Félögin fá 453 milljónir frá KSÍ vegna EM 16. ágúst 2016 14:06 Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. vísir/stefán KSÍ tilkynnti í dag að búið væri að úthluta 453 milljónum króna til aðildarfélaga KSÍ en þetta er hluti af peningunum sem KSÍ fékk út af frábærum árangri karlalandsliðsins á EM. Þessum fjármunum skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna. Á ársþingi KSÍ sem fram fór 13. febrúar síðastliðinn var tilkynnt að 300 milljónum króna yrði úthlutað á árinu til aðildarfélaga KSÍ sem sérstakt EM framlag eða um 25% af greiðslunni frá UEFA. Í samræmi við auknar greiðslur UEFA til KSÍ vegna EM hefur stjórn KSÍ ákveðið að hækka framlagið til aðildarfélaga sambandsins í 453 m. kr. sem er um 25% af heildargreiðslu UEFA. Stjórn KSÍ hefur einnig ákveðið hvernig greiðslurnar skiptast á milli aðildarfélaga. Framlag til aðildarfélaga byggist fyrst og fremst á stöðu meistaraflokks karla og kvenna í deildum sl. 3 ár, 2014, 2015 og 2016 eða yfir það tímabil sem Evrópumótið í knattspyrnu náði yfir. Félögum er síðan skipt upp í þrjá flokka. Í fyrsta flokki eru 17 félög sem bestum árangri hafa náð í deildarkeppninni, í öðrum flokki 30 félögum sem þar koma á eftir og síðan er þriðji flokkurinn félög sem ekki standa fyrir barna- og unglingastarfi. Félögin í fyrsta flokki fá 181 m. kr. til skipta, félögin í öðrum flokki 140 m. kr. og félögin í þriðja flokki 2,8 m. kr. Félögin í fyrsta og öðrum flokki fá einnig 1 m. kr. skilyrt framlag vegna þátttöku í sérstöku unglingaþjálfaranámskeiði KSÍ (UEFA elite youth). Að lokum er úthlutað 82 m. kr. til félaga í efstu tveimur deildum karla 2016 og efstu deild kvenna 2016 vegna markaðsáhrifa Evrópumótsins. Félög í Pepsi-deild karla fá 4 m. kr., félög í Inkasso-deild karla 2 m. kr. og félög í Pepsi-deild kvenna 1 m. kr. Fjármunum sem nú er veitt til aðildarfélaga skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna. Framlagið verður greitt til aðildarfélaga í tvennu lagi.Sjá má skiptingu fjármunana hér á vef KSÍ. Pepsi Max-deild karla Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira
KSÍ tilkynnti í dag að búið væri að úthluta 453 milljónum króna til aðildarfélaga KSÍ en þetta er hluti af peningunum sem KSÍ fékk út af frábærum árangri karlalandsliðsins á EM. Þessum fjármunum skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna. Á ársþingi KSÍ sem fram fór 13. febrúar síðastliðinn var tilkynnt að 300 milljónum króna yrði úthlutað á árinu til aðildarfélaga KSÍ sem sérstakt EM framlag eða um 25% af greiðslunni frá UEFA. Í samræmi við auknar greiðslur UEFA til KSÍ vegna EM hefur stjórn KSÍ ákveðið að hækka framlagið til aðildarfélaga sambandsins í 453 m. kr. sem er um 25% af heildargreiðslu UEFA. Stjórn KSÍ hefur einnig ákveðið hvernig greiðslurnar skiptast á milli aðildarfélaga. Framlag til aðildarfélaga byggist fyrst og fremst á stöðu meistaraflokks karla og kvenna í deildum sl. 3 ár, 2014, 2015 og 2016 eða yfir það tímabil sem Evrópumótið í knattspyrnu náði yfir. Félögum er síðan skipt upp í þrjá flokka. Í fyrsta flokki eru 17 félög sem bestum árangri hafa náð í deildarkeppninni, í öðrum flokki 30 félögum sem þar koma á eftir og síðan er þriðji flokkurinn félög sem ekki standa fyrir barna- og unglingastarfi. Félögin í fyrsta flokki fá 181 m. kr. til skipta, félögin í öðrum flokki 140 m. kr. og félögin í þriðja flokki 2,8 m. kr. Félögin í fyrsta og öðrum flokki fá einnig 1 m. kr. skilyrt framlag vegna þátttöku í sérstöku unglingaþjálfaranámskeiði KSÍ (UEFA elite youth). Að lokum er úthlutað 82 m. kr. til félaga í efstu tveimur deildum karla 2016 og efstu deild kvenna 2016 vegna markaðsáhrifa Evrópumótsins. Félög í Pepsi-deild karla fá 4 m. kr., félög í Inkasso-deild karla 2 m. kr. og félög í Pepsi-deild kvenna 1 m. kr. Fjármunum sem nú er veitt til aðildarfélaga skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna. Framlagið verður greitt til aðildarfélaga í tvennu lagi.Sjá má skiptingu fjármunana hér á vef KSÍ.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira