Seðlabankinn Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur aldrei komið saman á sérstökum aukafundi til þess að hækka stýrivexti. Forseti ASÍ hélt hinu gagnstæða fram í dag. Innlent 28.11.2024 17:05 Gæti reynst „langhlaup“ að koma verðbólgunni alla leið niður í markmið Hægari hjöðnun undirliggjandi verðbólgu kann að benda til þess að mögulega muni „síðasta mílan“ reynast peningastefnunefnd óþægur ljár í þúfu, að mati hagfræðings Kviku banka, og það verði langhlaup að koma verðbólgunni alla leið niður í 2,5 prósenta markmið. Þrátt fyrir að verðbólgulækkunin í nóvember hafi verið minni en spár greinenda gerðu ráð fyrir þá breytir það ekki væntingum um allt að hundrað punkta vaxtalækkun á fyrstu tveimur fundum nefndarinnar á nýju ári. Innherji 28.11.2024 16:20 Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Forseti Alþýðusambands Íslands vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti frekari lækkun stýrivaxta. Alltof langt sé í næstu stýrivaxtaákvörðun í febrúar í ljósi nýjustu verðbólgumælinga. Raunvaxtastig á landinu sé nú í hæstu hæðum og ekki verði lengi við unað. Viðskipti innlent 28.11.2024 11:32 Breytingar sem taka mið af öðrum veruleika yrðu erfiðar og kostnaðarsamar Verði farin sú leið að aðlaga regluverkið um starfsemi lífeyrissjóða að þeirri evrópsku löggjöf sem gildir um fjármálafyrirtæki, eins og Seðlabankinn hefur talað fyrir, þá mun það hafa í för með sér „verulega breytta hugmyndafræði“ og valda miklum viðbótarkostnaði, að mati framkvæmdastjóra eins af stóru lífeyrissjóðunum. Hann segir oft gleymast að líta til þeirra kosta sem fylgir því að standa utan löggjafar Evrópusambandsins, sem taki iðulega mið af öðrum veruleika, og varar jafnframt við tillögum um að Seðlabankinn fái heimildir til stjórnvaldssekta á lífeyrissjóði. Innherji 27.11.2024 12:51 Þórdís skipar varaseðlabankastjóra eftir að Bjarni sagði sig frá ferlinu Það kemur í hlut Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra að skipa í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu á næstunni eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði sig frá málinu vegna fjölskyldutengsla við einn af umsækjendum. Sjö sóttust eftir embættinu þegar það var auglýst en einn af þeim dró umsókn sína fljótlega til baka. Innherji 26.11.2024 16:14 Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01 „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:43 ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22.11.2024 11:27 Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Seðlabanki Íslands tilkynnti á miðvikudag um 0,5 prósentu lækkun stýrivaxta. Þetta voru ánægjuleg tíðindi og í takt við markmið þeirra kjarasamninga sem gerðir voru síðastliðið vor. Árangur samninganna er nú þegar sjáanlegur, verðbólga hefur lækkað úr 7,9% í 5,2% á einu ári, og nú er útlit fyrir að verðbólga verði í kringum 3% um mitt næsta ár. Skoðun 22.11.2024 11:00 Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21.11.2024 12:22 Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Sparisjóðurinn Indó hefur tilkynnt um vaxtalækkanir á bæði inn- og útlánum. Útlánsvextir eru lækkaðir um 0,75 prósentustig, umfram stýrivaxtalækkun gærdagsins. Til þess að mæta því eru innlánsvextir á debetreikningum lækkaðir um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 21.11.2024 11:50 Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20.11.2024 21:31 Varar við launahækkunum umfram núverandi kjarasamninga Seðlabankinn býst við að verðbólga verði komin niður í 2,5 prósent árið 2026. Seðlabankastjóri segir þó óvissuþætti í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum. Innlent 20.11.2024 18:59 Stærra skref hefði gefið röng skilaboð um að Seðlabankinn vildi minnka aðhaldið Raunvaxtaaðhaldið hefur hækkað lítilega frá síðustu mælingu í ágúst en ekki er „endilega heppilegt“ að það aukist enn frekar, að sögn seðlabankastjóra, og mögulega mun það fara minnkandi á næsta ári þegar framleiðsluspennan í hagkerfinu snýst í slaka. Hann segir flesta þætti núna vera að falla með Seðlabankanum og hefur ekki sömu áhyggjur og áður af framboðsskorti á íbúðamarkaði litið til allra næstu ára. Innherji 20.11.2024 18:04 Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins er í skýjunum með vaxtaákvörðun morgunsins og segir að nú sé þjóðin að uppskera eftir aðhaldssama ríkisfjármálastefnu frá 2022. Formaður Samfylkingarinnar talar aftur á móti um skort á festu í ríkisfjármálum sem hafi bitnað á millistéttinni, vextir séu ennþá allt of háir. Viðskipti innlent 20.11.2024 14:28 Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sat sinn síðasta kynningarfund peningastefnunefndar í morgun en hún lætur af störfum þegar skipunartími hennar rennur út um áramótin. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri nýtti tækifærið við lok fundarins til að þakka Rannveigu fyrir sitt framlag en enginn hefur lengri reynslu en Rannveig af vettvangi peningastefnunefndar. Viðskipti innlent 20.11.2024 13:00 Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð. Seðlabankastjóri segir skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna mjög hratt og hagkerfið að kólna. Viðskipti innlent 20.11.2024 12:03 Brugðist við vaxtalækkun: „Ævintýralegur halli“ og „verðbólga í frjálsu falli“ Stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar eru meðal þeirra sem nú keppast við að bregðast við ákvörðun Seðlabankans um lækkun stýrivaxta og ljóst að einhverjir stjórnmálamenn reyni nú að nýta tíðindin sem tromp í kosningabaráttunni. Innlent 20.11.2024 10:50 Vaxtalækkunin í takt við væntingar en þrálát verðbólga kallar áfram á „varkárni“ Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka vexti um 50 punkta er í samræmi við spár flestra greinenda og markaðsaðila en í yfirlýsingu nefndarinnar, sem er fremur hlutlaus, er undirstrikað að þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalli áfram á „varkárni.“ Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er útlit fyrir engan hagvöxt í ár og þá mun verðbólgan ganga hraðar niður á næsta ári en áður var talið. Innherji 20.11.2024 09:19 100 þúsund á mánuði Vextir eru ekki bara tölur á blaði. Lágir vextir gera fjölskyldum kleift að blómstra, fyrirtækjum að fjárfesta og samfélögum að dafna. Ódýrara fjármagn veitir súrefni inn í hagkerfið, skapar tækifæri og hvetur til nýsköpunar. Skoðun 20.11.2024 09:18 Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr því að vera 9% og niður í 8,5%. Viðskipti innlent 20.11.2024 09:02 Stýrivextir halda áfram að lækka Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð en með síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru vextirnir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem stýrivextir lækkuðu. Viðskipti innlent 20.11.2024 08:31 Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19.11.2024 12:49 „Allt galopið“ en mikill meirihluti telur að bankinn láti 50 punkta lækkun duga Horfur eru á að raunvaxtastigið fari ört hækkandi á komandi mánuðum, mun meira en peningastefnunefnd Seðlabankans hefur sagt nauðsynlegt til að ná niður verðbólgu í markmið, og því er nefndin undir þrýstingi um að ráðast í að lágmarki fimmtíu punkta vaxtalækkun að mati mikils meirihluta markaðsaðila. Á meðan sumir álíta að „skortur á kjarki“ muni aftra því að tekið verði enn stærra skref þótt svigrúm sé til þess, samkvæmt könnun Innherja, þá nefna aðrir að peningastefnunefndin vilji sýna varfærni og horfi meðal annars til meiri fjárlagahalla en upphaflega var ráðgert og óvissu á opinberum vinnumarkaði. Innherji 18.11.2024 07:33 Reddarinn Geiri í Glaumbæ - gömul saga og ný Húsið þar sem nú er Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg var á sínum tíma byggt sem íshús, en hýsti síðan heitasta skemmtistað landsins, Glaumbæ, á sjötta og sjöunda áratugnum. Þúsundir ungmenna sóttu Glaumbæ um hverja helgi. Skoðun 17.11.2024 13:30 „Varhugavert“ að fella lífeyrissjóði undir sama regluverk og gildir um banka Tillögur Seðlabankans um að réttast sé að láta sama laga- og regluverk ná til starfsemi lífeyrissjóðanna og gildir um banka og tryggingafélög eru „varhugaverðar,“ að mati fulltrúa sjóðanna, enda hafi þeir meðal annars sérstöðu vegna aðkomu aðila vinnumarkaðarins ásamt því að vera með „ákveðið“ félagslegt hlutverk. Forseti ASÍ gagnrýnir „ásælni“ Seðlabankans í að hafa enn meiri áhrif á lífeyrissjóðakerfið og skipta sér af því hvernig staðið er að stjórnarkjöri í sjóðina. Innherji 16.11.2024 13:06 Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd lækki stýrivexti um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verða stýrivextir þeir lægstu síðan í maí í fyrra. Viðskipti innlent 14.11.2024 11:35 Verður ábati vaxtalækkana étinn upp af útblásnum kosningaloforðum? Flestir greinendur eru sammála um að peningastefnunefnd Seðlabankans komi til með að ráðast í hressilega vaxtalækkun á fundi sínum í næstu viku. Slík lækkun mun óumflýjanlega, og loksins, létta á veskjum landsmanna sem hafa búið við feiknaháa vexti í öllu samhengi undanfarin tæp tvö ár. Innherji 14.11.2024 10:07 Spá hressilegri vaxtalækkun Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka stýrivexti sína um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Viðskipti innlent 13.11.2024 11:29 Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12.11.2024 11:43 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 48 ›
Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur aldrei komið saman á sérstökum aukafundi til þess að hækka stýrivexti. Forseti ASÍ hélt hinu gagnstæða fram í dag. Innlent 28.11.2024 17:05
Gæti reynst „langhlaup“ að koma verðbólgunni alla leið niður í markmið Hægari hjöðnun undirliggjandi verðbólgu kann að benda til þess að mögulega muni „síðasta mílan“ reynast peningastefnunefnd óþægur ljár í þúfu, að mati hagfræðings Kviku banka, og það verði langhlaup að koma verðbólgunni alla leið niður í 2,5 prósenta markmið. Þrátt fyrir að verðbólgulækkunin í nóvember hafi verið minni en spár greinenda gerðu ráð fyrir þá breytir það ekki væntingum um allt að hundrað punkta vaxtalækkun á fyrstu tveimur fundum nefndarinnar á nýju ári. Innherji 28.11.2024 16:20
Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Forseti Alþýðusambands Íslands vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti frekari lækkun stýrivaxta. Alltof langt sé í næstu stýrivaxtaákvörðun í febrúar í ljósi nýjustu verðbólgumælinga. Raunvaxtastig á landinu sé nú í hæstu hæðum og ekki verði lengi við unað. Viðskipti innlent 28.11.2024 11:32
Breytingar sem taka mið af öðrum veruleika yrðu erfiðar og kostnaðarsamar Verði farin sú leið að aðlaga regluverkið um starfsemi lífeyrissjóða að þeirri evrópsku löggjöf sem gildir um fjármálafyrirtæki, eins og Seðlabankinn hefur talað fyrir, þá mun það hafa í för með sér „verulega breytta hugmyndafræði“ og valda miklum viðbótarkostnaði, að mati framkvæmdastjóra eins af stóru lífeyrissjóðunum. Hann segir oft gleymast að líta til þeirra kosta sem fylgir því að standa utan löggjafar Evrópusambandsins, sem taki iðulega mið af öðrum veruleika, og varar jafnframt við tillögum um að Seðlabankinn fái heimildir til stjórnvaldssekta á lífeyrissjóði. Innherji 27.11.2024 12:51
Þórdís skipar varaseðlabankastjóra eftir að Bjarni sagði sig frá ferlinu Það kemur í hlut Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra að skipa í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu á næstunni eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði sig frá málinu vegna fjölskyldutengsla við einn af umsækjendum. Sjö sóttust eftir embættinu þegar það var auglýst en einn af þeim dró umsókn sína fljótlega til baka. Innherji 26.11.2024 16:14
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:43
ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22.11.2024 11:27
Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Seðlabanki Íslands tilkynnti á miðvikudag um 0,5 prósentu lækkun stýrivaxta. Þetta voru ánægjuleg tíðindi og í takt við markmið þeirra kjarasamninga sem gerðir voru síðastliðið vor. Árangur samninganna er nú þegar sjáanlegur, verðbólga hefur lækkað úr 7,9% í 5,2% á einu ári, og nú er útlit fyrir að verðbólga verði í kringum 3% um mitt næsta ár. Skoðun 22.11.2024 11:00
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21.11.2024 12:22
Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Sparisjóðurinn Indó hefur tilkynnt um vaxtalækkanir á bæði inn- og útlánum. Útlánsvextir eru lækkaðir um 0,75 prósentustig, umfram stýrivaxtalækkun gærdagsins. Til þess að mæta því eru innlánsvextir á debetreikningum lækkaðir um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 21.11.2024 11:50
Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20.11.2024 21:31
Varar við launahækkunum umfram núverandi kjarasamninga Seðlabankinn býst við að verðbólga verði komin niður í 2,5 prósent árið 2026. Seðlabankastjóri segir þó óvissuþætti í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum. Innlent 20.11.2024 18:59
Stærra skref hefði gefið röng skilaboð um að Seðlabankinn vildi minnka aðhaldið Raunvaxtaaðhaldið hefur hækkað lítilega frá síðustu mælingu í ágúst en ekki er „endilega heppilegt“ að það aukist enn frekar, að sögn seðlabankastjóra, og mögulega mun það fara minnkandi á næsta ári þegar framleiðsluspennan í hagkerfinu snýst í slaka. Hann segir flesta þætti núna vera að falla með Seðlabankanum og hefur ekki sömu áhyggjur og áður af framboðsskorti á íbúðamarkaði litið til allra næstu ára. Innherji 20.11.2024 18:04
Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins er í skýjunum með vaxtaákvörðun morgunsins og segir að nú sé þjóðin að uppskera eftir aðhaldssama ríkisfjármálastefnu frá 2022. Formaður Samfylkingarinnar talar aftur á móti um skort á festu í ríkisfjármálum sem hafi bitnað á millistéttinni, vextir séu ennþá allt of háir. Viðskipti innlent 20.11.2024 14:28
Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sat sinn síðasta kynningarfund peningastefnunefndar í morgun en hún lætur af störfum þegar skipunartími hennar rennur út um áramótin. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri nýtti tækifærið við lok fundarins til að þakka Rannveigu fyrir sitt framlag en enginn hefur lengri reynslu en Rannveig af vettvangi peningastefnunefndar. Viðskipti innlent 20.11.2024 13:00
Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð. Seðlabankastjóri segir skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna mjög hratt og hagkerfið að kólna. Viðskipti innlent 20.11.2024 12:03
Brugðist við vaxtalækkun: „Ævintýralegur halli“ og „verðbólga í frjálsu falli“ Stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar eru meðal þeirra sem nú keppast við að bregðast við ákvörðun Seðlabankans um lækkun stýrivaxta og ljóst að einhverjir stjórnmálamenn reyni nú að nýta tíðindin sem tromp í kosningabaráttunni. Innlent 20.11.2024 10:50
Vaxtalækkunin í takt við væntingar en þrálát verðbólga kallar áfram á „varkárni“ Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka vexti um 50 punkta er í samræmi við spár flestra greinenda og markaðsaðila en í yfirlýsingu nefndarinnar, sem er fremur hlutlaus, er undirstrikað að þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalli áfram á „varkárni.“ Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er útlit fyrir engan hagvöxt í ár og þá mun verðbólgan ganga hraðar niður á næsta ári en áður var talið. Innherji 20.11.2024 09:19
100 þúsund á mánuði Vextir eru ekki bara tölur á blaði. Lágir vextir gera fjölskyldum kleift að blómstra, fyrirtækjum að fjárfesta og samfélögum að dafna. Ódýrara fjármagn veitir súrefni inn í hagkerfið, skapar tækifæri og hvetur til nýsköpunar. Skoðun 20.11.2024 09:18
Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr því að vera 9% og niður í 8,5%. Viðskipti innlent 20.11.2024 09:02
Stýrivextir halda áfram að lækka Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð en með síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru vextirnir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem stýrivextir lækkuðu. Viðskipti innlent 20.11.2024 08:31
Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19.11.2024 12:49
„Allt galopið“ en mikill meirihluti telur að bankinn láti 50 punkta lækkun duga Horfur eru á að raunvaxtastigið fari ört hækkandi á komandi mánuðum, mun meira en peningastefnunefnd Seðlabankans hefur sagt nauðsynlegt til að ná niður verðbólgu í markmið, og því er nefndin undir þrýstingi um að ráðast í að lágmarki fimmtíu punkta vaxtalækkun að mati mikils meirihluta markaðsaðila. Á meðan sumir álíta að „skortur á kjarki“ muni aftra því að tekið verði enn stærra skref þótt svigrúm sé til þess, samkvæmt könnun Innherja, þá nefna aðrir að peningastefnunefndin vilji sýna varfærni og horfi meðal annars til meiri fjárlagahalla en upphaflega var ráðgert og óvissu á opinberum vinnumarkaði. Innherji 18.11.2024 07:33
Reddarinn Geiri í Glaumbæ - gömul saga og ný Húsið þar sem nú er Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg var á sínum tíma byggt sem íshús, en hýsti síðan heitasta skemmtistað landsins, Glaumbæ, á sjötta og sjöunda áratugnum. Þúsundir ungmenna sóttu Glaumbæ um hverja helgi. Skoðun 17.11.2024 13:30
„Varhugavert“ að fella lífeyrissjóði undir sama regluverk og gildir um banka Tillögur Seðlabankans um að réttast sé að láta sama laga- og regluverk ná til starfsemi lífeyrissjóðanna og gildir um banka og tryggingafélög eru „varhugaverðar,“ að mati fulltrúa sjóðanna, enda hafi þeir meðal annars sérstöðu vegna aðkomu aðila vinnumarkaðarins ásamt því að vera með „ákveðið“ félagslegt hlutverk. Forseti ASÍ gagnrýnir „ásælni“ Seðlabankans í að hafa enn meiri áhrif á lífeyrissjóðakerfið og skipta sér af því hvernig staðið er að stjórnarkjöri í sjóðina. Innherji 16.11.2024 13:06
Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd lækki stýrivexti um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verða stýrivextir þeir lægstu síðan í maí í fyrra. Viðskipti innlent 14.11.2024 11:35
Verður ábati vaxtalækkana étinn upp af útblásnum kosningaloforðum? Flestir greinendur eru sammála um að peningastefnunefnd Seðlabankans komi til með að ráðast í hressilega vaxtalækkun á fundi sínum í næstu viku. Slík lækkun mun óumflýjanlega, og loksins, létta á veskjum landsmanna sem hafa búið við feiknaháa vexti í öllu samhengi undanfarin tæp tvö ár. Innherji 14.11.2024 10:07
Spá hressilegri vaxtalækkun Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka stýrivexti sína um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Viðskipti innlent 13.11.2024 11:29
Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12.11.2024 11:43