Framkvæmdastjóri HB Granda neitar að áhöfn togara hafi verið sagt upp Sveinn Arnarsson skrifar 2. nóvember 2018 08:00 Koma þriggja nýrra skipa setur framtíð Helgu Maríu í mikla óvissu, segir Ægir Páll, nýr framkvæmdastjóri HB Granda. vísir/eyþór Skipverjum á Helgu Maríu, AK-16, togara í eigu HB Granda, hefur verið tjáð að þeim verði sagt upp á næstu vikum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Framkvæmdastjóri HB Granda, segir engan hafa fengið uppsagnarbréf enn þá en framtíðaráform um rekstur skipsins eru óráðin. Áhöfnin hélt út á þriðjudag til veiða en áður en skipið hélt til veiða var haldinn starfsmannafundur um borð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var starfsmönnum þar gert ljóst að skipið yrði aflagt á næstu vikum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmdastjóra HB Granda, vildi hann ekki kannast við að mönnum hefði verið sagt upp á skipinu og að enginn hafi fengið uppsagnarbréf. „Af hverju ertu að spyrja? Það hefur engum mér vitanlega verið sagt upp enn þá á Helgu Maríu,“ segir Ægir Páll. Hann staðfesti hins vegar að starfsmannafundurinn hefði átt sér stað þar sem farið hefði verið yfir stöðuna með skipverjum. „Fundurinn á þriðjudaginn snerist um það að Grandi er búinn að taka í notkun á síðasta ári þrjú ný og afkastamikil ísfisksskip og í framhaldi af því munum við skoða rekstur þessa skips sem er elsta skipið í flotanum okkar.“ Ægir segir það munu svo koma í ljós hvort sjómönnum verði sagt upp eða ekki. Hann segir það ljóst að ekki sé búið að segja upp nokkrum manni. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um að setja skipið á sölu og ekki búið að taka ákvörðun um hvenær skipið verður stöðvað en framtíðarrekstur þess er til skoðunar. Hvort mönnum verður sagt upp eða ekki mun svo koma á daginn,“ segir Ægir. HB Grandi sagði einnig upp starfsfólki í vinnslu bæði á Akranesi og á Vopnafirði fyrir örfáum dögum. AFL starfsgreinafélag á Austurlandi sendi vegna þessa frá sér yfirlýsingu og harmaði uppsagnirnar eystra. Þar hafi flestir sem misst hafa vinnuna verið íbúar Bakkafjarðar af erlendu bergi brotnir. Akranes Birtist í Fréttablaðinu Brim Kjaramál Sjávarútvegur Tengdar fréttir 12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda. 9. október 2018 10:32 Hópuppsagnir hjá HB Granda Ellefu starfsmönnum frystihúss HB Granda á Vopnafirði var sagt upp störfum í dag. 30. október 2018 15:23 HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31. október 2018 18:21 Mest lesið Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Viðskipti innlent Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Viðskipti innlent Verðbólgan komin undir fimm prósent Viðskipti innlent Steyptu fyrsta gullmolann Viðskipti innlent Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Viðskipti innlent Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Viðskipti innlent „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina Sjá meira
Skipverjum á Helgu Maríu, AK-16, togara í eigu HB Granda, hefur verið tjáð að þeim verði sagt upp á næstu vikum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Framkvæmdastjóri HB Granda, segir engan hafa fengið uppsagnarbréf enn þá en framtíðaráform um rekstur skipsins eru óráðin. Áhöfnin hélt út á þriðjudag til veiða en áður en skipið hélt til veiða var haldinn starfsmannafundur um borð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var starfsmönnum þar gert ljóst að skipið yrði aflagt á næstu vikum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmdastjóra HB Granda, vildi hann ekki kannast við að mönnum hefði verið sagt upp á skipinu og að enginn hafi fengið uppsagnarbréf. „Af hverju ertu að spyrja? Það hefur engum mér vitanlega verið sagt upp enn þá á Helgu Maríu,“ segir Ægir Páll. Hann staðfesti hins vegar að starfsmannafundurinn hefði átt sér stað þar sem farið hefði verið yfir stöðuna með skipverjum. „Fundurinn á þriðjudaginn snerist um það að Grandi er búinn að taka í notkun á síðasta ári þrjú ný og afkastamikil ísfisksskip og í framhaldi af því munum við skoða rekstur þessa skips sem er elsta skipið í flotanum okkar.“ Ægir segir það munu svo koma í ljós hvort sjómönnum verði sagt upp eða ekki. Hann segir það ljóst að ekki sé búið að segja upp nokkrum manni. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um að setja skipið á sölu og ekki búið að taka ákvörðun um hvenær skipið verður stöðvað en framtíðarrekstur þess er til skoðunar. Hvort mönnum verður sagt upp eða ekki mun svo koma á daginn,“ segir Ægir. HB Grandi sagði einnig upp starfsfólki í vinnslu bæði á Akranesi og á Vopnafirði fyrir örfáum dögum. AFL starfsgreinafélag á Austurlandi sendi vegna þessa frá sér yfirlýsingu og harmaði uppsagnirnar eystra. Þar hafi flestir sem misst hafa vinnuna verið íbúar Bakkafjarðar af erlendu bergi brotnir.
Akranes Birtist í Fréttablaðinu Brim Kjaramál Sjávarútvegur Tengdar fréttir 12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda. 9. október 2018 10:32 Hópuppsagnir hjá HB Granda Ellefu starfsmönnum frystihúss HB Granda á Vopnafirði var sagt upp störfum í dag. 30. október 2018 15:23 HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31. október 2018 18:21 Mest lesið Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Viðskipti innlent Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Viðskipti innlent Verðbólgan komin undir fimm prósent Viðskipti innlent Steyptu fyrsta gullmolann Viðskipti innlent Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Viðskipti innlent Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Viðskipti innlent „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina Sjá meira
12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda. 9. október 2018 10:32
Hópuppsagnir hjá HB Granda Ellefu starfsmönnum frystihúss HB Granda á Vopnafirði var sagt upp störfum í dag. 30. október 2018 15:23
HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31. október 2018 18:21