Leggja til að 15 prósent geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. júlí 2016 11:33 Frá þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana. Vísir/Stefán Stjórnarskrárnefnd leggur til að að 15 prósent kosningarbærra manna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um lög frá Alþingi. Stjórnarskrárnefnd hefur afhent forsætisráðherra frumvörp til stjórnarskipunarlaga um þjóðareign á náttúruauðlindum, umhverfis- og náttúruvernd og þjóðaratkvæðagreiðslur að kröfu hluta kjósenda. Samkvæmt frumvarpinu um þjóðaratkvæðagreiðslur eru fjárlög, fjáraukalög, lög um skattamálefni og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum undanskilin ákvæðinu um að 15 prósent kosningarbærra manna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Frestur til að bera fram kröfu verði sex vikur frá birtingu laganna. Þjóðaratkvæðagreiðsluna beri að halda í fyrsta lagi sex vikum og í síðasta lagi fjórum mánuðum frá því að staðfest krafa liggur fyrir. Enn fremur er mælt fyrir um að sama hlutfall kosningarbærra manna geti skotið ályktunum Alþingis um heimild til fullgildingar á þjóðréttarsamningum til þjóðaratkvæðis. Loks er lagt til að löggjafanum sé heimilað með auknum meirihluta að ákveða að fleiri þingsályktanir falli í þennan flokk ályktana sem hægt verði að vísa til þjóðarinnar, þ.e. þær ályktanir sem hafa réttaráhrif eða fela í sér mikilvæga stefnumörkun. Til að hnekkja lögum eða ályktun í þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi meirihluti að greiða atkvæði gegn tillögu, sem jafnframt sé að minnsta kosti 25% kosningarbærra manna.HellisheiðarvirkjunVísir/VilhelmSetji skilyrði fyrir nýtingu auðlinda í eigu ríkisins Í frumvarpi um þjóðareign á náttúruauðlindum er sett fram almennt ákvæði um að auðlindir náttúru Íslands tilheyri íslensku þjóðinni og jafnframt kveðið á um meginforsendur auðlindanýtingar. Mælt er fyrir um þjóðareign á náttúruauðlindum og landsréttindum sem ekki eru háð einkaeignarrétti. Loks er sett skilyrði fyrir veitingu heimilda til nýtingar auðlinda í eigu ríkisins og í þjóðareign og kveðið á um skyldu ríkisins til þess að taka að jafnaði eðlilegt gjald fyrir og gæta jafnræðis og gagnsæis. Í frumvarpinu ert tekið fram að slíkar heimildir leiði aldrei til varanlegs eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir náttúruauðlindum eða landsréttindum í þjóðareign.Íslensk náttúra.Vísir/Vilhelm.Allir beri sameiginlega ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis Í frumvarpi um umhverfis- og náttúruvernd er mælt fyrir um að ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis hvíli sameiginlega á öllum og að verndin skuli grundvallast á varúðar- og langtímasjónarmiðum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Einnig segir að stuðlað skuli að því að fjölbreytni náttúrunnar sé viðhaldið og vöxtur lífríkis og viðgangur tryggður. Kveðið er á um rétt allra til heilnæms umhverfis, almannarétt og að í lögum skuli mælt fyrir um rétt almennings til upplýsinga um umhverfið og áhrif framkvæmda á það, svo og til þátttöku í undirbúningi ákvarðana sem áhrif hafa á umhverfið.Aðeins gerðar breytingar sem nefndarmenn voru einróma um Þau frumvörp sem nú hafa verið afhent forsætisráðherra eru í meginatriðum samhljóða þeim drögum sem kynnt voru opinberlega 19. febrúar síðastliðinn. Nefndarmenn voru ekki á einu máli um það að hve miklu leyti athugasemdir sem fram komu við samráð kölluðu á breytingar á frumvarpsdrögunum og einungis voru gerðar þær breytingar sem allir nefndarmenn gátu fallist á. Frumvörpin þrjú er að finna á vefsvæðinu stjornarskra.is, sem er í umsjón forsætisráðuneytis, ásamt skilabréfi nefndarinnar, bókunum nefndarmanna, hugmyndum um mögulegar breytingar á lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna (frumdrög) og athugasemdum sem bárust í samráðsferli. Stjórnarskrárnefnd skipa nú: Páll Þórhallsson skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir lögfræðingur, Birgir Ármannsson alþingismaður, Einar Hugi Bjarnason hæstaréttarlögmaður, Jón Kristjánsson fyrrverandi ráðherra, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður, Róbert Marshall alþingismaður, Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður og Valgerður Gunnarsdóttir alþingismaður. Stjórnarskrá Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Mestu flokkaflakkararnir Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Innlent Fleiri fréttir Mestu flokkaflakkararnir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sjá meira
Stjórnarskrárnefnd leggur til að að 15 prósent kosningarbærra manna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um lög frá Alþingi. Stjórnarskrárnefnd hefur afhent forsætisráðherra frumvörp til stjórnarskipunarlaga um þjóðareign á náttúruauðlindum, umhverfis- og náttúruvernd og þjóðaratkvæðagreiðslur að kröfu hluta kjósenda. Samkvæmt frumvarpinu um þjóðaratkvæðagreiðslur eru fjárlög, fjáraukalög, lög um skattamálefni og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum undanskilin ákvæðinu um að 15 prósent kosningarbærra manna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Frestur til að bera fram kröfu verði sex vikur frá birtingu laganna. Þjóðaratkvæðagreiðsluna beri að halda í fyrsta lagi sex vikum og í síðasta lagi fjórum mánuðum frá því að staðfest krafa liggur fyrir. Enn fremur er mælt fyrir um að sama hlutfall kosningarbærra manna geti skotið ályktunum Alþingis um heimild til fullgildingar á þjóðréttarsamningum til þjóðaratkvæðis. Loks er lagt til að löggjafanum sé heimilað með auknum meirihluta að ákveða að fleiri þingsályktanir falli í þennan flokk ályktana sem hægt verði að vísa til þjóðarinnar, þ.e. þær ályktanir sem hafa réttaráhrif eða fela í sér mikilvæga stefnumörkun. Til að hnekkja lögum eða ályktun í þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi meirihluti að greiða atkvæði gegn tillögu, sem jafnframt sé að minnsta kosti 25% kosningarbærra manna.HellisheiðarvirkjunVísir/VilhelmSetji skilyrði fyrir nýtingu auðlinda í eigu ríkisins Í frumvarpi um þjóðareign á náttúruauðlindum er sett fram almennt ákvæði um að auðlindir náttúru Íslands tilheyri íslensku þjóðinni og jafnframt kveðið á um meginforsendur auðlindanýtingar. Mælt er fyrir um þjóðareign á náttúruauðlindum og landsréttindum sem ekki eru háð einkaeignarrétti. Loks er sett skilyrði fyrir veitingu heimilda til nýtingar auðlinda í eigu ríkisins og í þjóðareign og kveðið á um skyldu ríkisins til þess að taka að jafnaði eðlilegt gjald fyrir og gæta jafnræðis og gagnsæis. Í frumvarpinu ert tekið fram að slíkar heimildir leiði aldrei til varanlegs eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir náttúruauðlindum eða landsréttindum í þjóðareign.Íslensk náttúra.Vísir/Vilhelm.Allir beri sameiginlega ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis Í frumvarpi um umhverfis- og náttúruvernd er mælt fyrir um að ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis hvíli sameiginlega á öllum og að verndin skuli grundvallast á varúðar- og langtímasjónarmiðum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Einnig segir að stuðlað skuli að því að fjölbreytni náttúrunnar sé viðhaldið og vöxtur lífríkis og viðgangur tryggður. Kveðið er á um rétt allra til heilnæms umhverfis, almannarétt og að í lögum skuli mælt fyrir um rétt almennings til upplýsinga um umhverfið og áhrif framkvæmda á það, svo og til þátttöku í undirbúningi ákvarðana sem áhrif hafa á umhverfið.Aðeins gerðar breytingar sem nefndarmenn voru einróma um Þau frumvörp sem nú hafa verið afhent forsætisráðherra eru í meginatriðum samhljóða þeim drögum sem kynnt voru opinberlega 19. febrúar síðastliðinn. Nefndarmenn voru ekki á einu máli um það að hve miklu leyti athugasemdir sem fram komu við samráð kölluðu á breytingar á frumvarpsdrögunum og einungis voru gerðar þær breytingar sem allir nefndarmenn gátu fallist á. Frumvörpin þrjú er að finna á vefsvæðinu stjornarskra.is, sem er í umsjón forsætisráðuneytis, ásamt skilabréfi nefndarinnar, bókunum nefndarmanna, hugmyndum um mögulegar breytingar á lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna (frumdrög) og athugasemdum sem bárust í samráðsferli. Stjórnarskrárnefnd skipa nú: Páll Þórhallsson skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir lögfræðingur, Birgir Ármannsson alþingismaður, Einar Hugi Bjarnason hæstaréttarlögmaður, Jón Kristjánsson fyrrverandi ráðherra, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður, Róbert Marshall alþingismaður, Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður og Valgerður Gunnarsdóttir alþingismaður.
Stjórnarskrá Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Mestu flokkaflakkararnir Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Innlent Fleiri fréttir Mestu flokkaflakkararnir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sjá meira