Grindavík Sundhnúkareinin gæti verið á leið í mjög langt frí Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segist telja mögulegt að eldgosið sem hófst um helgina verði síðasta eldgosið á svæðinu í bili, þó eldvirkni á Reykjanesi sé hvergi nærri lokið. Mögulega eigi kerfið eitt eldgos í sér til viðbótar, sem verði þá eftir rúman mánuð. Innlent 18.3.2024 09:14 Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin á ný Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, segir það ekki koma á óvart ef eldgosinu, sem hófst á laugardag, lýkur á næstu sólarhringum. Innlent 18.3.2024 08:51 Gígveggurinn hækkað en annars fátt að frétta af gosinu Gangur í eldgosinu sem nú stendur yfir á Reykjanesi virðist vera með svipuðu móti og í gærkvöldi en leiðindaveður og lélegt skyggni koma í veg fyrir að hægt sé að leggja almennilegt mat á þróun mála. Innlent 18.3.2024 06:27 Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. Innlent 17.3.2024 19:48 Ætti að vera í kirkju en skoðar hraunið í staðinn „Það er sunnudagur. Maður ætti að vera í kirkju, en svo er maður hér,“ segir Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamaður hjá jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu þegar hann var staddur við hraunjaðarinn ásamt fleiri vísindamönnum að safna sýnum úr hrauninu sem hefur runnið síðan í gærkvöldi. Innlent 17.3.2024 18:17 Telur ólíklegt að hraunið nái að Suðurstrandarvegi Verkfræðingur hjá Eflu segir ólíklegt að hraunrennsli nái að Suðurstrandavegi og út í sjó. Aðeins voru um 150 metrar í að hrauntungan sem rann í vesturátt að Svartsengi næði að hitaveitulögn, en rennslið virðist hafa stöðvast. Innlent 17.3.2024 16:59 Hraunið færist nær Suðurstrandarvegi Náttúruvásérfræðingur á von á því að hraun nái út í sjó áður en langt um líður. Hann segir mikilvægt að benda á að engum sé hollt að dvelja nálægt þegar það gerist, þar sem hættulegar gastegundir kunni að myndast. Hraun rennur rennur um tuttugu metra á klukkustund. Innlent 17.3.2024 15:08 „Áframhaldandi áfall fyrir alla Grindvíkinga“ Forsætisráðherra segist ekki ætla að fagna neinu fyrr en ljóst sé hvernig atburðarrásinni í yfirstandandi eldgosi vindi fram. Erfitt sé að horfa upp á atburðinn sem sé enn eitt áfallið fyrir Grindvíkinga. Innlent 17.3.2024 13:39 „Nú er allt orðið vel smurt“ Gosstöðvarnar við Grindavík eru orðnar „vel smurðar“ og útskýrir það að miklu leyti hve lítill fyrirvarinn að eldgosinu í gærkvöldi var. Útlit sé fyrir að eldgosið klárist þegar líður að kvöldi en líklega tekur þá aftur við bið eftir næsta eldgosi. Innlent 17.3.2024 13:00 Gerir ráð fyrir löndun í Grindavík á morgun Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segist ekki sjá ástæðu til annars en að halda sig við áætlanir um löndun inni í Grindavík á morgun. Hann skynji bjartsýni meðal bæjarbúa og segir bjarta framtíð framundan. Innlent 17.3.2024 12:41 Gýs á þremur stöðum og óvissa um styrk gasmengunar Verulega dró úr skjálftavirkni í nótt og mældist nánast engin skjálftavirkni eftir klukkan 3 til morguns. Þá dró einnig úr gósóróa og virkni á gossprungunni eftir því sem leið á nóttina. Gýs nú á þremur stöðum og er virkasti hluti sprungunnar austan við Sýlingarfell, en minni gosop norðar. Innlent 17.3.2024 12:27 „Þetta segir okkur að við erum ekki tilbúin að fara heim“ Bæjarstjóri Grindavíkur segir atburði síðasta sólarhrings sýna að íbúar Grindavíkur séu ekki tilbúnir til að snúa aftur á heimili sín. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að hefja starfsemi í bænum á milli gosa, á meðan jörðin er róleg. Innlent 17.3.2024 12:02 Hrauntungan 100 metrum frá Njarðvíkuræðinni Sviðsstjóri almannavarna segir enn töluvert hraunrennsli úr eldgosinu sem hófst í gærkvöldi. Hætta er á gufusprengingum og gasmengun nái hraunið út í sjó. Vindur og úrkoma verði þó líklega til þess að það dreifist mjög hratt úr því og ekki stafi hætta af, nema þá staðbundin. Innlent 17.3.2024 10:29 Byrjað að flæða úr tjörninni Enn flæðir hraun úr sprungunni á Reykjanesi, þó dregið hafi úr virkni þar og hraunflæði. Hraunið flæðir í tvær áttir, til vesturs í átt að Grindavíkurvegi, þar sem hraunið hefur farið yfir veginn og nálgast Njarðvíkuræð, og til suðurs í átt að Suðurstrandavegi. Innlent 17.3.2024 10:26 Eldgosið í nótt í myndum Svo virðist sem að dregið hafi töluvert úr gosvirkni í nótt og í morgun en þegar mest var, var hraunflæðið við Grindavík mikið. Hraun flæddi yfir Grindavíkurveg og fór einnig í átt að Suðurstrandaveg. Innlent 17.3.2024 08:26 Vaktin: Meiri gasmökkur nú en í öllum hinum gosunum Hraun flæðir enn frá eldgosi sem hófst milli Skógfells og Hagafells á níunda tímanum í gærkvöldi. Þó hefur dregið töluvert úr virkni og gosrennsli. Innlent 17.3.2024 06:58 Rafmagn tekið af Grindavík Rafmagn var tekið af í Grindavík rétt í þessu en á vefmyndavélum sést að ljós í bænum hafa slokknað. Innlent 17.3.2024 01:19 Hraunið rennur hratt og stefnir á Suðurstrandarveg Víðir Reynisson sviðsstjóri hjá Almannavörnum segir að hrauntungurnar tvær frá gosinu við Grindavík valdi mönnum áhyggjum. Stutt er í að hraun renni bæði yfir Grindavíkur- og Suðurstrandaveg. Innlent 16.3.2024 23:19 Öflugasta gosið hingað til Magnús Tumi Guðmundsson eldfjallafræðingur segir að gosið sem hófst í kvöld virðast vera það kraftmesta af þeim sem hafa verið á Reykjanesskaganum undanfarin misseri. Innlent 16.3.2024 23:04 Sjö hundruð manns drifu sig úr Bláa lóninu Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming í Grindavík og í Bláa lóninu hafi gengið vel. Örfáir voru í bænum að hans sögn, en sex- til sjöhundruð í Bláa lóninu. Innlent 16.3.2024 22:35 „Ég væri heima núna ef ég mætti það“ Íbúi í Grindavík sem var heima hjá sér þegar byrjaði að gjósa segir að engir jarðskjálftakippir hafi fundist áður en gosið hófst. Hann segir að hann væri heima hjá sér núna ef hann mætti. Innlent 16.3.2024 22:23 Bein útsending: Enn gýs í grennd við Grindavík Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra-Skógfells norðan Grindavíkur klukkan 20:23 í kvöld. Örfáir Grindvíkingar yfirgáfu bæinn og Bláa lónið var rýmt með hraði. Innlent 16.3.2024 21:54 Viðvörunarlúðrar hljóma í Grindavík Síðustu nætur hefur verið gist í fimm til tíu húsum í Grindavík og sáust bílar aka Grindavíkurvegi út úr bænum eftir að eldgosið hófst á níunda tímanum í kvöld. Innlent 16.3.2024 21:50 Búið að rýma í Bláa lóninu Bláa lónið í Svartsengi hefur þegar rýmt öll sín athafnarsvæði vegna eldsumbrotanna við Sundhnjúkagígaröðina nú í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Innlent 16.3.2024 21:30 Myndband sýnir upphaf eldgossins Eldgos hófst með miklum krafti yfir kvikuganginum í Sundhnúksgígum klukkan 20:23 í kvöld. Sjónarvottar lýsa töluverðu gjóskufalli yfir Grindavíkurvegi undan gosmekkinum. Innlent 16.3.2024 21:22 „Það er verið að rýma Grindavík“ Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í loftið yfir gossvæðið á Reykjanesi til að afla upplýsinga um eldgosið sem hófst á níunda tímanum. Verið er að lýsa yfir neyðarstigi á svæðinu. Innlent 16.3.2024 21:08 Vaktin: Eldgos er hafið á Sundhnúkagígaröðinni Eldgos hófst við Sundhnúka milli Stóra-Skógfells og Hagafells klukkan 20:23 í kvöld. Aðdragandinn var stuttur. Hraun rennur í tvær áttir og ógnar bæði Grindavíkurvegi og Suðurstrandarvegi. Innlent 16.3.2024 20:27 Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða. Innlent 16.3.2024 13:00 Engin merki um að jarðhræringum á Reykjanesi ljúki í bráð Veðurstofa Íslands segir engin skýr merki um að jarðhræringum á Reykjanesi og við Grindavík ljúki á næstunni. Kvikusöfnun heldur áfram undir svartsengi og á meðan eru líkur á öðru kvikuhlaupi og að það leiði til eldgoss á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 15.3.2024 16:39 Á allt eins von á gosi um helgina Framhald jarðhræringa á Reykjanesskaga er þrungið mun meiri óvissu nú en áður. Eldfjallafræðingur segir að tregða gæti verið komin í kerfið og kvika gæti þannig mögulega leitað upp á öðrum slóðum en áður. Þá sé spá tveggja vísindamanna um möguleg lok jarðhræringanna síðsumars athyglisverð. Innlent 15.3.2024 12:05 « ‹ 11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 74 ›
Sundhnúkareinin gæti verið á leið í mjög langt frí Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segist telja mögulegt að eldgosið sem hófst um helgina verði síðasta eldgosið á svæðinu í bili, þó eldvirkni á Reykjanesi sé hvergi nærri lokið. Mögulega eigi kerfið eitt eldgos í sér til viðbótar, sem verði þá eftir rúman mánuð. Innlent 18.3.2024 09:14
Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin á ný Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, segir það ekki koma á óvart ef eldgosinu, sem hófst á laugardag, lýkur á næstu sólarhringum. Innlent 18.3.2024 08:51
Gígveggurinn hækkað en annars fátt að frétta af gosinu Gangur í eldgosinu sem nú stendur yfir á Reykjanesi virðist vera með svipuðu móti og í gærkvöldi en leiðindaveður og lélegt skyggni koma í veg fyrir að hægt sé að leggja almennilegt mat á þróun mála. Innlent 18.3.2024 06:27
Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. Innlent 17.3.2024 19:48
Ætti að vera í kirkju en skoðar hraunið í staðinn „Það er sunnudagur. Maður ætti að vera í kirkju, en svo er maður hér,“ segir Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamaður hjá jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu þegar hann var staddur við hraunjaðarinn ásamt fleiri vísindamönnum að safna sýnum úr hrauninu sem hefur runnið síðan í gærkvöldi. Innlent 17.3.2024 18:17
Telur ólíklegt að hraunið nái að Suðurstrandarvegi Verkfræðingur hjá Eflu segir ólíklegt að hraunrennsli nái að Suðurstrandavegi og út í sjó. Aðeins voru um 150 metrar í að hrauntungan sem rann í vesturátt að Svartsengi næði að hitaveitulögn, en rennslið virðist hafa stöðvast. Innlent 17.3.2024 16:59
Hraunið færist nær Suðurstrandarvegi Náttúruvásérfræðingur á von á því að hraun nái út í sjó áður en langt um líður. Hann segir mikilvægt að benda á að engum sé hollt að dvelja nálægt þegar það gerist, þar sem hættulegar gastegundir kunni að myndast. Hraun rennur rennur um tuttugu metra á klukkustund. Innlent 17.3.2024 15:08
„Áframhaldandi áfall fyrir alla Grindvíkinga“ Forsætisráðherra segist ekki ætla að fagna neinu fyrr en ljóst sé hvernig atburðarrásinni í yfirstandandi eldgosi vindi fram. Erfitt sé að horfa upp á atburðinn sem sé enn eitt áfallið fyrir Grindvíkinga. Innlent 17.3.2024 13:39
„Nú er allt orðið vel smurt“ Gosstöðvarnar við Grindavík eru orðnar „vel smurðar“ og útskýrir það að miklu leyti hve lítill fyrirvarinn að eldgosinu í gærkvöldi var. Útlit sé fyrir að eldgosið klárist þegar líður að kvöldi en líklega tekur þá aftur við bið eftir næsta eldgosi. Innlent 17.3.2024 13:00
Gerir ráð fyrir löndun í Grindavík á morgun Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segist ekki sjá ástæðu til annars en að halda sig við áætlanir um löndun inni í Grindavík á morgun. Hann skynji bjartsýni meðal bæjarbúa og segir bjarta framtíð framundan. Innlent 17.3.2024 12:41
Gýs á þremur stöðum og óvissa um styrk gasmengunar Verulega dró úr skjálftavirkni í nótt og mældist nánast engin skjálftavirkni eftir klukkan 3 til morguns. Þá dró einnig úr gósóróa og virkni á gossprungunni eftir því sem leið á nóttina. Gýs nú á þremur stöðum og er virkasti hluti sprungunnar austan við Sýlingarfell, en minni gosop norðar. Innlent 17.3.2024 12:27
„Þetta segir okkur að við erum ekki tilbúin að fara heim“ Bæjarstjóri Grindavíkur segir atburði síðasta sólarhrings sýna að íbúar Grindavíkur séu ekki tilbúnir til að snúa aftur á heimili sín. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að hefja starfsemi í bænum á milli gosa, á meðan jörðin er róleg. Innlent 17.3.2024 12:02
Hrauntungan 100 metrum frá Njarðvíkuræðinni Sviðsstjóri almannavarna segir enn töluvert hraunrennsli úr eldgosinu sem hófst í gærkvöldi. Hætta er á gufusprengingum og gasmengun nái hraunið út í sjó. Vindur og úrkoma verði þó líklega til þess að það dreifist mjög hratt úr því og ekki stafi hætta af, nema þá staðbundin. Innlent 17.3.2024 10:29
Byrjað að flæða úr tjörninni Enn flæðir hraun úr sprungunni á Reykjanesi, þó dregið hafi úr virkni þar og hraunflæði. Hraunið flæðir í tvær áttir, til vesturs í átt að Grindavíkurvegi, þar sem hraunið hefur farið yfir veginn og nálgast Njarðvíkuræð, og til suðurs í átt að Suðurstrandavegi. Innlent 17.3.2024 10:26
Eldgosið í nótt í myndum Svo virðist sem að dregið hafi töluvert úr gosvirkni í nótt og í morgun en þegar mest var, var hraunflæðið við Grindavík mikið. Hraun flæddi yfir Grindavíkurveg og fór einnig í átt að Suðurstrandaveg. Innlent 17.3.2024 08:26
Vaktin: Meiri gasmökkur nú en í öllum hinum gosunum Hraun flæðir enn frá eldgosi sem hófst milli Skógfells og Hagafells á níunda tímanum í gærkvöldi. Þó hefur dregið töluvert úr virkni og gosrennsli. Innlent 17.3.2024 06:58
Rafmagn tekið af Grindavík Rafmagn var tekið af í Grindavík rétt í þessu en á vefmyndavélum sést að ljós í bænum hafa slokknað. Innlent 17.3.2024 01:19
Hraunið rennur hratt og stefnir á Suðurstrandarveg Víðir Reynisson sviðsstjóri hjá Almannavörnum segir að hrauntungurnar tvær frá gosinu við Grindavík valdi mönnum áhyggjum. Stutt er í að hraun renni bæði yfir Grindavíkur- og Suðurstrandaveg. Innlent 16.3.2024 23:19
Öflugasta gosið hingað til Magnús Tumi Guðmundsson eldfjallafræðingur segir að gosið sem hófst í kvöld virðast vera það kraftmesta af þeim sem hafa verið á Reykjanesskaganum undanfarin misseri. Innlent 16.3.2024 23:04
Sjö hundruð manns drifu sig úr Bláa lóninu Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming í Grindavík og í Bláa lóninu hafi gengið vel. Örfáir voru í bænum að hans sögn, en sex- til sjöhundruð í Bláa lóninu. Innlent 16.3.2024 22:35
„Ég væri heima núna ef ég mætti það“ Íbúi í Grindavík sem var heima hjá sér þegar byrjaði að gjósa segir að engir jarðskjálftakippir hafi fundist áður en gosið hófst. Hann segir að hann væri heima hjá sér núna ef hann mætti. Innlent 16.3.2024 22:23
Bein útsending: Enn gýs í grennd við Grindavík Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra-Skógfells norðan Grindavíkur klukkan 20:23 í kvöld. Örfáir Grindvíkingar yfirgáfu bæinn og Bláa lónið var rýmt með hraði. Innlent 16.3.2024 21:54
Viðvörunarlúðrar hljóma í Grindavík Síðustu nætur hefur verið gist í fimm til tíu húsum í Grindavík og sáust bílar aka Grindavíkurvegi út úr bænum eftir að eldgosið hófst á níunda tímanum í kvöld. Innlent 16.3.2024 21:50
Búið að rýma í Bláa lóninu Bláa lónið í Svartsengi hefur þegar rýmt öll sín athafnarsvæði vegna eldsumbrotanna við Sundhnjúkagígaröðina nú í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Innlent 16.3.2024 21:30
Myndband sýnir upphaf eldgossins Eldgos hófst með miklum krafti yfir kvikuganginum í Sundhnúksgígum klukkan 20:23 í kvöld. Sjónarvottar lýsa töluverðu gjóskufalli yfir Grindavíkurvegi undan gosmekkinum. Innlent 16.3.2024 21:22
„Það er verið að rýma Grindavík“ Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í loftið yfir gossvæðið á Reykjanesi til að afla upplýsinga um eldgosið sem hófst á níunda tímanum. Verið er að lýsa yfir neyðarstigi á svæðinu. Innlent 16.3.2024 21:08
Vaktin: Eldgos er hafið á Sundhnúkagígaröðinni Eldgos hófst við Sundhnúka milli Stóra-Skógfells og Hagafells klukkan 20:23 í kvöld. Aðdragandinn var stuttur. Hraun rennur í tvær áttir og ógnar bæði Grindavíkurvegi og Suðurstrandarvegi. Innlent 16.3.2024 20:27
Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða. Innlent 16.3.2024 13:00
Engin merki um að jarðhræringum á Reykjanesi ljúki í bráð Veðurstofa Íslands segir engin skýr merki um að jarðhræringum á Reykjanesi og við Grindavík ljúki á næstunni. Kvikusöfnun heldur áfram undir svartsengi og á meðan eru líkur á öðru kvikuhlaupi og að það leiði til eldgoss á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 15.3.2024 16:39
Á allt eins von á gosi um helgina Framhald jarðhræringa á Reykjanesskaga er þrungið mun meiri óvissu nú en áður. Eldfjallafræðingur segir að tregða gæti verið komin í kerfið og kvika gæti þannig mögulega leitað upp á öðrum slóðum en áður. Þá sé spá tveggja vísindamanna um möguleg lok jarðhræringanna síðsumars athyglisverð. Innlent 15.3.2024 12:05