Zuism Zuism-bræður dæmdir í Landsrétti Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sakfelldir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Landsréttur sneri dómi héraðsdóms í málinu sem hafði sýknað bræðurna. Innlent 22.3.2024 14:13 Þungur dómur Zuisma-bróður stendur Áfrýjunarbeiðni Einars Ágústssonar, sem kenndur hefur verið við Zuisma, til Hæstaréttar hefur verið hafnað. Þriggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Landsrétti stendur. Innlent 31.1.2024 20:00 Zuism-bróðir dæmdur í þriggja ára fangelsi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik með því að hafa tugi milljóna króna af fólki með blekkingum á árunum 2010 og 2012. Hann hefur þegar greitt fórnarlömbum sínum stóran hlut fjárhæðarinnar sem hann sveik af fólkinu. Innlent 27.10.2023 15:45 Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms. Innlent 20.6.2022 14:47 Ósannað að blekkingar hafi skilað zúistabræðrum milljónum Tveir bræður sem reka trúfélagið Zuism voru sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti þar sem ósannað var talið að meintar blekkingar þeirra hafi verið ástæða þess að ríkið greiddi þeim tugi milljóna króna í sóknargjöld. Innlent 9.5.2022 15:51 Áfrýjar sýknudómi zúistabræðra til Landsréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi yfir tveimur bræðrum sem reka trúfélagið Zuism til Landsréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði bræðurna af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í síðasta mánuði. Innlent 6.5.2022 10:50 Óljóst hvað verður um sóknargjöld Zuism Ekki liggur fyrir hvort að sýkna stjórnenda trúfélagsins Zuism af ákæru um fjársvik og peningaþvætti hafi áhrif á greiðslur sóknargjalda til félagsins sem hafa verið fryst í meira en þrjú ár. Enn eru hátt í þúsund félagsmenn í Zuism. Innlent 8.4.2022 16:42 Sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Þá var kröfu ákæruvaldsins um upptöku á eignum þeirra hafnað. Innlent 8.4.2022 15:04 Mun þögn Þjóðkirkjunnar senda tvo menn í fangelsi? Nú standa yfir réttarhöld yfir tveimur mönnum sem verða mögulega dæmdir í þriggja ára fangelsi. Í ákærunni er glæpur þeirra sagður sá að svíkja „fjárframlög úr ríkissjóði“ og valda „íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártjóni í reynd“. Þessi meintu fjárframlög úr ríkissjóði voru sóknargjöld. Skoðun 21.3.2022 09:31 Ásatrúarfólki misboðið vegna samanburðar lögmanns við Zuista Ásatrúarfélagið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málflutnings Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns Einars Ágústssonar. Félagið segist halda úti menningarstarfsemi allan ársins hring en ekki koma einstaka sinnum saman til að drekka bjór eins og Jón hafi haldið fram. Innlent 18.3.2022 14:10 Ásatrúarfólki misboðið Í Vísi í dag er frétt um málflutning í máli Ágústar og Einars Ágústssona kennda við Zúisma. Skoðun 18.3.2022 14:00 Líkti Zuism við Ásatrúarfélagið og sagði að gæta þurfi jafnræðis Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir, stofnendur trúfélagsins Zuism, þvertaka fyrir að hafa beitt stjórnvöld blekkingum og stundað stórfelld fjársvik. Þeir hafi allan tímann rekið trúfélagið í góðri trú og viljað láta gott af sér leiða með starfseminni. Innlent 18.3.2022 07:00 Persónuleg neysla Ágústs að stórum hluta fjármögnuð með sóknargjöldum Bræðurnir Einar og Ágúst Arnar Ágústsynir eru sakaðir um að hafa beitt blekkingum og veitt villandi upplýsingar um að Zuism uppfyllti skilyrði um skráð trúfélög og ætti þar með rétt á fjárframlögum frá ríkinu. Þetta hafi verið gert af skýrum ásetningi og peningarnir nýttir í eigin þágu. Innlent 11.3.2022 14:17 Áköf framganga lögmannins vísbending um að eitthvað meira héngi á spýtunni Fulltrúi sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra sem hefur eftirlit með skráðum trúfélögum og lífskoðunarfélögum segir að hann hafi frá upphafi haft efasemdir um lögmæti trúfélagsins Zuism. Hann hafi verið beittur blekkingum þegar hópur fólks tók yfir félagið með það að markmiði að endurgreiða sóknargjöld. Innlent 10.3.2022 17:26 Mannræktarverkefni sem fór í háaloft þegar krumpað hótunarbréf kom inn um lúguna Þegar trúleysingjarnir Snæbjörn Guðmundsson og Ísak Andri Ólafsson uppgötvuðu að til stæði að afskrá trúarfélagið Zuism sáu þeir kjörið tækifæri til að mótmæla stöðu trúmála á Íslandi og sýna fram á ankannaleika kerfisins. Innlent 10.3.2022 15:00 Segist trúaður en að Zuism hafi skuldað þeim fé Einar Ágústsson sagði að uppsöfnuð skuld trúfélagsins Zuism við hann og bróður hans skýrði einhverjar þeirra millifærslna af reikningum félagsins til þeirra og félaga þeirra í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir Ágúst Arnar Ágústsson eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism. Innlent 25.2.2022 17:01 Gat litlu svarað um fjármál Zuism og ráðstöfun fjármuna Fátt var um svör og skýringar þegar Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður Zuism, var spurður út í fjármál félagsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst og bróðir hans Einar eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 25.2.2022 13:24 Kröfu zúista um frávísun á fjársvikamáli hafnað Lögmenn tveggja bræðra sem eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism kröfðust þess í morgun að málinu gegn þeim yrði vísað frá vegna meints vanhæfis saksóknara. Dómari ákvað eftir að hafa velt málinu fyrir sér í um klukkustund að vísa kröfunni frá. Innlent 25.2.2022 10:29 Zúistabróðir fer fram á endurupptöku á þungum fjársvikadómi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem héldu úti trúfélaginu Zuism, hefur óskað eftir því að þungur fangelsisdómur sem hann hlaut fyrir tugmilljóna króna fjárdrátt verði tekinn upp aftur. Þeir bræður eru ákærðir fyrir peningaþvætti og fjársvik vegna Zuism. Innlent 30.11.2021 08:00 Frestaði aðalmeðferð í máli Zuism fram í febrúar Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði aðalmeðferð í máli á hendur forsvarsmönnum trúfélagsins Zuism fram í febrúar í dag. Tveir bræður sem stýrðu félaginu eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 1.11.2021 17:56 Zúistabræðrum hafnað um gögn sem leiddu til rannsóknar Landsréttur hefur hafnað kröfum forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að fá aðgang að erindi frá Skrifstofu fjármálagerninga lörgeglu (SFL) og tilkynningu sem erindið byggði á. Forsvarsmennirnir sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 14.10.2021 15:54 Enn er 691 skráður í trúfélag Zúista Enn er 691 einstaklingur skráður í trúfélag Zúista, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands um skráningu í trúfélög og lífsskoðunarfélög. Innlent 10.10.2021 11:28 Enn fækkar í þjóðkirkjunni Samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár fækkaði meðlimum Þjóðkirkjunnar um 75 á tímabilinu 1. desember 2020 - 1. júlí 2021. Ásatrúarfélagið bætti við sig flestum meðlimum. Innlent 9.7.2021 18:20 Skrautlegri sögu félags forstöðumanns Zuism lokið Einkahlutafélagið RH16 sem var í eigu Ágústs Arnars Ágústssonar, forstöðumanns trúfélagsins Zuism, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það var meðal annars notað til að taka á móti fjármunum sem Ágúst Arnar er sakaður um að hafa tekið sér úr sjóðum félagsins, Viðskipti innlent 26.5.2021 19:58 Frávísunarkröfu Zuism-bræðra hafnað Kröfu forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að ákæru á hendur þeim og félaginu yrði vísað frá var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 9.4.2021 14:01 Saksóknari fann fleiri milljónir Zuism-bræðra í Bandaríkjunum Héraðssaksóknari hefur gert þá kröfu að fleiri eignir Einars Ágústssonar, annars fyrirsvarsmanna trúfélagsins Zuism, verði gerðar upptækar. Um er að ræða allar eignir Einars á reikningum hjá breska verðbréfafyrirtækinu Interactive Brokers í London. Um er að ræða samanlagt rúmlega 16 þúsund dollara eða andvirði rúmlega tveggja milljóna íslenskra króna. Viðskipti innlent 17.2.2021 06:16 Zuism-bræðurnir hafa opnað pítsustað Einar Ágústsson og Ágúst Arnar Ágústsson, sem hvað þekktastir eru sem forsvarsmenn trúfélagsins Zuism, hafa opnað nýjan pítsustað í Garðabæ. Staðurinn heitir Slæs, með vísun til enska orðsins fyrir sneið, og er hann til húsa í Iðnbúð 2 í Garðabæ. Viðskipti innlent 18.1.2021 14:23 Zuism nýtti sér þekkta veikleika á lögum um trúfélög Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 21.12.2020 09:01 Ágúst og Einar neituðu sök og krefjast frávísunar Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir sem stýra trúfélaginu Zuism neituðu sök í máli héraðssaksóknara gegn þeim við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst Arnar og Einar sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 14.12.2020 10:42 Stjórnendur Zuism ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti Tveir bræður sem stýra trúfélaginu Zuism hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Trúfélagið var á tímabili eitt það fjölmennasta á landinu og hefur þegið tugi milljóna króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. Innlent 7.12.2020 11:23 « ‹ 1 2 3 … 3 ›
Zuism-bræður dæmdir í Landsrétti Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sakfelldir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Landsréttur sneri dómi héraðsdóms í málinu sem hafði sýknað bræðurna. Innlent 22.3.2024 14:13
Þungur dómur Zuisma-bróður stendur Áfrýjunarbeiðni Einars Ágústssonar, sem kenndur hefur verið við Zuisma, til Hæstaréttar hefur verið hafnað. Þriggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Landsrétti stendur. Innlent 31.1.2024 20:00
Zuism-bróðir dæmdur í þriggja ára fangelsi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik með því að hafa tugi milljóna króna af fólki með blekkingum á árunum 2010 og 2012. Hann hefur þegar greitt fórnarlömbum sínum stóran hlut fjárhæðarinnar sem hann sveik af fólkinu. Innlent 27.10.2023 15:45
Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms. Innlent 20.6.2022 14:47
Ósannað að blekkingar hafi skilað zúistabræðrum milljónum Tveir bræður sem reka trúfélagið Zuism voru sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti þar sem ósannað var talið að meintar blekkingar þeirra hafi verið ástæða þess að ríkið greiddi þeim tugi milljóna króna í sóknargjöld. Innlent 9.5.2022 15:51
Áfrýjar sýknudómi zúistabræðra til Landsréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi yfir tveimur bræðrum sem reka trúfélagið Zuism til Landsréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði bræðurna af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í síðasta mánuði. Innlent 6.5.2022 10:50
Óljóst hvað verður um sóknargjöld Zuism Ekki liggur fyrir hvort að sýkna stjórnenda trúfélagsins Zuism af ákæru um fjársvik og peningaþvætti hafi áhrif á greiðslur sóknargjalda til félagsins sem hafa verið fryst í meira en þrjú ár. Enn eru hátt í þúsund félagsmenn í Zuism. Innlent 8.4.2022 16:42
Sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Þá var kröfu ákæruvaldsins um upptöku á eignum þeirra hafnað. Innlent 8.4.2022 15:04
Mun þögn Þjóðkirkjunnar senda tvo menn í fangelsi? Nú standa yfir réttarhöld yfir tveimur mönnum sem verða mögulega dæmdir í þriggja ára fangelsi. Í ákærunni er glæpur þeirra sagður sá að svíkja „fjárframlög úr ríkissjóði“ og valda „íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártjóni í reynd“. Þessi meintu fjárframlög úr ríkissjóði voru sóknargjöld. Skoðun 21.3.2022 09:31
Ásatrúarfólki misboðið vegna samanburðar lögmanns við Zuista Ásatrúarfélagið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málflutnings Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns Einars Ágústssonar. Félagið segist halda úti menningarstarfsemi allan ársins hring en ekki koma einstaka sinnum saman til að drekka bjór eins og Jón hafi haldið fram. Innlent 18.3.2022 14:10
Ásatrúarfólki misboðið Í Vísi í dag er frétt um málflutning í máli Ágústar og Einars Ágústssona kennda við Zúisma. Skoðun 18.3.2022 14:00
Líkti Zuism við Ásatrúarfélagið og sagði að gæta þurfi jafnræðis Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir, stofnendur trúfélagsins Zuism, þvertaka fyrir að hafa beitt stjórnvöld blekkingum og stundað stórfelld fjársvik. Þeir hafi allan tímann rekið trúfélagið í góðri trú og viljað láta gott af sér leiða með starfseminni. Innlent 18.3.2022 07:00
Persónuleg neysla Ágústs að stórum hluta fjármögnuð með sóknargjöldum Bræðurnir Einar og Ágúst Arnar Ágústsynir eru sakaðir um að hafa beitt blekkingum og veitt villandi upplýsingar um að Zuism uppfyllti skilyrði um skráð trúfélög og ætti þar með rétt á fjárframlögum frá ríkinu. Þetta hafi verið gert af skýrum ásetningi og peningarnir nýttir í eigin þágu. Innlent 11.3.2022 14:17
Áköf framganga lögmannins vísbending um að eitthvað meira héngi á spýtunni Fulltrúi sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra sem hefur eftirlit með skráðum trúfélögum og lífskoðunarfélögum segir að hann hafi frá upphafi haft efasemdir um lögmæti trúfélagsins Zuism. Hann hafi verið beittur blekkingum þegar hópur fólks tók yfir félagið með það að markmiði að endurgreiða sóknargjöld. Innlent 10.3.2022 17:26
Mannræktarverkefni sem fór í háaloft þegar krumpað hótunarbréf kom inn um lúguna Þegar trúleysingjarnir Snæbjörn Guðmundsson og Ísak Andri Ólafsson uppgötvuðu að til stæði að afskrá trúarfélagið Zuism sáu þeir kjörið tækifæri til að mótmæla stöðu trúmála á Íslandi og sýna fram á ankannaleika kerfisins. Innlent 10.3.2022 15:00
Segist trúaður en að Zuism hafi skuldað þeim fé Einar Ágústsson sagði að uppsöfnuð skuld trúfélagsins Zuism við hann og bróður hans skýrði einhverjar þeirra millifærslna af reikningum félagsins til þeirra og félaga þeirra í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir Ágúst Arnar Ágústsson eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism. Innlent 25.2.2022 17:01
Gat litlu svarað um fjármál Zuism og ráðstöfun fjármuna Fátt var um svör og skýringar þegar Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður Zuism, var spurður út í fjármál félagsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst og bróðir hans Einar eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 25.2.2022 13:24
Kröfu zúista um frávísun á fjársvikamáli hafnað Lögmenn tveggja bræðra sem eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism kröfðust þess í morgun að málinu gegn þeim yrði vísað frá vegna meints vanhæfis saksóknara. Dómari ákvað eftir að hafa velt málinu fyrir sér í um klukkustund að vísa kröfunni frá. Innlent 25.2.2022 10:29
Zúistabróðir fer fram á endurupptöku á þungum fjársvikadómi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem héldu úti trúfélaginu Zuism, hefur óskað eftir því að þungur fangelsisdómur sem hann hlaut fyrir tugmilljóna króna fjárdrátt verði tekinn upp aftur. Þeir bræður eru ákærðir fyrir peningaþvætti og fjársvik vegna Zuism. Innlent 30.11.2021 08:00
Frestaði aðalmeðferð í máli Zuism fram í febrúar Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði aðalmeðferð í máli á hendur forsvarsmönnum trúfélagsins Zuism fram í febrúar í dag. Tveir bræður sem stýrðu félaginu eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 1.11.2021 17:56
Zúistabræðrum hafnað um gögn sem leiddu til rannsóknar Landsréttur hefur hafnað kröfum forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að fá aðgang að erindi frá Skrifstofu fjármálagerninga lörgeglu (SFL) og tilkynningu sem erindið byggði á. Forsvarsmennirnir sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 14.10.2021 15:54
Enn er 691 skráður í trúfélag Zúista Enn er 691 einstaklingur skráður í trúfélag Zúista, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands um skráningu í trúfélög og lífsskoðunarfélög. Innlent 10.10.2021 11:28
Enn fækkar í þjóðkirkjunni Samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár fækkaði meðlimum Þjóðkirkjunnar um 75 á tímabilinu 1. desember 2020 - 1. júlí 2021. Ásatrúarfélagið bætti við sig flestum meðlimum. Innlent 9.7.2021 18:20
Skrautlegri sögu félags forstöðumanns Zuism lokið Einkahlutafélagið RH16 sem var í eigu Ágústs Arnars Ágústssonar, forstöðumanns trúfélagsins Zuism, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það var meðal annars notað til að taka á móti fjármunum sem Ágúst Arnar er sakaður um að hafa tekið sér úr sjóðum félagsins, Viðskipti innlent 26.5.2021 19:58
Frávísunarkröfu Zuism-bræðra hafnað Kröfu forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að ákæru á hendur þeim og félaginu yrði vísað frá var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 9.4.2021 14:01
Saksóknari fann fleiri milljónir Zuism-bræðra í Bandaríkjunum Héraðssaksóknari hefur gert þá kröfu að fleiri eignir Einars Ágústssonar, annars fyrirsvarsmanna trúfélagsins Zuism, verði gerðar upptækar. Um er að ræða allar eignir Einars á reikningum hjá breska verðbréfafyrirtækinu Interactive Brokers í London. Um er að ræða samanlagt rúmlega 16 þúsund dollara eða andvirði rúmlega tveggja milljóna íslenskra króna. Viðskipti innlent 17.2.2021 06:16
Zuism-bræðurnir hafa opnað pítsustað Einar Ágústsson og Ágúst Arnar Ágústsson, sem hvað þekktastir eru sem forsvarsmenn trúfélagsins Zuism, hafa opnað nýjan pítsustað í Garðabæ. Staðurinn heitir Slæs, með vísun til enska orðsins fyrir sneið, og er hann til húsa í Iðnbúð 2 í Garðabæ. Viðskipti innlent 18.1.2021 14:23
Zuism nýtti sér þekkta veikleika á lögum um trúfélög Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 21.12.2020 09:01
Ágúst og Einar neituðu sök og krefjast frávísunar Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir sem stýra trúfélaginu Zuism neituðu sök í máli héraðssaksóknara gegn þeim við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst Arnar og Einar sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 14.12.2020 10:42
Stjórnendur Zuism ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti Tveir bræður sem stýra trúfélaginu Zuism hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Trúfélagið var á tímabili eitt það fjölmennasta á landinu og hefur þegið tugi milljóna króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. Innlent 7.12.2020 11:23
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið