Golf Woods heldur sínu striki Tiger Woods er enn í forystu fyrir lokahringinn á Tour meistaramótinu í golfi sem fram fer á East Lake í Atlanta. Woods lék á sex höggum undir pari í dag, 64 höggum, og er því samtals á 19 höggum undir pari. Landi hans Mike Calcavecchia kemur næstur á 16 höggum undir pari. Golf 15.9.2007 23:03 Tilrþif Tiger Woods skiluðu honum á toppinn Tiger Woods átti tvö sérstaklega minnisstæð tilþrif í dag þegar hann sveif á topp listans á Tour Championship-mótinu í Atlanta. Eftir að hafa byrjað annan hring rólega, með þremur pörum , náði hann fugli á þeirri fjórðu, en þá fór vélin í gang. Golf 15.9.2007 12:39 Tiger vann í Illinois Hinn eini sanni Tiger Woods sigraði á PGA-stórmótinu í golfi sem lauk á Lemmont í Illinois í kvöld. Woods vann með tveggja högga mun en hann lék lokahringinn á 63 höggum eða átta undir pari og lauk keppni á 22 höggum undir pari. Golf 9.9.2007 23:07 Nína og Haraldur stigameistarar Sjötta og síðasta stigamótið í Kaupþingsmótaröðinni í golfi fór fram í dag. Nína Björk Geirsdóttir úr GKj og Haraldur Hilmar Heimisson úr GR eru stigameistarar 2007. Fyrir mótið var Nína orðin stigameistari en Örn Ævar Hjartarson var efstur í karlaflokki. Golf 9.9.2007 17:14 Tiger fær 6,5 milljarða frá Gatorade Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er jafnan einn tekjuhæsti íþróttamaður heims og í dag var greint frá því að hann hefði undirritað auglýsingasamning við drykkjarvörufraleiðandann Gatorade fyrir litlar 100 milljónir dollara. Samningurinn er sagður til fimm ára og felur meðal annars í sér að framleiddur verður sérstakur drykkur í nafni kylfingsins. Golf 7.9.2007 15:53 Byrd í forystu á BMW mótinu Jonathan Byrd hefur forystu eftir fyrsta hringinn á BMW meistaramótinu á PGA mótaröðinni eftir frábæran fyrsta hring þar sem hann lék á 64 höggum - 7 höggum undir pari. Englendingurinn Justin Rose og Kólumbíumaðurinn Camilo Villegas eru höggi á eftir honum og þar á eftir kemur Tiger Woods sem spilaði á 67 höggum. Golf 7.9.2007 09:20 Birgir Leifur á fjórum yfir pari í dag Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum á Omega Masters mótinu sem fram fer í Sviss. Birgir var á einu höggi yfir pari eftir fyrstu níu holurnar, en lauk keppni á 75 höggum eða fjórum yfir nú eftir hádegið. Hann fékk þrjá fugla, fimm skolla og einn skramba á hringnum í dag og er í kring um 78. sætið. Golf 6.9.2007 14:29 Mickelson sigraði á Deutsche Bank mótinu Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson landaði í gærkvöld sigri á Deutsche Bank mótinu á PGA mótaröðinni þegar hann lauk keppni á 16 höggum undir pari, tveimur höggum betur en Tiger Woods, Brett Wetterich og Arron Oberholser. Mickelson vann þarna sinn 32 sigur á PGA mótaröðinni og tryggði sigurinn með því að leika lokahringinn á 66 höggum. Golf 4.9.2007 09:09 Birgir úti í kuldanum eins og er Birgir Leifur Hafþórsson mátti sætta sig við að fá skolla á síðustu holunni sinni í dag og því bendir allt til þess að hann muni ekki komast í gegnum niðurskurðinn en fleiri kylfingar eiga enn eftir að ljúka leik. Birgir kom í hús í dag á einu höggi yfir pari eða samtals á 74 höggum en hann lék á parinu í gær eða á 73 höggum. Golf 31.8.2007 17:44 Birgir: Ætla mér að vera undir parinu Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á parinu í dag á Johnny Walker mótinu í Skotlandi. Hann hefur einu sinni áður leikið Gleneagles völlinn sem hannaður var af Jack Nicklaus en það var fyrir sex árum sem Birgir lék völlinn síðast. Birgir sagði í samtali við Kylfing.is að aðstæður hefðu verið fínar í morgun, nánast enginn vindur og þægilegar vallaraðstæður. Golf 30.8.2007 14:32 Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina Nokkrir af okkar bestu kylfingum hafa verið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku og margir hafa reynt að komast inn á evrópsku mótaröðina og hafa einungis tveir einstaklingar komist þar inn með fullan þátttökurétt en það var Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir. Hvað þarf til að taka þátt í þessum mótum og hvernig er hægt að komast inn á evrópsku mótaröðina. Golf 29.8.2007 16:17 Goosen í 86. sæti á FedEx listanum - 70 efstu áfram eftir þessa viku Þrjár vikur eru eftir af FedEx bikarnum og Retief Goosen þarf að spila vel þessa vikuna til að vera meðal keppenda í næstu viku. Hann er sem stendur í 86. sæti og þarf að bæta sig um a.m.k. 16 sæti til að verða með í Boston. Hann er í 17. sæti á heimslistanum og er sá eini sem er í 20 efstu sætunum sem er ekki á meðal þeirra 70 efstu. Golf 28.8.2007 15:34 Ottó og Þórdís Íslandsmeistarar Ottó Sigurðsson úr GKG og Þórdís Geirsdóttir úr GK eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2007. Ottó vann Arnór Inga Finnbjörnsson í úrslitaleiknum í karlaflokki en Þórdís bar sigurorð af Rögnu Björk Ólafsdóttur. Golf 26.8.2007 19:17 Birgir komst ekki í gegnum niðurskurðinn Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson mátti í dag sætta sig við að komast ekki í gegnum nðurskurðinn á KLM mótinu í Hollandi. Birgir byrjaði annan hringinn í dag af miklum krafti og var á fjórum höggum undir pari að loknum fimm fyrstu holunum. Golf 24.8.2007 17:45 Komst ekki áfram í Svíþjóð Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á skandínavíska meistaramótinu í golfi sem nú stendur yfir í Stokkhólmi. Birgir Leifur lék á alls sjö höggum yfir pari á fyrstu tveimur hringjunum og var nokkuð langt frá því að komast áfram. Golf 18.8.2007 07:15 Birgir Leifur lauk leik á fimm yfir pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á fyrsta keppnisdegi á Scandinavian Masters á fimm höggum yfir pari. Birgir lék fyrri níu holurnar á 36 höggum en þær síðari á 39 höggum. Hann fékk þrjá skolla, einn tvöfaldan skolla og 14 pör í dag. Golf 16.8.2007 17:03 Birgir á þremur yfir pari eftir níu holur Eftir að hafa fengið tvo skolla á fyrstu fjórum holunum á Scandinavian Masters í Svíþjóð bætti Birgir Leifur Hafþórsson við sig snúningi og fékk fjögur pör í röð. Birgir er því kominn á þrjú högg yfir par þar sem hann fékk skolla á 9. holu sem er par 3 hola. Golf 16.8.2007 14:35 Alvaro Quiros högglengstur - Birgir Leifur 50 Ýmis tölfræði er haldin yfir leikmenn á atvinnmannamótaröðunum og eitt að því er högglengd. Á Evrópumótaröðinnni er Alvaro Quiros með lengstu teighöggin að meðaltali eða 310,8 yarda. Fjórir kylfingar eru með yfir 300 yarda að meðaltali en það eru fyrir utan Quiros eru Daniel Vancsik með 301 yards, Emanuele Canonica með 300,5 yarda og Henrik Stenson með 300,4 yarda. Birgir Leifur Hafþórsson er númer 50 á þessum lista yfir högglengstu menn með 287,8 yarda að meðaltali. Golf 15.8.2007 14:44 Forsetabikarinn - Liðin valin Liðstjórar beggja liðana í Forsetabikarnum tilkynntu hverja þeir völdu sem síðustu tvo leikmennina til að spila um bikarinn. Jack Niklaus sem er liðstjóri Bandaríkjanna valdi Hunter Mahan og Lucas Glover sem ellefta og tólfta mann í liðið. Golf 13.8.2007 21:14 Tiger Woods með 13 risatitla, trúir því varla sjálfur Tiger Woods hélt út á síðasta hringnum sem hann endaði á 69 höggum og sigraði á 89. PGA Meistaramótinu. Hann var tveimur höggum á undan Woddy Austin og þremur á undan Ernie Els. Golf 13.8.2007 15:14 Woods vann 13. titilinn Tiger Woods sýndi enn eina ferðina og sannaði að aðrir kylfingar komast ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana þegar hann bar sigur úr býtum á bandaríska PGA-meistaramótinu á Southern Hill-golfvellinum í Oklahoma. Woods vann þar með sinn 13. stórmótstitil. Woods, sem hafði þriggja högga forystu fyrir lokahringinn, lék hringina fjóra á 272 höggum, tveimur höggum minna en Woody Austin og þremur minna en Suður Afríkubúinn Ernie Els. Golf 12.8.2007 23:42 Tiger með þriggja högga forystu Tiger Woods hefur þriggja högga forystu fyrir lokahringinn á PGA meistaramótinu í golfi. Aðeins fimm kylfingar eru undir pari vallarins. Golf 12.8.2007 13:18 Frábær spilamennska hjá Woods Tiger Woods hefur tveggja högga forystu á Scott Verplank frá Bandaríkjunum eftir tvo hringi á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Southern Hills Country Club-vellinum í Oklahoma. Woods hefur leikið hringina tvo á sex höggum undir pari en hann fór á kostum í gær og spilaði þá á 63 höggum eða sjö höggum undir pari sem er vallarmet. Golf 11.8.2007 00:46 Greame Storm með tveggja högga forystu á PGA mótinu Graeme Storm, er efstur eftir fyrsta dag á PGA meistaramótinu eftir að hafa spilað á 65 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla og engan skolla á hinn erfiða Southern Hills völlinn en aðeins 12 kylfingar náðu að spila undir pari á fyrsta hring. Golf 10.8.2007 15:05 Reynir fyrir sér í atvinnumennsku Örn Ævar Hjartarson mun í haust taka þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í golfi. Mörg þúsund kylfingar sækja um á ári hverju en aðeins um þrjátíu komast inn á mótaröðina. Golf 9.8.2007 04:00 Birgir Leifur í 20. sæti yfir hittnar flatir á evrópsku mótaröðinni Birgir Leifur Hafþórsson hefur verið að slá boltann nokkuð vel á evrópsku mótaröðinni og sést það vel þegar skoðuð er tölfræðisíða mótaraðarinnar. Hann er í 20. sæti á listanum yfir þá sem hafa hitt flestar flatir að meðaltali í réttum höggafjölda með 13,1 flöt hitta að meðaltali. Golf 7.8.2007 14:44 750 þúsund krónur söfnuðust í einvíginu á Nesinu 750 þúsund krónur söfnuðust til samtakanna „einstök börn“ þegar hið árlega góðgerðarmót í golfi, einvígið á Nesinu fór fram í dag. Venju samkvæmt er 10 sterkum kylfingum boðið til leiks og er leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Einn kylfingur dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn. Golf 6.8.2007 20:22 Tiger Woods sigraði örugglega í Ohio í gær Tiger Woods lék frábæran lokahring og fór með öruggan sigur af hólmi á heimsmótinu í golfi sem lauk í Ohio í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þetta var þriðja heimsmótið í röð sem að Tiger vinnur á Firestone golfvellinum. Golf 6.8.2007 14:34 Birgir Leifur í 69. sæti í Rússlandi Birgir Leifur Hafþórsson lék á 4 höggum yfir pari á lokahring á opna rússnesku mótinu í golfi og er í 70. sæti. Birgir Leifur fékk 4 skolla, einn skramba, 2 fugla og paraði 11 holur á lokahringnum. Golf 5.8.2007 13:51 Birgir Leifur spilaði á 74 höggum í dag Birgir Leifur Hafþórsson spilaði fyrsta hringinn sinn á Opna rússneska mótinu á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann er jafn í 73. sæti níu höggum á eftir efsta manni Svíanum Nilsson sem spilaði á 65 höggum í dag. Golf 2.8.2007 18:19 « ‹ 166 167 168 169 170 171 172 173 174 … 178 ›
Woods heldur sínu striki Tiger Woods er enn í forystu fyrir lokahringinn á Tour meistaramótinu í golfi sem fram fer á East Lake í Atlanta. Woods lék á sex höggum undir pari í dag, 64 höggum, og er því samtals á 19 höggum undir pari. Landi hans Mike Calcavecchia kemur næstur á 16 höggum undir pari. Golf 15.9.2007 23:03
Tilrþif Tiger Woods skiluðu honum á toppinn Tiger Woods átti tvö sérstaklega minnisstæð tilþrif í dag þegar hann sveif á topp listans á Tour Championship-mótinu í Atlanta. Eftir að hafa byrjað annan hring rólega, með þremur pörum , náði hann fugli á þeirri fjórðu, en þá fór vélin í gang. Golf 15.9.2007 12:39
Tiger vann í Illinois Hinn eini sanni Tiger Woods sigraði á PGA-stórmótinu í golfi sem lauk á Lemmont í Illinois í kvöld. Woods vann með tveggja högga mun en hann lék lokahringinn á 63 höggum eða átta undir pari og lauk keppni á 22 höggum undir pari. Golf 9.9.2007 23:07
Nína og Haraldur stigameistarar Sjötta og síðasta stigamótið í Kaupþingsmótaröðinni í golfi fór fram í dag. Nína Björk Geirsdóttir úr GKj og Haraldur Hilmar Heimisson úr GR eru stigameistarar 2007. Fyrir mótið var Nína orðin stigameistari en Örn Ævar Hjartarson var efstur í karlaflokki. Golf 9.9.2007 17:14
Tiger fær 6,5 milljarða frá Gatorade Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er jafnan einn tekjuhæsti íþróttamaður heims og í dag var greint frá því að hann hefði undirritað auglýsingasamning við drykkjarvörufraleiðandann Gatorade fyrir litlar 100 milljónir dollara. Samningurinn er sagður til fimm ára og felur meðal annars í sér að framleiddur verður sérstakur drykkur í nafni kylfingsins. Golf 7.9.2007 15:53
Byrd í forystu á BMW mótinu Jonathan Byrd hefur forystu eftir fyrsta hringinn á BMW meistaramótinu á PGA mótaröðinni eftir frábæran fyrsta hring þar sem hann lék á 64 höggum - 7 höggum undir pari. Englendingurinn Justin Rose og Kólumbíumaðurinn Camilo Villegas eru höggi á eftir honum og þar á eftir kemur Tiger Woods sem spilaði á 67 höggum. Golf 7.9.2007 09:20
Birgir Leifur á fjórum yfir pari í dag Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum á Omega Masters mótinu sem fram fer í Sviss. Birgir var á einu höggi yfir pari eftir fyrstu níu holurnar, en lauk keppni á 75 höggum eða fjórum yfir nú eftir hádegið. Hann fékk þrjá fugla, fimm skolla og einn skramba á hringnum í dag og er í kring um 78. sætið. Golf 6.9.2007 14:29
Mickelson sigraði á Deutsche Bank mótinu Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson landaði í gærkvöld sigri á Deutsche Bank mótinu á PGA mótaröðinni þegar hann lauk keppni á 16 höggum undir pari, tveimur höggum betur en Tiger Woods, Brett Wetterich og Arron Oberholser. Mickelson vann þarna sinn 32 sigur á PGA mótaröðinni og tryggði sigurinn með því að leika lokahringinn á 66 höggum. Golf 4.9.2007 09:09
Birgir úti í kuldanum eins og er Birgir Leifur Hafþórsson mátti sætta sig við að fá skolla á síðustu holunni sinni í dag og því bendir allt til þess að hann muni ekki komast í gegnum niðurskurðinn en fleiri kylfingar eiga enn eftir að ljúka leik. Birgir kom í hús í dag á einu höggi yfir pari eða samtals á 74 höggum en hann lék á parinu í gær eða á 73 höggum. Golf 31.8.2007 17:44
Birgir: Ætla mér að vera undir parinu Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á parinu í dag á Johnny Walker mótinu í Skotlandi. Hann hefur einu sinni áður leikið Gleneagles völlinn sem hannaður var af Jack Nicklaus en það var fyrir sex árum sem Birgir lék völlinn síðast. Birgir sagði í samtali við Kylfing.is að aðstæður hefðu verið fínar í morgun, nánast enginn vindur og þægilegar vallaraðstæður. Golf 30.8.2007 14:32
Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina Nokkrir af okkar bestu kylfingum hafa verið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku og margir hafa reynt að komast inn á evrópsku mótaröðina og hafa einungis tveir einstaklingar komist þar inn með fullan þátttökurétt en það var Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir. Hvað þarf til að taka þátt í þessum mótum og hvernig er hægt að komast inn á evrópsku mótaröðina. Golf 29.8.2007 16:17
Goosen í 86. sæti á FedEx listanum - 70 efstu áfram eftir þessa viku Þrjár vikur eru eftir af FedEx bikarnum og Retief Goosen þarf að spila vel þessa vikuna til að vera meðal keppenda í næstu viku. Hann er sem stendur í 86. sæti og þarf að bæta sig um a.m.k. 16 sæti til að verða með í Boston. Hann er í 17. sæti á heimslistanum og er sá eini sem er í 20 efstu sætunum sem er ekki á meðal þeirra 70 efstu. Golf 28.8.2007 15:34
Ottó og Þórdís Íslandsmeistarar Ottó Sigurðsson úr GKG og Þórdís Geirsdóttir úr GK eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2007. Ottó vann Arnór Inga Finnbjörnsson í úrslitaleiknum í karlaflokki en Þórdís bar sigurorð af Rögnu Björk Ólafsdóttur. Golf 26.8.2007 19:17
Birgir komst ekki í gegnum niðurskurðinn Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson mátti í dag sætta sig við að komast ekki í gegnum nðurskurðinn á KLM mótinu í Hollandi. Birgir byrjaði annan hringinn í dag af miklum krafti og var á fjórum höggum undir pari að loknum fimm fyrstu holunum. Golf 24.8.2007 17:45
Komst ekki áfram í Svíþjóð Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á skandínavíska meistaramótinu í golfi sem nú stendur yfir í Stokkhólmi. Birgir Leifur lék á alls sjö höggum yfir pari á fyrstu tveimur hringjunum og var nokkuð langt frá því að komast áfram. Golf 18.8.2007 07:15
Birgir Leifur lauk leik á fimm yfir pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á fyrsta keppnisdegi á Scandinavian Masters á fimm höggum yfir pari. Birgir lék fyrri níu holurnar á 36 höggum en þær síðari á 39 höggum. Hann fékk þrjá skolla, einn tvöfaldan skolla og 14 pör í dag. Golf 16.8.2007 17:03
Birgir á þremur yfir pari eftir níu holur Eftir að hafa fengið tvo skolla á fyrstu fjórum holunum á Scandinavian Masters í Svíþjóð bætti Birgir Leifur Hafþórsson við sig snúningi og fékk fjögur pör í röð. Birgir er því kominn á þrjú högg yfir par þar sem hann fékk skolla á 9. holu sem er par 3 hola. Golf 16.8.2007 14:35
Alvaro Quiros högglengstur - Birgir Leifur 50 Ýmis tölfræði er haldin yfir leikmenn á atvinnmannamótaröðunum og eitt að því er högglengd. Á Evrópumótaröðinnni er Alvaro Quiros með lengstu teighöggin að meðaltali eða 310,8 yarda. Fjórir kylfingar eru með yfir 300 yarda að meðaltali en það eru fyrir utan Quiros eru Daniel Vancsik með 301 yards, Emanuele Canonica með 300,5 yarda og Henrik Stenson með 300,4 yarda. Birgir Leifur Hafþórsson er númer 50 á þessum lista yfir högglengstu menn með 287,8 yarda að meðaltali. Golf 15.8.2007 14:44
Forsetabikarinn - Liðin valin Liðstjórar beggja liðana í Forsetabikarnum tilkynntu hverja þeir völdu sem síðustu tvo leikmennina til að spila um bikarinn. Jack Niklaus sem er liðstjóri Bandaríkjanna valdi Hunter Mahan og Lucas Glover sem ellefta og tólfta mann í liðið. Golf 13.8.2007 21:14
Tiger Woods með 13 risatitla, trúir því varla sjálfur Tiger Woods hélt út á síðasta hringnum sem hann endaði á 69 höggum og sigraði á 89. PGA Meistaramótinu. Hann var tveimur höggum á undan Woddy Austin og þremur á undan Ernie Els. Golf 13.8.2007 15:14
Woods vann 13. titilinn Tiger Woods sýndi enn eina ferðina og sannaði að aðrir kylfingar komast ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana þegar hann bar sigur úr býtum á bandaríska PGA-meistaramótinu á Southern Hill-golfvellinum í Oklahoma. Woods vann þar með sinn 13. stórmótstitil. Woods, sem hafði þriggja högga forystu fyrir lokahringinn, lék hringina fjóra á 272 höggum, tveimur höggum minna en Woody Austin og þremur minna en Suður Afríkubúinn Ernie Els. Golf 12.8.2007 23:42
Tiger með þriggja högga forystu Tiger Woods hefur þriggja högga forystu fyrir lokahringinn á PGA meistaramótinu í golfi. Aðeins fimm kylfingar eru undir pari vallarins. Golf 12.8.2007 13:18
Frábær spilamennska hjá Woods Tiger Woods hefur tveggja högga forystu á Scott Verplank frá Bandaríkjunum eftir tvo hringi á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Southern Hills Country Club-vellinum í Oklahoma. Woods hefur leikið hringina tvo á sex höggum undir pari en hann fór á kostum í gær og spilaði þá á 63 höggum eða sjö höggum undir pari sem er vallarmet. Golf 11.8.2007 00:46
Greame Storm með tveggja högga forystu á PGA mótinu Graeme Storm, er efstur eftir fyrsta dag á PGA meistaramótinu eftir að hafa spilað á 65 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla og engan skolla á hinn erfiða Southern Hills völlinn en aðeins 12 kylfingar náðu að spila undir pari á fyrsta hring. Golf 10.8.2007 15:05
Reynir fyrir sér í atvinnumennsku Örn Ævar Hjartarson mun í haust taka þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í golfi. Mörg þúsund kylfingar sækja um á ári hverju en aðeins um þrjátíu komast inn á mótaröðina. Golf 9.8.2007 04:00
Birgir Leifur í 20. sæti yfir hittnar flatir á evrópsku mótaröðinni Birgir Leifur Hafþórsson hefur verið að slá boltann nokkuð vel á evrópsku mótaröðinni og sést það vel þegar skoðuð er tölfræðisíða mótaraðarinnar. Hann er í 20. sæti á listanum yfir þá sem hafa hitt flestar flatir að meðaltali í réttum höggafjölda með 13,1 flöt hitta að meðaltali. Golf 7.8.2007 14:44
750 þúsund krónur söfnuðust í einvíginu á Nesinu 750 þúsund krónur söfnuðust til samtakanna „einstök börn“ þegar hið árlega góðgerðarmót í golfi, einvígið á Nesinu fór fram í dag. Venju samkvæmt er 10 sterkum kylfingum boðið til leiks og er leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Einn kylfingur dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn. Golf 6.8.2007 20:22
Tiger Woods sigraði örugglega í Ohio í gær Tiger Woods lék frábæran lokahring og fór með öruggan sigur af hólmi á heimsmótinu í golfi sem lauk í Ohio í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þetta var þriðja heimsmótið í röð sem að Tiger vinnur á Firestone golfvellinum. Golf 6.8.2007 14:34
Birgir Leifur í 69. sæti í Rússlandi Birgir Leifur Hafþórsson lék á 4 höggum yfir pari á lokahring á opna rússnesku mótinu í golfi og er í 70. sæti. Birgir Leifur fékk 4 skolla, einn skramba, 2 fugla og paraði 11 holur á lokahringnum. Golf 5.8.2007 13:51
Birgir Leifur spilaði á 74 höggum í dag Birgir Leifur Hafþórsson spilaði fyrsta hringinn sinn á Opna rússneska mótinu á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann er jafn í 73. sæti níu höggum á eftir efsta manni Svíanum Nilsson sem spilaði á 65 höggum í dag. Golf 2.8.2007 18:19