Umfjöllun: Portúgal - Ísland 1-1 | Sögulegt mark, sögulegt stig og söguleg stund í Saint-Étienne Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. júní 2016 17:30 Birkir Bjarnason jafnaði snemma í síðari hálfleik. Vísir/Vilhelm Ísland byrjaði frábærlega á EM í Frakklandi er liðið náði 1-1 jafntefli í erfiðum leik gegn Portúgal í fyrsta leik sínum í F-riðli. Nani kom Portúgal yfir á 31. mínútu eftir laglega sókn en það lá mikið á íslenska liðinu í fyrri hálfleik, eftir góðar upphafsmínútur. En Birkir Bjarnason skoraði frábært mark á 50. mínútu eftir sendingu Jóhanns Bergs Guðmundssonar og skráði nafn sitt þar með á spjöld sögunnar. Það lá áfram mikið á íslenska liðinu í síðari hálfleik og síðustu mínútur leiksins voru afar erfiðar fyrir Íslendinga, hvar svo sem þeir voru. Biðin var óbærileg þegar Cristiano Ronaldo fékk aukaspyrnu á stórhættulegum stað í uppbótartíma. En okkar mönnum tókst að halda þetta út og er Ísland því komið með eitt stig á EM. Eitt frábært stig sem gefur mikla von fyrir framhaldið. Stuðningsmenn íslenska liðsins voru algjörlega frábærir í kvöld og eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna á pöllunum. Hún var ekki síðri en frammistaða leikmannanna á vellinum. Leikurinn byrjaði frábærlega fyrir okkar menn. Eitt af fyrstu verkum Íslands á EM var að fyrirliðinn Aron Einar vann boltann af Cristiano Ronaldo, sem var afar viðeigandi. Nani komst svo á sprett stuttu síðar en það var yfirvegun í aðgerðum Íslands og það leyst af fagmennsku af íslensku vörninni og Hannesi í markinu. Gylfi Þór hefði svo átt að skora þegar Rui Patricio varði tvívegis frá honum á þriðju mínútu. Þetta byrjaði frábærlega. Fyrstu tíu mínúturnar voru heilt yfir góðar en eina færi Portúgals fékk Danilo eftir hornspyrnu er hann skallaði framhjá. Birkir Már gerði sig sekan um mistök og gaf Portúgal horn. Birkir gerði svo önnur mistök er hann átti lélega hreinsun sem endaði með því að Ronaldo átti frábæra sendingu inn á markteig, beint á Nani sem skallaði að marki af stuttu færi. En á einhvern ótrúlegan hátt náði Hannes Þór að bregðast við og verja með fótunum. Hannes átti fleiri góðar aðgerðir og hann hélt Íslandi inni í leiknum á erfiðum kafla þegar Portúgal tók völdin í leiknum, hægt og rólega. Portúgal var mun meira með boltann og þegar við unnum hann fengum við mjög lítinn tíma og áttum í stökustu vandræðum með að finna menn í svæðum. Það kom því fæstum á óvart þegar Nani kom Portúgal yfir. Sóknin var frábær. Hún kom upp hægri kantinn og André Gomes náði að draga Kára Árnason úr stöðu og gefa svo á dauðafrían Nani sem átti ekkert eftir að gera en að afgreiða boltann í netið af stuttu færi. Ísland náði aðeins að ógna eftir þetta með fáeinum hornspyrnum en meira var það ekki. Portúgal leiddi 1-0 í hálfleik og okkar menn voru lánsamir að vera ekki undir með meiri mun þá. Mörk breyta svo miklu og eftir skyndisókn Íslands á 50. mínútu, sem hófst með því að Jón Daði vann boltann, átt Jóhann Berg sendingu frá hægri kantin á dauðafrían Birki Bjarnason á fjærstöng sem var yfirvegunin uppmálið og afgreiddi knöttinn í netið. Ísland hafði jafnað leikinn með þessu sögulega marki - því fyrsta sem A-landslið karla skorar í lokakeppni stórmóts, þessu risastóra sviði knattspyrnunnar. Ísland var næsta korterið eða svo í hálfgerðri nauðvörn. Okkar menn þurftu að verjast mjög afarlega en gerðu allt rétt með Hannes Þór fremstan í flokki. Hann sá allt það sem komst í gegnum vörnina af mikilli festu. Okkar mönnum óx svo ásmegin. Ragnar náði að stöðva Ronaldo við vítateigslínuna og Aron Einar vann svo boltann af honum á mikilvægum tímapunkti. Strákarnir fóru að gera sig líklega. Jón Daði rétt missti af sendingu Birkis frá vinstri kantinum í góðri stöðu og Selfyssingurinn átti svo að fá meira en ekkert þegar Pepe gerði sig sekan um fólskuverk og setti takkana í hann. Nani komst einna næst því að koma Portúgal yfir á 70. mínútu er hann stýrði aukaspyrnu bakvarðarins Guerreiro rétt svo framhjá markinu. Hannes Þór hélt áfram að verja en það gerði Rui Patricio líka. Varamaðurinn Alferð gerði mikið úr erfiðri stöðu og átti frábært skot að marki sem var þó beint á Patricio. Margir Íslendingar sá þann bolta inni. Portúgal sótti mikið og leitaði vel og lengi að sigurmarkinu. En aldrei kom það. Og við tók gríðarlegur fögnuður Íslendinga þegar flautað var til leiksloka. Frábær byrjun okkar manna á EM er staðreynd. Þvílík og önnur eins draumabyrjun.Nani kemur Portúgal í 1-0: Birkir Bjarnason jafnar í 1-1: EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Ísland byrjaði frábærlega á EM í Frakklandi er liðið náði 1-1 jafntefli í erfiðum leik gegn Portúgal í fyrsta leik sínum í F-riðli. Nani kom Portúgal yfir á 31. mínútu eftir laglega sókn en það lá mikið á íslenska liðinu í fyrri hálfleik, eftir góðar upphafsmínútur. En Birkir Bjarnason skoraði frábært mark á 50. mínútu eftir sendingu Jóhanns Bergs Guðmundssonar og skráði nafn sitt þar með á spjöld sögunnar. Það lá áfram mikið á íslenska liðinu í síðari hálfleik og síðustu mínútur leiksins voru afar erfiðar fyrir Íslendinga, hvar svo sem þeir voru. Biðin var óbærileg þegar Cristiano Ronaldo fékk aukaspyrnu á stórhættulegum stað í uppbótartíma. En okkar mönnum tókst að halda þetta út og er Ísland því komið með eitt stig á EM. Eitt frábært stig sem gefur mikla von fyrir framhaldið. Stuðningsmenn íslenska liðsins voru algjörlega frábærir í kvöld og eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna á pöllunum. Hún var ekki síðri en frammistaða leikmannanna á vellinum. Leikurinn byrjaði frábærlega fyrir okkar menn. Eitt af fyrstu verkum Íslands á EM var að fyrirliðinn Aron Einar vann boltann af Cristiano Ronaldo, sem var afar viðeigandi. Nani komst svo á sprett stuttu síðar en það var yfirvegun í aðgerðum Íslands og það leyst af fagmennsku af íslensku vörninni og Hannesi í markinu. Gylfi Þór hefði svo átt að skora þegar Rui Patricio varði tvívegis frá honum á þriðju mínútu. Þetta byrjaði frábærlega. Fyrstu tíu mínúturnar voru heilt yfir góðar en eina færi Portúgals fékk Danilo eftir hornspyrnu er hann skallaði framhjá. Birkir Már gerði sig sekan um mistök og gaf Portúgal horn. Birkir gerði svo önnur mistök er hann átti lélega hreinsun sem endaði með því að Ronaldo átti frábæra sendingu inn á markteig, beint á Nani sem skallaði að marki af stuttu færi. En á einhvern ótrúlegan hátt náði Hannes Þór að bregðast við og verja með fótunum. Hannes átti fleiri góðar aðgerðir og hann hélt Íslandi inni í leiknum á erfiðum kafla þegar Portúgal tók völdin í leiknum, hægt og rólega. Portúgal var mun meira með boltann og þegar við unnum hann fengum við mjög lítinn tíma og áttum í stökustu vandræðum með að finna menn í svæðum. Það kom því fæstum á óvart þegar Nani kom Portúgal yfir. Sóknin var frábær. Hún kom upp hægri kantinn og André Gomes náði að draga Kára Árnason úr stöðu og gefa svo á dauðafrían Nani sem átti ekkert eftir að gera en að afgreiða boltann í netið af stuttu færi. Ísland náði aðeins að ógna eftir þetta með fáeinum hornspyrnum en meira var það ekki. Portúgal leiddi 1-0 í hálfleik og okkar menn voru lánsamir að vera ekki undir með meiri mun þá. Mörk breyta svo miklu og eftir skyndisókn Íslands á 50. mínútu, sem hófst með því að Jón Daði vann boltann, átt Jóhann Berg sendingu frá hægri kantin á dauðafrían Birki Bjarnason á fjærstöng sem var yfirvegunin uppmálið og afgreiddi knöttinn í netið. Ísland hafði jafnað leikinn með þessu sögulega marki - því fyrsta sem A-landslið karla skorar í lokakeppni stórmóts, þessu risastóra sviði knattspyrnunnar. Ísland var næsta korterið eða svo í hálfgerðri nauðvörn. Okkar menn þurftu að verjast mjög afarlega en gerðu allt rétt með Hannes Þór fremstan í flokki. Hann sá allt það sem komst í gegnum vörnina af mikilli festu. Okkar mönnum óx svo ásmegin. Ragnar náði að stöðva Ronaldo við vítateigslínuna og Aron Einar vann svo boltann af honum á mikilvægum tímapunkti. Strákarnir fóru að gera sig líklega. Jón Daði rétt missti af sendingu Birkis frá vinstri kantinum í góðri stöðu og Selfyssingurinn átti svo að fá meira en ekkert þegar Pepe gerði sig sekan um fólskuverk og setti takkana í hann. Nani komst einna næst því að koma Portúgal yfir á 70. mínútu er hann stýrði aukaspyrnu bakvarðarins Guerreiro rétt svo framhjá markinu. Hannes Þór hélt áfram að verja en það gerði Rui Patricio líka. Varamaðurinn Alferð gerði mikið úr erfiðri stöðu og átti frábært skot að marki sem var þó beint á Patricio. Margir Íslendingar sá þann bolta inni. Portúgal sótti mikið og leitaði vel og lengi að sigurmarkinu. En aldrei kom það. Og við tók gríðarlegur fögnuður Íslendinga þegar flautað var til leiksloka. Frábær byrjun okkar manna á EM er staðreynd. Þvílík og önnur eins draumabyrjun.Nani kemur Portúgal í 1-0: Birkir Bjarnason jafnar í 1-1:
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira