Umfjöllun: Spánn - Ísland 27-21 | Skelfilegur seinni hálfleikur í tapi fyrir Spáni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. janúar 2017 21:00 Ólafur Guðmundsson reynir skot að marki Spánar. vísir/afp Ísland tapaði fyrir Spáni, 27-21, í fyrsta leik sínum á HM í Frakklandi í kvöld. Íslenska liðið spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og hefði að ósekju mátt leiða með meira en tveimur mörkum í hálfleik, 10-12. Björgvin Páll Gústavsson var hreint magnaður í íslenska markinu og varði 13 skot í fyrri hálfleik, eða 57% þeirra skota sem hann fékk á sig. Sóknarleikur Íslands var ágætur í fyrri hálfleik en slakur í þeim seinni. Íslensku strákarnir hættu að horfa á markið, höfðu engar lausnir og Spánverjar gengu á lagið. Spænska liðið breytti stöðunni úr 13-15 í 19-15 og eftir það var róðurinn þungur fyrir Íslendinga. Á endanum munaði sex mörkum á liðunum, 27-21.Frábær fyrri hálfleikur Frammistaðan í fyrri hálfleik var sú besta sem íslenska liðið hefur sýnt í lengri tíma. Íslendingar skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins og voru með frumkvæðið í fyrri hálfleik. Íslenska vörnin var gríðarlega öflug og réði við flest sem Spánverjarnir buðu upp á. Það var helst línumaðurinn tröllvaxni Julen Aguinagalde sem olli íslensku vörninni vandræðum en hann var erfiður viðureignar að vanda. Maður fyrri hálfleiksins var hins vegar Björgvin Páll sem tók 13 bolta, þar af þrjú víti. Þá skoraði Björgvin Páll eitt mark með skoti yfir endilangan völlinn. Rúnar Kárason kom Íslandi í 7-11 þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Spánn skoraði hins vegar þrjú af síðustu fjórum mörkum fyrri hálfleiks og því var staðan 10-12 í hálfleik.Ekkert mark í níu mínútur Íslendingar byrjuðu seinni hálfleikinn af fínum krafti og Arnór Þór Gunnarsson kom íslenska liðinu tveimur mörkum yfir, 13-15, þegar sjö mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. En þá fór allt til fjandans, brottvísanir fóru illa með íslenska liðið og Spánverjar þéttu vörnina til muna. Spænska liðið gekk á lagið og raðaði inn mörkum án þess að Íslendingar fengju rönd við reist. Áræðnin hvarf úr sóknarleik Íslands og menn urðu ragir. Ísland skoraði ekki í níu mínútur og loksins þegar liðið rankaði aðeins við sér var munurinn orðinn of mikill. Spánverjar tóku sér drjúgan tíma í allar sínar aðgerðir undir lokin og sigldu sigrinum í örugga höfn. Lokatölur 27-21, Íslandi í vil. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með fimm mörk. Arnar Freyr Arnarsson spilaði skínandi vel og skoraði fjögur mörk af línunni í sínum fyrsta leik á stórmóti. Björgvin Páll varði 19 skot í leiknum (41%). Næsti leikur Íslands er gegn Slóveníu á laugardaginn. HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Sjá meira
Ísland tapaði fyrir Spáni, 27-21, í fyrsta leik sínum á HM í Frakklandi í kvöld. Íslenska liðið spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og hefði að ósekju mátt leiða með meira en tveimur mörkum í hálfleik, 10-12. Björgvin Páll Gústavsson var hreint magnaður í íslenska markinu og varði 13 skot í fyrri hálfleik, eða 57% þeirra skota sem hann fékk á sig. Sóknarleikur Íslands var ágætur í fyrri hálfleik en slakur í þeim seinni. Íslensku strákarnir hættu að horfa á markið, höfðu engar lausnir og Spánverjar gengu á lagið. Spænska liðið breytti stöðunni úr 13-15 í 19-15 og eftir það var róðurinn þungur fyrir Íslendinga. Á endanum munaði sex mörkum á liðunum, 27-21.Frábær fyrri hálfleikur Frammistaðan í fyrri hálfleik var sú besta sem íslenska liðið hefur sýnt í lengri tíma. Íslendingar skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins og voru með frumkvæðið í fyrri hálfleik. Íslenska vörnin var gríðarlega öflug og réði við flest sem Spánverjarnir buðu upp á. Það var helst línumaðurinn tröllvaxni Julen Aguinagalde sem olli íslensku vörninni vandræðum en hann var erfiður viðureignar að vanda. Maður fyrri hálfleiksins var hins vegar Björgvin Páll sem tók 13 bolta, þar af þrjú víti. Þá skoraði Björgvin Páll eitt mark með skoti yfir endilangan völlinn. Rúnar Kárason kom Íslandi í 7-11 þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Spánn skoraði hins vegar þrjú af síðustu fjórum mörkum fyrri hálfleiks og því var staðan 10-12 í hálfleik.Ekkert mark í níu mínútur Íslendingar byrjuðu seinni hálfleikinn af fínum krafti og Arnór Þór Gunnarsson kom íslenska liðinu tveimur mörkum yfir, 13-15, þegar sjö mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. En þá fór allt til fjandans, brottvísanir fóru illa með íslenska liðið og Spánverjar þéttu vörnina til muna. Spænska liðið gekk á lagið og raðaði inn mörkum án þess að Íslendingar fengju rönd við reist. Áræðnin hvarf úr sóknarleik Íslands og menn urðu ragir. Ísland skoraði ekki í níu mínútur og loksins þegar liðið rankaði aðeins við sér var munurinn orðinn of mikill. Spánverjar tóku sér drjúgan tíma í allar sínar aðgerðir undir lokin og sigldu sigrinum í örugga höfn. Lokatölur 27-21, Íslandi í vil. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með fimm mörk. Arnar Freyr Arnarsson spilaði skínandi vel og skoraði fjögur mörk af línunni í sínum fyrsta leik á stórmóti. Björgvin Páll varði 19 skot í leiknum (41%). Næsti leikur Íslands er gegn Slóveníu á laugardaginn.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Sjá meira