Átök í Ísrael og Palestínu Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla Að minnsta kosti 30 manns, þar af fimm börn, létust í loftárásum Ísraelsmanna á skóla Sameinuðu þjóðanna í al-Nuseirat, þar sem fólk á vergangi er sagt hafa hafist við. Erlent 6.6.2024 06:37 Ísrael tilkynnir um dauða fjögurra gísla Ísraelski herinn hefur tilkynnt um dauða fjögurra manna sem teknir voru í gíslingu í árásum Hamas á Ísrael sjöunda október. Talið er að um áttatíu gíslar séu enn í haldi. Erlent 4.6.2024 00:14 Trúðar mótmæla við Alþingi Félagar í samtökunum Ísland - Palestína standa fyrir mótmælum við Alþingishúsið. Þingfundur hófst á Alþingi klukkan 15. Innlent 3.6.2024 15:46 Netanyahu fastur milli steins og sleggju Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, er nú sagður standa frammi fyrir því að þurfa mögulega að velja á milli þess að ganga að vopnahléstillögum sem nú liggja fyrir og þess að halda lífi í ríkisstjórn sinni. Erlent 3.6.2024 07:18 Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti nýja friðaráætlun Ísraela sem felur í sér vopnahlé gegn því að Hamas-samtökin frelsi alla gísla í haldi þeirra. Hamas-liðar eru sagðir hafa tekið vel í tillögurnar. Erlent 31.5.2024 23:44 Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Mótmælin á vegum félagsins Íslands-Palestína í morgun eru þau hörðustu á síðari árum að sögn lögreglu. Mótmælendur segja lögreglu hafa gengið fram af hörku og ofbeldi og sýnt einbeittan brotavilja. Lögregla segist ekki hafa átt annarra kosta völ og fullyrðir að verklagsreglum hafi verið fylgt. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu muni fá aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum. Innlent 31.5.2024 19:45 Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur beðið ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um að farið verði yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu, þegar piparúða var beitt á mótmælendur fyrir utan ríkisstjórnarfund í morgun. Innlent 31.5.2024 15:53 Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Undanfarna daga hefur þeirri áhugaverðu söguskýringu verið haldið á lofti að það sé ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur eitthvað sérstaklega að þakka að fjöldinn allur af Palestínufólki hafi komist undan þjóðarmorði á Gaza og hingað til Íslands, þar sem fólkið er með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Dvalarleyfi sem þau eiga einfaldlega rétt á samkvæmt lögum og er engum að "þakka." Skoðun 31.5.2024 14:45 Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum. Innlent 31.5.2024 11:21 Notuðu piparúða á mótmælendur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum. Innlent 31.5.2024 10:42 Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Forsetaframbjóðendurnir ræddu um utanríkismál og sér í lagi ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs í kappræðum á Stöð 2. Halla Hrund sagði alþjóðasamfélagið vera að klikka, Katrín sagðist hafa beitt sér í embætti forsætisráðherra og Halla Tómas sagði mikilvægt að sýna mennsku. Baldur vill að stigið sé fast til jarðar og Arnar Þór líka. Jón Gnarr segir forsetann valdalausan í þessu máli en sannarlega geta reynt að beita sér. Innlent 31.5.2024 08:26 Ísland leiði Norðurlöndin saman og innleiði viðskiptaþvinganir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar vill að Ísland taki forystu í að leiða Norðurlandaþjóðirnar saman í samtal um að innleiða viðskiptaþvinganir gegn Ísrael vegna framgöngu þeirra á Gasa. Hún segir rödd Íslands á alþjóðasviðinu í dag vera brotna. Innlent 30.5.2024 14:11 Setuverkfall í utanríkisráðuneytinu Setuverkfall stendur yfir í utanríkisráðuneytinu þar sem mótmælendur hafa komið sér fyrir í anddyri ráðuneytisins. Yfirskrift mótmælanna er aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda hvað varðar þjóðarmorð á Gaza. Mótmælandi segir stefnuna að trufla störf yfirvalda þar til þau bregðist við. Innlent 30.5.2024 11:00 Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Ísraelsmenn hafa nú stjórn á öllum landamærum Gasa eftir að þeir tóku yfir þann kafla sem liggur að Egyptalandi. Hætta er á að þetta muni flækja samskipti stjórnvalda í Ísrael og Egyptalandi. Erlent 30.5.2024 07:20 Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ Bandaríkjastjórn er ekki á því að full innrás Ísraelsmanna sé hafin í Rafah í suðurhluta Gasa og því hafi Ísraelsmenn ekki farið yfir svokallaðar „rauðar línur“ sem Bandaríkjamenn hafa dregið. Erlent 29.5.2024 07:05 Fjöldi fótboltafólks sýnir Palestínu stuðning Eftir hryllinginn í Rafah-borg á Gasaströndinni í Palestínu virðist mörgum fyrr- og núverandi fótboltafólki vera ofboðið. Fótbolti 29.5.2024 07:00 Ísrael verður að hætta að drepa saklausa borgara á Gaza Þann 7. maí birti ég grein hér á Vísi þar sem ég sagði að innrás Ísraela á Rafah stríddi gegn allri mannúð. Síðan þá hefur Ísrael staðið fyrir landhernaði í hlutum borgarinnar og haldið áfram grimmilegum loftárásum. Skoðun 28.5.2024 19:00 „Við höfum ekkert“ Ísraelskir hermenn óku í dag skriðdrekum inn í Rafah á Gasaströndinni. Þá voru skriðdrekar notaðir til að skjóta að tjaldbúðum vestur af borginni þar sem fólk á vergangi hafði komið sér fyrir. Minnst 21 féll í skothríðinni, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa. Erlent 28.5.2024 16:59 Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Dr. Mads Gilbert, heimsþekktur norskur læknir sem hefur unnið í fleiri áratugi á Gasa, á þá von í brjósti að stjórnvöld á Íslandi og í Noregi taki höndum saman og þrýsti með þýðingarmiklum hætti á stjórnvöld í Ísrael. Innlent 28.5.2024 14:16 Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Yossi Cohen, reyndi á nokkrum leynilegum fundum að þrýsta á aðalsaksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins, Fatou Bensouda, að falla frá því að rannsaka Ísrael fyrir stríðsglæpi. Erlent 28.5.2024 08:21 Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sagðist myndu útrýma mótmælum til stuðnings Palestínumönnum á háskólalóðum landsins ef hann snýr aftur í Hvíta húsið. Erlent 28.5.2024 06:41 Bíða eftir pizzu og potti eftir milljón króna göngu Sex drengir eru í þann mund að klára 111 kílómetra göngu. Um er að ræða lokaverkefni þeirra í tíunda bekk Réttarholtsskóla, en tilgangurinn með göngunni er að styrkja börn á Gaza. Þeir hafa safnað um milljón króna til styrktar málefninu. Lífið 27.5.2024 21:25 Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir að árásir á Rafah í gær, sem sagðar eru hafa banað að minnsta kosti 45 manns í tjaldbúðum í borginni, hafi verið „hræðileg mistök“. Þær séu til rannsóknar hjá yfirvöldum. Erlent 27.5.2024 16:57 Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum Loftárásir Ísraelsmanna í Rafah á Gasaströndinni eru nú sagðar hafa leitt til dauða 45 manna í tjaldbúðum. Árásirnar hafa verið harðlega gagnrýndar í dag en Ísraelar hafa sakað Hamas-liða um að kveikja eld sem dró fólkið til dauða. Erlent 27.5.2024 14:31 Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Að minnsta kosti 35 voru drepnir í árásum Ísraela á Rafah-borg í suður-Gaza. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir Ísraela eftir að Hamas-samtökin gerðu fyrstu eldflaugaárásir síðan í janúar á Tel Aviv í morgun. Myndbönd á samfélagsmiðlum sýna mikinn hrylling. Erlent 26.5.2024 22:41 Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Þórdís Ingadóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðamálum segir róður Ísraelsmanna þyngjast. Ísraelsk stjórnvöld séu að einangrast á alþjóðavettvangi og nýútgefin beiðni um handtökuskipun af hálfu aðalsaksóknara alþjóðasakamáladómstólsins geri þeim ekki hægar um vik. Innlent 26.5.2024 15:01 Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Hamas-samtökin skutu fyrir skemmstu eldlfaugum að Tel Aviv, höfuðborg Ísrael. Erlent 26.5.2024 11:59 Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum. Erlent 26.5.2024 10:15 Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar. Innlent 26.5.2024 09:45 Þjóðarmorðið á Gasa í tölum og hlutverk Íslands Í nýlegri yfirlýsingu komst Alþjóðadómstóllinn í Haag að þeirri niðurstöðu að sennileg rök væru fyrir þjóðarmorði af hálfu Ísraels gegn palestínsku þjóðinni. Skoðun 26.5.2024 06:32 « ‹ 8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 42 ›
Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla Að minnsta kosti 30 manns, þar af fimm börn, létust í loftárásum Ísraelsmanna á skóla Sameinuðu þjóðanna í al-Nuseirat, þar sem fólk á vergangi er sagt hafa hafist við. Erlent 6.6.2024 06:37
Ísrael tilkynnir um dauða fjögurra gísla Ísraelski herinn hefur tilkynnt um dauða fjögurra manna sem teknir voru í gíslingu í árásum Hamas á Ísrael sjöunda október. Talið er að um áttatíu gíslar séu enn í haldi. Erlent 4.6.2024 00:14
Trúðar mótmæla við Alþingi Félagar í samtökunum Ísland - Palestína standa fyrir mótmælum við Alþingishúsið. Þingfundur hófst á Alþingi klukkan 15. Innlent 3.6.2024 15:46
Netanyahu fastur milli steins og sleggju Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, er nú sagður standa frammi fyrir því að þurfa mögulega að velja á milli þess að ganga að vopnahléstillögum sem nú liggja fyrir og þess að halda lífi í ríkisstjórn sinni. Erlent 3.6.2024 07:18
Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti nýja friðaráætlun Ísraela sem felur í sér vopnahlé gegn því að Hamas-samtökin frelsi alla gísla í haldi þeirra. Hamas-liðar eru sagðir hafa tekið vel í tillögurnar. Erlent 31.5.2024 23:44
Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Mótmælin á vegum félagsins Íslands-Palestína í morgun eru þau hörðustu á síðari árum að sögn lögreglu. Mótmælendur segja lögreglu hafa gengið fram af hörku og ofbeldi og sýnt einbeittan brotavilja. Lögregla segist ekki hafa átt annarra kosta völ og fullyrðir að verklagsreglum hafi verið fylgt. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu muni fá aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum. Innlent 31.5.2024 19:45
Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur beðið ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um að farið verði yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu, þegar piparúða var beitt á mótmælendur fyrir utan ríkisstjórnarfund í morgun. Innlent 31.5.2024 15:53
Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Undanfarna daga hefur þeirri áhugaverðu söguskýringu verið haldið á lofti að það sé ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur eitthvað sérstaklega að þakka að fjöldinn allur af Palestínufólki hafi komist undan þjóðarmorði á Gaza og hingað til Íslands, þar sem fólkið er með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Dvalarleyfi sem þau eiga einfaldlega rétt á samkvæmt lögum og er engum að "þakka." Skoðun 31.5.2024 14:45
Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum. Innlent 31.5.2024 11:21
Notuðu piparúða á mótmælendur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum. Innlent 31.5.2024 10:42
Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Forsetaframbjóðendurnir ræddu um utanríkismál og sér í lagi ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs í kappræðum á Stöð 2. Halla Hrund sagði alþjóðasamfélagið vera að klikka, Katrín sagðist hafa beitt sér í embætti forsætisráðherra og Halla Tómas sagði mikilvægt að sýna mennsku. Baldur vill að stigið sé fast til jarðar og Arnar Þór líka. Jón Gnarr segir forsetann valdalausan í þessu máli en sannarlega geta reynt að beita sér. Innlent 31.5.2024 08:26
Ísland leiði Norðurlöndin saman og innleiði viðskiptaþvinganir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar vill að Ísland taki forystu í að leiða Norðurlandaþjóðirnar saman í samtal um að innleiða viðskiptaþvinganir gegn Ísrael vegna framgöngu þeirra á Gasa. Hún segir rödd Íslands á alþjóðasviðinu í dag vera brotna. Innlent 30.5.2024 14:11
Setuverkfall í utanríkisráðuneytinu Setuverkfall stendur yfir í utanríkisráðuneytinu þar sem mótmælendur hafa komið sér fyrir í anddyri ráðuneytisins. Yfirskrift mótmælanna er aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda hvað varðar þjóðarmorð á Gaza. Mótmælandi segir stefnuna að trufla störf yfirvalda þar til þau bregðist við. Innlent 30.5.2024 11:00
Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Ísraelsmenn hafa nú stjórn á öllum landamærum Gasa eftir að þeir tóku yfir þann kafla sem liggur að Egyptalandi. Hætta er á að þetta muni flækja samskipti stjórnvalda í Ísrael og Egyptalandi. Erlent 30.5.2024 07:20
Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ Bandaríkjastjórn er ekki á því að full innrás Ísraelsmanna sé hafin í Rafah í suðurhluta Gasa og því hafi Ísraelsmenn ekki farið yfir svokallaðar „rauðar línur“ sem Bandaríkjamenn hafa dregið. Erlent 29.5.2024 07:05
Fjöldi fótboltafólks sýnir Palestínu stuðning Eftir hryllinginn í Rafah-borg á Gasaströndinni í Palestínu virðist mörgum fyrr- og núverandi fótboltafólki vera ofboðið. Fótbolti 29.5.2024 07:00
Ísrael verður að hætta að drepa saklausa borgara á Gaza Þann 7. maí birti ég grein hér á Vísi þar sem ég sagði að innrás Ísraela á Rafah stríddi gegn allri mannúð. Síðan þá hefur Ísrael staðið fyrir landhernaði í hlutum borgarinnar og haldið áfram grimmilegum loftárásum. Skoðun 28.5.2024 19:00
„Við höfum ekkert“ Ísraelskir hermenn óku í dag skriðdrekum inn í Rafah á Gasaströndinni. Þá voru skriðdrekar notaðir til að skjóta að tjaldbúðum vestur af borginni þar sem fólk á vergangi hafði komið sér fyrir. Minnst 21 féll í skothríðinni, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa. Erlent 28.5.2024 16:59
Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Dr. Mads Gilbert, heimsþekktur norskur læknir sem hefur unnið í fleiri áratugi á Gasa, á þá von í brjósti að stjórnvöld á Íslandi og í Noregi taki höndum saman og þrýsti með þýðingarmiklum hætti á stjórnvöld í Ísrael. Innlent 28.5.2024 14:16
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Yossi Cohen, reyndi á nokkrum leynilegum fundum að þrýsta á aðalsaksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins, Fatou Bensouda, að falla frá því að rannsaka Ísrael fyrir stríðsglæpi. Erlent 28.5.2024 08:21
Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sagðist myndu útrýma mótmælum til stuðnings Palestínumönnum á háskólalóðum landsins ef hann snýr aftur í Hvíta húsið. Erlent 28.5.2024 06:41
Bíða eftir pizzu og potti eftir milljón króna göngu Sex drengir eru í þann mund að klára 111 kílómetra göngu. Um er að ræða lokaverkefni þeirra í tíunda bekk Réttarholtsskóla, en tilgangurinn með göngunni er að styrkja börn á Gaza. Þeir hafa safnað um milljón króna til styrktar málefninu. Lífið 27.5.2024 21:25
Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir að árásir á Rafah í gær, sem sagðar eru hafa banað að minnsta kosti 45 manns í tjaldbúðum í borginni, hafi verið „hræðileg mistök“. Þær séu til rannsóknar hjá yfirvöldum. Erlent 27.5.2024 16:57
Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum Loftárásir Ísraelsmanna í Rafah á Gasaströndinni eru nú sagðar hafa leitt til dauða 45 manna í tjaldbúðum. Árásirnar hafa verið harðlega gagnrýndar í dag en Ísraelar hafa sakað Hamas-liða um að kveikja eld sem dró fólkið til dauða. Erlent 27.5.2024 14:31
Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Að minnsta kosti 35 voru drepnir í árásum Ísraela á Rafah-borg í suður-Gaza. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir Ísraela eftir að Hamas-samtökin gerðu fyrstu eldflaugaárásir síðan í janúar á Tel Aviv í morgun. Myndbönd á samfélagsmiðlum sýna mikinn hrylling. Erlent 26.5.2024 22:41
Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Þórdís Ingadóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðamálum segir róður Ísraelsmanna þyngjast. Ísraelsk stjórnvöld séu að einangrast á alþjóðavettvangi og nýútgefin beiðni um handtökuskipun af hálfu aðalsaksóknara alþjóðasakamáladómstólsins geri þeim ekki hægar um vik. Innlent 26.5.2024 15:01
Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Hamas-samtökin skutu fyrir skemmstu eldlfaugum að Tel Aviv, höfuðborg Ísrael. Erlent 26.5.2024 11:59
Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum. Erlent 26.5.2024 10:15
Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar. Innlent 26.5.2024 09:45
Þjóðarmorðið á Gasa í tölum og hlutverk Íslands Í nýlegri yfirlýsingu komst Alþjóðadómstóllinn í Haag að þeirri niðurstöðu að sennileg rök væru fyrir þjóðarmorði af hálfu Ísraels gegn palestínsku þjóðinni. Skoðun 26.5.2024 06:32