Umfjöllun: Tékkland - Ísland 27-24 | Strákarnir sjálfum sér verstir í Tékklandi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. júní 2017 18:00 Aron Pálmarsson á ferðinni í fyrri leik liðanna í Höllinni. vísir/ernir EM-draumur strákanna okkar er svo gott sem dáinn eftir grátlegt tap gegn Tékkum ytra. Ísland átti möguleika að fá að minnsta kosti stig úr leiknum en fór hrikalega illa að ráði sínu. Það er lítið annað um fyrri hálfleik að segja en að hann hafi verið hreinasta hörmung. Íslenska liðið var ömurlega lélegt. Sóknarleikurinn klaufalegur og hægur. Skotin léleg og enginn virtist vita hvað hann ætlaði sér að gera. Pínlegt að horfa á þetta. Dómgæslan var léleg en sóknarleikur Íslands var lélegri. Ekki bætti úr skák að Íslandsbaninn Martin Galia hélt uppteknum þeim óþolandi hætti að verja eins og berserkur gegn okkur. Hann varði um tíu skot í hálfleiknum. Varnarleikurinn var upp og ofan en Björgvin Páll gat ekki klukkað tuðruna í markinu. Aron Rafn kom allt of seint af bekknum. Ef hann hefði ekki komið inn hefði vond staða verið skelfileg í hálfleik. Aron Rafn bjargaði því sem hægt var að bjarga á lokamínútunum. Engu að síður leiddu Tékkar með fimm marka mun í hálfleik, 14-9. Lengi framan af síðari hálfleik gekk ekkert hjá strákunum að saxa á forskotið þó svo bæði vörn- og sóknarleikur væri mun betri en í fyrri hálfleik. Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum hrökk íslenska liðið aftur á móti í gang. Er fimm mínútur voru eftir af leiknum var munurinn aðeins eitt mark, 23-22, og Tékkar að fara á taugum á meðan okkar menn voru í stuði. Tékkar fengu að hanga lengi á boltanum og skoruðu órúlega dýrmætt mark er þrjár mínútur voru eftir. 25-23. Aron lét svo verja frá sér og vonin dó endanlega er Tékkar skoruðu í kjölfarið. Þetta þýðir að vonin um að komast á EM er lítil. Íslenska liðið átti einfaldlega ekki góðan leik í dag. Aron Pálmarsson er stjarna liðsins og á að draga vagninn. Hann var heillum horfinn í þessum leik og munar um minna. Ólafur Guðmundsson hafði ekkert fram að færa, Rúnar Kárason gat ekkert í fyrri hálfleik og fór á bekkinn og sat þar til enda. Kári slakur á línunni og grátlegt að geta ekki fengið meira út úr línusendingum Arons. Guðjón Valur skilaði sínu allan leikinn og innkoma Janusar Daða í síðari hálfleik var vítamínið sem liðið þurfti. Hann var frábær. Stal boltum í vörninni, eins og Alexander Petersson, og var beittur í sókninni. Ómar Ingi lék af skynsemi en skoraði aðeins eitt mark. Aron Rafn varði ágætlega. Leikurinn var of kaflaskiptur og liðið nýtti færin sín hrikalega illa. Í raun var liðið sjálfu sér verst. Strákarnir köstuðu frá sér þeim tækifærum sem gáfust í leiknum. Andlegi styrkurinn virðist ekki vera nógu mikill. Þetta lið er einfaldlega ekki orðið nógu gott eins og þetta tap gegn Tékklandi sannaði. Frammistaða liðsins í undankeppninni hefur valdið vonbrigðum. Það eru leikmenn í liðinu sem geta mun betur en það er ekki nóg að tala um það. Það verður að sýna og sanna. Það gengur illa. Hér að neðan má sjá leiklýsinguna.Tékkland - Ísland:
EM-draumur strákanna okkar er svo gott sem dáinn eftir grátlegt tap gegn Tékkum ytra. Ísland átti möguleika að fá að minnsta kosti stig úr leiknum en fór hrikalega illa að ráði sínu. Það er lítið annað um fyrri hálfleik að segja en að hann hafi verið hreinasta hörmung. Íslenska liðið var ömurlega lélegt. Sóknarleikurinn klaufalegur og hægur. Skotin léleg og enginn virtist vita hvað hann ætlaði sér að gera. Pínlegt að horfa á þetta. Dómgæslan var léleg en sóknarleikur Íslands var lélegri. Ekki bætti úr skák að Íslandsbaninn Martin Galia hélt uppteknum þeim óþolandi hætti að verja eins og berserkur gegn okkur. Hann varði um tíu skot í hálfleiknum. Varnarleikurinn var upp og ofan en Björgvin Páll gat ekki klukkað tuðruna í markinu. Aron Rafn kom allt of seint af bekknum. Ef hann hefði ekki komið inn hefði vond staða verið skelfileg í hálfleik. Aron Rafn bjargaði því sem hægt var að bjarga á lokamínútunum. Engu að síður leiddu Tékkar með fimm marka mun í hálfleik, 14-9. Lengi framan af síðari hálfleik gekk ekkert hjá strákunum að saxa á forskotið þó svo bæði vörn- og sóknarleikur væri mun betri en í fyrri hálfleik. Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum hrökk íslenska liðið aftur á móti í gang. Er fimm mínútur voru eftir af leiknum var munurinn aðeins eitt mark, 23-22, og Tékkar að fara á taugum á meðan okkar menn voru í stuði. Tékkar fengu að hanga lengi á boltanum og skoruðu órúlega dýrmætt mark er þrjár mínútur voru eftir. 25-23. Aron lét svo verja frá sér og vonin dó endanlega er Tékkar skoruðu í kjölfarið. Þetta þýðir að vonin um að komast á EM er lítil. Íslenska liðið átti einfaldlega ekki góðan leik í dag. Aron Pálmarsson er stjarna liðsins og á að draga vagninn. Hann var heillum horfinn í þessum leik og munar um minna. Ólafur Guðmundsson hafði ekkert fram að færa, Rúnar Kárason gat ekkert í fyrri hálfleik og fór á bekkinn og sat þar til enda. Kári slakur á línunni og grátlegt að geta ekki fengið meira út úr línusendingum Arons. Guðjón Valur skilaði sínu allan leikinn og innkoma Janusar Daða í síðari hálfleik var vítamínið sem liðið þurfti. Hann var frábær. Stal boltum í vörninni, eins og Alexander Petersson, og var beittur í sókninni. Ómar Ingi lék af skynsemi en skoraði aðeins eitt mark. Aron Rafn varði ágætlega. Leikurinn var of kaflaskiptur og liðið nýtti færin sín hrikalega illa. Í raun var liðið sjálfu sér verst. Strákarnir köstuðu frá sér þeim tækifærum sem gáfust í leiknum. Andlegi styrkurinn virðist ekki vera nógu mikill. Þetta lið er einfaldlega ekki orðið nógu gott eins og þetta tap gegn Tékklandi sannaði. Frammistaða liðsins í undankeppninni hefur valdið vonbrigðum. Það eru leikmenn í liðinu sem geta mun betur en það er ekki nóg að tala um það. Það verður að sýna og sanna. Það gengur illa. Hér að neðan má sjá leiklýsinguna.Tékkland - Ísland:
EM 2018 í handbolta Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Sjá meira