Hrafnhildur náði Ólympíulágmarkinu í 200 metra bringusundi | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2015 19:40 vísir/vilhelm Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir, sem náði Ólympíulágmarkinu í 200 metra fjórsundi í gær, hélt uppteknum hætti í dag á Smáþjóðaleikunum sem standa nú yfir hér á landi.Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á staðnum og tók myndirnar sem fylgja fréttinni. Hrafnhildur vann til gullverðlauna í 200 metra bringusundi og náði um leið Ólympíulágmarki en hún synti á 2:25,39 mínútum. Hrafnhildur setti í leiðinni nýtt Íslandsmet (sem hún bætti um eina og hálfa sekúndu) og sló eigið mótsmet á Smáþjóðaleikunum en gamla metið var 2:31,28 mínútur. Karen Mist Arngeirsdóttir náði í bronsverðlaun í sömu grein en hún kom í bakkann á tímanum 2:41,91 mínútu. Eygló Ósk Gústafsdóttir gerði það einnig gott og vann til gullverðlauna í 100 metra baksundi. Eygló synti á 1:01,20 mínútum og sló eigið mótsmet um 1,69 sekúndu. Eygló vann einnig til gullverðlauna í 200 metra baksundi í gær. Ingibjörg Kristín Jónsdóttir kom önnur í mark í 100 metra baksundinu á tímanum 1:03,84 mínútum. Í 100 metra baksundi í karlaflokki varð Kolbeinn Hrafnkelsson hlutskarpastur en hann kom í bakkann á 57,66 sekúndum, aðeins 0,01 sekúndu á undan Jean-Francois Schneiders frá Lúxemborg. Kristinn Þórarinsson hafnaði í 3. sæti á tímanum 58,21 sekúndu. Jóhanna Gerða Gústafsdóttir vann sigur í 100 metra flugsundi á tímanum 1:00,91 mínútu og setti um leið nýtt mótsmet. Bryndís Rún Hansen hafnaði í 2. sæti á tímanum 1:01,10 mínútu. Þá vann Ísland sigur í kvennaflokki í 4x200 metra skriðsundi á tímanum 8:20,96 mínútum. Sveitina skipuðu Bryndís Rún, Inga Elín Cryer, Ingibjörg Kristín og Jóhanna Gerða. Ísland hafnaði í 2. sæti í karlaflokki í 4x200 metra skriðsundi. Öll úrslit dagsins má finna með því að smella hér.vísir/vilhelmvísir/vilhelm Sund Tengdar fréttir Hrafnhildur náði Ólympíulágmarki Náði frábærum árangri í 200 m fjórsundi á Smáþjóðaleikunum í gær. 3. júní 2015 12:15 Hrafnhildur bætti met Eyglóar | Níu íslensk verðlaun í sundinu Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir unnu bæði gullverðlaun á fyrsta keppnisdegi í sundi á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík. Anton Sveinn McKee bætti Íslandsmet. 2. júní 2015 19:11 Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Hörkuleikur í Garðabæ á kjördegi Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig „Þetta var stórt og allir sigrar í þessari deild eru mikilvægir“ Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld „Þær eru bara hetjur“ Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Segir að Verstappen ætti að byrja með uppistand Sjá meira
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir, sem náði Ólympíulágmarkinu í 200 metra fjórsundi í gær, hélt uppteknum hætti í dag á Smáþjóðaleikunum sem standa nú yfir hér á landi.Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á staðnum og tók myndirnar sem fylgja fréttinni. Hrafnhildur vann til gullverðlauna í 200 metra bringusundi og náði um leið Ólympíulágmarki en hún synti á 2:25,39 mínútum. Hrafnhildur setti í leiðinni nýtt Íslandsmet (sem hún bætti um eina og hálfa sekúndu) og sló eigið mótsmet á Smáþjóðaleikunum en gamla metið var 2:31,28 mínútur. Karen Mist Arngeirsdóttir náði í bronsverðlaun í sömu grein en hún kom í bakkann á tímanum 2:41,91 mínútu. Eygló Ósk Gústafsdóttir gerði það einnig gott og vann til gullverðlauna í 100 metra baksundi. Eygló synti á 1:01,20 mínútum og sló eigið mótsmet um 1,69 sekúndu. Eygló vann einnig til gullverðlauna í 200 metra baksundi í gær. Ingibjörg Kristín Jónsdóttir kom önnur í mark í 100 metra baksundinu á tímanum 1:03,84 mínútum. Í 100 metra baksundi í karlaflokki varð Kolbeinn Hrafnkelsson hlutskarpastur en hann kom í bakkann á 57,66 sekúndum, aðeins 0,01 sekúndu á undan Jean-Francois Schneiders frá Lúxemborg. Kristinn Þórarinsson hafnaði í 3. sæti á tímanum 58,21 sekúndu. Jóhanna Gerða Gústafsdóttir vann sigur í 100 metra flugsundi á tímanum 1:00,91 mínútu og setti um leið nýtt mótsmet. Bryndís Rún Hansen hafnaði í 2. sæti á tímanum 1:01,10 mínútu. Þá vann Ísland sigur í kvennaflokki í 4x200 metra skriðsundi á tímanum 8:20,96 mínútum. Sveitina skipuðu Bryndís Rún, Inga Elín Cryer, Ingibjörg Kristín og Jóhanna Gerða. Ísland hafnaði í 2. sæti í karlaflokki í 4x200 metra skriðsundi. Öll úrslit dagsins má finna með því að smella hér.vísir/vilhelmvísir/vilhelm
Sund Tengdar fréttir Hrafnhildur náði Ólympíulágmarki Náði frábærum árangri í 200 m fjórsundi á Smáþjóðaleikunum í gær. 3. júní 2015 12:15 Hrafnhildur bætti met Eyglóar | Níu íslensk verðlaun í sundinu Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir unnu bæði gullverðlaun á fyrsta keppnisdegi í sundi á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík. Anton Sveinn McKee bætti Íslandsmet. 2. júní 2015 19:11 Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Hörkuleikur í Garðabæ á kjördegi Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig „Þetta var stórt og allir sigrar í þessari deild eru mikilvægir“ Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld „Þær eru bara hetjur“ Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Segir að Verstappen ætti að byrja með uppistand Sjá meira
Hrafnhildur náði Ólympíulágmarki Náði frábærum árangri í 200 m fjórsundi á Smáþjóðaleikunum í gær. 3. júní 2015 12:15
Hrafnhildur bætti met Eyglóar | Níu íslensk verðlaun í sundinu Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir unnu bæði gullverðlaun á fyrsta keppnisdegi í sundi á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík. Anton Sveinn McKee bætti Íslandsmet. 2. júní 2015 19:11