Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 25-26 | Grátlegt tap í bardaga gegn Slóveníu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. janúar 2017 15:15 Íslensku strákarnir spiluðu góða vörn í leiknum. Hér taka Rúnar Kárason og Arnór Þór Gunnarsson á Slóvena. vísir/epa Strákarnir okkar urðu að sætta sig við tap í æsilegum slag gegn Slóveníu í dag. Lokatölur 25-26, Slóvenum í vil. Strákarnir gáfu allt sem þeir gátu en það vantaði gamla góða herslumuninn og grátlegt tap niðurstaðan. Fyrri hálfleikur var æði skrautlegur. Íslenska liðið skoraði ekki mark utan af velli fyrr en eftir átta mínútur og það mark kom frá hornamanninum, Arnóri Þór Gunnarssyni. Þökk sé Björgvini Páli í markinu var Arnór að jafna leikinn þar í 2-2. Björgvin hóf leikinn af sama krafti og gegn Spáni. Varði eins og berserkur og hélt liðinu hreinlega á floti. Smám saman small vörnin og liðin héldust í hendur lengi framan af fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var ansi stirður og mörkin komu helst úr hornunum. Varnarleikur Slóvena var reyndar mjög öflugur og strákarnir hreinlega fundu ekki færin. Það var líka hiti í leikmönnum beggja liða og þurfti að stía mönnum í sundur. Þetta var alvöru bardagi. Eftir því sem leið á hálfleikinn náði Slóvenía tveggja marka forskoti þökk sé varnarleiknum. Slóvenar skoruðu svo flautumark í lok hálfleiksins og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 8-11. Í fyrsta sinn sem munurinn var þrjú mörk í leiknum. Það var ljóst að liðið þurfti að laga sóknarleikinn mikið fyrir seinni hálfleikinn en hornamennirnir skoruðu helming marka liðsins í fyrri hálfleik. Engin skytta komst í gang og þar áttu menn mikið inni. Þeir rembdust og rembdust við að komast í gegnum miðjuna en þar voru Slóvenar of þéttir fyrir. Varnarmenn liðsins stóðu bara og biðu eftir okkar mönnum. Of auðvelt. Íslenska liðið byrjaði síðari hálfleikinn af krafti. Skoraði tvö fyrstu mörk hálfleiksins og leikurinn galopinn. Strákarnir fóru loksins að fá hraðaupphlaup og með Bjarka Má Elísson í banastuði voru þeir búnir að jafna leikinn, 13-13, þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Það var rosaleg barátta kominn í okkar menn sem lömdu hraustlega frá sér. Maður óttaðist um tíma að það myndi sjóða upp úr. Smám saman tók íslenska liðið yfir, einfaldlega sterkara og baráttuglaðara. Guðjón Valur kom Íslandi svo yfir, 17-16, af vítalínunni þegar 20 mínútur voru eftir. Slóvenar náðu aftur frumkvæðinu en íslenska liðið var farið að fá mörk frá skyttunum sínum og leikurinn í járnum. Því miður var markvarslan hjá okkur ekki sú sama og í fyrri hálfleik en það var allt annað að sjá sóknarleikinn þar sem Arnór Atlason stýrði málum af röggsemi. Á ögurstundu fór íslenska liðið að fá á sig ódýr mörk. Eftir hraða miðju og síðan er markverði var fórnað fyrir sóknarmann. Liðið var að fá brottvísanir og hélt ekki haus. Að gefast var samt ekki í myndinni hjá okkar mönnum. Er Slóvenarnir virtust ætla að stinga af náði íslenska liðið vopnum sínum á nýjan leik og klóraði sig inn í leikinn. Lokakaflinn var æsispennandi og áhorfendur í fullri höll í Metz öskruðu úr sér lungun. Því miður dugði hetjuleg barátta okkar manna ekki að þessu sinni. HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Sjá meira
Strákarnir okkar urðu að sætta sig við tap í æsilegum slag gegn Slóveníu í dag. Lokatölur 25-26, Slóvenum í vil. Strákarnir gáfu allt sem þeir gátu en það vantaði gamla góða herslumuninn og grátlegt tap niðurstaðan. Fyrri hálfleikur var æði skrautlegur. Íslenska liðið skoraði ekki mark utan af velli fyrr en eftir átta mínútur og það mark kom frá hornamanninum, Arnóri Þór Gunnarssyni. Þökk sé Björgvini Páli í markinu var Arnór að jafna leikinn þar í 2-2. Björgvin hóf leikinn af sama krafti og gegn Spáni. Varði eins og berserkur og hélt liðinu hreinlega á floti. Smám saman small vörnin og liðin héldust í hendur lengi framan af fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var ansi stirður og mörkin komu helst úr hornunum. Varnarleikur Slóvena var reyndar mjög öflugur og strákarnir hreinlega fundu ekki færin. Það var líka hiti í leikmönnum beggja liða og þurfti að stía mönnum í sundur. Þetta var alvöru bardagi. Eftir því sem leið á hálfleikinn náði Slóvenía tveggja marka forskoti þökk sé varnarleiknum. Slóvenar skoruðu svo flautumark í lok hálfleiksins og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 8-11. Í fyrsta sinn sem munurinn var þrjú mörk í leiknum. Það var ljóst að liðið þurfti að laga sóknarleikinn mikið fyrir seinni hálfleikinn en hornamennirnir skoruðu helming marka liðsins í fyrri hálfleik. Engin skytta komst í gang og þar áttu menn mikið inni. Þeir rembdust og rembdust við að komast í gegnum miðjuna en þar voru Slóvenar of þéttir fyrir. Varnarmenn liðsins stóðu bara og biðu eftir okkar mönnum. Of auðvelt. Íslenska liðið byrjaði síðari hálfleikinn af krafti. Skoraði tvö fyrstu mörk hálfleiksins og leikurinn galopinn. Strákarnir fóru loksins að fá hraðaupphlaup og með Bjarka Má Elísson í banastuði voru þeir búnir að jafna leikinn, 13-13, þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Það var rosaleg barátta kominn í okkar menn sem lömdu hraustlega frá sér. Maður óttaðist um tíma að það myndi sjóða upp úr. Smám saman tók íslenska liðið yfir, einfaldlega sterkara og baráttuglaðara. Guðjón Valur kom Íslandi svo yfir, 17-16, af vítalínunni þegar 20 mínútur voru eftir. Slóvenar náðu aftur frumkvæðinu en íslenska liðið var farið að fá mörk frá skyttunum sínum og leikurinn í járnum. Því miður var markvarslan hjá okkur ekki sú sama og í fyrri hálfleik en það var allt annað að sjá sóknarleikinn þar sem Arnór Atlason stýrði málum af röggsemi. Á ögurstundu fór íslenska liðið að fá á sig ódýr mörk. Eftir hraða miðju og síðan er markverði var fórnað fyrir sóknarmann. Liðið var að fá brottvísanir og hélt ekki haus. Að gefast var samt ekki í myndinni hjá okkar mönnum. Er Slóvenarnir virtust ætla að stinga af náði íslenska liðið vopnum sínum á nýjan leik og klóraði sig inn í leikinn. Lokakaflinn var æsispennandi og áhorfendur í fullri höll í Metz öskruðu úr sér lungun. Því miður dugði hetjuleg barátta okkar manna ekki að þessu sinni.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Sjá meira