Evrópudeild UEFA Einn leikfær varnarmaður hjá Tottenham Miðvörðurinn Ledley King mun væntanlega verða í byrjunarliði Tottenham í fyrsta skipti síðan um jólin þegar liðið tekur á móti Sevilla í síðari leiknum í 8-liða úrslitum UEFA keppninnar í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18:45 en spænska liðið vann fyrri leikinn 2-1. Fótbolti 12.4.2007 13:58 Enskir stuðningsmenn enn til vandræða Enskir stuðningsmenn komust annan daginn í röð í fréttirnar fyrir ólæti sín á erlendri grundu í kvöld þegar fylgismenn Tottenham flugust á við óeirðalögreglu í Sevilla. Til harðra átaka kom á áhorfendabekkjunum á meðan leik stóð, en þeir höfðu reyndir verið með ólæti fyrir utan leikvöllinn nokkru áður en leikurinn hófst. Fótbolti 5.4.2007 20:51 Tottenham lá í Sevilla Tottenham tapaði 2-1 fyrir Sevilla í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Robbie Keane kom enska liðinu yfir eftir rúma mínútu, en fyrrum leikmaður Tottenham, Freddie Kanoute, jafnaði skömmu síðar. Alexander Kerzhakov skoraði sigurmark spænska liðsins eftir 36 mínútur. Fótbolti 5.4.2007 20:45 Grétar Rafn verður í banni í Þýskalandi Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson verður í leikbanni í síðari leik AZ Alkmaar og Werder Bremen í Evrópukeppni félagsliða. Grétar fékk að líta gula spjaldið á 75. mínútu leiks í kvöld og fer því í bann vegna gulra spjalda. Staðan í leiknum er enn jöfn 0-0 en leikurinn hefur verið mjög skemmtilegur engu að síður. Fótbolti 5.4.2007 20:18 Sevilla yfir í hálfleik Sevilla hefur yfir 2-1 gegn Tottenham á heimavelli þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Robbie Keane kom gestunum yfir á 2. mínútu en fyrrum leikmaður Tottenham Freddie Kanoute jafnaði skömmu síðar. Það var svo Alexander Kerzhakov sem kom heimamönnum yfir á 36. mínútu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra og á VefTV hér á Vísi. Fótbolti 5.4.2007 19:31 Tottenham getur jafnað met í kvöld Fyrri leikirnir í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni félagsliða fara fram í kvöld. Leikur Sevilla og Tottenham verður sýndur beint á Sýn Extra og þar getur enska liðið jafnað met Parma og Gladbach með níunda sigri sínum í röð í keppninni. Útsending frá leiknum hefst klukkan 18:30. Fótbolti 5.4.2007 14:31 Beiðni Sevilla vísað frá Fyrri leikur Sevilla og Tottenham í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða fer fram fimmta apríl eins og til stóð. Spænska liðið vildi láta færa leikinn til vegna hátíðarhalda í borginni á skírdag, en Knattspyrnusambandið neitaði beiðninni. Fótbolti 22.3.2007 14:14 Sevilla vill ekki spila á skírdag Forráðamenn spænska knattspyrnuliðsins Sevilla hafa farið þess á leit við Knattspyrnusamband Evrópu að fyrri leikur liðsins við Tottenham í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verði færður. Leikurinn er á dagskrá 5. apríl, en það er skírdagur. Fótbolti 21.3.2007 16:49 Tottenham mætir Evrópumeisturunum Í dag var dregið um hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Tottenham mætir Evrópumeisturum Sevilla frá Spáni og Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar fá erfitt verkefni þegar þeir mæta Werder Bremen. Fótbolti 16.3.2007 13:10 Frækinn sigur AZ á Newcastle AZ Alkmaar vann í kvöld góðan 2-0 sigur á Newcastle í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og sendu þar með enska liðið úr keppni þrátt fyrir 4-2 tap í fyrri leiknum á Englandi. Grétar Rafn Steinsson var á sínum stað í vörninni hjá hollenska liðinu sem er greinilega til alls líklegt í keppninni. Shota Arveladze og Danny Koevermans skoruðu mörk AZ í kvöld, en liðið hefði vel geta unnið stærri sigur. Fótbolti 15.3.2007 22:12 Tottenham í 8-liða úrslit Tottenham tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með sigri á portúgalska liðinu Braga á heimavelli 3-2. Heimamenn lentu undir snemma leiks með sjálfsmarki Tom Huddlestone, en hinn magnaði Dimitar Berbatov kom Tottenham í 2-1í hálfleik með frábærum mörkum. Gestirnir náðu að jafna leikinn á 61. mínútu en það var svo Steed Malbranque sem tryggði Tottenham samtals 6-4 sigur með marki á 76. mínútu. Fótbolti 14.3.2007 21:51 Tottenham í góðum málum Tottenham hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Braga þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hefur enska liðið haft algjöra yfirburði og er yfir 5-3 samanlagt. Sjálfsmark Tom Huddlestone kom Braga yfir en hinn magnaði Dimitar Berbatov hefur síðan skorað tvö lagleg mörk og komið Tottenham yfir. Fótbolti 14.3.2007 21:01 Tottenham - Braga í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Tottenham og Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 20:05. Enska liðið vann fyrri leikinn í Portúgal 3-2 og er því í ágætri stöðu fyrir þann síðari, en mikil meiðsli eru í herbúðum heimamanna. Fótbolti 14.3.2007 15:52 UEFA Cup: Góður sigur Tottenham í Portúgal Tottenham er í góðri stöðu eftir fyrri leik sinn við portúgalska liðið Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld eftir 3-2 útisigur. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í kvöld. Fótbolti 8.3.2007 23:51 Newcastle lagði AZ - Grétar skoraði sjálfsmark Newcastle lagði AZ Alkmaar 4-2 í æsilegum fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Grétar Rafn Steinsson kom enska liðinu á bragðið á 8. mínútu þegar hann skoraði sjálfsmark og þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer tryggðu Newcastle 4-1 stöðu í hálfleik. Shota Arveladze og Danny Koervermans (víti) skoruðu mörk AZ sem gætu reynst dýrmæt fyrir síðari leikinn. Fótbolti 8.3.2007 21:43 Newcastle leiðir 4-1 í hálfleik Newcastle hefur farið á kostum í fyrri hálfleik gegn AZ Alkmaar í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Grétar Rafn Steinsson varð fyrir því óláni að koma heimamönnum yfir með sjálfsmarki í byrjun leiks og síðan hafa þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer komið Newcastle í 4-1 eftir að Shota Arveladze minnkaði muninn í 3-1 með glæsilegu marki. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 8.3.2007 20:19 Newcastle að sundurspila AZ Alkmaar Newcastle er komið í 3-0 eftir aðeins 23 mínútur gegn AZ Alkmaar í Evrópukeppni félagsliða. Leikmenn Newcastle fara á kostum í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. Grétar Rafn Steinsson skoraði sjálfsmark eftir 8 mínútur og þeir Kieron Dyer og Obafemi Martins skoruðu svo annað og þriðja markið með stuttu millibili. Fótbolti 8.3.2007 19:54 Grétar Rafn skoraði sjálfsmark Það er ekki hægt að segja að Grétar Rafn Steinsson byrji vel með AZ Alkmaar í leiknum gegn Newcastle í Evrópukeppni félagsliða sem sýndur er beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Grétar skoraði sjálfsmark á áttundu mínútu leiksins og því hefur enska liðið fengið draumabyrjun. Fótbolti 8.3.2007 19:41 Grétar Rafn í byrjunarliði AZ gegn Newcastle Grétar Rafn Steinsson verður í byrjunarliði AZ Alkmaar á ný þegar liðið sækir Newcastle heim á St. James Park í Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Þetta er fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 19:30. Grétar gat ekki spilað með liðinu vegna meiðsla þegar það mætti Utrecht um helgina, en er nú klár í slaginn. Fótbolti 8.3.2007 19:01 Newcastle í 16-liða úrslit Enska liðið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem á heimavelli. Það var Obafemi Martins sem skoraði sigurmark Newcastle, sem mætir Grétari Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í næstu umferð. AZ gerði 2-2 jafntefli við Fenerbahce í kvöld og fór áfram á útimörkum. Fótbolti 22.2.2007 21:48 Blackburn úr leik í Evrópukeppninni Enska liðið Blackburn er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 0-0 jafntefli gegn Leverkusen í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar á Ewood Park í kvöld. Leverkusen vann fyrri leikinn 3-2 og er komið í 16-liða úrslit. Blackburn fékk nokkur ágæt færi í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta þau og er fallið úr leik. Fótbolti 22.2.2007 19:56 Markalaust á Ewood Park í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leik Blackburn og Bayer Leverkusen á Ewood Park, en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og hefur þýska liðið 3-2 forystu frá fyrri leiknum. Blacburn nægir því 1-0 sigur á heimavelli til að komast áfram í keppninni. Fótbolti 22.2.2007 18:54 Blackburn - Leverkusen í beinni á Sýn Fjöldi leikja er á dagskrá í Evrópukeppni félagsliða í kvöld en þar verða spilaðir síðari leikirnir í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikur Blackburn og Bayer Leverkusen verður sýndur beint á Sýn klukkan 18 en þar hefur þýska liðið 3-2 forskot úr fyrri leiknum í Þýskalandi. Fótbolti 22.2.2007 16:48 Newcastle í góðri stöðu Newcastle fór langt með að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld með 3-1 útisigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark heimamanna og þeir Obafemi Martins og Antonie Sibierski gerðu út um leikinn. Fótbolti 15.2.2007 21:46 Öruggur sigur Bremen Nokkrir leikir voru á dagskrá í UEFA bikarnum í kvöld. Bremen vann sannfærandi 3-0 sigur á Ajax á heimavelli, AZ Alkmaar þurfti að sætta sig við 3-3 jafntefli við Fenerbahce í Tyrklandi eftir að hafa komist í 3-1, þar sem Grétar Rafn Steinsson spilaði 90 mínútur fyrir AZ. Fótbolti 14.2.2007 22:23 Leverkusen lagði Blackburn Þýska liðið Bayern Leverkusen lagði enska liðið Blackburn 3-2 í fjörugum leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Ramelöw, Callsen-Bracker og Schneider skoruðu mörk heimamanna en þeir Bentley og Nonda skoruðu fyrir enska liðið, sem er í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn á Englandi. Fótbolti 14.2.2007 21:09 Tottenham fer beint í 16-liða úrslit Nú hefur Knattspyrnusamband Evrópu staðfest að Tottenham muni sitja hjá í 32-liða úrslitum UEFA keppninnar eftir að hollenska liðinu Feyenoord var vísað úr keppni vegna óláta stuðningsmanna liðsins fyrr í keppninni. Svo gæti farið að niðurstöðunni verði áfrýjað, en Tottenham mætir að öllu óbreyttu Braga eða Parma í næstu umferð. Fótbolti 25.1.2007 12:56 Feyenoord vísað úr Evrópukepninni Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að hollenska liðinu Feyenoord hafi verið vísað úr keppni í Evrópukeppni félagsliða í kjölfar óláta stuðningsmanna liðsins í leik gegn Nancy þar í landi í nóvember í fyrra. Þá hefur félagið verið sektað um 100 þúsund evrur og bendir allt til þess að Tottenham sitji jafnvel hjá í 32 liða úrslitum UEFA cup. Fótbolti 19.1.2007 16:24 Spilar Tottenham fyrir luktum dyrum? Svo gæti farið að stuðningsmenn Tottenham misstu alveg af útileik liðsins gegn hollenska liðinu Feyenoord í Evrópukeppni félagsliða, en hollenska liðið á yfir höfði sér heimaleikjabann vegna óláta stuðningsmanna þess í keppninni fyrir skömmu. Úrskurðar er ekki að vænta í málinu fyrr en í næsta mánuði, en liðin eiga ekki að leika fyrr en í febrúar. Fótbolti 15.12.2006 16:26 Tottenham mætir Feyenoord Í dag var dregið í 32-liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Enska liðið Tottenham mætir hollenska liðinu Feyenoord í næstu umferð, en þessi lið léku til úrslita í keppninni árið 1974 og þá hafði hollenska liðið betur. Leikið verður heima og úti og leikirnir verða háðir 14. og 22. febrúar. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið lentu saman. Fótbolti 15.12.2006 13:25 « ‹ 74 75 76 77 78 ›
Einn leikfær varnarmaður hjá Tottenham Miðvörðurinn Ledley King mun væntanlega verða í byrjunarliði Tottenham í fyrsta skipti síðan um jólin þegar liðið tekur á móti Sevilla í síðari leiknum í 8-liða úrslitum UEFA keppninnar í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18:45 en spænska liðið vann fyrri leikinn 2-1. Fótbolti 12.4.2007 13:58
Enskir stuðningsmenn enn til vandræða Enskir stuðningsmenn komust annan daginn í röð í fréttirnar fyrir ólæti sín á erlendri grundu í kvöld þegar fylgismenn Tottenham flugust á við óeirðalögreglu í Sevilla. Til harðra átaka kom á áhorfendabekkjunum á meðan leik stóð, en þeir höfðu reyndir verið með ólæti fyrir utan leikvöllinn nokkru áður en leikurinn hófst. Fótbolti 5.4.2007 20:51
Tottenham lá í Sevilla Tottenham tapaði 2-1 fyrir Sevilla í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Robbie Keane kom enska liðinu yfir eftir rúma mínútu, en fyrrum leikmaður Tottenham, Freddie Kanoute, jafnaði skömmu síðar. Alexander Kerzhakov skoraði sigurmark spænska liðsins eftir 36 mínútur. Fótbolti 5.4.2007 20:45
Grétar Rafn verður í banni í Þýskalandi Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson verður í leikbanni í síðari leik AZ Alkmaar og Werder Bremen í Evrópukeppni félagsliða. Grétar fékk að líta gula spjaldið á 75. mínútu leiks í kvöld og fer því í bann vegna gulra spjalda. Staðan í leiknum er enn jöfn 0-0 en leikurinn hefur verið mjög skemmtilegur engu að síður. Fótbolti 5.4.2007 20:18
Sevilla yfir í hálfleik Sevilla hefur yfir 2-1 gegn Tottenham á heimavelli þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Robbie Keane kom gestunum yfir á 2. mínútu en fyrrum leikmaður Tottenham Freddie Kanoute jafnaði skömmu síðar. Það var svo Alexander Kerzhakov sem kom heimamönnum yfir á 36. mínútu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra og á VefTV hér á Vísi. Fótbolti 5.4.2007 19:31
Tottenham getur jafnað met í kvöld Fyrri leikirnir í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni félagsliða fara fram í kvöld. Leikur Sevilla og Tottenham verður sýndur beint á Sýn Extra og þar getur enska liðið jafnað met Parma og Gladbach með níunda sigri sínum í röð í keppninni. Útsending frá leiknum hefst klukkan 18:30. Fótbolti 5.4.2007 14:31
Beiðni Sevilla vísað frá Fyrri leikur Sevilla og Tottenham í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða fer fram fimmta apríl eins og til stóð. Spænska liðið vildi láta færa leikinn til vegna hátíðarhalda í borginni á skírdag, en Knattspyrnusambandið neitaði beiðninni. Fótbolti 22.3.2007 14:14
Sevilla vill ekki spila á skírdag Forráðamenn spænska knattspyrnuliðsins Sevilla hafa farið þess á leit við Knattspyrnusamband Evrópu að fyrri leikur liðsins við Tottenham í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verði færður. Leikurinn er á dagskrá 5. apríl, en það er skírdagur. Fótbolti 21.3.2007 16:49
Tottenham mætir Evrópumeisturunum Í dag var dregið um hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Tottenham mætir Evrópumeisturum Sevilla frá Spáni og Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar fá erfitt verkefni þegar þeir mæta Werder Bremen. Fótbolti 16.3.2007 13:10
Frækinn sigur AZ á Newcastle AZ Alkmaar vann í kvöld góðan 2-0 sigur á Newcastle í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og sendu þar með enska liðið úr keppni þrátt fyrir 4-2 tap í fyrri leiknum á Englandi. Grétar Rafn Steinsson var á sínum stað í vörninni hjá hollenska liðinu sem er greinilega til alls líklegt í keppninni. Shota Arveladze og Danny Koevermans skoruðu mörk AZ í kvöld, en liðið hefði vel geta unnið stærri sigur. Fótbolti 15.3.2007 22:12
Tottenham í 8-liða úrslit Tottenham tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með sigri á portúgalska liðinu Braga á heimavelli 3-2. Heimamenn lentu undir snemma leiks með sjálfsmarki Tom Huddlestone, en hinn magnaði Dimitar Berbatov kom Tottenham í 2-1í hálfleik með frábærum mörkum. Gestirnir náðu að jafna leikinn á 61. mínútu en það var svo Steed Malbranque sem tryggði Tottenham samtals 6-4 sigur með marki á 76. mínútu. Fótbolti 14.3.2007 21:51
Tottenham í góðum málum Tottenham hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Braga þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hefur enska liðið haft algjöra yfirburði og er yfir 5-3 samanlagt. Sjálfsmark Tom Huddlestone kom Braga yfir en hinn magnaði Dimitar Berbatov hefur síðan skorað tvö lagleg mörk og komið Tottenham yfir. Fótbolti 14.3.2007 21:01
Tottenham - Braga í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Tottenham og Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 20:05. Enska liðið vann fyrri leikinn í Portúgal 3-2 og er því í ágætri stöðu fyrir þann síðari, en mikil meiðsli eru í herbúðum heimamanna. Fótbolti 14.3.2007 15:52
UEFA Cup: Góður sigur Tottenham í Portúgal Tottenham er í góðri stöðu eftir fyrri leik sinn við portúgalska liðið Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld eftir 3-2 útisigur. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í kvöld. Fótbolti 8.3.2007 23:51
Newcastle lagði AZ - Grétar skoraði sjálfsmark Newcastle lagði AZ Alkmaar 4-2 í æsilegum fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Grétar Rafn Steinsson kom enska liðinu á bragðið á 8. mínútu þegar hann skoraði sjálfsmark og þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer tryggðu Newcastle 4-1 stöðu í hálfleik. Shota Arveladze og Danny Koervermans (víti) skoruðu mörk AZ sem gætu reynst dýrmæt fyrir síðari leikinn. Fótbolti 8.3.2007 21:43
Newcastle leiðir 4-1 í hálfleik Newcastle hefur farið á kostum í fyrri hálfleik gegn AZ Alkmaar í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Grétar Rafn Steinsson varð fyrir því óláni að koma heimamönnum yfir með sjálfsmarki í byrjun leiks og síðan hafa þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer komið Newcastle í 4-1 eftir að Shota Arveladze minnkaði muninn í 3-1 með glæsilegu marki. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 8.3.2007 20:19
Newcastle að sundurspila AZ Alkmaar Newcastle er komið í 3-0 eftir aðeins 23 mínútur gegn AZ Alkmaar í Evrópukeppni félagsliða. Leikmenn Newcastle fara á kostum í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. Grétar Rafn Steinsson skoraði sjálfsmark eftir 8 mínútur og þeir Kieron Dyer og Obafemi Martins skoruðu svo annað og þriðja markið með stuttu millibili. Fótbolti 8.3.2007 19:54
Grétar Rafn skoraði sjálfsmark Það er ekki hægt að segja að Grétar Rafn Steinsson byrji vel með AZ Alkmaar í leiknum gegn Newcastle í Evrópukeppni félagsliða sem sýndur er beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Grétar skoraði sjálfsmark á áttundu mínútu leiksins og því hefur enska liðið fengið draumabyrjun. Fótbolti 8.3.2007 19:41
Grétar Rafn í byrjunarliði AZ gegn Newcastle Grétar Rafn Steinsson verður í byrjunarliði AZ Alkmaar á ný þegar liðið sækir Newcastle heim á St. James Park í Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Þetta er fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 19:30. Grétar gat ekki spilað með liðinu vegna meiðsla þegar það mætti Utrecht um helgina, en er nú klár í slaginn. Fótbolti 8.3.2007 19:01
Newcastle í 16-liða úrslit Enska liðið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem á heimavelli. Það var Obafemi Martins sem skoraði sigurmark Newcastle, sem mætir Grétari Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í næstu umferð. AZ gerði 2-2 jafntefli við Fenerbahce í kvöld og fór áfram á útimörkum. Fótbolti 22.2.2007 21:48
Blackburn úr leik í Evrópukeppninni Enska liðið Blackburn er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 0-0 jafntefli gegn Leverkusen í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar á Ewood Park í kvöld. Leverkusen vann fyrri leikinn 3-2 og er komið í 16-liða úrslit. Blackburn fékk nokkur ágæt færi í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta þau og er fallið úr leik. Fótbolti 22.2.2007 19:56
Markalaust á Ewood Park í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leik Blackburn og Bayer Leverkusen á Ewood Park, en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og hefur þýska liðið 3-2 forystu frá fyrri leiknum. Blacburn nægir því 1-0 sigur á heimavelli til að komast áfram í keppninni. Fótbolti 22.2.2007 18:54
Blackburn - Leverkusen í beinni á Sýn Fjöldi leikja er á dagskrá í Evrópukeppni félagsliða í kvöld en þar verða spilaðir síðari leikirnir í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikur Blackburn og Bayer Leverkusen verður sýndur beint á Sýn klukkan 18 en þar hefur þýska liðið 3-2 forskot úr fyrri leiknum í Þýskalandi. Fótbolti 22.2.2007 16:48
Newcastle í góðri stöðu Newcastle fór langt með að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld með 3-1 útisigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark heimamanna og þeir Obafemi Martins og Antonie Sibierski gerðu út um leikinn. Fótbolti 15.2.2007 21:46
Öruggur sigur Bremen Nokkrir leikir voru á dagskrá í UEFA bikarnum í kvöld. Bremen vann sannfærandi 3-0 sigur á Ajax á heimavelli, AZ Alkmaar þurfti að sætta sig við 3-3 jafntefli við Fenerbahce í Tyrklandi eftir að hafa komist í 3-1, þar sem Grétar Rafn Steinsson spilaði 90 mínútur fyrir AZ. Fótbolti 14.2.2007 22:23
Leverkusen lagði Blackburn Þýska liðið Bayern Leverkusen lagði enska liðið Blackburn 3-2 í fjörugum leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Ramelöw, Callsen-Bracker og Schneider skoruðu mörk heimamanna en þeir Bentley og Nonda skoruðu fyrir enska liðið, sem er í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn á Englandi. Fótbolti 14.2.2007 21:09
Tottenham fer beint í 16-liða úrslit Nú hefur Knattspyrnusamband Evrópu staðfest að Tottenham muni sitja hjá í 32-liða úrslitum UEFA keppninnar eftir að hollenska liðinu Feyenoord var vísað úr keppni vegna óláta stuðningsmanna liðsins fyrr í keppninni. Svo gæti farið að niðurstöðunni verði áfrýjað, en Tottenham mætir að öllu óbreyttu Braga eða Parma í næstu umferð. Fótbolti 25.1.2007 12:56
Feyenoord vísað úr Evrópukepninni Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að hollenska liðinu Feyenoord hafi verið vísað úr keppni í Evrópukeppni félagsliða í kjölfar óláta stuðningsmanna liðsins í leik gegn Nancy þar í landi í nóvember í fyrra. Þá hefur félagið verið sektað um 100 þúsund evrur og bendir allt til þess að Tottenham sitji jafnvel hjá í 32 liða úrslitum UEFA cup. Fótbolti 19.1.2007 16:24
Spilar Tottenham fyrir luktum dyrum? Svo gæti farið að stuðningsmenn Tottenham misstu alveg af útileik liðsins gegn hollenska liðinu Feyenoord í Evrópukeppni félagsliða, en hollenska liðið á yfir höfði sér heimaleikjabann vegna óláta stuðningsmanna þess í keppninni fyrir skömmu. Úrskurðar er ekki að vænta í málinu fyrr en í næsta mánuði, en liðin eiga ekki að leika fyrr en í febrúar. Fótbolti 15.12.2006 16:26
Tottenham mætir Feyenoord Í dag var dregið í 32-liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Enska liðið Tottenham mætir hollenska liðinu Feyenoord í næstu umferð, en þessi lið léku til úrslita í keppninni árið 1974 og þá hafði hollenska liðið betur. Leikið verður heima og úti og leikirnir verða háðir 14. og 22. febrúar. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið lentu saman. Fótbolti 15.12.2006 13:25