Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Fyrsta gullið úr grænlenskri gullnámu, sem Íslendingar standa fyrir, er komið úr gullkvörninni. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq, segir þetta ólýsanlega tilfinningu eftir tíu ára undirbúningsstarf. Innlent 28.11.2024 22:42
Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Samkeppniseftirlitið hefur sektað Festi hf. um 750 milljónir vegna samkeppnislagabrota í tengslum við samruna félagsins og N1 hf. Fólust brotin í því að Festi virti ekki skilyrði sem gerð voru í sátt við eftirlitið, svo sem um sölu verslana og samstarf við keppinaut. Viðskipti innlent 28.11.2024 17:23
Gæti reynst „langhlaup“ að koma verðbólgunni alla leið niður í markmið Hægari hjöðnun undirliggjandi verðbólgu kann að benda til þess að mögulega muni „síðasta mílan“ reynast peningastefnunefnd óþægur ljár í þúfu, að mati hagfræðings Kviku banka, og það verði langhlaup að koma verðbólgunni alla leið niður í 2,5 prósenta markmið. Þrátt fyrir að verðbólgulækkunin í nóvember hafi verið minni en spár greinenda gerðu ráð fyrir þá breytir það ekki væntingum um allt að hundrað punkta vaxtalækkun á fyrstu tveimur fundum nefndarinnar á nýju ári. Innherji 28.11.2024 16:20
Hlutabréfaverð Amaroq nálgast hæsta gildi eftir að gullvinnsla hófst í Nalunaq Innherji 28.11.2024 09:47
Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri innanlandssviðs hjá Eimskip. Harpa Hödd Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs í stað Eddu Rutar. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 17:04
Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 13:25
Undir hluthöfum komið hvort skráning sameinaðs félags hér heima heppnist Marel kemur inn í áformaðan risasamruna við John Bean Technologies (JBT) „algjörlega sem jafningi“ bandaríska fyrirtækisins, að sögn Árna Sigurðssonar forstjóra, sem telur að hluthafar ættu að hafa enn meiri trú á sameinuðu félagi sem verði með einstaka stærðarhagkvæmni og segist ekki hafa upplifað neina fjárfesta tala „ákveðið“ á móti samrunanum. Í viðtali við Innherja undirstrikar hann að það séu hagsmunir þeirra sem vilja taka tilboðinu hjá JBT að ákveða sig snemma fremur en á lokametrunum og brýnir hluthafa Marel að það sé undir þeim komið hvort skráningin á Íslandi muni heppnast vel eða ekki þegar fram í sækir. Innherji 26. nóvember 2024 07:55
Niðurstöður fyrstu borana í Nanoq gefa til kynna „hágæða-gullsvæði“ Niðurstöður úr rannsóknarborunum Amaroq Minerals í Nanoq á Suður-Grænland sýndu fram á háan styrkleika gulls á svæðinu og undirstrikar mikla möguleika leyfisins, að sögn forstjóra auðlindafyrirtækisins. Frekari boranir eru áformaðar á næsta ári en fyrstu niðurstöður gefa vísbendingar um að hægt sé að finna gull í magni sem má telja í milljónum únsa. Innherji 26. nóvember 2024 07:14
Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Formgalli varð til þess að ákvörðun Neytendastofu um að sekta Hagkaup um 850 þúsund krónur var felld niður að hluta. Hagkaup sitja samt sem áður uppi með 400 þúsund króna stjórnvaldssekt. Neytendur 25. nóvember 2024 15:05
Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins. Lífið 23. nóvember 2024 07:04
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22. nóvember 2024 19:01
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22. nóvember 2024 13:43
ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22. nóvember 2024 11:27
Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Arion banki hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar lækkunar stýrivaxta. Verðtryggðir vextir hækka og bankinn færir rök fyrir máli sínu samhliða tilkynningunni. Viðskipti innlent 22. nóvember 2024 10:06
Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Ljósvakamiðlarnir Sýn, Sjónvarp Símans og Ríkisútvarpið hafa stofnað til sérstakra íslenskra sjónvarpsverðlauna. Stefnt er að því að verðlaunin verði afhent í fyrsta sinn maí næstkomandi á sérstökum viðburði. Bíó og sjónvarp 21. nóvember 2024 16:40
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21. nóvember 2024 12:22
Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendastofa hefur slegið á putta Olís og Orkunnar fyrir fullyrðingar í auglýsingum um að eldsneyti stöðvanna væri kolefnisjafnað. Auglýsingarnar hafi gefið það í skyn að eldsneytisviðskipti neytenda hefðu engin áhrif á umhverfið. Neytendur 21. nóvember 2024 11:17
Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Fasteignafélagið Heimar hefur sett af stað umfangsmiklar framkvæmdir í austurenda Smáralindar en þar á að rísa nýtt veitingasvæði. Áætlað er að þrettán veitingastaðir verði opnaðir á þessu nýja svæði í Smáralind fyrir lok árs 2025. Um verður að ræða allt frá skyndibita yfir í fínni veitingastaði sem einnig verða opnir á kvöldin. Viðskipti innlent 21. nóvember 2024 10:15
Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20. nóvember 2024 21:31
Fyrsta flug þotu sem markar þáttaskil í sögu Icelandair Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug í Hamborg í gær. Stefnt er að því að flugvélin komi til landsins 3. desember og hefji áætlunarflug viku síðar. Innlent 20. nóvember 2024 20:24
Varar við launahækkunum umfram núverandi kjarasamninga Seðlabankinn býst við að verðbólga verði komin niður í 2,5 prósent árið 2026. Seðlabankastjóri segir þó óvissuþætti í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum. Innlent 20. nóvember 2024 18:59
Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Íslandsbanki ætlar að lækka óverðtryggða vexti á útlánum sínum um allt að 0,5 prósentustig í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti sína. Tilkynning Íslandsbanka var send út innan við stundarfjórðungi eftir að ákvörðun Seðlabankans var kynnt. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 08:53
Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug frá Airbus-verksmiðjunum í Hamborg í Þýskalandi í dag. Flugvélin, af gerðinni Airbus A321neo, hóf sig til flugs laust eftir hádegi að staðartíma. Innlent 19. nóvember 2024 23:55
Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19. nóvember 2024 12:49
Gjaldeyrisáhrifin af kaupunum á Marel farin að skila sér í styrkingu krónunnar Gengi krónunnar hefur styrkst verulega á allra síðustu vikum, einkum vegna kaupa erlendra fjárfestingarsjóða á bréfum í Marel í aðdraganda væntanlegs samruna við bandaríska félagið JBT, og er núna í sínu sterkasta gildi í meira en eitt ár. Sérfræðingar segja því ljóst að áhrifin vegna kaupanna á Marel séu nú þegar farin að koma fram á gjaldeyrismarkaði en innlendir fjárfestar fara með meirihluta í félaginu og munu fá greitt að stórum hluta í reiðufé í erlendri mynt. Innherji 19. nóvember 2024 12:23