Grindvíkingar „eins og innflytjendur í eigin landi“ Hún Cortina frá Rúmeníu var komin upp að gosstöðvunum snemma í morgun þar sem hún á frí í vinnunni í dag. Hún segist finna til með Grindvíkingum sem innflytjenda og segir þá vera orðna eins konar innflytjenda í eigin landi. Innlent 14. janúar 2024 10:50
Hraunflæðið fjórðungur af því sem var síðast Prófessor í jarðeðlisfræði segir aðeins nokkrar klukkustundir í að hraun nái að renna til húsa innan Grindavíkurbæjar, ef hraunflæði helst óbreytt. Innlent 14. janúar 2024 10:44
Aukafréttatími í opinni dagskrá á Stöð 2 Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efndi til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 10:32
Skrítið að vakna við fréttir um að húsið sé að fara undir hraun Forstjóri líftæknifyrirtækisins ORF segir skrítið að hafa vaknað við þær fréttir í morgun að hraun rynni í átt að gróðurhúsi fyrirtækisins fyrir ofan Grindavík. Það komi honum þó ekki alveg á óvart, enda sitji húsið á sprungunni sem klýfur bæinn. Innlent 14. janúar 2024 10:29
„Vinsamlegast gefið okkur vinnufrið“ Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður. Innlent 14. janúar 2024 10:28
Bein útsending: Eldgosið rætt á Sprengisandi Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í morgun verður fyrirferðarmest í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sem hófst klukkan 10 í morgun. Innlent 14. janúar 2024 10:19
„Þetta virðist ekki vera jafnmikill ofsi“ Hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi eldgos vera minna en það síðasta. Hluti hraunsins renni innan varnargarða við Grindavík en meirihluti þess renni í suðvestur, „réttu megin“ við garðana. Innlent 14. janúar 2024 10:17
Skiptinemar einir fyrstu við gosstöðvarnar Einir fyrstu til að koma og bera gosið augum voru tveir skiptinemar við háskólann. Þau Hanna Kling og Léon Mizera segjast hafa ætlað í dagsferð og voru á skrifstofu bílaleigu þegar þeim bárust fréttir að gos væri hafið. Þau hafi hlaupið út og séð himinbjarmann og ákveðið að breyta um áætlun. Innlent 14. janúar 2024 10:16
Tóku spennu af háspennustreng til að verja orkuverið Páll Erland, forstjóri HS Veitna, segir í samtali við Vísi að helsta áhyggjuefnið, hvað varðar orkumál, séu rafmagnsinnviðir við Grindavíkurveg og inni í Grindavíkurbæ. Innlent 14. janúar 2024 09:58
Bjarga verðmætum undan hraunflæðinu Menn eru að vinnu við að bjarga jarðýtum og fleiru, sem er alveg við hraunjaðarinn. Innlent 14. janúar 2024 09:53
Hefur ekki áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar Eldgosið norðan Grindavíkur, sem hófst skömmu fyrir klukkan átta í morgun, hefur ekki haft áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar eða áætlun innanlandsflugs. Innlent 14. janúar 2024 09:45
Myndir úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar Vísindamenn eru í eftirlitsflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Myndir teknar úr þyrlunni benda til þess að gossprunga sé opin beggja megin varnargarðs norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 09:22
Sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna Af fyrstu myndum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar hefur sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna sem byrjað vara að reisa norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 09:03
Hraunið hefur náð að varnargörðum Hraunið sem rennur úr gíg sunnan Hagafells hefur nú náð varnargörðum sem hafa verið í byggingu norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 08:53
Hraun rennur líklega í suður í átt að bænum Hraun úr eldgosinu, sem hófst laust fyrir klukkan 08, rennur að öllum líkum í suður í átt að Grindavíkurbæ. Það kom þó upp norðan varnargarða við bæinn. Innlent 14. janúar 2024 08:15
Eldgos er hafið Eldgos er hafið norðan við Grindavík. Fyrsta mat á staðsetningu er nálægt Sundhnúk klukkan 7:57 í morgun. Innlent 14. janúar 2024 08:00
Hætta aukist á öllum svæðum og uppfæra hættumatskort Veðurstofan hefur uppfært hættumatskort í ljósi túlkunar nýjustu gagna. Hætta hefur aukist á öllum svæðum. Innlent 14. janúar 2024 07:58
Ekkert annað að gera en að bíða og sjá „Það er ekki margt annað hægt að gera en að bíða og sjá hvernig málin þróast. Það er búið að rýma bæinn.“ Innlent 14. janúar 2024 07:51
„Það á enginn að þurfa að gista á bedda í nótt“ Tugir hafa komið í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Efstaleiti í morgun eftir að Grindavíkurbær var rýmdur á fimmta tímanum, að sögn Aðalheiðar Jónsdóttur teymisstjóra neyðarvarna hjá Rauða krossinum. Innlent 14. janúar 2024 07:14
Fluglitakóðinn appelsínugulur Fluglitakóðinn fyrir Reykjanes hefur verið hækkaður og en hann nú appelsínugulur. Innlent 14. janúar 2024 06:48
„Þetta gerir stöðuna auðvitað mjög alvarlega“ Jarðskjálftavirkni hefur færst undir Grindavík og kvika því mögulega komin undir bæinn. Auknar líkur þykja á að eldgos hefjist inni í bænum og þá innan varnargarða. Innlent 14. janúar 2024 06:48
Ekki hægt að útiloka að kvika komi upp innan bæjarmarka Skjálftavirknin heldur áfram að færast suður og fleiri skjálftar hafa mælst undir miðri byggðinni í Grindavík á síðustu klukkustund. Innlent 14. janúar 2024 06:24
Gist í um níutíu húsum í Grindavík Gist var í um níutíu húsum í Grindavík og gengur rýming bæjarins vel. Innlent 14. janúar 2024 05:58
Búið að rýma Bláa lónið Bláa Lónið í Svartsengi rýmdi í nótt öll sín athafnarsvæði vegna jarðskjálfta sem hafa mælst við Sundhnjúkagígaröðina. Innlent 14. janúar 2024 05:48
Mikil hálka á vegum og íbúar í Grindavík hvattir til að fara varlega Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á fjórða tímanum í nótt og vinnur lögreglan á Suðurnesjum nú að því að rýma Grindavík og gengur það vel. Innlent 14. janúar 2024 05:34
Vaktin: „Ég er að horfa á húsið mitt brenna“ Eldgos hófst norðan Grindavíkur, suðsuðaustan Hagafells, klukkan 7:57 í morgun, sunnudag. Hraun náði til byggða í Grindavík á öðrum tímanum. Innlent 14. janúar 2024 04:29
Binda vonir við skólastarf og aðra þjónustu í Grindavík næsta haust Sviðsstjóri Almannavarna segist binda vonir við að viðgerðir í Grindavík í sumar muni bera þann árangur að skólastarf og önnur þjónusta bæjarins verði með eðlilegu móti næsta haust. Dómsmálaráðherra segir umfangsmikla skoðun á öllum jarðvegi bæjarins með það að augnamiði að gera búsetu öruggari hefjast á næstunni. Innlent 13. janúar 2024 21:45
Nafn mannsins sem saknað er eftir vinnuslysið Maðurinn sem saknað er eftir vinnuslys sem varð í Grindavík þann 10. janúar heitir Lúðvík Pétursson. Innlent 13. janúar 2024 18:08
Svona ákvarðanir ekki teknar í tómarúmi Bygging varnargarða mun halda áfram þrátt fyrir brottflutning úr Grindavík að því er kemur fram í ræðu dómsmálaráðherra á upplýsingafundi Almannavarna fyrr í dag. Það verkefni auk rannsóknar á sprungum eru að hennar sögn stærstu skrefin í átt að öruggri búsetu í Grindavík. Innlent 13. janúar 2024 17:55
Fyrirskipa brottflutning allra úr Grindavík Á upplýsingafundi almannavarna rétt í þessu var tilkynnt að sú ákvörðun hefði verið tekin að fyrirskipa brottflutning allra þeirra sem dvelja í Grindavík og banna alla starfsemi í bænum. Innlent 13. janúar 2024 16:57