Hryðjuverk í Útey Norskur þungarokkari talinn hafa skipulagt hryðjuverk Varg Vikernes handtekinn í Frakklandi í morgun. Erlent 16.7.2013 13:08 Fyrstu sumarbúðirnar eftir fjöldamorðin á Úteyju Ungliðahreyfing norska Verkamannaflokksins heldur þessa dagana fyrstu sumarbúðir sínar frá því fjöldamorðin voru framin á Úteyju sumarið 2011. Erlent 5.7.2013 14:36 Sagðist elska Anders Breivik Norskur karlmaður, búsettur í Vejle í Danmörku, fékk í gær tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir stuðningsyfirlýsingar við fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik. Erlent 14.6.2013 21:35 Stuðningsmaður Breiviks dæmdur Fjörutíu og fjögurra ára gamall maður frá Vejle í Danmörku hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa lýst yfir stuðningi við fjöldamorðingjann Anders Breivik. Erlent 30.5.2013 11:52 Fjöldamorðinginn í Sandy Hook með þráhyggju fyrir Breivik Adam Lanza, sem myrti 26 manns í Sandy Hook skólanum í Connecticut í Bandaríkjunum fyrir áramót hafði ákveðið að myrða fleiri en Anders Behring Breivik í Útey sumarið 2011. Þetta sýna gögn sem lögreglan hefur undir höndum og fréttavefur Telegraph segir frá. Innlent 19.2.2013 11:21 Hreyfimyndir af ódæði Breiviks birtar í fyrsta skipti Myndskeið birtist í fyrsta sinn í dag af því þegar Anders Behring Breivik leggur bílnum með sprengjunni í Stjórnarráðshverfinu í Osló og gengur síðan burt hröðum skrefum. Erlent 26.11.2012 14:16 Breivik má hafa kúlupenna Aðstaða morðingjans Anders Behring-Breivik í fangelsinu Illa hefur breyst til batnaðar, samkvæmt því sem lögmaður hans sagði í samtali við Verdens Gang. Erlent 22.11.2012 23:01 Norrænir lögreglumenn ræddu viðbrögð við Breivik Fulltrúar greiningardeildar Ríkislögreglustjóra sóttu á dögunum ráðstefnu í Svíþjóð um skipulagða glæpastarfsemi. Boðað var til ráðstefnunnar í framhaldi af fundi ríkislögreglustjóra Norðurlanda. Á ráðstefnunni var ákveðið að auka enn frekar samstarf landanna hvað varðar baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mögulegum umsvifum hryðjuverkamanna. Innlent 15.11.2012 14:54 Breivik kvartar undan mannréttindabrotum Hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik sendi á dögunum kvörtunarbréf til fangelsismálastofnunarinnar í Noregi. Ástæðan er sú að hann telur að mannréttindi séu brotin á sér. Hann er ennþá í einangrunarvist í Ila fangelsinu og verður þar áfram. Breivik er ósáttur við einangrunina og vill til dæmis fá að senda bréf úr fangelsinu. Breivik var í sumar fundinn sekur um að hafa myrt 77 manns í Útey fyrir rúmu ári síðan. Innlent 8.11.2012 10:09 Breivik ætlar ekki að áfrýja Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik ætlar ekki að áfrýja dómnum sem kveðinn var upp í lok ágúst vegna hryðjuverkanna í miðborg Oslóar og Útey síðasta sumar. Erlent 7.9.2012 15:24 Norðmenn ánægðir með dóminn yfir Breivik Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Breivik sem í gær var dæmdur í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir fjöldamorðin í Útey og sprengjuárásina í Osló í fyrra. Erlent 25.8.2012 12:28 Breivik reyndi að ávarpa öfgamenn Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Behring Breivik. Hann sjálfur ítrekar að hann viðurkenni ekki dómstólinn og neitar að áfrýja. Dómararnir telja litlar líkur á að hann verði hættuminni með árunum. Erlent 24.8.2012 21:26 Erfiðum réttarhöldum lokið Skiptar skoðanir virðast vera á dómnum yfir Breivik í dag. Aðstandendur hafa margir hverjir fagnað niðurstöðunni og lýst yfir ánægju sinni með að málið hafi nú loks verið leitt til lykta. Aðrir eru þó á öðru máli og segja dóminn vera vægan. Erlent 24.8.2012 11:57 Breivik sakhæfur - lífstíðar fangelsi Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur verið dæmdur sakhæfur og að hann hafi ekki verið haldinn geðrofi þegar hann framdi ódæðisverk sín á síðasta ári. Þetta tilkynnti dómari í máli hans í Ósló nú fyrir skömmu. Erlent 24.8.2012 08:07 Dómur yfir Breivik í dag Dómur verður kveðinn upp yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivk í dag. Búist er við fjölmenni við dómshúsið í miðborg Ósló en aðstandendur fórnarlamba Breiviks verða viðstaddir dómsuppkvaðninguna. Erlent 24.8.2012 06:29 Dómurinn kveðinn upp á morgun Spurningunni um sakhæfi norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik verður svarað á morgun. Breivik hefur ítrekað lýst því yfir að hann sé sakhæfur á meðan saksóknari í máli hans krefst þess að hann verði vistaður á geðdeild um ókomin ár. Erlent 23.8.2012 23:28 Réttarhöldin kostað 3,3 milljarða Kostnaðurinn vegna réttarhaldanna yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik í Osló síðustu vikur er kominn upp í 165 milljónir norskra króna, eða um 3,3 milljarða íslenskra króna. Fjallað er um málið á vef Aftenposten í morgun. Innlent 23.8.2012 06:43 Breivik dæmdur á föstudag Dómur verður kveðinn upp í máli norska hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik í Ósló á föstudag. Erlent 20.8.2012 22:05 Lögreglu tókst að stöðva tékkneskan Breivik í tæka tíð Lögregluyfirvöld í Tékklandi hafa ákært mann sem grunaður er um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í landinu svipaðar þeim sem Anders Behring Breivik skipulagði í Osló og Útey 22. júlí í fyrra. Erlent 19.8.2012 13:27 Viðbúin því versta Yfirmenn íslenzku lögreglunnar liggja nú yfir skýrslu 22. júlí-nefndarinnar um hryðjuverkin í Ósló og Útey í fyrra, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Víðir Reynisson, yfirmaður almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði í samtali við blaðið að norska lögreglan hefði þegar deilt með íslenzkum starfssystkinum sínum upplýsingum um hvað hún hefði talið vel gert og hvað illa í viðbrögðum við hryðjuverkunum. Nú væri komin óháð skýrsla og ætlunin væri að nýta reynslu Norðmanna til að bæta viðbúnað íslenzku lögreglunnar. Fyrir liggur að áætlunum og verklagsreglum verði breytt. Fastir pennar 16.8.2012 21:59 Lögreglustjórinn í Osló segir af sér Øystein Mæland, lögreglustjóri í Osló, sagði af sér í kvöld í kjölfar skýrslu um hryðjuverkaárásir Anders Behring Breivik á Osló og Útey þann 22. júlí í fyrra. Lögreglan var gagnrýnd harðlega í skýrslunni meðal annars fyrir að nýta sér ekki þá tækni sem var til staðar til að koma í veg fyrir voðaverk Breivik sem og þann tíma sem það tók að komast út í Útey. Erlent 16.8.2012 22:18 Maðurinn sem sá um yfirheyrslur yfir Breivik verið kallaður til Leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Scjetne sem hvarf sporlaust í Noregi síðustu viku hefur engan árangur borið. Fjöldi sjálfboðaliða hefur aðstoðað lögreglu við leitina en einn helsti sérfræðingur landsins á sviði réttarsálfræði og yfirheyrslna hefur verið kallaður til. Erlent 15.8.2012 19:13 Norskt dagblað vill Stoltenberg burt Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ætti að segja af sér embætti vegna sannleiksskýrslunnar um hryðjuverkin í Noregi í fyrra, að mati leiðarahöfundar norska blaðsins Verdens Gang. Erlent 14.8.2012 06:31 Útilokar ekki afsögn vegna sannleiksskýrslunnar Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segist miður sín yfir því að björgunaraðgerðir hafi tekið of langan tíma þann 22. júlí í fyrra og að Anders Behring Breivik skyldi ekki hafa verið handtekinn fyrr en raunin varð. Þetta sagði hann á blaðamannafundi eftir að sannleiksskýrsla um atburðina var birt í dag. Hann lofar því að styrkja björgunarlið. Erlent 13.8.2012 15:31 Hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin Það hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin í Noregi þann 22. júlí í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem kynnt var stjórnvöldum þar í landi í dag. Eins og kunnugt er varð fjöldamorðinginn Breivik 77 manns að bana. Skýrslan var birt á Netinu klukkan eitt að norskum tíma eða ellefu að íslenskum tíma. Helsta niðurstaðan er sú að með því að beita öryggisráðstöfunum sem norsk yfirvöld höfðu þegar tileinkað sér hefði verið hægt að koma í veg fyrir hryðjuverkin. Erlent 13.8.2012 11:28 Upplýsingum um Breivik haldið leyndum í 60 ár Stærstur hluti þeirra upplýsinga sem norsk yfirvöld hafa um fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik og ástæðurnar að baki morðunum í Ósló og í Útey í fyrra munu ekki birtast almenningi fyrr en eftir sextíu ár. Þetta kemur fram á vef Jyllands Posten í dag. Ný skýrsla um atburðina verður kynnt yfirvöldum í dag og verður haldinn blaðamannafundur í framhaldi af því. Skýrslan lak í fjölmiðla á föstudag, en þar kemur meðal annars fram hörð gagnrýni á viðbrögð lögreglunnar þennan örlagaríka dag. Erlent 13.8.2012 08:12 Norska lögreglan gagnrýnd fyrir viðbrögð við fjöldamorðunum Norska lögreglan er harðlega gagnrýnd í svokallaðri 22. júlí skýrslu, sem fjallar um viðbrögð við fjöldamorðunum í Osló og Útey í fyrra. Þá varð Anders Behring Breivik 77 manns að bana. Skýrslunni var lekið í fjölmiðla og birtu þeir helstu atriði hennar í morgun. Erlent 10.8.2012 10:43 Pabbi Breiviks skrifar bók um hann Pabbi Anders Behring Breivik ætlar að skrifa bók um son sinn. Pabbinn heitir Jens Breivik er 76 ára gamall og býr í Frakklandi. Breivik myrti, sem kunnugt er, 76 í Osló og Útey í Noregi þann 22. júlí í fyrra. Hann hefur staðfest við útvarpsstöðina P4 í Noregi að hann hyggist skrifa bók um soninn. "Já, það passar, en ég vil ekki tjá mig neitt um það," segir hann í samtali við P4. P4 hefur verið í sambandi við stærstu bókaforlög í Noregi, en enginn af þeim hefur fengið handrit frá pabba Breiviks. Forlögin eru þó mjög áhugasöm um að ræða við hann. Erlent 2.8.2012 16:10 Eiginlega ómögulegt að fjarlægja ræðu Breivik af netinu Þar sem að upptaka af ræðu Breivik er á annað borð komin á netið verður mjög erfitt ef ekki ómögulegt að fjarlægja hana aftur segir ritstjóri norsku sjónvarpsstöðvarinnar NRK. Erlent 26.7.2012 16:45 Breivik fluttur í annað fangelsi Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var fluttur úr Ila fangelsinu í Skien fangelsið í gær. Þetta staðfesti Geir Lippestad, verjandi Breiviks, í samtali við norska ríkisútvarpið. Lippestad segir að hann hafi verið í sambandi við fangelsismálayfirvöld bæði fyrir og eftir flutningana og hafi fengið þær fréttir að flutningarnir hafi gengið vel. Erlent 24.7.2012 09:44 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 11 ›
Norskur þungarokkari talinn hafa skipulagt hryðjuverk Varg Vikernes handtekinn í Frakklandi í morgun. Erlent 16.7.2013 13:08
Fyrstu sumarbúðirnar eftir fjöldamorðin á Úteyju Ungliðahreyfing norska Verkamannaflokksins heldur þessa dagana fyrstu sumarbúðir sínar frá því fjöldamorðin voru framin á Úteyju sumarið 2011. Erlent 5.7.2013 14:36
Sagðist elska Anders Breivik Norskur karlmaður, búsettur í Vejle í Danmörku, fékk í gær tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir stuðningsyfirlýsingar við fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik. Erlent 14.6.2013 21:35
Stuðningsmaður Breiviks dæmdur Fjörutíu og fjögurra ára gamall maður frá Vejle í Danmörku hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa lýst yfir stuðningi við fjöldamorðingjann Anders Breivik. Erlent 30.5.2013 11:52
Fjöldamorðinginn í Sandy Hook með þráhyggju fyrir Breivik Adam Lanza, sem myrti 26 manns í Sandy Hook skólanum í Connecticut í Bandaríkjunum fyrir áramót hafði ákveðið að myrða fleiri en Anders Behring Breivik í Útey sumarið 2011. Þetta sýna gögn sem lögreglan hefur undir höndum og fréttavefur Telegraph segir frá. Innlent 19.2.2013 11:21
Hreyfimyndir af ódæði Breiviks birtar í fyrsta skipti Myndskeið birtist í fyrsta sinn í dag af því þegar Anders Behring Breivik leggur bílnum með sprengjunni í Stjórnarráðshverfinu í Osló og gengur síðan burt hröðum skrefum. Erlent 26.11.2012 14:16
Breivik má hafa kúlupenna Aðstaða morðingjans Anders Behring-Breivik í fangelsinu Illa hefur breyst til batnaðar, samkvæmt því sem lögmaður hans sagði í samtali við Verdens Gang. Erlent 22.11.2012 23:01
Norrænir lögreglumenn ræddu viðbrögð við Breivik Fulltrúar greiningardeildar Ríkislögreglustjóra sóttu á dögunum ráðstefnu í Svíþjóð um skipulagða glæpastarfsemi. Boðað var til ráðstefnunnar í framhaldi af fundi ríkislögreglustjóra Norðurlanda. Á ráðstefnunni var ákveðið að auka enn frekar samstarf landanna hvað varðar baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mögulegum umsvifum hryðjuverkamanna. Innlent 15.11.2012 14:54
Breivik kvartar undan mannréttindabrotum Hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik sendi á dögunum kvörtunarbréf til fangelsismálastofnunarinnar í Noregi. Ástæðan er sú að hann telur að mannréttindi séu brotin á sér. Hann er ennþá í einangrunarvist í Ila fangelsinu og verður þar áfram. Breivik er ósáttur við einangrunina og vill til dæmis fá að senda bréf úr fangelsinu. Breivik var í sumar fundinn sekur um að hafa myrt 77 manns í Útey fyrir rúmu ári síðan. Innlent 8.11.2012 10:09
Breivik ætlar ekki að áfrýja Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik ætlar ekki að áfrýja dómnum sem kveðinn var upp í lok ágúst vegna hryðjuverkanna í miðborg Oslóar og Útey síðasta sumar. Erlent 7.9.2012 15:24
Norðmenn ánægðir með dóminn yfir Breivik Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Breivik sem í gær var dæmdur í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir fjöldamorðin í Útey og sprengjuárásina í Osló í fyrra. Erlent 25.8.2012 12:28
Breivik reyndi að ávarpa öfgamenn Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Behring Breivik. Hann sjálfur ítrekar að hann viðurkenni ekki dómstólinn og neitar að áfrýja. Dómararnir telja litlar líkur á að hann verði hættuminni með árunum. Erlent 24.8.2012 21:26
Erfiðum réttarhöldum lokið Skiptar skoðanir virðast vera á dómnum yfir Breivik í dag. Aðstandendur hafa margir hverjir fagnað niðurstöðunni og lýst yfir ánægju sinni með að málið hafi nú loks verið leitt til lykta. Aðrir eru þó á öðru máli og segja dóminn vera vægan. Erlent 24.8.2012 11:57
Breivik sakhæfur - lífstíðar fangelsi Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur verið dæmdur sakhæfur og að hann hafi ekki verið haldinn geðrofi þegar hann framdi ódæðisverk sín á síðasta ári. Þetta tilkynnti dómari í máli hans í Ósló nú fyrir skömmu. Erlent 24.8.2012 08:07
Dómur yfir Breivik í dag Dómur verður kveðinn upp yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivk í dag. Búist er við fjölmenni við dómshúsið í miðborg Ósló en aðstandendur fórnarlamba Breiviks verða viðstaddir dómsuppkvaðninguna. Erlent 24.8.2012 06:29
Dómurinn kveðinn upp á morgun Spurningunni um sakhæfi norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik verður svarað á morgun. Breivik hefur ítrekað lýst því yfir að hann sé sakhæfur á meðan saksóknari í máli hans krefst þess að hann verði vistaður á geðdeild um ókomin ár. Erlent 23.8.2012 23:28
Réttarhöldin kostað 3,3 milljarða Kostnaðurinn vegna réttarhaldanna yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik í Osló síðustu vikur er kominn upp í 165 milljónir norskra króna, eða um 3,3 milljarða íslenskra króna. Fjallað er um málið á vef Aftenposten í morgun. Innlent 23.8.2012 06:43
Breivik dæmdur á föstudag Dómur verður kveðinn upp í máli norska hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik í Ósló á föstudag. Erlent 20.8.2012 22:05
Lögreglu tókst að stöðva tékkneskan Breivik í tæka tíð Lögregluyfirvöld í Tékklandi hafa ákært mann sem grunaður er um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í landinu svipaðar þeim sem Anders Behring Breivik skipulagði í Osló og Útey 22. júlí í fyrra. Erlent 19.8.2012 13:27
Viðbúin því versta Yfirmenn íslenzku lögreglunnar liggja nú yfir skýrslu 22. júlí-nefndarinnar um hryðjuverkin í Ósló og Útey í fyrra, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Víðir Reynisson, yfirmaður almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði í samtali við blaðið að norska lögreglan hefði þegar deilt með íslenzkum starfssystkinum sínum upplýsingum um hvað hún hefði talið vel gert og hvað illa í viðbrögðum við hryðjuverkunum. Nú væri komin óháð skýrsla og ætlunin væri að nýta reynslu Norðmanna til að bæta viðbúnað íslenzku lögreglunnar. Fyrir liggur að áætlunum og verklagsreglum verði breytt. Fastir pennar 16.8.2012 21:59
Lögreglustjórinn í Osló segir af sér Øystein Mæland, lögreglustjóri í Osló, sagði af sér í kvöld í kjölfar skýrslu um hryðjuverkaárásir Anders Behring Breivik á Osló og Útey þann 22. júlí í fyrra. Lögreglan var gagnrýnd harðlega í skýrslunni meðal annars fyrir að nýta sér ekki þá tækni sem var til staðar til að koma í veg fyrir voðaverk Breivik sem og þann tíma sem það tók að komast út í Útey. Erlent 16.8.2012 22:18
Maðurinn sem sá um yfirheyrslur yfir Breivik verið kallaður til Leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Scjetne sem hvarf sporlaust í Noregi síðustu viku hefur engan árangur borið. Fjöldi sjálfboðaliða hefur aðstoðað lögreglu við leitina en einn helsti sérfræðingur landsins á sviði réttarsálfræði og yfirheyrslna hefur verið kallaður til. Erlent 15.8.2012 19:13
Norskt dagblað vill Stoltenberg burt Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ætti að segja af sér embætti vegna sannleiksskýrslunnar um hryðjuverkin í Noregi í fyrra, að mati leiðarahöfundar norska blaðsins Verdens Gang. Erlent 14.8.2012 06:31
Útilokar ekki afsögn vegna sannleiksskýrslunnar Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segist miður sín yfir því að björgunaraðgerðir hafi tekið of langan tíma þann 22. júlí í fyrra og að Anders Behring Breivik skyldi ekki hafa verið handtekinn fyrr en raunin varð. Þetta sagði hann á blaðamannafundi eftir að sannleiksskýrsla um atburðina var birt í dag. Hann lofar því að styrkja björgunarlið. Erlent 13.8.2012 15:31
Hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin Það hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin í Noregi þann 22. júlí í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem kynnt var stjórnvöldum þar í landi í dag. Eins og kunnugt er varð fjöldamorðinginn Breivik 77 manns að bana. Skýrslan var birt á Netinu klukkan eitt að norskum tíma eða ellefu að íslenskum tíma. Helsta niðurstaðan er sú að með því að beita öryggisráðstöfunum sem norsk yfirvöld höfðu þegar tileinkað sér hefði verið hægt að koma í veg fyrir hryðjuverkin. Erlent 13.8.2012 11:28
Upplýsingum um Breivik haldið leyndum í 60 ár Stærstur hluti þeirra upplýsinga sem norsk yfirvöld hafa um fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik og ástæðurnar að baki morðunum í Ósló og í Útey í fyrra munu ekki birtast almenningi fyrr en eftir sextíu ár. Þetta kemur fram á vef Jyllands Posten í dag. Ný skýrsla um atburðina verður kynnt yfirvöldum í dag og verður haldinn blaðamannafundur í framhaldi af því. Skýrslan lak í fjölmiðla á föstudag, en þar kemur meðal annars fram hörð gagnrýni á viðbrögð lögreglunnar þennan örlagaríka dag. Erlent 13.8.2012 08:12
Norska lögreglan gagnrýnd fyrir viðbrögð við fjöldamorðunum Norska lögreglan er harðlega gagnrýnd í svokallaðri 22. júlí skýrslu, sem fjallar um viðbrögð við fjöldamorðunum í Osló og Útey í fyrra. Þá varð Anders Behring Breivik 77 manns að bana. Skýrslunni var lekið í fjölmiðla og birtu þeir helstu atriði hennar í morgun. Erlent 10.8.2012 10:43
Pabbi Breiviks skrifar bók um hann Pabbi Anders Behring Breivik ætlar að skrifa bók um son sinn. Pabbinn heitir Jens Breivik er 76 ára gamall og býr í Frakklandi. Breivik myrti, sem kunnugt er, 76 í Osló og Útey í Noregi þann 22. júlí í fyrra. Hann hefur staðfest við útvarpsstöðina P4 í Noregi að hann hyggist skrifa bók um soninn. "Já, það passar, en ég vil ekki tjá mig neitt um það," segir hann í samtali við P4. P4 hefur verið í sambandi við stærstu bókaforlög í Noregi, en enginn af þeim hefur fengið handrit frá pabba Breiviks. Forlögin eru þó mjög áhugasöm um að ræða við hann. Erlent 2.8.2012 16:10
Eiginlega ómögulegt að fjarlægja ræðu Breivik af netinu Þar sem að upptaka af ræðu Breivik er á annað borð komin á netið verður mjög erfitt ef ekki ómögulegt að fjarlægja hana aftur segir ritstjóri norsku sjónvarpsstöðvarinnar NRK. Erlent 26.7.2012 16:45
Breivik fluttur í annað fangelsi Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var fluttur úr Ila fangelsinu í Skien fangelsið í gær. Þetta staðfesti Geir Lippestad, verjandi Breiviks, í samtali við norska ríkisútvarpið. Lippestad segir að hann hafi verið í sambandi við fangelsismálayfirvöld bæði fyrir og eftir flutningana og hafi fengið þær fréttir að flutningarnir hafi gengið vel. Erlent 24.7.2012 09:44
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið