Hryðjuverk í London Minnst fimmtíu létust í árásunum Tala látinna eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum á fimmtudagsmorgun var í gærkvöld komin í 49, að sögn lögreglu ytra og ljóst að hún ætti enn eftir að hækka. 22 voru enn sagðir í lífshættu og ekki er vitað um afdrif fjölda fólks. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um nákvæmlega hversu margra er saknað. Hinir látnu voru af átta þjóðernum hið minnsta. Erlent 13.10.2005 19:29 Allir Íslendingarnir fundnir Starfsmenn utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Lundúnum hafa gengið úr skugga um að enginn Íslendingur var á meðal fórnarlamba tilræðanna í fyrradag. Erlent 13.10.2005 19:29 Íslendingar í London Engar fréttir höfðu borist af Íslendingum á sjúkrahúsum í Lundúnum í gærkvöldi og engin íslendingur er meðal hinna látnu. Fjöldi manns hafði samband við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í gær, bæði til að spyrjast fyrir um vini og ættingja, og til að láta vita af sér. Nú munu aðeins vera þrír Íslendingar í Lundúnum, sem ekki er vitað nákvæmlega um, en ekki er þó óttast um þá. Erlent 13.10.2005 19:28 Öryggisgæsla í Evrópu aukin Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega. Erlent 13.10.2005 19:28 Lífið í Lundúnum heldur áfram Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður, er í London og hún segir ótrúlegt að meiri háttar hryðjuverkaárás hafi verið gerð í borgina í gær því lítil ummerki eru sýnileg. Hún segir að það sé í við rólegra í borginni en á hefðbundnum föstudegi og ekki að sjá að borgin sé í helgreipum óttans. Lundúnabúar virðast ekki ætla að láta sigra sig svo auðveldlega. Erlent 13.10.2005 19:29 Lífið heldur áfram í London Rúmum sólarhring eftir að sprengjuárásirnar dundu yfir Lundúnir var lífið í borginni smátt og smátt farið að færast í sitt fyrra horf. Svipaða sögu er að segja um sumarfrí íslenskrar fjölskyldu sem Sveinn Guðmarsson hitti á Leicester Square. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 19:29 Taldi sig sjá grunsamlegan mann Farþegar í strætisvagni sem var sprengdur telja sig hafa séð sjálfsmorðssprengjuárásarmann um borð í honum. Eitt vitni segir að maðurinn hafi hegðað sér grunsamlega, virst stressaður og hafi sífellt fitlað við eitthvað í bakpokanum sínum. Erlent 13.10.2005 19:29 Atburðarás dagsins Skelfing og ringulreið setti mark sitt á morguninn í London þar sem lengi vel var óljóst hvað væri um að vera. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2, rekur atburðarásina. Erlent 13.10.2005 19:28 150 alvarlega slasaðir Strætisvagn var sprengdur í loft upp framan við hótel þar sem Helgi Snær Gunnlaugsson var staddur og segir hann mikla geðshræringu ríkja. Hótelið hefur verið rýmt vegna sprengjuleitar. Talsmaður sjúkraflutningamanna í London segir a.m.k. 150 manns alvarlega slasaða. Erlent 13.10.2005 19:28 Neyðarfundur hjá öryggisráðinu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á neyðarfundi fyrir stundu til að fordæma hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum í morgun sem kostuðu minnst 45 manns lífið. Tölur um slasaða í árásunum eru enn nokkuð á reiki en samkvæmt bresku sjónvarpsstöðinni Sky er óttast að um þúsund manns hafi slasast, þar af á annað hundrað alvarlega. Erlent 13.10.2005 19:28 Vottar fjölskyldum látinna samúð Elísabet önnur Bretadrottning sendi frá sér tilkynningu í kjölfar hryðjuverkaárásanna í gærmorgun. Erlent 13.10.2005 19:28 Beita skal öllum ráðum Jacques Chirac Frakklandsforseti og Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, voru sammála um að berjast yrði gegn hryðjuverkum með öllum tiltækum ráðum þegar þeir fordæmdu árásirnar í samtölum við fjölmiðla í gær. Þeir vottuðu bresku þjóðinni samúð sína. Erlent 13.10.2005 19:28 Aukafréttatími á Stöð 2 í hádeginu Aukafréttatími verður á Stöð 2 í hádeginu vegna sprenginganna í Lundúnum í morgun. Fréttatíminn hefst klukkan 12. Erlent 13.10.2005 19:28 Handahófskennt fjöldamorð Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúnaborgar, segir árásirnar í Lundúnum handahófskennt fjöldamorð hryðjuverkamanna. Erlent 13.10.2005 19:28 Fordæma árásirnar Hamid Karzai, forseti Afganistans, segir hryðjuverkin í Lundúnum viðurstyggileg og hneykslanleg. Hann segir það liggja fyrir að tilgangurinn hafi verið að myrða saklausa borgara og fordæmir árásirnar harðlega. Erlent 13.10.2005 19:28 Hóta Dönum og Ítölum sömu meðferð "Hin Leynilegu samtök heilags stríðs al-Kaida í Evrópu" sem lýst hafi sig ábyrg fyrir hryðjuverkunum í London í gær hafa hótað Dönum og Ítölum sömu örlögum styðji þessar þjóðir áfram við bakið á Bandaríkjamönnum í hernaði þeirra í Írak og Afganistan. Erlent 13.10.2005 19:28 Samtökin sem lýstu ábyrgð á hendur Samtökin sem lýst hafa ábyrgð á hendur sér vegna árásanna í London eru ekki áður ókunn, eins og fullyrt hefur verið af sérfræðingum Erlent 13.10.2005 19:28 Þrjátíu og átta biðu bana Mannskæðasta árás sem Lundúnabúar hafa orðið fyrir frá stríðslokum var gerð í gær. Fjögur sprengjutilræði voru framin á háannatíma í lestum og strætisvögnum borgarinnar. Að minnsta kosti 38 biðu bana og 700 slösuðust, sumir mjög alvarlega. Erlent 13.10.2005 19:28 Fullkomið öryggi útilokað Sérfræðingar í hryðjuverkavörnum segja að aldrei verði hægt að koma algjörlega í veg fyrir árásir á borð við þær sem gerðar voru á Lundúnir í gær. Vopna- og sprengiefnaleit á hverjum einasta farþega væri alltof kostnaðar- og tafsöm til að hún væri réttlætanleg. Erlent 13.10.2005 19:28 A.m.k. tveir látnir og 90 slasaðir Hið minnsta tveir eru látnir og 90 eru slasaðir eftir sprengingarnar í Lundúnum í morgun. Að sögn talsmanns lögreglunnar var um sex sprengingar að ræða. Erlent 13.10.2005 19:28 Skýrar andstæður George W. Bush Bandaríkjaforseti telur að andstæðurnar á milli þjóðarleiðtoganna í Gleneagles í Skotlandi og tilræðismannanna í New York gætu ekki verið skarpari. Erlent 13.10.2005 19:28 Talað um fjórar sprengingar Samkvæmt nýjustu fréttaskeytum voru sprengingarnar í London fjórar en fyrr í dag var talið að þær hefðu ekki verið færri en sex. Breska útvarpið greinir frá skelfilegum aðstæðum á vettvangi: fólk sem misst hefur útlimi og er mjög illa leikið. Erlent 13.10.2005 19:28 Sjónarvottar segja fleiri látna Breska útvarpið, BBC, segir að árás hafi verið gerð á Lundúnir. Yfirvöld vilja ekki segja neitt um hvað kann að hafa gerst en engir aðrir velkjast í vafa um að hryðjuverkaárásir hafi verið gerðar. Fjöldi fólks hefur slasast og og staðfestu hefur verið að tveir féllu. Sjónarvottar sem breskir fjölmiðlar ræða við greina frá mun fleiri föllnum. Erlent 13.10.2005 19:28 Hið minnsta 37 látnir Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum í dag. Tala þeirra sem fórust hefur verið mjög á reiki í dag. Reuters-fréttaþjónustan hefur heimildir fyrir því að fjörutíu og fimm hafi farist. Erlent 13.10.2005 19:28 Tíu létust við King´s Cross CNN greindi rétt í þessu frá því að tíu hefðu farist í árásinni við King´s Cross stöðina. Ferðir Eurostar-lesta um Ermasundsgöngin hafa verið felldar niður í kjölfar árásanna. Víðar í Evrópu berast fregnir sem ýta undir óttann: tvær stórar verslunarmiðstöðvar hafa til að mynda verið rýmdar í Búdapest og í Varsjá varð mikið uppnám vegna bruna í megin stjórnarbyggingunni þar. Erlent 13.10.2005 19:28 37 látnir; al-Qaida ábyrg Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásum í Lundúnum í dag. Hópur tengdur al-Qaida kveðst bera ábyrgð á sjö sprengingum á fjórum stöðum í borginni. Erlent 13.10.2005 19:28 Sprengingar í Lundúnum Röð sprenginga hefur átt sér stað í neðanjarðarlestakerfi Lundúna undanfarnar mínútur. Að sögn lögeglunnar á svæðinu eru einhver meiðsli á fólki en ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu alvarleg þau eru eða eða hversu umfangsmikill mannskaðinn er. Erlent 13.10.2005 19:28 Útiloka ekki fleiri árásir Almenningur verður að vera vel á verði, segja talsmenn lögregluyfirvalda í London, þar sem ekki sé ljóst hvort að hrinu hryðjuverkaárása í borginni sé lokið. Bandarísk yfirvöld hafa einnig ákveðið að hækka viðbúnaðarstigið þar í landi, þó aðeins fyrir lestarkerfi og neðanjarðarlestir. Flugsamgöngur verða eftir sem áður með sama hætti og venjulega. Erlent 13.10.2005 19:28 Al-Qaida enn á ný? Al-Qaida er enn á ný á kreiki í Evrópu, miðað við yfirlýsingu sem birtist undir hádegi. Samtökin hóta þar Dönum og Ítölum vegna starfa þarlendra í Írak og Afganistan. Erlent 13.10.2005 19:28 Fögnuður varð að hryllingi Dagarnir sjötti og sjöundi júlí 2005 marka djúp spor í sögu Lundúnabúa, hvor með sínum hætti. Fyrri daginn ljómaði borgin af æstum fögnuði yfir því að hafa verið útnefnd til að hýsa Ólympíuleikana árið 2012, en morguninn eftir brast á hryllingur hryðjuverka með röð sprenginga í almenningssamgöngukerfi borgarinnar. Erlent 13.10.2005 19:28 « ‹ 5 6 7 8 9 ›
Minnst fimmtíu létust í árásunum Tala látinna eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum á fimmtudagsmorgun var í gærkvöld komin í 49, að sögn lögreglu ytra og ljóst að hún ætti enn eftir að hækka. 22 voru enn sagðir í lífshættu og ekki er vitað um afdrif fjölda fólks. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um nákvæmlega hversu margra er saknað. Hinir látnu voru af átta þjóðernum hið minnsta. Erlent 13.10.2005 19:29
Allir Íslendingarnir fundnir Starfsmenn utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Lundúnum hafa gengið úr skugga um að enginn Íslendingur var á meðal fórnarlamba tilræðanna í fyrradag. Erlent 13.10.2005 19:29
Íslendingar í London Engar fréttir höfðu borist af Íslendingum á sjúkrahúsum í Lundúnum í gærkvöldi og engin íslendingur er meðal hinna látnu. Fjöldi manns hafði samband við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í gær, bæði til að spyrjast fyrir um vini og ættingja, og til að láta vita af sér. Nú munu aðeins vera þrír Íslendingar í Lundúnum, sem ekki er vitað nákvæmlega um, en ekki er þó óttast um þá. Erlent 13.10.2005 19:28
Öryggisgæsla í Evrópu aukin Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega. Erlent 13.10.2005 19:28
Lífið í Lundúnum heldur áfram Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður, er í London og hún segir ótrúlegt að meiri háttar hryðjuverkaárás hafi verið gerð í borgina í gær því lítil ummerki eru sýnileg. Hún segir að það sé í við rólegra í borginni en á hefðbundnum föstudegi og ekki að sjá að borgin sé í helgreipum óttans. Lundúnabúar virðast ekki ætla að láta sigra sig svo auðveldlega. Erlent 13.10.2005 19:29
Lífið heldur áfram í London Rúmum sólarhring eftir að sprengjuárásirnar dundu yfir Lundúnir var lífið í borginni smátt og smátt farið að færast í sitt fyrra horf. Svipaða sögu er að segja um sumarfrí íslenskrar fjölskyldu sem Sveinn Guðmarsson hitti á Leicester Square. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 19:29
Taldi sig sjá grunsamlegan mann Farþegar í strætisvagni sem var sprengdur telja sig hafa séð sjálfsmorðssprengjuárásarmann um borð í honum. Eitt vitni segir að maðurinn hafi hegðað sér grunsamlega, virst stressaður og hafi sífellt fitlað við eitthvað í bakpokanum sínum. Erlent 13.10.2005 19:29
Atburðarás dagsins Skelfing og ringulreið setti mark sitt á morguninn í London þar sem lengi vel var óljóst hvað væri um að vera. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2, rekur atburðarásina. Erlent 13.10.2005 19:28
150 alvarlega slasaðir Strætisvagn var sprengdur í loft upp framan við hótel þar sem Helgi Snær Gunnlaugsson var staddur og segir hann mikla geðshræringu ríkja. Hótelið hefur verið rýmt vegna sprengjuleitar. Talsmaður sjúkraflutningamanna í London segir a.m.k. 150 manns alvarlega slasaða. Erlent 13.10.2005 19:28
Neyðarfundur hjá öryggisráðinu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á neyðarfundi fyrir stundu til að fordæma hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum í morgun sem kostuðu minnst 45 manns lífið. Tölur um slasaða í árásunum eru enn nokkuð á reiki en samkvæmt bresku sjónvarpsstöðinni Sky er óttast að um þúsund manns hafi slasast, þar af á annað hundrað alvarlega. Erlent 13.10.2005 19:28
Vottar fjölskyldum látinna samúð Elísabet önnur Bretadrottning sendi frá sér tilkynningu í kjölfar hryðjuverkaárásanna í gærmorgun. Erlent 13.10.2005 19:28
Beita skal öllum ráðum Jacques Chirac Frakklandsforseti og Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, voru sammála um að berjast yrði gegn hryðjuverkum með öllum tiltækum ráðum þegar þeir fordæmdu árásirnar í samtölum við fjölmiðla í gær. Þeir vottuðu bresku þjóðinni samúð sína. Erlent 13.10.2005 19:28
Aukafréttatími á Stöð 2 í hádeginu Aukafréttatími verður á Stöð 2 í hádeginu vegna sprenginganna í Lundúnum í morgun. Fréttatíminn hefst klukkan 12. Erlent 13.10.2005 19:28
Handahófskennt fjöldamorð Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúnaborgar, segir árásirnar í Lundúnum handahófskennt fjöldamorð hryðjuverkamanna. Erlent 13.10.2005 19:28
Fordæma árásirnar Hamid Karzai, forseti Afganistans, segir hryðjuverkin í Lundúnum viðurstyggileg og hneykslanleg. Hann segir það liggja fyrir að tilgangurinn hafi verið að myrða saklausa borgara og fordæmir árásirnar harðlega. Erlent 13.10.2005 19:28
Hóta Dönum og Ítölum sömu meðferð "Hin Leynilegu samtök heilags stríðs al-Kaida í Evrópu" sem lýst hafi sig ábyrg fyrir hryðjuverkunum í London í gær hafa hótað Dönum og Ítölum sömu örlögum styðji þessar þjóðir áfram við bakið á Bandaríkjamönnum í hernaði þeirra í Írak og Afganistan. Erlent 13.10.2005 19:28
Samtökin sem lýstu ábyrgð á hendur Samtökin sem lýst hafa ábyrgð á hendur sér vegna árásanna í London eru ekki áður ókunn, eins og fullyrt hefur verið af sérfræðingum Erlent 13.10.2005 19:28
Þrjátíu og átta biðu bana Mannskæðasta árás sem Lundúnabúar hafa orðið fyrir frá stríðslokum var gerð í gær. Fjögur sprengjutilræði voru framin á háannatíma í lestum og strætisvögnum borgarinnar. Að minnsta kosti 38 biðu bana og 700 slösuðust, sumir mjög alvarlega. Erlent 13.10.2005 19:28
Fullkomið öryggi útilokað Sérfræðingar í hryðjuverkavörnum segja að aldrei verði hægt að koma algjörlega í veg fyrir árásir á borð við þær sem gerðar voru á Lundúnir í gær. Vopna- og sprengiefnaleit á hverjum einasta farþega væri alltof kostnaðar- og tafsöm til að hún væri réttlætanleg. Erlent 13.10.2005 19:28
A.m.k. tveir látnir og 90 slasaðir Hið minnsta tveir eru látnir og 90 eru slasaðir eftir sprengingarnar í Lundúnum í morgun. Að sögn talsmanns lögreglunnar var um sex sprengingar að ræða. Erlent 13.10.2005 19:28
Skýrar andstæður George W. Bush Bandaríkjaforseti telur að andstæðurnar á milli þjóðarleiðtoganna í Gleneagles í Skotlandi og tilræðismannanna í New York gætu ekki verið skarpari. Erlent 13.10.2005 19:28
Talað um fjórar sprengingar Samkvæmt nýjustu fréttaskeytum voru sprengingarnar í London fjórar en fyrr í dag var talið að þær hefðu ekki verið færri en sex. Breska útvarpið greinir frá skelfilegum aðstæðum á vettvangi: fólk sem misst hefur útlimi og er mjög illa leikið. Erlent 13.10.2005 19:28
Sjónarvottar segja fleiri látna Breska útvarpið, BBC, segir að árás hafi verið gerð á Lundúnir. Yfirvöld vilja ekki segja neitt um hvað kann að hafa gerst en engir aðrir velkjast í vafa um að hryðjuverkaárásir hafi verið gerðar. Fjöldi fólks hefur slasast og og staðfestu hefur verið að tveir féllu. Sjónarvottar sem breskir fjölmiðlar ræða við greina frá mun fleiri föllnum. Erlent 13.10.2005 19:28
Hið minnsta 37 látnir Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum í dag. Tala þeirra sem fórust hefur verið mjög á reiki í dag. Reuters-fréttaþjónustan hefur heimildir fyrir því að fjörutíu og fimm hafi farist. Erlent 13.10.2005 19:28
Tíu létust við King´s Cross CNN greindi rétt í þessu frá því að tíu hefðu farist í árásinni við King´s Cross stöðina. Ferðir Eurostar-lesta um Ermasundsgöngin hafa verið felldar niður í kjölfar árásanna. Víðar í Evrópu berast fregnir sem ýta undir óttann: tvær stórar verslunarmiðstöðvar hafa til að mynda verið rýmdar í Búdapest og í Varsjá varð mikið uppnám vegna bruna í megin stjórnarbyggingunni þar. Erlent 13.10.2005 19:28
37 látnir; al-Qaida ábyrg Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásum í Lundúnum í dag. Hópur tengdur al-Qaida kveðst bera ábyrgð á sjö sprengingum á fjórum stöðum í borginni. Erlent 13.10.2005 19:28
Sprengingar í Lundúnum Röð sprenginga hefur átt sér stað í neðanjarðarlestakerfi Lundúna undanfarnar mínútur. Að sögn lögeglunnar á svæðinu eru einhver meiðsli á fólki en ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu alvarleg þau eru eða eða hversu umfangsmikill mannskaðinn er. Erlent 13.10.2005 19:28
Útiloka ekki fleiri árásir Almenningur verður að vera vel á verði, segja talsmenn lögregluyfirvalda í London, þar sem ekki sé ljóst hvort að hrinu hryðjuverkaárása í borginni sé lokið. Bandarísk yfirvöld hafa einnig ákveðið að hækka viðbúnaðarstigið þar í landi, þó aðeins fyrir lestarkerfi og neðanjarðarlestir. Flugsamgöngur verða eftir sem áður með sama hætti og venjulega. Erlent 13.10.2005 19:28
Al-Qaida enn á ný? Al-Qaida er enn á ný á kreiki í Evrópu, miðað við yfirlýsingu sem birtist undir hádegi. Samtökin hóta þar Dönum og Ítölum vegna starfa þarlendra í Írak og Afganistan. Erlent 13.10.2005 19:28
Fögnuður varð að hryllingi Dagarnir sjötti og sjöundi júlí 2005 marka djúp spor í sögu Lundúnabúa, hvor með sínum hætti. Fyrri daginn ljómaði borgin af æstum fögnuði yfir því að hafa verið útnefnd til að hýsa Ólympíuleikana árið 2012, en morguninn eftir brast á hryllingur hryðjuverka með röð sprenginga í almenningssamgöngukerfi borgarinnar. Erlent 13.10.2005 19:28