styrkja ímynd Íslands og íslenskra útflutningsgreina á erlendum mörkuðum í samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila.

„Ég er full tilhlökkunar að leiða öflugt teymi Íslandsstofu í almannatengslum á erlendum mörkuðum og fylgja eftir ásamt því að efla það góða starf sem hefur verið unnið síðustu ár. Það eru gríðarleg tækifæri að auka enn frekar umfjöllun, vitund og eftirspurn eftir íslenskum útflutningvörum og halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið; að kynna Ísland sem leiðandi land á sviði sjálfbærni,“ er haft eftir Álfrúnu í fréttatilkynningu um ráðninguna.

Þar segir að Álfrún sé menntuð í fjölmiðla- og kynjafræði frá Háskólanum í Osló og hafi yfirgripsmikla reynslu af fjölmiðlum og kynningarmálum. Hún hafi starfað sem blaðamaður og ritstjórnarfulltrúi á Fréttablaðinu á árunum 2006 til 2015 og hafi verið á meðal þeirra sem komu að stofnun og ritstýrt tímaritinu Glamour fyrir 365 miðla og Condé Nast á árunum 2015–2018.

Á síðustu árum hafi Álfrún sinnt kynningarmálum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, þar sem hún hafi haft umsjón með kynningaráætlunum og samskiptum Miðstöðvarinnar við innlenda og erlenda fjölmiðla og verið í lykilhlutverki við skipulagningu viðburða á borð við Hönnunarmars og Hönnunarverðlaunin.

„Við fögnum því að fá Álfrúnu til liðs við Íslandsstofu. Hún hefur mikla þekkingu og reynslu á sviði fjölmiðla og almannatengsla, og við höfum trú á að hún muni hafa jákvæð og mikil áhrif á starfið okkar,“ er haft eftir Pétri Þ. Óskarssyni, framkvæmdastjóra Íslandsstofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×