Leifsstöð rýmd vegna brunaboða Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. júlí 2016 19:39 Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Vísir/Valli Flugstöð Leifs Eiríkssonar var rýmd um sexleytið í kvöld vegna þess að brunavarnarkerfið í byggingunni fór í gang. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia fór rafmagnið af allri byggingunni og fóru brunaboð af stað í kjölfarið í suðurhluta flugstöðvarinnar en öll flugstöðin var síðan rýmd. „Það kom síðan í ljós þegar farið var að kanna málið að ekki var um eld að ræða neins staðar í byggingunni og var farþegum því aftur hleypt inn í flugstöðina,“ segir Atli Már Halldórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli í samtali við Vísi. Hann segir ekki vitað hvað olli því að brunavarnarkerfið fór í gang en farið verður í það núna í kvöld að kanna hvað gerðist. Atli Már segir að allir þeir sem hafi farið út fyrir öryggissvæði eða á milli svæða í flugstöðinni þurfi aftur að fara í gegnum öryggisleit. Hann segir ekki ljóst hversu margir hafi farið út úr flugstöðinni en mikil örtröð hefur verið í Leifsstöð í allan dag, ekki hvað síst vegna þess hversu margir Íslendingar eru á leiðinni til Parísar á landsleik Frakklands og Íslands í 8-liða úrslitum EM sem fer fram á morgun. Ljóst er að einhverjar tafir verða á brottförum frá Keflavíkurflugvelli í kvöld en Atli Már segir að allt sé nú að komast í eðlilegt horf í flugstöðinni. Isavia hafa ekki borist neinar upplýsingar um það hvort einhver farþegi hafi þurft áfallahjálp vegna rýmingarinnar en flugstöðvar hafa í gegnum tíðina meðal annars verið skotmark hryðjuverkamanna. Þá eru alltaf einhverjir sem kljást við flughræðslu og líður því kannski ekkert sérstaklega vel fyrir á flugvelli. Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Sjá meira
Flugstöð Leifs Eiríkssonar var rýmd um sexleytið í kvöld vegna þess að brunavarnarkerfið í byggingunni fór í gang. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia fór rafmagnið af allri byggingunni og fóru brunaboð af stað í kjölfarið í suðurhluta flugstöðvarinnar en öll flugstöðin var síðan rýmd. „Það kom síðan í ljós þegar farið var að kanna málið að ekki var um eld að ræða neins staðar í byggingunni og var farþegum því aftur hleypt inn í flugstöðina,“ segir Atli Már Halldórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli í samtali við Vísi. Hann segir ekki vitað hvað olli því að brunavarnarkerfið fór í gang en farið verður í það núna í kvöld að kanna hvað gerðist. Atli Már segir að allir þeir sem hafi farið út fyrir öryggissvæði eða á milli svæða í flugstöðinni þurfi aftur að fara í gegnum öryggisleit. Hann segir ekki ljóst hversu margir hafi farið út úr flugstöðinni en mikil örtröð hefur verið í Leifsstöð í allan dag, ekki hvað síst vegna þess hversu margir Íslendingar eru á leiðinni til Parísar á landsleik Frakklands og Íslands í 8-liða úrslitum EM sem fer fram á morgun. Ljóst er að einhverjar tafir verða á brottförum frá Keflavíkurflugvelli í kvöld en Atli Már segir að allt sé nú að komast í eðlilegt horf í flugstöðinni. Isavia hafa ekki borist neinar upplýsingar um það hvort einhver farþegi hafi þurft áfallahjálp vegna rýmingarinnar en flugstöðvar hafa í gegnum tíðina meðal annars verið skotmark hryðjuverkamanna. Þá eru alltaf einhverjir sem kljást við flughræðslu og líður því kannski ekkert sérstaklega vel fyrir á flugvelli.
Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Sjá meira