Hryðjuverkastarfsemi Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Ríkisstjórn Tjad tilkynnti í gær að binda ætti enda á varnarsamstarf með Frakklandi og mun það væntanlega fela í sér brotthvarf franskra hermanna þaðan. Tjad er síðasta ríkið á Sahelsvæðinu þar sem Frakkar eru enn með viðveru, eftir að þeim var vísað frá Búrkína Fasó, Malí og Níger í kjölfar valdarána. Erlent 29.11.2024 13:33 Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir. Innlent 23.11.2024 18:10 Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael, og gegn Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri og tveimur öðrum leiðtogum Hamas-samtakanna sem er dánir. Erlent 21.11.2024 12:13 Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október. Erlent 29.10.2024 11:47 Gerðu loftárásir á Kúrda í Írak og Sýrlandi Tyrkneski herinn hefur gert loftárásir á meintar stöðva Verkamannaflokks Kúrda í Sýrlandi og Írak eftir að fimm létu lífið í hryðjuverkaárás í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í gær. Ráðamenn segja tugi vígamanna hafa verið fellda. Erlent 24.10.2024 16:40 Fjórir sagðir látnir eftir hryðjuverkaárás í Ankara Mikil skothríð og háværar sprengingar heyrðust í dag frá aðalskrifstofu fyrirtækisins Turkish Aerospace Industries í Ankara, höfuðborg Tyrklands í dag. Þungvopnað fólk ruddist svo þar inn. Erlent 23.10.2024 13:59 Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta. Erlent 21.10.2024 07:03 Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31 Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10.10.2024 23:09 Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum hafa handtekið mann frá Afganistan, sem var búsettur í Oklahoma, í tengslum við fyrirhugaða hryðjuverkaárás á kjördag, 5. nóvember. Erlent 9.10.2024 07:03 Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8.10.2024 17:58 Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 4.10.2024 11:00 Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 4.10.2024 00:12 Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18 Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3.10.2024 12:02 Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Ísraelski herinn gerði fyrir skömmu umfangsmiklar árásir á suðurhluta Beirút í Líbanon, sem sagðar eru hafa beinst að höfuðstöðvum Hezbollah-samtakanna og Hassan Nasrallah, leiðtoga þeirra. Erlent 27.9.2024 16:02 Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nærri því sjö hundruð manns hafa fallið í árásum Ísraela á Líbanon í þessari viku, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanon. Ísraelar hafa gert umfangsmiklar árásir á landið og segja þær beinast gegn hryðjuverkasamtökunum Hezbollah, hergögnum þeirra og leiðtogum. Erlent 27.9.2024 13:02 Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás Herzi Halevi, formaður herforingjaráðs Ísrael, segir að umfangsmiklum loftárásum Ísraela í Líbanon undanfarna daga sé bæði ætlað að grafa undan mætti Hezbollah og að leggja grunninn að mögulegri innrás í sunnanvert landið. Halevi samþykkti á dögunum aðgerðaáætlun fyrir árásir á Líbanon en ráðherra og herforingjar hafa kallað eftir innrás. Erlent 25.9.2024 15:59 Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. Erlent 22.9.2024 07:37 Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52 Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03 Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03 Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Vígamenn sem tengjast Al-Qaeda gerðu í vikunni umfangsmikla árás í Bamako, höfuðborg Malí. Þar eru þeir sagðir hafa banað rúmlega sjötíu manns auk þess sem þeir brenndu herflugvélar og einnig forsetaflugvél Assimi Goita, ofursta, sem leiðir herforingjastjórn Malí. Erlent 19.9.2024 12:31 Stærsta aðgerð gegn ISIS í Írak í nokkur ár Bandarískir og írakskir sérsveitarmenn gerðu í síðustu viku áhlaup á nokkra staði í vesturhluta Íraks og felldu þeir minnst fjórtán vígamenn Íslamska ríkisins. Aðgerðin er sögð sú umfangsmesta gegn ISIS í Írak um nokkurra ára skeið en hún var framkvæmd á sama tíma og yfirvöld Bandaríkjanna og Íraks ræða það hvernig binda eigi enda á viðveru bandarískra hermanna í Írak eða draga verulega úr henni. Erlent 4.9.2024 14:24 Ákæra leiðtoga Hamas vegna árásanna 7. október Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna opinberuðu í gær ákærur á hendur Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas, og annarra leiðtoga samtakanna. Er það vegna árásanna á Ísrael þann 7. október í fyrra en ákærurnar snúast meðal annars að morðum, mannránum og hryðjuverkastarfsemi. Erlent 4.9.2024 09:32 Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu „Ástandið var alvarlegt og ástandið er alvarlegt, en við getum líka fullyrt að við komum í veg fyrir harmleik,“ segir Gerhard Karner, innanríkisráðherra Austurríkis um hryðjuverkaárás sem tveir táningar eru grunaðir um að hafa áætlað að fremja í Vín, í kringum tónleika poppstjörnunnar Taylor Swift í borginni. Erlent 8.8.2024 11:13 Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Þrennum tónleikum poppstjörnunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki hefur verið frestað vegna mögulegrar öryggis- og hryðjuverkaógnar. Fyrstu tónleikarnir áttu að fara fram á morgun, aðrir á föstudag og þriðju á laugardag. Erlent 7.8.2024 21:33 Meðlimir viðriðnir hatursglæpi og jafnvel grunaðir um morð Lektor í lögreglufræðum segir ástæðu til að ætla að samtökin Norðurvígi geti falið í sér ógn við samfélagið hérlendis. Þekkt sé að meðlimir samtakanna hafi verið viðriðnir ýmsa hatursglæpi og séu jafnvel grunaðir um morð. Innlent 18.6.2024 20:31 Umfangsmikil aðgerð Europol: Netþjónar á Íslandi hýstu hryðjuverkaáróður Ríkislögreglustjóri og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í tveimur umfangsmiklum aðgerðum á vegum Europol í vikunni gegn dreifingu og stýringu hryðjuverka. Teknir voru niður netþjónar í Þýskalandi, Hollandi, Bandaríkjunum og á Íslandi. Spænsk yfirvöld handtóku níu einstaklinga í aðgerðunum. Innlent 14.6.2024 13:28 Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Umm Hudaifa, ekkja Abu Bakr al-Baghdadi fyrrverandi stjórnanda hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkisins, hefur tjáð sig um hjónaband þeirra, eiginmanninn og gjörðir þeirra í viðtali við BBC. Hudaifa situr nú í fangelsi í Írak á meðan stjórnvöld þar í landi rannsaka meinta glæpi hennar. Erlent 10.6.2024 14:13 « ‹ 1 2 ›
Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Ríkisstjórn Tjad tilkynnti í gær að binda ætti enda á varnarsamstarf með Frakklandi og mun það væntanlega fela í sér brotthvarf franskra hermanna þaðan. Tjad er síðasta ríkið á Sahelsvæðinu þar sem Frakkar eru enn með viðveru, eftir að þeim var vísað frá Búrkína Fasó, Malí og Níger í kjölfar valdarána. Erlent 29.11.2024 13:33
Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir. Innlent 23.11.2024 18:10
Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael, og gegn Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri og tveimur öðrum leiðtogum Hamas-samtakanna sem er dánir. Erlent 21.11.2024 12:13
Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október. Erlent 29.10.2024 11:47
Gerðu loftárásir á Kúrda í Írak og Sýrlandi Tyrkneski herinn hefur gert loftárásir á meintar stöðva Verkamannaflokks Kúrda í Sýrlandi og Írak eftir að fimm létu lífið í hryðjuverkaárás í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í gær. Ráðamenn segja tugi vígamanna hafa verið fellda. Erlent 24.10.2024 16:40
Fjórir sagðir látnir eftir hryðjuverkaárás í Ankara Mikil skothríð og háværar sprengingar heyrðust í dag frá aðalskrifstofu fyrirtækisins Turkish Aerospace Industries í Ankara, höfuðborg Tyrklands í dag. Þungvopnað fólk ruddist svo þar inn. Erlent 23.10.2024 13:59
Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta. Erlent 21.10.2024 07:03
Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31
Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10.10.2024 23:09
Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum hafa handtekið mann frá Afganistan, sem var búsettur í Oklahoma, í tengslum við fyrirhugaða hryðjuverkaárás á kjördag, 5. nóvember. Erlent 9.10.2024 07:03
Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8.10.2024 17:58
Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 4.10.2024 11:00
Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 4.10.2024 00:12
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18
Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3.10.2024 12:02
Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Ísraelski herinn gerði fyrir skömmu umfangsmiklar árásir á suðurhluta Beirút í Líbanon, sem sagðar eru hafa beinst að höfuðstöðvum Hezbollah-samtakanna og Hassan Nasrallah, leiðtoga þeirra. Erlent 27.9.2024 16:02
Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nærri því sjö hundruð manns hafa fallið í árásum Ísraela á Líbanon í þessari viku, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanon. Ísraelar hafa gert umfangsmiklar árásir á landið og segja þær beinast gegn hryðjuverkasamtökunum Hezbollah, hergögnum þeirra og leiðtogum. Erlent 27.9.2024 13:02
Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás Herzi Halevi, formaður herforingjaráðs Ísrael, segir að umfangsmiklum loftárásum Ísraela í Líbanon undanfarna daga sé bæði ætlað að grafa undan mætti Hezbollah og að leggja grunninn að mögulegri innrás í sunnanvert landið. Halevi samþykkti á dögunum aðgerðaáætlun fyrir árásir á Líbanon en ráðherra og herforingjar hafa kallað eftir innrás. Erlent 25.9.2024 15:59
Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. Erlent 22.9.2024 07:37
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03
Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Vígamenn sem tengjast Al-Qaeda gerðu í vikunni umfangsmikla árás í Bamako, höfuðborg Malí. Þar eru þeir sagðir hafa banað rúmlega sjötíu manns auk þess sem þeir brenndu herflugvélar og einnig forsetaflugvél Assimi Goita, ofursta, sem leiðir herforingjastjórn Malí. Erlent 19.9.2024 12:31
Stærsta aðgerð gegn ISIS í Írak í nokkur ár Bandarískir og írakskir sérsveitarmenn gerðu í síðustu viku áhlaup á nokkra staði í vesturhluta Íraks og felldu þeir minnst fjórtán vígamenn Íslamska ríkisins. Aðgerðin er sögð sú umfangsmesta gegn ISIS í Írak um nokkurra ára skeið en hún var framkvæmd á sama tíma og yfirvöld Bandaríkjanna og Íraks ræða það hvernig binda eigi enda á viðveru bandarískra hermanna í Írak eða draga verulega úr henni. Erlent 4.9.2024 14:24
Ákæra leiðtoga Hamas vegna árásanna 7. október Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna opinberuðu í gær ákærur á hendur Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas, og annarra leiðtoga samtakanna. Er það vegna árásanna á Ísrael þann 7. október í fyrra en ákærurnar snúast meðal annars að morðum, mannránum og hryðjuverkastarfsemi. Erlent 4.9.2024 09:32
Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu „Ástandið var alvarlegt og ástandið er alvarlegt, en við getum líka fullyrt að við komum í veg fyrir harmleik,“ segir Gerhard Karner, innanríkisráðherra Austurríkis um hryðjuverkaárás sem tveir táningar eru grunaðir um að hafa áætlað að fremja í Vín, í kringum tónleika poppstjörnunnar Taylor Swift í borginni. Erlent 8.8.2024 11:13
Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Þrennum tónleikum poppstjörnunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki hefur verið frestað vegna mögulegrar öryggis- og hryðjuverkaógnar. Fyrstu tónleikarnir áttu að fara fram á morgun, aðrir á föstudag og þriðju á laugardag. Erlent 7.8.2024 21:33
Meðlimir viðriðnir hatursglæpi og jafnvel grunaðir um morð Lektor í lögreglufræðum segir ástæðu til að ætla að samtökin Norðurvígi geti falið í sér ógn við samfélagið hérlendis. Þekkt sé að meðlimir samtakanna hafi verið viðriðnir ýmsa hatursglæpi og séu jafnvel grunaðir um morð. Innlent 18.6.2024 20:31
Umfangsmikil aðgerð Europol: Netþjónar á Íslandi hýstu hryðjuverkaáróður Ríkislögreglustjóri og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í tveimur umfangsmiklum aðgerðum á vegum Europol í vikunni gegn dreifingu og stýringu hryðjuverka. Teknir voru niður netþjónar í Þýskalandi, Hollandi, Bandaríkjunum og á Íslandi. Spænsk yfirvöld handtóku níu einstaklinga í aðgerðunum. Innlent 14.6.2024 13:28
Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Umm Hudaifa, ekkja Abu Bakr al-Baghdadi fyrrverandi stjórnanda hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkisins, hefur tjáð sig um hjónaband þeirra, eiginmanninn og gjörðir þeirra í viðtali við BBC. Hudaifa situr nú í fangelsi í Írak á meðan stjórnvöld þar í landi rannsaka meinta glæpi hennar. Erlent 10.6.2024 14:13
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið