Fótbolti

Svona eru riðlarnir í undan­keppni HM

Sindri Sverrisson skrifar
Mótherjar Íslands í undankeppni HM spila væntanlega á nýju, blönduðu grasi á Laugardalsvelli en þar standa framkvæmdir yfir.
Mótherjar Íslands í undankeppni HM spila væntanlega á nýju, blönduðu grasi á Laugardalsvelli en þar standa framkvæmdir yfir. vísir/Hulda Margrét

Ísland lenti í riðli með Aserbaísjan, Úkraínu og sigurliðinu úr einvígi Frakklands og Króatíu, í undankeppni HM karla í fótbolta. Dregið var í dag í beinni útsendingu á Vísi.

Ísland var í þriðja styrkleikaflokki fyrir dráttinn en hér er hægt að lesa nánar um fyrirkomulagið í drættinum. Dregið var í tólf fjögurra eða fimm liða riðla. Efsta lið hvers riðils kemst beint á HM 2026, í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, en liðin í 2. sæti í umspil.

Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu voru í sama flokki og Ísland, og lentu í riðli með Armeníu, Ungverjalandi og sigurliðinu úr einvígi Portúgals og Danmerkur í lok mars.

Það að Þjóðadeildinni sé ekki lokið flækir undankeppni HM nefnilega talsvert. Sigurliðin í 8-liða úrslitum Þjóðadeildar fara í fjögurra liða riðla en tapliðin í fimm liða riðla, og því verður ekki ljóst nákvæmlega í hvaða riðlum þessar átta þjóðir lenda fyrr en í lok mars.

Riðlarnir í undankeppni HM:

A-riðill:

Sigurlið úr Þýskaland – Ítalía

Slóvakía

Norður-Írland

Lúxemborg

B-riðill:

Sviss

Svíþjóð

Slóvenía

Kósovó

C-riðill:

Taplið úr Portúgal – Danmörk

Grikkland

Skotland

Hvíta-Rússland

D-riðill:

Sigurlið úr Frakkland – Króatía

Úkraína

Ísland

Aserbaísjan

E-riðill:

Sigurlið úr Spánn – Holland

Tyrkland

Georgía

Búlgaría

F-riðill:

Sigurlið úr Portúgal – Danmörk

Ungverjaland

Írland

Armenía

G-riðill:

Taplið úr Spánn – Holland

Pólland

Finnland

Litáen

Malta

H-riðill:

Austurríki

Rúmenía

Bosnía

Kýpur

San Marínó

I-riðill:

Taplið úr Þýskaland – Ítalía

Noregur

Ísrael

Eistland

Moldóva

J-riðill:

Belgía

Wales

Norður-Makedónía

Kasakstan

Liechtenstein

K-riðill:

England

Serbía

Albanía

Lettland

Andorra

L-riðill:

Taplið úr Frakkland - Króatía

Tékkland

Svartfjallaland

Færeyjar

Gíbraltar

Allt bendir til þess að mótherjar Íslands í undankeppninni spili á nýjum Laugardalsvelli með blönduðu grasi. Þar standa framkvæmdir yfir sem á að ljúka í vor. Undankeppnin hjá Íslandi hefst í september á næsta ári og lýkur í nóvember.

Ljóst er að Ísland mætir í undankeppnina með nýjan landsliðsþjálfara því Åge Hareide er hættur. Nýr þjálfari mun hins vegar byrja á að stýra Íslandi í leikjum við Kósovó, í Þjóðadeildarumspilinu í mars.

Styrkleikaflokkarnir fyrir dráttinn í dag

Styrkleikaflokkur 1

  • Sigurlið Frakkland-Króatía
  • Sigurlið Spánn-Holland
  • Sigurlið Portúgal-Danmörk
  • Sigurlið Ítalía-Þýskaland
  • Taplið Frakkland-Króatía
  • Taplið Spánn-Holland
  • Taplið Portúgal-Danmörk
  • Taplið Ítalía-Þýskaland
  • Belgía
  • Austurríki
  • England
  • Sviss

Styrkleikaflokkur 2

  • Úkraína
  • Svíþjóð
  • Tyrkland
  • Wales
  • Ungverjaland
  • Serbía
  • Pólland
  • Rúmenía
  • Grikkland
  • Slóvakía
  • Tékkland
  • Noregur

Styrkleikaflokkur 3

  • Skotland
  • Slóvenía
  • Írland
  • Albanía
  • Norður-Makedónía
  • Georgía
  • Finnland
  • Ísland
  • Norður-Írland
  • Svartfjallaland
  • Bosnía
  • Ísrael

Styrkleikaflokkur 4

  • Búlgaría
  • Lúxemborg
  • Hvíta-Rússland
  • Kovósó
  • Armenía
  • Kasakstan
  • Aserbaídsjan
  • Eistland
  • Kýpur
  • Færeyjar
  • Lettland
  • Litháen

Styrkleikaflokkur 5

  • Moldóva
  • Malta
  • Andorra
  • Gíbraltar
  • Liechtenstein
  • San Marínó

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×