Þýski boltinn Meiddur í nára og lék ekki Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með liði sínu Hannover í þýsku úrvalsdeildinni vegna meiðsla. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Hannover tognaði Gunnar Heiðar lítillega á æfingu fyrir helgi og gat ekki leikið með af þeim sökum. Fótbolti 16.9.2006 21:19 Hargreaves líklega fótbrotinn Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen þurfti að fara meiddur af velli eftir 25 mínútna leik í tapinu gegn Bielefeld í dag og nú eftir nánari skoðun er óttast að hann sé fótbrotinn. Hargreaves var mikið orðaður við lið Manchester United í sumar, en forráðamenn Bayern harðneituðu að selja hann. Hargreaves spilaði á miðjunni hjá Bayern ásamt Mark Van Bommel. Fótbolti 16.9.2006 17:42 Óvænt úrslit í dag Nokkuð var um óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en sex leikir voru á dagskrá. Meistarar Bayern Munchen fengu 2-1 skell fyrir Bielefeld á útivelli og Werder Bremen tapaði 3-2 á heimavelli fyrir Stuttgart. Úrslit dagsins og markaskorara má sjá á Boltavaktinni hérna neðar á síðunni. Fótbolti 16.9.2006 15:43 Loksins sigur hjá Hannover Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover vann í gærkvöld sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Wolfsburg 2-1 á útivelli. Hannover skaust upp af fallsvæðinu með sigrinum, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekki við sögu hjá Hannover í leiknum. Fótbolti 16.9.2006 15:32 Keisarinn er ekki bjartsýnn Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað. Fótbolti 6.9.2006 21:59 Sorin til Hamburger Argentínski landsliðsfyrirliðinn Juan Pablo Sorin gekk í dag í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Hamburger frá spænska liðinu Villarreal og er kaupverðið sagt vera um 2,5 milljónir evra. Sorin er þrítugur varnarmaður og hefur hann undirritað þriggja ára samning við þýska félagið. Fótbolti 31.8.2006 16:10 Fær nýjan þjálfara Peter Neururer, þjálfara Hannover í þýsku úrvalsdeildinni, hefur verið sagt upp störfum. Einungis eru búnir þrír leikir af leiktíðinni en Hannover hefur tapað þeim öllum. Íslenski sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover en hefur ekkert fengið að spreyta sig það sem af er tímabilinu. Fótbolti 30.8.2006 21:25 Van Bommel til Bayern Þýsku meistararnir Bayern Munchen gengu í gær frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Mark Van Bommel frá Evrópumeisturum Barcelona. Kaupverðið er sagt vera um 6 milljónir evra og hefur Van Bommel skrifað undir þriggja ára samning við Bayern. Þar verður honum ætlað að fylla skarð Michael Ballack, en hann verður eflaust óður í að fá að sanna sig eftir að hafa lítið fengið að spila með Barcelona á síðustu leiktíð. Fótbolti 29.8.2006 16:48 Fer ekki til Manchester United Nú er endanlega orðið ljóst að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen verður áfram í herbúðum félagsins og mun ekki fara til Manchester United. Umboðsmaður hans hefur staðfest að enginn möguleiki sé á að leikmaðurinn fái að yfirgefa Bayern, enda hefur stjórnarformaðurinn þar lagt húsið sitt undir þegar hann segir að Hargreaves fari ekki fet - Manchester United verði að snúa sér annað. Fótbolti 29.8.2006 14:34 Bayern ræður ferðinni Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves ítrekaði í gær þá ósk sína að hann vilji komast til Manchester United en sagði jafnframt að málið væri í höndum stjórnar Bayern Munchen. "Framkvæmdarstjórinn hefur fullan rétt á því að neita tilboðum í mig, en hann veit nákvæmlega hvað ég vil," sagði Hargreaves í gær. Fótbolti 25.8.2006 20:40 Verð að vera þolinmóður Sænska staðarblaðið Hallandsposten gerði framgöngu Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hjá Hannover 96 að umfjöllunarefni í gær en hann var áður á mála hjá Halmstad og varð í fyrra markakóngur sænsku deildarinnar. Hann hefur hins vegar ekki verið valinn í hópinn hjá Hannover í fyrstu tveimur leikjum liðsins í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 24.8.2006 21:17 Gefur út yfirlýsingu í dag Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves mun í dag gefa út yfirlýsingu á blaðamannafundi hjá Bayern Munchen, þar sem allt eins er búist við því að hann fari fram á að verða seldur frá félaginu. Orðrómur er á kreiki um að leikmaðurinn hafi verið sektaður fyrir að halda því ítrekað fram í fjölmiðlum að hann vilji ganga í raðir Manchester United á Englandi, en hann er samningsbundinn þýska félaginu til ársins 2010. Fótbolti 23.8.2006 13:37 Markus Merk snýr aftur Þýski knattspyrnudómarinn Markus Merk hefur tilkynnt að hann ætli að halda áfram dómgæslu, en hann tók sér frí af persónulegum ástæðum eftir að hann náði sér alls ekki á strik við dómgæslu í riðlakeppninni á HM. Merk hefur almennt verið álitinn besti dómari Þjóðverja, en talið var að hann hefði íhugað að hætta alveg að dæma. Hann segir stuðning kollega sinna hafa orðið þess valdandi að hann ákvað að snúa aftur. Fótbolti 23.8.2006 12:53 Gunnar Heiðar minnir á sig Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu fyrir þýska úrvalsdeildarliðið Hannover í gærkvöldi þegar það burstaði lið Luneburg 7-0 í æfingaleik. Gunnar Heiðar hefur enn ekki fengið tækifæri með liðinu í úrvalsdeildinni, en Hannover er í neðsta sæti deildarinnar eftir tvær umferðir. Fótbolti 23.8.2006 12:32 Ráðleggur Hargreaves að halda kjafti Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, er orðinn þreyttur á endalausum yfirlýsingum enska landsliðsmannsins Owen Hargreaves um draum sinn um að ganga í raðir Manchester United. Hoeness segir að Hargreaves væri hollara að fara að halda sér saman. Fótbolti 21.8.2006 18:55 Bayern eltist við Klose Bayern München hefur nú bæst í kapphlaupið um að tryggja sér þjónustu þýska landsliðsmannsins Miroslav Klose en leikmaðurinn er nú samningsbundinn Werder Bremen. Klose var nýlega valinn leikmaður ársins í Þýskalandi og sló þar að auki í gegn með Þýskalandi á HM í sumar. Fótbolti 20.8.2006 22:31 Bayern með fullt hús stiga Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en í dag vann liðið 2-1 sigur á nýliðum Bochum í tilþrifalitlum leik með mörkum frá Philip Lahm og Roy Makaay. Þá vann Stuttgart 3-2 sigur á Bielefeld þrátt fyrir að missa tvo menn af velli með rautt spjald. Bayern, Nurnberg og Werder Bremen erum með fullt hús stiga eftir tvær fyrstu umferðirnar. Fótbolti 20.8.2006 21:15 Hannover steinlá Hannover 96 tapaði í dag 4-0 fyrir Hertha Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er liðið því neðst í deildinni án stiga eftir tvær umferðir. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Hannover í dag, frekar en í fyrsta leik liðsins á dögunum. Fótbolti 19.8.2006 16:41 Fer fram á sölu frá Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves er sagður eiga fund með forráðamönnum Bayern Munchen í dag, þar sem hann muni fara fram á að verða seldur frá félaginu til Manchester United. Enska liðið ku hafa mikinn áhuga á að fá Hargreaves í sínar raðir, en hann er nýbúinn að framlengja samning sinn við þýska liðið og ólíkt þykir að hann fari fyrir minna en 13 milljónir punda. Fótbolti 17.8.2006 12:22 Hargreaves er ekki til sölu Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen voru fljótir að bregðast við þeim tíðindum sem bárust fyrr í dag þess efnis að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves væri á leið til Manchester United. Framkvæmdastjóri Bayern segir málið einfalt - Hargreaves sé alls ekki til sölu. Fótbolti 16.8.2006 15:58 Hargreaves íhugar tilboð Man Utd Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist nú vera að íhuga tilboð frá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United. Hargreaves hefur nýverið skrifað undir framlengingu á samningi sínum við þýska liðið, en segist ekki geta annað en hugsað sig vel um þegar lið eins og Manchester United sýni honum áhuga. Fótbolti 16.8.2006 13:11 Ballack viss um gott samband við Lampard Michael Ballack, nýi miðjumaðurinn í stjörnum prýddu liði Chelsea á komandi leiktíð er viss um að hann og Frank Lampard eigi eftir að ná vel saman á miðjunni hjá Chelsea í vetur. Fótbolti 2.8.2006 15:46 Bayern að undirbúa tilboð? Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa enn ekki sagt sitt síðasta orð í máli Ruud Van Nistelrooy og nú berast þær fregnir frá Englandi að Bayern hafi í hyggju að bjóða enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves auk peningaupphæðar til að landa hollenska framherjanum. Fótbolti 20.7.2006 17:21 Magath framlengir samning sinn Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa framlengt samning þjálfarans Felix Magath um eitt ár og mun hann því stýra liðinu út árið 2008. Magath hefur náð frábærum árangri með liðið síðan hann tók við því árið 2004 og hefur stýrt því til sigurs í bæði deild og bikar bæði tímabilin sem hann hefur verið við stjórn. Fótbolti 18.7.2006 16:43 Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. Fótbolti 10.7.2006 15:49 Við höfum efni á Nistelrooy Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen eru enn að gera hosur sínar grænar fyrir hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United og í dag fullyrti yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern að félagið hefði vel efni á að kaupa Nistelrooy. Fótbolti 20.6.2006 14:22 Magath sáttur við tvo titla Felix Magath, stjóri Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segist afar sáttur við að hafa landað tveimur titlum í hús á leiktíðinni og þykir gagnrýnendur liðsins of grimmir þegar þeir velta sér upp úr því að liðið hafi fallið úr leik strax í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Sport 11.5.2006 20:49 Podolski á leið til Bayern Munchen Skærasta framtíðarstjarna Þjóðverja, hinn tvítugi sóknarmaður, Lukas Podolski er á leið til nýbakaðra meistara Bayern Munchen. Uli Höness, stjórnarformaður Bayern sem tryggði sér Þýskalandsmeistaratitilinn í gær segist í viðtali við þýska fjölmiðla í dag hafa náð samkomulagi við leikmanninn. Sport 7.5.2006 20:12 Bayern Munchen þýskur meistari Jafntefli gegn Kaiserslautern dugði Bayern Munchen til að tryggja sér þýska meistaratitilinn í knattspyrnu í dag. Helstu keppinautarnir, Hamburg SV töpuðu 4-2 á útivelli á sama tíma gegn Hertha Berlin og eru 6 stigum á eftir Bayern þegar ein umferð er eftir. Þetta er 20. meistaratitill Bayern Munchen. Sport 6.5.2006 15:49 Keisarinn lætur Ballack heyra það "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, lét Michael Ballack heyra það eftir úrslitaleikinn í bikarnum í Þýskalandi í gær, þar sem Bayern bar sigurorð af Frankfurt 1-0. Beckenbauer segir að Ballack sé í huganum þegar orðinn leikmaður Chelsea og var hundfúll með slaka frammistöðu þýska landsliðsmannsins í gær, rétt eins og í síðustu leikjum í úrvalsdeildinni. Sport 30.4.2006 20:20 « ‹ 109 110 111 112 113 114 115 116 … 116 ›
Meiddur í nára og lék ekki Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með liði sínu Hannover í þýsku úrvalsdeildinni vegna meiðsla. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Hannover tognaði Gunnar Heiðar lítillega á æfingu fyrir helgi og gat ekki leikið með af þeim sökum. Fótbolti 16.9.2006 21:19
Hargreaves líklega fótbrotinn Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen þurfti að fara meiddur af velli eftir 25 mínútna leik í tapinu gegn Bielefeld í dag og nú eftir nánari skoðun er óttast að hann sé fótbrotinn. Hargreaves var mikið orðaður við lið Manchester United í sumar, en forráðamenn Bayern harðneituðu að selja hann. Hargreaves spilaði á miðjunni hjá Bayern ásamt Mark Van Bommel. Fótbolti 16.9.2006 17:42
Óvænt úrslit í dag Nokkuð var um óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en sex leikir voru á dagskrá. Meistarar Bayern Munchen fengu 2-1 skell fyrir Bielefeld á útivelli og Werder Bremen tapaði 3-2 á heimavelli fyrir Stuttgart. Úrslit dagsins og markaskorara má sjá á Boltavaktinni hérna neðar á síðunni. Fótbolti 16.9.2006 15:43
Loksins sigur hjá Hannover Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover vann í gærkvöld sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Wolfsburg 2-1 á útivelli. Hannover skaust upp af fallsvæðinu með sigrinum, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekki við sögu hjá Hannover í leiknum. Fótbolti 16.9.2006 15:32
Keisarinn er ekki bjartsýnn Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað. Fótbolti 6.9.2006 21:59
Sorin til Hamburger Argentínski landsliðsfyrirliðinn Juan Pablo Sorin gekk í dag í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Hamburger frá spænska liðinu Villarreal og er kaupverðið sagt vera um 2,5 milljónir evra. Sorin er þrítugur varnarmaður og hefur hann undirritað þriggja ára samning við þýska félagið. Fótbolti 31.8.2006 16:10
Fær nýjan þjálfara Peter Neururer, þjálfara Hannover í þýsku úrvalsdeildinni, hefur verið sagt upp störfum. Einungis eru búnir þrír leikir af leiktíðinni en Hannover hefur tapað þeim öllum. Íslenski sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover en hefur ekkert fengið að spreyta sig það sem af er tímabilinu. Fótbolti 30.8.2006 21:25
Van Bommel til Bayern Þýsku meistararnir Bayern Munchen gengu í gær frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Mark Van Bommel frá Evrópumeisturum Barcelona. Kaupverðið er sagt vera um 6 milljónir evra og hefur Van Bommel skrifað undir þriggja ára samning við Bayern. Þar verður honum ætlað að fylla skarð Michael Ballack, en hann verður eflaust óður í að fá að sanna sig eftir að hafa lítið fengið að spila með Barcelona á síðustu leiktíð. Fótbolti 29.8.2006 16:48
Fer ekki til Manchester United Nú er endanlega orðið ljóst að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen verður áfram í herbúðum félagsins og mun ekki fara til Manchester United. Umboðsmaður hans hefur staðfest að enginn möguleiki sé á að leikmaðurinn fái að yfirgefa Bayern, enda hefur stjórnarformaðurinn þar lagt húsið sitt undir þegar hann segir að Hargreaves fari ekki fet - Manchester United verði að snúa sér annað. Fótbolti 29.8.2006 14:34
Bayern ræður ferðinni Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves ítrekaði í gær þá ósk sína að hann vilji komast til Manchester United en sagði jafnframt að málið væri í höndum stjórnar Bayern Munchen. "Framkvæmdarstjórinn hefur fullan rétt á því að neita tilboðum í mig, en hann veit nákvæmlega hvað ég vil," sagði Hargreaves í gær. Fótbolti 25.8.2006 20:40
Verð að vera þolinmóður Sænska staðarblaðið Hallandsposten gerði framgöngu Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hjá Hannover 96 að umfjöllunarefni í gær en hann var áður á mála hjá Halmstad og varð í fyrra markakóngur sænsku deildarinnar. Hann hefur hins vegar ekki verið valinn í hópinn hjá Hannover í fyrstu tveimur leikjum liðsins í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 24.8.2006 21:17
Gefur út yfirlýsingu í dag Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves mun í dag gefa út yfirlýsingu á blaðamannafundi hjá Bayern Munchen, þar sem allt eins er búist við því að hann fari fram á að verða seldur frá félaginu. Orðrómur er á kreiki um að leikmaðurinn hafi verið sektaður fyrir að halda því ítrekað fram í fjölmiðlum að hann vilji ganga í raðir Manchester United á Englandi, en hann er samningsbundinn þýska félaginu til ársins 2010. Fótbolti 23.8.2006 13:37
Markus Merk snýr aftur Þýski knattspyrnudómarinn Markus Merk hefur tilkynnt að hann ætli að halda áfram dómgæslu, en hann tók sér frí af persónulegum ástæðum eftir að hann náði sér alls ekki á strik við dómgæslu í riðlakeppninni á HM. Merk hefur almennt verið álitinn besti dómari Þjóðverja, en talið var að hann hefði íhugað að hætta alveg að dæma. Hann segir stuðning kollega sinna hafa orðið þess valdandi að hann ákvað að snúa aftur. Fótbolti 23.8.2006 12:53
Gunnar Heiðar minnir á sig Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu fyrir þýska úrvalsdeildarliðið Hannover í gærkvöldi þegar það burstaði lið Luneburg 7-0 í æfingaleik. Gunnar Heiðar hefur enn ekki fengið tækifæri með liðinu í úrvalsdeildinni, en Hannover er í neðsta sæti deildarinnar eftir tvær umferðir. Fótbolti 23.8.2006 12:32
Ráðleggur Hargreaves að halda kjafti Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, er orðinn þreyttur á endalausum yfirlýsingum enska landsliðsmannsins Owen Hargreaves um draum sinn um að ganga í raðir Manchester United. Hoeness segir að Hargreaves væri hollara að fara að halda sér saman. Fótbolti 21.8.2006 18:55
Bayern eltist við Klose Bayern München hefur nú bæst í kapphlaupið um að tryggja sér þjónustu þýska landsliðsmannsins Miroslav Klose en leikmaðurinn er nú samningsbundinn Werder Bremen. Klose var nýlega valinn leikmaður ársins í Þýskalandi og sló þar að auki í gegn með Þýskalandi á HM í sumar. Fótbolti 20.8.2006 22:31
Bayern með fullt hús stiga Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en í dag vann liðið 2-1 sigur á nýliðum Bochum í tilþrifalitlum leik með mörkum frá Philip Lahm og Roy Makaay. Þá vann Stuttgart 3-2 sigur á Bielefeld þrátt fyrir að missa tvo menn af velli með rautt spjald. Bayern, Nurnberg og Werder Bremen erum með fullt hús stiga eftir tvær fyrstu umferðirnar. Fótbolti 20.8.2006 21:15
Hannover steinlá Hannover 96 tapaði í dag 4-0 fyrir Hertha Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er liðið því neðst í deildinni án stiga eftir tvær umferðir. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Hannover í dag, frekar en í fyrsta leik liðsins á dögunum. Fótbolti 19.8.2006 16:41
Fer fram á sölu frá Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves er sagður eiga fund með forráðamönnum Bayern Munchen í dag, þar sem hann muni fara fram á að verða seldur frá félaginu til Manchester United. Enska liðið ku hafa mikinn áhuga á að fá Hargreaves í sínar raðir, en hann er nýbúinn að framlengja samning sinn við þýska liðið og ólíkt þykir að hann fari fyrir minna en 13 milljónir punda. Fótbolti 17.8.2006 12:22
Hargreaves er ekki til sölu Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen voru fljótir að bregðast við þeim tíðindum sem bárust fyrr í dag þess efnis að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves væri á leið til Manchester United. Framkvæmdastjóri Bayern segir málið einfalt - Hargreaves sé alls ekki til sölu. Fótbolti 16.8.2006 15:58
Hargreaves íhugar tilboð Man Utd Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist nú vera að íhuga tilboð frá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United. Hargreaves hefur nýverið skrifað undir framlengingu á samningi sínum við þýska liðið, en segist ekki geta annað en hugsað sig vel um þegar lið eins og Manchester United sýni honum áhuga. Fótbolti 16.8.2006 13:11
Ballack viss um gott samband við Lampard Michael Ballack, nýi miðjumaðurinn í stjörnum prýddu liði Chelsea á komandi leiktíð er viss um að hann og Frank Lampard eigi eftir að ná vel saman á miðjunni hjá Chelsea í vetur. Fótbolti 2.8.2006 15:46
Bayern að undirbúa tilboð? Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa enn ekki sagt sitt síðasta orð í máli Ruud Van Nistelrooy og nú berast þær fregnir frá Englandi að Bayern hafi í hyggju að bjóða enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves auk peningaupphæðar til að landa hollenska framherjanum. Fótbolti 20.7.2006 17:21
Magath framlengir samning sinn Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa framlengt samning þjálfarans Felix Magath um eitt ár og mun hann því stýra liðinu út árið 2008. Magath hefur náð frábærum árangri með liðið síðan hann tók við því árið 2004 og hefur stýrt því til sigurs í bæði deild og bikar bæði tímabilin sem hann hefur verið við stjórn. Fótbolti 18.7.2006 16:43
Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. Fótbolti 10.7.2006 15:49
Við höfum efni á Nistelrooy Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen eru enn að gera hosur sínar grænar fyrir hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United og í dag fullyrti yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern að félagið hefði vel efni á að kaupa Nistelrooy. Fótbolti 20.6.2006 14:22
Magath sáttur við tvo titla Felix Magath, stjóri Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segist afar sáttur við að hafa landað tveimur titlum í hús á leiktíðinni og þykir gagnrýnendur liðsins of grimmir þegar þeir velta sér upp úr því að liðið hafi fallið úr leik strax í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Sport 11.5.2006 20:49
Podolski á leið til Bayern Munchen Skærasta framtíðarstjarna Þjóðverja, hinn tvítugi sóknarmaður, Lukas Podolski er á leið til nýbakaðra meistara Bayern Munchen. Uli Höness, stjórnarformaður Bayern sem tryggði sér Þýskalandsmeistaratitilinn í gær segist í viðtali við þýska fjölmiðla í dag hafa náð samkomulagi við leikmanninn. Sport 7.5.2006 20:12
Bayern Munchen þýskur meistari Jafntefli gegn Kaiserslautern dugði Bayern Munchen til að tryggja sér þýska meistaratitilinn í knattspyrnu í dag. Helstu keppinautarnir, Hamburg SV töpuðu 4-2 á útivelli á sama tíma gegn Hertha Berlin og eru 6 stigum á eftir Bayern þegar ein umferð er eftir. Þetta er 20. meistaratitill Bayern Munchen. Sport 6.5.2006 15:49
Keisarinn lætur Ballack heyra það "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, lét Michael Ballack heyra það eftir úrslitaleikinn í bikarnum í Þýskalandi í gær, þar sem Bayern bar sigurorð af Frankfurt 1-0. Beckenbauer segir að Ballack sé í huganum þegar orðinn leikmaður Chelsea og var hundfúll með slaka frammistöðu þýska landsliðsmannsins í gær, rétt eins og í síðustu leikjum í úrvalsdeildinni. Sport 30.4.2006 20:20