Mál Davíðs Viðarssonar (Quang Le) Kærustuparið og bróðirinn enn í haldi Davíð Viðarsson, kærasta hans og bróðir hans sæta enn einangrun í tengslum við rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi. Bókara fyrirtækja Davíðs, föður hennar og eiginkonu bróður hans hefur verið sleppt. Innlent 24.3.2024 11:19 Einum til sleppt úr haldi Einum til viðbótar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið mansalsmál. Rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur taldir fyrir hendi. Innlent 21.3.2024 17:21 Tveimur úr mansalsmálinu sleppt úr haldi Tveimur af þeim sex sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að umfangsmiklu mansalsmáli var sleppt úr haldi síðdegis í gær þar sem þeirra hlutur í málinu telst upplýstur. Innlent 21.3.2024 11:06 Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu. Innlent 21.3.2024 07:00 „Þessi mál koma okkur ekkert við“ Björn Leifsson, eigandi World Class, segir þau mál sem Kristján Ólafur Sigríðarson sé flæktur í ekki koma sér, eiginkonu eða fyrirtæki við á neinn hátt. Hann fordæmir að vera dreginn inn í svo alvarleg mál og biðlar til fjölmiðla að vanda til verka. Innlent 16.3.2024 13:57 Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Kristján Ólafur Sigríðarson, einn níu sakborninga í meintu mansalsmáli tengdu Pho Vietnam og Wok On, hefur komið víða við síðan hann hóf veitingarekstur og fasteignaviðskipti. Kristján er í dag 33 ára gamall en byrjaði í viðskiptum aðeins 25 ára með aðstoð stjúpföður síns sem er einn þriggja hluthafa í World Class fjölskylduveldinu. Viðskipti innlent 16.3.2024 09:00 Reynt að hafa áhrif á meinta þolendur mansals Davíðs Ljóst þykir að einhver matar meinta þolendur í mansalsmáli Davíðs Viðarssonar með röngum upplýsingum um stöðu þeirra hér á landi. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir þolendunum hafa verið hótað brottvísun á þeim tíma sem þau störfuðu fyrir fyrirtæki Davíðs. Innlent 15.3.2024 18:31 Leigusamningum Davíðs á Tryggvagötu og Vesturgötu rift Fjelagið eignarhaldsfélag ehf. hefur rift leigusamningum, sem það hafði gert við Vietnamese Cuisine ehf. Síðarnefnda félagið er í eigu Davíðs Viðarssonar, sem situr nú í gæsluvarðhaldi ásamt fimm öðrum og er grnaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 14.3.2024 21:22 Fyrrverandi eigandi Wok On meðal sakborninga Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson þegar upp komst um ólöglegan matvælalegar í Sóltúni, verður í gæsluvarðhaldi næstu tvær vikurnar. Maki hans til margra ára er á meðal handteknu og sömuleiðis bróðir hans. Þá er nýdæmdur skattsvikari með stöðu sakbornings í málinu. Innlent 13.3.2024 14:59 Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna Framkvæmdastjóri Krónunnar segir fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina til að forðast mögulega skaðabótaskyldu. Fyrirtækið hafi strax brugðist við fréttum af matvælalager í Sóltúni, sem tengdist meðal annars veitingastaðnum Wok On. Þegar rökstuddur grunur um mansal og fleira ólöglegt athæfi hafi legið fyrir, hafi samningi Krónunnar við Wok On verið rift. Viðskipti innlent 12.3.2024 22:11 Krónan brást strax við Krónan áréttar að í nóvember á síðasta ári var samningi við Wok On sagt upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Var þetta gert í kjölfar fregna af matvælalagernum í Sóltúni. Á þessum tímapunkti lá ekki fyrir það sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga um rekstur þessara staða; rökstuddur grunur um mansal og annað glæpsamlegt athæfi. Þegar það lá fyrir var stöðunum lokað, samningi rift og merkingar teknar niður. Skoðun 12.3.2024 21:01 Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst. Viðskipti innlent 12.3.2024 20:40 Úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald Sex manns voru úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 12.3.2024 18:01 Völdu hættu á matareitrun frekar en skaðabætur Ólafur Hauksson, almannatengill og hluthafi í Festi, gagnrýnir Krónuna harðlega fyrir að hafa metið hættu á skaðabótamáli æðri en þá hættu að selja viðskiptavinum sínum vafasaman mat í fjóra mánuði. Innlent 12.3.2024 10:38 Hallærislegt hjá Krónunni Forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, segir í viðtali við Morgunblaðið í gær (11. mars) að Krónan hafi sagt upp samningum við Wok On í verslunum Krónunnar í nóvember. Skoðun 12.3.2024 10:00 Gengið vel að fá upplýsingar frá meintum mansalsþolendum Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarsson. Þeim var létt þegar lögreglan handtók sex manns í tengslum við málið. Innlent 11.3.2024 18:26 Rannsókn enn opin hvort fíkniefnasala komi við sögu Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, segir tvo fulltrúa frá bandarísku fíkniefnalögreglunni hafa komið að aðgerðum í tengslum við húsleit og handtökur tengdar Davíð Viðarssyni og veitingastöðum og gistihúsum í hans eigum. Sá angi málsins er enn til rannsóknar. Innlent 11.3.2024 16:38 „Þetta er alveg skelfileg meðferð á starfsfólki“ Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið. Innlent 11.3.2024 12:16 Veitingamenn slegnir og kalla eftir skilvirkara eftirliti Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði kallar eftir að vinnustaðaeftirlit verði eflt. Veitingamenn séu slegnir eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir í tengslum við meint mansal á veitingastöðum Davíðs Viðarssonar í síðustu viku. Innlent 10.3.2024 19:07 Gæsluvarðhald staðfest: „Gríðarlega miklar rannsóknir sem liggja að baki“ Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir sex sakborningum sem grunaðir eru um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Sem stendur eru níu sakborningar í málinu og mögulegt að þeir verði fleiri. Innlent 9.3.2024 19:13 Vill broskarl eða súrkarl í glugga veitingastaða Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Slík upplýsingagjöf sé mikið neytendamál enda hvetji hún forsvarsmenn staðina til að standa sig betur auk þess sem matvælaöryggi eykst. Innlent 9.3.2024 14:01 Ráðinn sem sérhæfður kokkur en settur í ræstingar Flestir þeirra sem fá dvalarleyfi á Íslandi vegna sérfræðiþekkingar, líkt og talið er að fórnarlömb meints mansals Davíðs Viðarssonar hafi fengið, koma frá Víetnam. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir það koma reglulega fyrir að fólk vinni við allt annað en það er sagt ætla að gera við komuna hingað til lands. Innlent 9.3.2024 07:54 Fjölgar um einn í hópi sakborninga Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir engar frekari aðgerðir vera skipulagðar varðandi meint mansal athafnamannsins Davíðs Viðarssonar en að yfirheyrslur og gagnaúrvinnsla gangi vel. Innlent 8.3.2024 23:51 Tók langan tíma að vinna traust starfsfólks Davíðs Viðarssonar Vinnustaðaeftirlit ASÍ hefur í heilt ár heimsótt vinnustaði í eigu Davíðs Viðarssonar til að byggja upp traust hjá starfsfólki sem talið var í vinnumansali. Lögfræðingur hjá ASÍ fagnar því að mál sem þessi séu nú að komast á yfirborðið og vonar að málið rati fyrir dóm og verði fordæmisgefandi. Málið er ekki eina vinnumansalsmálið sem er á borði ASÍ. Innlent 8.3.2024 12:49 Svartur listi gegn mansali og launaþjófnaði Í fréttum þessarar viku hefur verið kafað djúpt ofan í grunað vinnumansal tengt fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar. Átta manns hafa verið handtekin í tengslum við málið og talið er að þolendur séu allt 40 talsins. Skoðun 8.3.2024 12:31 Greiddi sautján milljónir fyrir aðstoð við að koma hingað og vinna Alþýðusamband Íslands, stéttarfélög og lögregla hafa ítrekað fengið skilaboð um bága stöðu starfsmanna Quang Lé, sem einnig er þekktur undir nafninu Davíð Viðarsson. Innlent 8.3.2024 06:18 Óttast að mál Davíðs ýti undir fordóma gagnvart Víetnömum Aðjunkt við Háskóla Íslands óttast að mál Davíðs Viðarssonar ýti undir fordóma gegn fólki frá Víetnam. Hún segist aldrei áður hafa heyrt af því að Víetnamar séu fluttir hingað til lands í vinnumansali. Innlent 7.3.2024 20:01 Sprenging í sérfræðingaleyfum til Víetnama Fjöldi dvalarleyfa, sem gefin eru út til víetnamskra ríkisborgara á grundvelli sérfræðiþekkingar, hefur tvöfaldast milli ára síðustu þrjú ár. Í fyrra var 151 slíkt leyfi gefið út. Innlent 7.3.2024 15:30 Kæra gæsluvarðhaldsúrskurði til Landsréttar Fimm af þeim sex sem sitja í gæsluvarðhaldi, vegna gruns um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðari glæpasamstarfi, hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar. Innlent 7.3.2024 13:27 Ráðast ekki í frekari aðgerðir vegna Davíðs enn sem komið er Mál athafnamannsins Davíðs Viðarssonar og fimm annarra sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um peningaþvætti, mansal og skipulagða glæpastarfsemi er nú til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu. Ekki verður ráðist í frekari aðgerðir vegna málsins sem stendur. Innlent 7.3.2024 12:18 « ‹ 1 2 3 ›
Kærustuparið og bróðirinn enn í haldi Davíð Viðarsson, kærasta hans og bróðir hans sæta enn einangrun í tengslum við rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi. Bókara fyrirtækja Davíðs, föður hennar og eiginkonu bróður hans hefur verið sleppt. Innlent 24.3.2024 11:19
Einum til sleppt úr haldi Einum til viðbótar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið mansalsmál. Rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur taldir fyrir hendi. Innlent 21.3.2024 17:21
Tveimur úr mansalsmálinu sleppt úr haldi Tveimur af þeim sex sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að umfangsmiklu mansalsmáli var sleppt úr haldi síðdegis í gær þar sem þeirra hlutur í málinu telst upplýstur. Innlent 21.3.2024 11:06
Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu. Innlent 21.3.2024 07:00
„Þessi mál koma okkur ekkert við“ Björn Leifsson, eigandi World Class, segir þau mál sem Kristján Ólafur Sigríðarson sé flæktur í ekki koma sér, eiginkonu eða fyrirtæki við á neinn hátt. Hann fordæmir að vera dreginn inn í svo alvarleg mál og biðlar til fjölmiðla að vanda til verka. Innlent 16.3.2024 13:57
Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Kristján Ólafur Sigríðarson, einn níu sakborninga í meintu mansalsmáli tengdu Pho Vietnam og Wok On, hefur komið víða við síðan hann hóf veitingarekstur og fasteignaviðskipti. Kristján er í dag 33 ára gamall en byrjaði í viðskiptum aðeins 25 ára með aðstoð stjúpföður síns sem er einn þriggja hluthafa í World Class fjölskylduveldinu. Viðskipti innlent 16.3.2024 09:00
Reynt að hafa áhrif á meinta þolendur mansals Davíðs Ljóst þykir að einhver matar meinta þolendur í mansalsmáli Davíðs Viðarssonar með röngum upplýsingum um stöðu þeirra hér á landi. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir þolendunum hafa verið hótað brottvísun á þeim tíma sem þau störfuðu fyrir fyrirtæki Davíðs. Innlent 15.3.2024 18:31
Leigusamningum Davíðs á Tryggvagötu og Vesturgötu rift Fjelagið eignarhaldsfélag ehf. hefur rift leigusamningum, sem það hafði gert við Vietnamese Cuisine ehf. Síðarnefnda félagið er í eigu Davíðs Viðarssonar, sem situr nú í gæsluvarðhaldi ásamt fimm öðrum og er grnaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 14.3.2024 21:22
Fyrrverandi eigandi Wok On meðal sakborninga Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson þegar upp komst um ólöglegan matvælalegar í Sóltúni, verður í gæsluvarðhaldi næstu tvær vikurnar. Maki hans til margra ára er á meðal handteknu og sömuleiðis bróðir hans. Þá er nýdæmdur skattsvikari með stöðu sakbornings í málinu. Innlent 13.3.2024 14:59
Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna Framkvæmdastjóri Krónunnar segir fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina til að forðast mögulega skaðabótaskyldu. Fyrirtækið hafi strax brugðist við fréttum af matvælalager í Sóltúni, sem tengdist meðal annars veitingastaðnum Wok On. Þegar rökstuddur grunur um mansal og fleira ólöglegt athæfi hafi legið fyrir, hafi samningi Krónunnar við Wok On verið rift. Viðskipti innlent 12.3.2024 22:11
Krónan brást strax við Krónan áréttar að í nóvember á síðasta ári var samningi við Wok On sagt upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Var þetta gert í kjölfar fregna af matvælalagernum í Sóltúni. Á þessum tímapunkti lá ekki fyrir það sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga um rekstur þessara staða; rökstuddur grunur um mansal og annað glæpsamlegt athæfi. Þegar það lá fyrir var stöðunum lokað, samningi rift og merkingar teknar niður. Skoðun 12.3.2024 21:01
Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst. Viðskipti innlent 12.3.2024 20:40
Úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald Sex manns voru úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 12.3.2024 18:01
Völdu hættu á matareitrun frekar en skaðabætur Ólafur Hauksson, almannatengill og hluthafi í Festi, gagnrýnir Krónuna harðlega fyrir að hafa metið hættu á skaðabótamáli æðri en þá hættu að selja viðskiptavinum sínum vafasaman mat í fjóra mánuði. Innlent 12.3.2024 10:38
Hallærislegt hjá Krónunni Forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, segir í viðtali við Morgunblaðið í gær (11. mars) að Krónan hafi sagt upp samningum við Wok On í verslunum Krónunnar í nóvember. Skoðun 12.3.2024 10:00
Gengið vel að fá upplýsingar frá meintum mansalsþolendum Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarsson. Þeim var létt þegar lögreglan handtók sex manns í tengslum við málið. Innlent 11.3.2024 18:26
Rannsókn enn opin hvort fíkniefnasala komi við sögu Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, segir tvo fulltrúa frá bandarísku fíkniefnalögreglunni hafa komið að aðgerðum í tengslum við húsleit og handtökur tengdar Davíð Viðarssyni og veitingastöðum og gistihúsum í hans eigum. Sá angi málsins er enn til rannsóknar. Innlent 11.3.2024 16:38
„Þetta er alveg skelfileg meðferð á starfsfólki“ Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið. Innlent 11.3.2024 12:16
Veitingamenn slegnir og kalla eftir skilvirkara eftirliti Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði kallar eftir að vinnustaðaeftirlit verði eflt. Veitingamenn séu slegnir eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir í tengslum við meint mansal á veitingastöðum Davíðs Viðarssonar í síðustu viku. Innlent 10.3.2024 19:07
Gæsluvarðhald staðfest: „Gríðarlega miklar rannsóknir sem liggja að baki“ Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir sex sakborningum sem grunaðir eru um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Sem stendur eru níu sakborningar í málinu og mögulegt að þeir verði fleiri. Innlent 9.3.2024 19:13
Vill broskarl eða súrkarl í glugga veitingastaða Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Slík upplýsingagjöf sé mikið neytendamál enda hvetji hún forsvarsmenn staðina til að standa sig betur auk þess sem matvælaöryggi eykst. Innlent 9.3.2024 14:01
Ráðinn sem sérhæfður kokkur en settur í ræstingar Flestir þeirra sem fá dvalarleyfi á Íslandi vegna sérfræðiþekkingar, líkt og talið er að fórnarlömb meints mansals Davíðs Viðarssonar hafi fengið, koma frá Víetnam. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir það koma reglulega fyrir að fólk vinni við allt annað en það er sagt ætla að gera við komuna hingað til lands. Innlent 9.3.2024 07:54
Fjölgar um einn í hópi sakborninga Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir engar frekari aðgerðir vera skipulagðar varðandi meint mansal athafnamannsins Davíðs Viðarssonar en að yfirheyrslur og gagnaúrvinnsla gangi vel. Innlent 8.3.2024 23:51
Tók langan tíma að vinna traust starfsfólks Davíðs Viðarssonar Vinnustaðaeftirlit ASÍ hefur í heilt ár heimsótt vinnustaði í eigu Davíðs Viðarssonar til að byggja upp traust hjá starfsfólki sem talið var í vinnumansali. Lögfræðingur hjá ASÍ fagnar því að mál sem þessi séu nú að komast á yfirborðið og vonar að málið rati fyrir dóm og verði fordæmisgefandi. Málið er ekki eina vinnumansalsmálið sem er á borði ASÍ. Innlent 8.3.2024 12:49
Svartur listi gegn mansali og launaþjófnaði Í fréttum þessarar viku hefur verið kafað djúpt ofan í grunað vinnumansal tengt fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar. Átta manns hafa verið handtekin í tengslum við málið og talið er að þolendur séu allt 40 talsins. Skoðun 8.3.2024 12:31
Greiddi sautján milljónir fyrir aðstoð við að koma hingað og vinna Alþýðusamband Íslands, stéttarfélög og lögregla hafa ítrekað fengið skilaboð um bága stöðu starfsmanna Quang Lé, sem einnig er þekktur undir nafninu Davíð Viðarsson. Innlent 8.3.2024 06:18
Óttast að mál Davíðs ýti undir fordóma gagnvart Víetnömum Aðjunkt við Háskóla Íslands óttast að mál Davíðs Viðarssonar ýti undir fordóma gegn fólki frá Víetnam. Hún segist aldrei áður hafa heyrt af því að Víetnamar séu fluttir hingað til lands í vinnumansali. Innlent 7.3.2024 20:01
Sprenging í sérfræðingaleyfum til Víetnama Fjöldi dvalarleyfa, sem gefin eru út til víetnamskra ríkisborgara á grundvelli sérfræðiþekkingar, hefur tvöfaldast milli ára síðustu þrjú ár. Í fyrra var 151 slíkt leyfi gefið út. Innlent 7.3.2024 15:30
Kæra gæsluvarðhaldsúrskurði til Landsréttar Fimm af þeim sex sem sitja í gæsluvarðhaldi, vegna gruns um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðari glæpasamstarfi, hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar. Innlent 7.3.2024 13:27
Ráðast ekki í frekari aðgerðir vegna Davíðs enn sem komið er Mál athafnamannsins Davíðs Viðarssonar og fimm annarra sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um peningaþvætti, mansal og skipulagða glæpastarfsemi er nú til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu. Ekki verður ráðist í frekari aðgerðir vegna málsins sem stendur. Innlent 7.3.2024 12:18