Trúmál Hvetja fólk til að fámenna: „Við venjulegar kringumstæður hefði það auðvitað fyllt mann af angri og depurð“ Helgihald hefur víða verið með óhefðbundnu sniði vegna kórónuveirufaraldursins. Séra Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju, segir að vel hafi gengið en óvenjulegt hafi verið að þurfa hvetja fólk til að mæta ekki í messu. Innlent 25.12.2021 12:24 „Stíga inn í nútímann“ og streyma helgihaldi Helgihald skipar eðli málsins samkvæmt stóran sess í hátíðarhöldum almennings yfir jólin. Tvísýnt hefur verið um fjölmenna viðburði vegna kórónuveirufaraldursins og trúarathafnir eru þar engin undantekning. Messum í dag, aðfangadag, verður streymt en einnig verður unnt taka á móti kirkjugestum með notkun hraðprófa. Innlent 24.12.2021 07:26 Von á miklum fjölda við útför Fjölnis Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður, sem lést 11. desember, verður kvaddur í Fossvogskirkju á morgun klukkan 13. Óvissuástand er vegna útbreiðslu Covid, sem gæti raskað athöfninni og hefur reyndar þegar sett strik í reikninginn. Innlent 20.12.2021 11:39 Maður barinn til dauða fyrir meint helgispjöll á Indlandi Karlmaður var barinn til dauða í indversku borginni Amritsar, grunaður um að hafa framið helgispjöll í Gullna hofinu. Hofið er heilagasti helgidómur Síka en atvikið átti sér stað þegar Síkar voru við bænir í hofinu. Erlent 19.12.2021 08:11 Fagna sigri gyðinga fyrir meira en tvö þúsund árum á ljósahátíðinni Á sama tíma og margir Íslendingar búa sig undir jólin er íslenska gyðingasamfélagið búið að halda upp á sína hátíð. Nokkur hundruð manns tilheyra samfélaginu en rabbíni segist þakklátur fyrir stuðningin sem yfirvöld og Íslendingar hafa veitt þeim. Innlent 18.12.2021 19:42 Um sameiginlega hagsmuni Ég spilaði einu sinni með vöskum varnarmanni sem átti það til að einblýna svo mikið á andstæðinginn að hann gleymdi stundum að passa markið sitt. Skoðun 14.12.2021 08:30 Jú, það er komið nóg Eftir fordæmalausa þolinmæði þjóðarinnar gagnvart stjórnarmyndun þingmeirihlutans hefur nú loksins litið dagsins ljós fjárlagafrumvarp ársins 2022. Fá hafa vafalaust iðað meira í skinninu eftir því að blaða í rafrænum talnarunum fjárlaga heldur en forsvarsfólks þeirra félagasamtaka sem eiga starfsemi sína að einhverju leyti undir þeim tölustöfum sem birtast svart á hvítu í frumvarpinu. Skoðun 11.12.2021 10:00 Er ekki komið nóg? Það vekur athygli á þessu tímum, þegar stjórnvöld hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að verja bæði fyrirtæki og einstaklinga fyrir því gríðarlega tekjufalli sem svo margir urðu fyrir í kjölfar covid 19, að lesa það í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að „þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 985 kr. á mánuði árið 2022 fyrir hvern einstakling...“. Skoðun 10.12.2021 13:30 Jólin verða blótuð undir berum himni Jólin verða blótuð undir berum himni af Ásatrúarmönnum í ár í glænýju hofi trúfélagsins. Þó hofið sé ekki alveg tilbúið enn verður það loksins tekið í notkun fyrir hátíðirnar eftir framkvæmdir sem hafa tafist um nokkur ár. Innlent 30.11.2021 07:00 Fardagar sóknargjalda Íslenska ríkið borgar trúfélögum og lífsskoðunarfélögum sóknargjöld eftir fjölda fólks sem er skráð í viðkomandi félag fyrsta desember árið á undan. Nú er fyrsti desember á morgun. Vitið þið hvar þið eruð skráð? Eruð þið alveg viss? Ég spyr, því það skiptir máli – ríkið mun úthluta meira en tíuþúsundkalli á mann á næsta ári eftir skráningunni á morgun. Skoðun 29.11.2021 18:01 Drungalegt yfir Skálholtskirkju og kirkjuklukkurnar þagnaðar Það er hálf drungalegt í Skálholti þessa dagana í skammdeginu því kirkjan er ómáluð og kirkjuklukkur kirkjunnar eru þagnaðar. Það horfir þó til bjartari tíma næsta vor þegar kirkjan verður máluð og nýjar kirkjuklukkur verða settar upp, auk nýs þaks á kirkjuna. Innlent 28.11.2021 21:48 Postulakirkja lífvarðar Sigga hakkara og Menningarsetur múslima afskráð á þessu ári Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur afskráð tvö trúfélög það sem af eru þessu ári. Annað þeirra var Menningarsetur múslima á Íslandi sem varð gjaldþrota en hitt kristlegur söfnuður undir stjórn fyrrverandi hermanns sem starfaði um tíma sem lífvörður Sigga „hakkara“. Innlent 28.11.2021 09:00 Á meðal þeirra sem við þjónum Öll viljum við láta gott af okkur leiða í lífinu. Á Covid-tímum höfum við sérstaklega verið minnt á hversu samskipti og samvera með samstarfsfólki, vinum og vinkonum og ekki síst þeim sem okkur þykir vænst um er mikilvæg. Skoðun 28.11.2021 08:01 Allt sem þú vissir ekki um sóknargjöld Í starfi mínu sem framkvæmdastjóri Siðmenntar fæ ég mjög reglulega sömu spurningarnar aftur og aftur um sóknargjöld og eðli þeirra. Þá rekst ég einnig ítrekað á sömu mýturnar um þau í umræðunni. Nú þegar 1. desember er handan við hornið, uppgjörsdagur sóknargjalda, datt mér í hug að reyna að tækla þessar spurningar og mýtur allar í eitt skipti fyrir öll. Skoðun 27.11.2021 08:00 Að sá efasemdarfræjum í umræðunni til að afvegaleiða hana Áður en lengra er haldið vil ég þakka Pétri G. Markan, biskupsritara, kærlega fyrir grein hans, „Gögnin liggja fyrir”, sem hann birti í kjölfarið á minni grein um sama efni, en það er nokkuð óvanalegt að kirkjunnar fólk sé tilbúið að taka svona opna og hreinskipta umræðu um kirkjujarðasamkomulagið og forsendur þess. Skoðun 15.11.2021 09:31 Forréttindablind kirkja í bata Þjóðkirkjan hefur verið forréttindastofnun í samfélaginu í yfir 1000 ár. Ekki að það sé með öllu slæmt, saga kirkju og þjóðar er samofin, kirkjan gegnir enn mikilvægu menningarlegu hlutverki og leggur sig fram um að þjóna öllum sem til kirkjunnar leita, óháð lífssýn. Skoðun 10.11.2021 14:00 Gagnrýnir samkomulag ríkis og kirkju harðlega: „Sannarlega óhagstæðustu samningar sem ríkið hefur gert“ Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri lífsskoðunarfélagsins Siðmenntar, telur að samkomulag ríkis og kirkju frá árinu 1997, iðulega kallað kirkjujarðasamkomulagið, séu óhagstæðustu samningar Íslandssögunnar. Þeir muni að endingu kosta ríkið yfir 100 milljarða og skila litlu sem engu til baka. Innlent 9.11.2021 22:06 Tengir aukinn kvíða ungs fólks við að heil kynslóð hafi ekki lesið biblíusögur Skoða þarf aukinn kvíða hjá ungu fólki í samhengi við að undanfarin tuttugu ár hafi heil kynslóð hvorki lært biblíusögur né fengið kristindómsfræðslu, að mati vígslubiskups á Hólum. Hún segir vanþekkingu fólks á starfi Þjóðkirkjunnar skýra lítið traust til hennar. Innlent 9.11.2021 11:31 Kirkjujarðasamkomulagið - Sannarlega óhagstæðustu samningar Íslandssögunnar Haustið 2019 skrifaði ég grein sem birtist hér á Vísi um kirkjujarðasamkomulagið svokallaða, sem ég kallaði óhagstæðustu samninga Íslandssögunnar. Á þeim tímapunkti var um hálfgerðan leynisamning að ræða. Skoðun 9.11.2021 09:30 Frestaði aðalmeðferð í máli Zuism fram í febrúar Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði aðalmeðferð í máli á hendur forsvarsmönnum trúfélagsins Zuism fram í febrúar í dag. Tveir bræður sem stýrðu félaginu eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 1.11.2021 17:56 Bein útsending: Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, er heiðursgestur á málþingi um loftslagskreppuna og framtíðina sem er haldið í Þjóðminjasafni Íslands í dag. Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi hér á Vísi. Innlent 29.10.2021 13:00 Stór hluti presta „innheimti ekki nema brot af því sem er í boði“ Sóknarprestur í stærstu sókn landsins telur að prestar séu almennt sammála um að afnema eigi gjöld fyrir aukaverk, þó að deilt hafi verið um málið á kirkjuþingi í gær. Hún er bjartsýn á að gjöldin verði afnumin í náinni framtíð. Innlent 27.10.2021 21:31 Leggja til verulega fækkun presta á landsbyggðinni Tillaga um fækkun stöðugilda presta hjá Þjóðkirkjunni um 10,5 verður lögð fyrir kirkjuþing sem fram fer í um helgina og í byrjun næstu viku. Flest stöðugildin sem lagt er til að verði aflögð eru á landsbyggðinni. Samkvæmt tillögum verða stöðugildi presta á landinu þá alls 134,7 og fækkar þeim um 10,5. Innlent 20.10.2021 13:48 Fundu sverð krossfara á hafsbotni við Ísrael Áhugakafari fann sverð sem er talið hafa tilheyrt riddara sem tók þátt í einni krossfaranna fyrir um 900 árum undan ströndum norðanverðs Ísraels um helgina. Sverðið er sagt í nær fullkomnu ástandi þrátt fyrir að það hafið verið hjúpað sjávarlífverum. Erlent 19.10.2021 11:19 Enn er 691 skráður í trúfélag Zúista Enn er 691 einstaklingur skráður í trúfélag Zúista, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands um skráningu í trúfélög og lífsskoðunarfélög. Innlent 10.10.2021 11:28 Á þriðja hundrað þúsund börn misnotuð af kaþólskum prestum Um það bil 216 þúsund börn hafa verið misnotuð af kaþólskum prestum í Frakklandi frá árinu 1950. Óttast er að fjöldi barna gæti náð 330 þúsund þegar misnotkun af hálfu annarra meðlima kirkjunnar er tekin inn í myndina. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknarskýrslu sem birt var í dag. Erlent 5.10.2021 10:16 Fækkaði um þrjá í þjóðkirkjunni Alls voru 229.714 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um þrjá einstaklinga frá 1. desember. Innlent 7.9.2021 16:33 Páfi hafnar fréttum um að hann ætli að segja af sér Frans páfi segir ekkert hæft í fréttum ítalskra fjölmiðla um að ætli að segja af sér á næstunni. Hann lifi nú fullkomulega eðlilegu lífi eftir ristilaðgerð sem hann gekkst undir í júlí. Erlent 1.9.2021 10:09 Grænt ljós á mosku við Suðurlandsbraut Borgaryfirvöld hafa veitt Félagi múslima á Íslandi leyfi til að reisa mosku við Suðurlandsbraut 76. Bænahúsið verður á tveimur hæðum og rúmir 677 fermetrar að stærð. Innlent 27.8.2021 08:32 Blessaður leigusamningurinn veiti heimild fyrir merkingunum Formaður Flokks fólksins kannast ekkert við að sóknarnefnd Grafarvogskirkju sé ósátt með merkingar flokksins á kirkjunni og við hana. Hún telur skýra heimild fyrir merkingunum í leigusamningi milli flokksins og kirkjunnar en flokkurinn leigir kjallara hennar undir skrifstofur sínar. Innlent 24.8.2021 13:00 « ‹ 10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 25 ›
Hvetja fólk til að fámenna: „Við venjulegar kringumstæður hefði það auðvitað fyllt mann af angri og depurð“ Helgihald hefur víða verið með óhefðbundnu sniði vegna kórónuveirufaraldursins. Séra Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju, segir að vel hafi gengið en óvenjulegt hafi verið að þurfa hvetja fólk til að mæta ekki í messu. Innlent 25.12.2021 12:24
„Stíga inn í nútímann“ og streyma helgihaldi Helgihald skipar eðli málsins samkvæmt stóran sess í hátíðarhöldum almennings yfir jólin. Tvísýnt hefur verið um fjölmenna viðburði vegna kórónuveirufaraldursins og trúarathafnir eru þar engin undantekning. Messum í dag, aðfangadag, verður streymt en einnig verður unnt taka á móti kirkjugestum með notkun hraðprófa. Innlent 24.12.2021 07:26
Von á miklum fjölda við útför Fjölnis Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður, sem lést 11. desember, verður kvaddur í Fossvogskirkju á morgun klukkan 13. Óvissuástand er vegna útbreiðslu Covid, sem gæti raskað athöfninni og hefur reyndar þegar sett strik í reikninginn. Innlent 20.12.2021 11:39
Maður barinn til dauða fyrir meint helgispjöll á Indlandi Karlmaður var barinn til dauða í indversku borginni Amritsar, grunaður um að hafa framið helgispjöll í Gullna hofinu. Hofið er heilagasti helgidómur Síka en atvikið átti sér stað þegar Síkar voru við bænir í hofinu. Erlent 19.12.2021 08:11
Fagna sigri gyðinga fyrir meira en tvö þúsund árum á ljósahátíðinni Á sama tíma og margir Íslendingar búa sig undir jólin er íslenska gyðingasamfélagið búið að halda upp á sína hátíð. Nokkur hundruð manns tilheyra samfélaginu en rabbíni segist þakklátur fyrir stuðningin sem yfirvöld og Íslendingar hafa veitt þeim. Innlent 18.12.2021 19:42
Um sameiginlega hagsmuni Ég spilaði einu sinni með vöskum varnarmanni sem átti það til að einblýna svo mikið á andstæðinginn að hann gleymdi stundum að passa markið sitt. Skoðun 14.12.2021 08:30
Jú, það er komið nóg Eftir fordæmalausa þolinmæði þjóðarinnar gagnvart stjórnarmyndun þingmeirihlutans hefur nú loksins litið dagsins ljós fjárlagafrumvarp ársins 2022. Fá hafa vafalaust iðað meira í skinninu eftir því að blaða í rafrænum talnarunum fjárlaga heldur en forsvarsfólks þeirra félagasamtaka sem eiga starfsemi sína að einhverju leyti undir þeim tölustöfum sem birtast svart á hvítu í frumvarpinu. Skoðun 11.12.2021 10:00
Er ekki komið nóg? Það vekur athygli á þessu tímum, þegar stjórnvöld hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að verja bæði fyrirtæki og einstaklinga fyrir því gríðarlega tekjufalli sem svo margir urðu fyrir í kjölfar covid 19, að lesa það í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að „þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 985 kr. á mánuði árið 2022 fyrir hvern einstakling...“. Skoðun 10.12.2021 13:30
Jólin verða blótuð undir berum himni Jólin verða blótuð undir berum himni af Ásatrúarmönnum í ár í glænýju hofi trúfélagsins. Þó hofið sé ekki alveg tilbúið enn verður það loksins tekið í notkun fyrir hátíðirnar eftir framkvæmdir sem hafa tafist um nokkur ár. Innlent 30.11.2021 07:00
Fardagar sóknargjalda Íslenska ríkið borgar trúfélögum og lífsskoðunarfélögum sóknargjöld eftir fjölda fólks sem er skráð í viðkomandi félag fyrsta desember árið á undan. Nú er fyrsti desember á morgun. Vitið þið hvar þið eruð skráð? Eruð þið alveg viss? Ég spyr, því það skiptir máli – ríkið mun úthluta meira en tíuþúsundkalli á mann á næsta ári eftir skráningunni á morgun. Skoðun 29.11.2021 18:01
Drungalegt yfir Skálholtskirkju og kirkjuklukkurnar þagnaðar Það er hálf drungalegt í Skálholti þessa dagana í skammdeginu því kirkjan er ómáluð og kirkjuklukkur kirkjunnar eru þagnaðar. Það horfir þó til bjartari tíma næsta vor þegar kirkjan verður máluð og nýjar kirkjuklukkur verða settar upp, auk nýs þaks á kirkjuna. Innlent 28.11.2021 21:48
Postulakirkja lífvarðar Sigga hakkara og Menningarsetur múslima afskráð á þessu ári Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur afskráð tvö trúfélög það sem af eru þessu ári. Annað þeirra var Menningarsetur múslima á Íslandi sem varð gjaldþrota en hitt kristlegur söfnuður undir stjórn fyrrverandi hermanns sem starfaði um tíma sem lífvörður Sigga „hakkara“. Innlent 28.11.2021 09:00
Á meðal þeirra sem við þjónum Öll viljum við láta gott af okkur leiða í lífinu. Á Covid-tímum höfum við sérstaklega verið minnt á hversu samskipti og samvera með samstarfsfólki, vinum og vinkonum og ekki síst þeim sem okkur þykir vænst um er mikilvæg. Skoðun 28.11.2021 08:01
Allt sem þú vissir ekki um sóknargjöld Í starfi mínu sem framkvæmdastjóri Siðmenntar fæ ég mjög reglulega sömu spurningarnar aftur og aftur um sóknargjöld og eðli þeirra. Þá rekst ég einnig ítrekað á sömu mýturnar um þau í umræðunni. Nú þegar 1. desember er handan við hornið, uppgjörsdagur sóknargjalda, datt mér í hug að reyna að tækla þessar spurningar og mýtur allar í eitt skipti fyrir öll. Skoðun 27.11.2021 08:00
Að sá efasemdarfræjum í umræðunni til að afvegaleiða hana Áður en lengra er haldið vil ég þakka Pétri G. Markan, biskupsritara, kærlega fyrir grein hans, „Gögnin liggja fyrir”, sem hann birti í kjölfarið á minni grein um sama efni, en það er nokkuð óvanalegt að kirkjunnar fólk sé tilbúið að taka svona opna og hreinskipta umræðu um kirkjujarðasamkomulagið og forsendur þess. Skoðun 15.11.2021 09:31
Forréttindablind kirkja í bata Þjóðkirkjan hefur verið forréttindastofnun í samfélaginu í yfir 1000 ár. Ekki að það sé með öllu slæmt, saga kirkju og þjóðar er samofin, kirkjan gegnir enn mikilvægu menningarlegu hlutverki og leggur sig fram um að þjóna öllum sem til kirkjunnar leita, óháð lífssýn. Skoðun 10.11.2021 14:00
Gagnrýnir samkomulag ríkis og kirkju harðlega: „Sannarlega óhagstæðustu samningar sem ríkið hefur gert“ Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri lífsskoðunarfélagsins Siðmenntar, telur að samkomulag ríkis og kirkju frá árinu 1997, iðulega kallað kirkjujarðasamkomulagið, séu óhagstæðustu samningar Íslandssögunnar. Þeir muni að endingu kosta ríkið yfir 100 milljarða og skila litlu sem engu til baka. Innlent 9.11.2021 22:06
Tengir aukinn kvíða ungs fólks við að heil kynslóð hafi ekki lesið biblíusögur Skoða þarf aukinn kvíða hjá ungu fólki í samhengi við að undanfarin tuttugu ár hafi heil kynslóð hvorki lært biblíusögur né fengið kristindómsfræðslu, að mati vígslubiskups á Hólum. Hún segir vanþekkingu fólks á starfi Þjóðkirkjunnar skýra lítið traust til hennar. Innlent 9.11.2021 11:31
Kirkjujarðasamkomulagið - Sannarlega óhagstæðustu samningar Íslandssögunnar Haustið 2019 skrifaði ég grein sem birtist hér á Vísi um kirkjujarðasamkomulagið svokallaða, sem ég kallaði óhagstæðustu samninga Íslandssögunnar. Á þeim tímapunkti var um hálfgerðan leynisamning að ræða. Skoðun 9.11.2021 09:30
Frestaði aðalmeðferð í máli Zuism fram í febrúar Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði aðalmeðferð í máli á hendur forsvarsmönnum trúfélagsins Zuism fram í febrúar í dag. Tveir bræður sem stýrðu félaginu eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 1.11.2021 17:56
Bein útsending: Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, er heiðursgestur á málþingi um loftslagskreppuna og framtíðina sem er haldið í Þjóðminjasafni Íslands í dag. Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi hér á Vísi. Innlent 29.10.2021 13:00
Stór hluti presta „innheimti ekki nema brot af því sem er í boði“ Sóknarprestur í stærstu sókn landsins telur að prestar séu almennt sammála um að afnema eigi gjöld fyrir aukaverk, þó að deilt hafi verið um málið á kirkjuþingi í gær. Hún er bjartsýn á að gjöldin verði afnumin í náinni framtíð. Innlent 27.10.2021 21:31
Leggja til verulega fækkun presta á landsbyggðinni Tillaga um fækkun stöðugilda presta hjá Þjóðkirkjunni um 10,5 verður lögð fyrir kirkjuþing sem fram fer í um helgina og í byrjun næstu viku. Flest stöðugildin sem lagt er til að verði aflögð eru á landsbyggðinni. Samkvæmt tillögum verða stöðugildi presta á landinu þá alls 134,7 og fækkar þeim um 10,5. Innlent 20.10.2021 13:48
Fundu sverð krossfara á hafsbotni við Ísrael Áhugakafari fann sverð sem er talið hafa tilheyrt riddara sem tók þátt í einni krossfaranna fyrir um 900 árum undan ströndum norðanverðs Ísraels um helgina. Sverðið er sagt í nær fullkomnu ástandi þrátt fyrir að það hafið verið hjúpað sjávarlífverum. Erlent 19.10.2021 11:19
Enn er 691 skráður í trúfélag Zúista Enn er 691 einstaklingur skráður í trúfélag Zúista, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands um skráningu í trúfélög og lífsskoðunarfélög. Innlent 10.10.2021 11:28
Á þriðja hundrað þúsund börn misnotuð af kaþólskum prestum Um það bil 216 þúsund börn hafa verið misnotuð af kaþólskum prestum í Frakklandi frá árinu 1950. Óttast er að fjöldi barna gæti náð 330 þúsund þegar misnotkun af hálfu annarra meðlima kirkjunnar er tekin inn í myndina. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknarskýrslu sem birt var í dag. Erlent 5.10.2021 10:16
Fækkaði um þrjá í þjóðkirkjunni Alls voru 229.714 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um þrjá einstaklinga frá 1. desember. Innlent 7.9.2021 16:33
Páfi hafnar fréttum um að hann ætli að segja af sér Frans páfi segir ekkert hæft í fréttum ítalskra fjölmiðla um að ætli að segja af sér á næstunni. Hann lifi nú fullkomulega eðlilegu lífi eftir ristilaðgerð sem hann gekkst undir í júlí. Erlent 1.9.2021 10:09
Grænt ljós á mosku við Suðurlandsbraut Borgaryfirvöld hafa veitt Félagi múslima á Íslandi leyfi til að reisa mosku við Suðurlandsbraut 76. Bænahúsið verður á tveimur hæðum og rúmir 677 fermetrar að stærð. Innlent 27.8.2021 08:32
Blessaður leigusamningurinn veiti heimild fyrir merkingunum Formaður Flokks fólksins kannast ekkert við að sóknarnefnd Grafarvogskirkju sé ósátt með merkingar flokksins á kirkjunni og við hana. Hún telur skýra heimild fyrir merkingunum í leigusamningi milli flokksins og kirkjunnar en flokkurinn leigir kjallara hennar undir skrifstofur sínar. Innlent 24.8.2021 13:00
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið