Einkunnir gegn Englandi: Ragnar bestur með tíu í einkunn Anton Ingi Leifsson skrifar 27. júní 2016 21:07 Ragnar klappar fyrir stuðningsmönnum Íslands í leikslok. vísir/getty Ísland er komið í átta liða úrslit á EM í Frakklandi eftir 2-1 sigur á Englandi á Allianz Riviera í Nice í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið. Wayne Rooney kom Englandi yfir af vítapunktinum á fjórðu mínútu, en Ragnar Sigurðsson jafnaði 80 sekúndum síðar. Kolbeinn Sigþórsson skoraði svo sigurmarkið á nítjándu mínútu leiksins, en frammistaða íslenska liðsins var gjörsamlega mögnuð í alla staði. Ragnar Sigurðsson var valinn maður leiksins með fullt hús, tíu í einkunn, en nokkrir leikmenn voru með níu í einkunn. Hér að neðan má sjá einkunnir íslenska liðsins ásamt umsögn um hvern einasta leik, en íslenska liðið mætir Frakklandi í París á sunnudag.Einkunnir Íslands gegn Englandi:Hannes Þór Halldórsson, markvörður 8 Verst mögulega byrjun þegar Hannes gaf víti með því að keyra Sterling niður. Lét það ekki buga sig og var öryggið uppmálið í markinu og átti mjög góðan leik.Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 8 Missti Sterling inn fyrir sig í vítinu en annars hélt hann kantmanninum ágætlega í skefjum. Tók enga áhættu og þrumaði boltanum í burtu við fyrsta tækifæri.Kári Árnason, miðvörður 9 Lagði upp mark annan leikinn í röð eftir langt innkast frá Aroni. Turninn í vörninni og sýndi Englendingum enga virðingu. Góður talandi og þeir Raggi flottir sem fyrr.Ragnar Sigurðsson, miðvörður 10 Skoraði sitt annað landsliðsmark af harðfylgi og var frábær í vörninni eins og hann hefur verið allt mótið. Átti tæklingu leiksins í seinni hálfleik þegar Vardy var að sleppa í gegn. Fullt hús.Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 8 Undir mikilli pressu því vitað var að Englendingarnir myndu reyna að keyra upp hægra megin. Stóðst hana með ágætum og þeir Birkir unnu vel saman í vörninni.Jóhann Berg Guðmundsson, hægri kantmaður 7 Hefur átt betri leiki og fyrsta snerting sveik hann nokkrum sinnum. Sinnti varnarvinnunni velAron Einar Gunnarsson, miðjumaður 8 Þvílíkur fyrirliði. Leiðtoginn með vopnið mikilvæga, innköstin, sem aftur skiluðu marki. Vann boltann aftur og aftur en datt stundum í þá gryfju að senda blint þegar hann var að reyna að hjálpa Íslandi að ná upp spili.Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 9 Þetta var leikurinn hans Gylfa. Hann nýtur sín í enskum fótbolta og greinilega gegn Englandi líka. Stjórnaði sókninni og vann boltann svo aftur og aftur í vörninni.Birkir Bjarnason, vinstri kantmaður 9 Afar duglegur að aðstoða Ara Frey og unnu þeir vel saman. Óþreytandi og gekk vel að halda boltanum þega á þurfti að halda.Jón Daði Böðvarsson, framherji 8 Sami dugnaðurinn og áður fyrr en gekk ekki alveg jafnvel að taka á móti boltanum og halda þegar þurfti.Kolbeinn Sigþórsson, framherji 8 Það voru allir að bíða eftir marki frá Kolla því hann skorar nánast alltaf. Nú kom það eftir frábæra sókn íslenska liðsins. Gekk ekki nógu vel að halda boltanum en vann vel til baka þegar þurfti.Varamenn:Theodór Elmar Bjarnason - (Kom inn á fyrir Kolbein Sigþórsson á 77. mínútu) Kom inn með orku, kraft og elti hvern einasta bolta. Frábær leikmaður til að geta sett inn á.Arnór Ingi Traustason - (Kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 89. mínútu) Kom inn á síðustu mínútunum til að gefa ferska fætur og skilaði sínu hlutverki vel. EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Umfjöllun: England - Ísland 1-2 | Strákarnir sendu Englendinga heim Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið fyrir íslenska liðið eftir að það lenti 1-0 undir. 27. júní 2016 22:45 Sex af strákunum okkar hafa skorað á sínu fyrsta EM | Sjáið öll mörkin Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur skorað sex mörk á sínu fyrsta stórmóti en þeir Ragnar Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson bættust í hópinn í leiknum á móti Englandi í sextán liða úrslitunum í Nice í kvöld. 27. júní 2016 19:45 Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Sjá meira
Ísland er komið í átta liða úrslit á EM í Frakklandi eftir 2-1 sigur á Englandi á Allianz Riviera í Nice í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið. Wayne Rooney kom Englandi yfir af vítapunktinum á fjórðu mínútu, en Ragnar Sigurðsson jafnaði 80 sekúndum síðar. Kolbeinn Sigþórsson skoraði svo sigurmarkið á nítjándu mínútu leiksins, en frammistaða íslenska liðsins var gjörsamlega mögnuð í alla staði. Ragnar Sigurðsson var valinn maður leiksins með fullt hús, tíu í einkunn, en nokkrir leikmenn voru með níu í einkunn. Hér að neðan má sjá einkunnir íslenska liðsins ásamt umsögn um hvern einasta leik, en íslenska liðið mætir Frakklandi í París á sunnudag.Einkunnir Íslands gegn Englandi:Hannes Þór Halldórsson, markvörður 8 Verst mögulega byrjun þegar Hannes gaf víti með því að keyra Sterling niður. Lét það ekki buga sig og var öryggið uppmálið í markinu og átti mjög góðan leik.Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 8 Missti Sterling inn fyrir sig í vítinu en annars hélt hann kantmanninum ágætlega í skefjum. Tók enga áhættu og þrumaði boltanum í burtu við fyrsta tækifæri.Kári Árnason, miðvörður 9 Lagði upp mark annan leikinn í röð eftir langt innkast frá Aroni. Turninn í vörninni og sýndi Englendingum enga virðingu. Góður talandi og þeir Raggi flottir sem fyrr.Ragnar Sigurðsson, miðvörður 10 Skoraði sitt annað landsliðsmark af harðfylgi og var frábær í vörninni eins og hann hefur verið allt mótið. Átti tæklingu leiksins í seinni hálfleik þegar Vardy var að sleppa í gegn. Fullt hús.Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 8 Undir mikilli pressu því vitað var að Englendingarnir myndu reyna að keyra upp hægra megin. Stóðst hana með ágætum og þeir Birkir unnu vel saman í vörninni.Jóhann Berg Guðmundsson, hægri kantmaður 7 Hefur átt betri leiki og fyrsta snerting sveik hann nokkrum sinnum. Sinnti varnarvinnunni velAron Einar Gunnarsson, miðjumaður 8 Þvílíkur fyrirliði. Leiðtoginn með vopnið mikilvæga, innköstin, sem aftur skiluðu marki. Vann boltann aftur og aftur en datt stundum í þá gryfju að senda blint þegar hann var að reyna að hjálpa Íslandi að ná upp spili.Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 9 Þetta var leikurinn hans Gylfa. Hann nýtur sín í enskum fótbolta og greinilega gegn Englandi líka. Stjórnaði sókninni og vann boltann svo aftur og aftur í vörninni.Birkir Bjarnason, vinstri kantmaður 9 Afar duglegur að aðstoða Ara Frey og unnu þeir vel saman. Óþreytandi og gekk vel að halda boltanum þega á þurfti að halda.Jón Daði Böðvarsson, framherji 8 Sami dugnaðurinn og áður fyrr en gekk ekki alveg jafnvel að taka á móti boltanum og halda þegar þurfti.Kolbeinn Sigþórsson, framherji 8 Það voru allir að bíða eftir marki frá Kolla því hann skorar nánast alltaf. Nú kom það eftir frábæra sókn íslenska liðsins. Gekk ekki nógu vel að halda boltanum en vann vel til baka þegar þurfti.Varamenn:Theodór Elmar Bjarnason - (Kom inn á fyrir Kolbein Sigþórsson á 77. mínútu) Kom inn með orku, kraft og elti hvern einasta bolta. Frábær leikmaður til að geta sett inn á.Arnór Ingi Traustason - (Kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 89. mínútu) Kom inn á síðustu mínútunum til að gefa ferska fætur og skilaði sínu hlutverki vel.
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Umfjöllun: England - Ísland 1-2 | Strákarnir sendu Englendinga heim Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið fyrir íslenska liðið eftir að það lenti 1-0 undir. 27. júní 2016 22:45 Sex af strákunum okkar hafa skorað á sínu fyrsta EM | Sjáið öll mörkin Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur skorað sex mörk á sínu fyrsta stórmóti en þeir Ragnar Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson bættust í hópinn í leiknum á móti Englandi í sextán liða úrslitunum í Nice í kvöld. 27. júní 2016 19:45 Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Sjá meira
Umfjöllun: England - Ísland 1-2 | Strákarnir sendu Englendinga heim Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið fyrir íslenska liðið eftir að það lenti 1-0 undir. 27. júní 2016 22:45
Sex af strákunum okkar hafa skorað á sínu fyrsta EM | Sjáið öll mörkin Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur skorað sex mörk á sínu fyrsta stórmóti en þeir Ragnar Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson bættust í hópinn í leiknum á móti Englandi í sextán liða úrslitunum í Nice í kvöld. 27. júní 2016 19:45