Menning Óperustjarnan Grace Bumbry er látin Bandaríska óperusöngkonan Grace Bumbry er látin, 86 ára að aldri. Bumbry þykir eitt stærsta nafnið í heimi óperunnar og var ein þeirra sem ruddi brautina fyrir svarta í heimi óperutónlistar. Menning 9.5.2023 06:54 „Átti að hafa borðað elskhuga í morgunmat því hún var komin með leið á honum“ „Grýla hefur oft verið nefnd fyrsti femínisti Íslands. Hún var rosalega kraftmikil og lifandi og átti fullt af elskhugum. Þá byrjuðu þessar sögusagnir um hana,“ segir listakonan og ljósmyndarinn Berglind Rögnvalds, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind hefur meðal annars unnið listrænt verkefni um Grýlu, þar sem hún velti fyrir sér hvernig Grýla hefði verið ef hún hefði fengið að blómstra. Menning 7.5.2023 09:00 Naktir nemendur sýna Grease Eitt af einstaklingsverkefnum Listaháskólans er uppsetning á söngleiknum Grease. Þrjár sýningar verða sýndar á einum degi, næstkomandi laugardag. Söngleikurinn verður þó í aðeins öðru formi en áður þar sem allir leikarar verða naktir, alla sýninguna. Miðar á sýningar seldust upp á mettíma. Hópurinn sem kemur að verkinu er orðinn náinn og vel búinn undir frumsýningu. Farsímar verða bannaðir í salnum. Menning 5.5.2023 20:01 Fjölmenntu í prufur fyrir Fíusól í Borgarleikhúsinu Leitin að Fíusól og félögum hennar er í fullum gangi þessa dagana en lokað hefur verið fyrir skráningar. Prufur standa nú sem hæðst en fjölmargir krakkar mættu og spreyttu sig nú rétt fyrir helgi á hlutverkunum. Verkið verður frumflutt í Borgarleikhúsinu næsta vetur. Menning 4.5.2023 17:01 Hanna kynlífstæki úr íslenskum jarðefnum: „Horfum á náttúruna sem elskhuga“ „Með gerð kynlífsleikfanga úr íslenskum leir og postulíni vörpum við fram róttækum leiðum til að endurtengjast umhverfi okkar,“ segja listakonurnar Antonía Berg og Elín Margot. Þær standa að verkefninu Fró(u)n þar sem þær skapa fyrstu kynlífstækin sem búin eru til úr íslenskum jarðefnum. Sýningin er partur af HönnunarMars. Menning 3.5.2023 12:30 Til skoðunar að breyta nafni Hönnunarmars Stærsta hönnunarhátíð landsins, Hönnunarmars hefst í dag. Boðið verður upp á yfir hundrað sýningar víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Til greina kemur að breyta nafninu, enda hefur hátíðin ekki verið haldin í mars síðustu þrjú árin. Menning 3.5.2023 11:50 Þróaði með sér dellu fyrir míkrafónasmíði „Sýningin tengir saman myndlist, tónlist og eðlisfræði og kjarni hennar er að fanga útlit tónbilanna tólf á sínu myndræna formi,“ segir fjöllistamaðurinn Baldvin Hlynsson, sem opnar sýninguna Tónbil í Hörpu í dag klukkan 18:00. Sýningin er hluti af HönnunarMars og stendur til ellefta maí næstkomandi. Menning 3.5.2023 11:01 HönnunarMars í dag: DesignTalks, kynlífsleikföng og pítsustund HönnunarMars hefst með pomp og prakt í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu. Það verður ýmislegt listrænt og lifandi í boði næstu daga í tengslum við hátíðina en Lífið á Vísi fer fer hér í grófum dráttum yfir dagskrána fyrir daginn í dag. Menning 3.5.2023 08:01 HönnunarMars hefst á morgun: 100 sýningar og 400 þátttakendur Opnunarhóf HönnunarMars fer fram á morgun, miðvikudaginn 3. maí, í Hörpu klukkan 17:00. Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs setja hátíðina með formlegum hætti og eru öll velkomin. Menning 2.5.2023 14:00 „Mig langaði bara að leyfa geirvörtunni að njóta sín“ „Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt. Menning 1.5.2023 07:00 Mikki refur og Karíus og Baktus á Sólheimum í Grímsnesi Það eru margar litríkar persónur á Sólheimum í Grímsnesi þessa dagana eins og Mikki refur og Rauðhetta, Karíus og Baktus og ræningjarnir Kasper, Jesper og Jónatan. Hér erum við að tala um uppfærslu Leikfélags Sólheima á leikritinu „Skógarbrúðkaup“. Menning 28.4.2023 20:05 Ian Anderson getur ekki mælt með heiðni við nokkurn mann Þegar Vísir náði sambandi við Ian Anderson, forsprakka og prímusmótor hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Jethro Tull, benti hann þegar á í upphafi samtals að dagskrá hans væri þéttriðin, engra kynninga væri þörf. „Beint í fyrstu spurningu.“ Menning 26.4.2023 07:01 Krabbameinsbaráttan varð að dansverki Dansarinn, fjöllistakonan og flugeldahönnuðurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía eins og hún er alltaf kölluð, greindist með krabbamein fyrir tveimur árum. Þá með tvö lítil börn að útskrifast með meistaragráðu, sjálfstætt starfandi og nýflutt í draumahúsið á nesinu. Menning 25.4.2023 10:01 Stjörnufans á frumsýningu Öllu var tjaldað til á síðustu frumsýningu leikársins síðastliðið föstudagskvöld en um er að ræða verkið Svartþröst í Borgarleikhúsinu. Verkið er í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar og með aðalhlutverkin tvö fara þau Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Valur Freyr Einarsson. Menning 24.4.2023 20:03 Leikhúsið leitar að kátum krökkum Nú með vaxandi vormánuðum er haustdagskrá leikhúsanna óðum að taka á sig mynd. Ein af fyrirhuguðum frumsýningum næsta leikárs er fjölskyldusöngleikurinn Fíasól gefst aldrei upp, sem byggir á vinsælum bókaflokki Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Menning 24.4.2023 16:53 „Ég var stundum háskælandi að mála þessi verk“ „Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 22.4.2023 07:01 Áföll erfast: Taugaáfallið kom út með líkamlegum viðbrögðum Leikkonan Gunnella Hólmarsdóttir stendur um þessar mundir á sviðinu í Tjarnarbíói þar sem hún flytur einleikinn, „Hvað ef sósan klikkar?". Verkið byggir hún á eigin áföllum en hún skrifaði handritið sjálf ásamt því að leikstýra sýningunni. Menning 20.4.2023 11:01 Pétur Gautur er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023 Pétur Gautur Svavarsson myndlistarmaður er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2023. Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni síðan hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Portinu í Hafnarfirði árið 1993. Hefð hefur skapast fyrir því að halda síðasta vetrardag hátíðlegan í Hafnarfirði með vali á bæjarlistamanni ársins. Menning 19.4.2023 19:21 Óperudraugurinn hefur sungið sitt síðasta Sýningin um Óperudrauginn var sýnd í síðasta sinn á Broadway í gær. Óperan var sýnd í 35 ár í leikhúsum Broadway og enduðu sýningarnar á að vera tæplega fjórtán þúsund talsins. Menning 17.4.2023 14:51 Ferillinn fór á flug eftir örlagaríka listasýningu vestanhafs „Ég fór úr því að vera einn í kjallara heima hjá mér að mála í einhverju ströggli og yfir í að geta allt í einu farið að lifa á því að gera myndlist, sem virðist hafa gerst á einni nóttu,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason, sem hefur verið að gera góða hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur fer eigin leiðir í listinni og er óhræddur við að kafa djúpt inn á við í sinni listsköpun en hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 17.4.2023 07:00 Árni Tryggva allur Árni Tryggvason, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, andaðist í gær 99 ára gamall. Örn Árnason sonur hans greinir frá andláti föður síns á Facebook og fleiri minnast fallins meistara leiksviðsins. Menning 14.4.2023 13:17 Segir eitt að djamma niðri í bæ en allt annað að djamma á hálendinu Ljósmyndarinn Benjamin Hardman heillaðist af Íslandi frá fyrstu heimsókn og var staðráðinn í að flytja hingað, sem hann svo gerði. Hann er hugfanginn af landslaginu og grípur stórbrotin augnablik á filmu í starfi sínu sem ljósmyndari og tökumaður en það er honum afar minnisstætt að hafa heimsótt hálendið í fyrsta skipti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 14.4.2023 07:01 Gísli Örn leikstýrir Frozen á öllum Norðurlöndunum Söngleikurinn Frost byggður á Disney-myndinni Frozen verður settur á svið í Þjóðleikhúsinu næsta vetur. Gísli Örn Garðarsson er með réttinn að sýningunni á öllum Norðurlöndunum. Hann mun því ekki aðeins leikstýra uppfærslu söngleiksins hérlendis heldur einnig á hinum fjórum Norðurlöndunum. Menning 13.4.2023 06:01 Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 10.4.2023 07:01 Flutti úlpulaus til Íslands en fann lykilinn að listsköpunni Benjamin Hardman flutti úlpulaus til Íslands frá Ástralíu fyrir rúmum sjö árum með um það bil þúsund fylgjendur á Instagram og draum um að geta unnið sem ljósmyndari. Hann er nú með um 725 þúsund fylgjendur þar sem hann deilir ævintýrum sínum og sinnir ástríðu sinni á ljósmyndun og myndbandsgerð af fullum krafti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hann ræðir opinskátt um lífið, listina og mikilvægi þess að elta draumana sína. Menning 7.4.2023 09:00 Sextán ára farinn að spila á Hótel Sögu fyrir blindfullt fólk Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson fagnar sextugsafmæli sínu með stórtónleikum í Hörpu þann 22. apríl næstkomandi. Af því tilefni settist Jón niður með Ómari Úlfi og fór yfir magnaðan feril með hljómsveitunum Possibillies, Bítavinafélaginu og Nýdönsk. Þá er Jón einn af stofnmeðlimum Sálarinnar hans Jóns míns og hefur unnið mikið í leikhúsi. Menning 7.4.2023 07:01 Fólk mætti í skírteinismyndatöku og endaði í listrænu verkefni um bænina „Titill sýningarinnar er sóttur í kristna trú,“ segir listamaðurinn Sigurður Unnar sem er að opna sýninguna Lömb og Guðir á morgun, á föstudaginn langa. Blaðamaður tók púlsinn á honum. Menning 6.4.2023 10:01 Kollhnís og Eldgos tilnefndar Bækurnar Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Eldgos eftir Rán Flygenring eru tilnefningar Íslands til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Verðlaunin verða afhent í Osló í lok október. Menning 5.4.2023 08:00 „Þarna fer maður að hafa gaman af því að hafa augu“ „Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að verja miklum tíma í öræfum Íslands. Samferðafólk mitt hefur haft þakkarverða þolinmæði gagnvart mér og skrásetningu minni,“ segir myndlistarkonan Eva Schram, sem stendur fyrir sýningunni Þegar ljósið deyr, í samvinnu við Listval. Sýningin er staðsett í Norr11 á Hverfisgötu og stendur til 3. maí næstkomandi. Menning 3.4.2023 17:31 Einhverfufélagið blæs til listasýningar: „Við getum gert allt sem annað fólk getur gert“ Nóg verður um að vera í húsnæði Hamarsins ungmennahúss í Hafnarfirði um helgina þar sem Einhverfufélagið hefur sett upp listasýningu. Menning 31.3.2023 23:02 « ‹ 8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 334 ›
Óperustjarnan Grace Bumbry er látin Bandaríska óperusöngkonan Grace Bumbry er látin, 86 ára að aldri. Bumbry þykir eitt stærsta nafnið í heimi óperunnar og var ein þeirra sem ruddi brautina fyrir svarta í heimi óperutónlistar. Menning 9.5.2023 06:54
„Átti að hafa borðað elskhuga í morgunmat því hún var komin með leið á honum“ „Grýla hefur oft verið nefnd fyrsti femínisti Íslands. Hún var rosalega kraftmikil og lifandi og átti fullt af elskhugum. Þá byrjuðu þessar sögusagnir um hana,“ segir listakonan og ljósmyndarinn Berglind Rögnvalds, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind hefur meðal annars unnið listrænt verkefni um Grýlu, þar sem hún velti fyrir sér hvernig Grýla hefði verið ef hún hefði fengið að blómstra. Menning 7.5.2023 09:00
Naktir nemendur sýna Grease Eitt af einstaklingsverkefnum Listaháskólans er uppsetning á söngleiknum Grease. Þrjár sýningar verða sýndar á einum degi, næstkomandi laugardag. Söngleikurinn verður þó í aðeins öðru formi en áður þar sem allir leikarar verða naktir, alla sýninguna. Miðar á sýningar seldust upp á mettíma. Hópurinn sem kemur að verkinu er orðinn náinn og vel búinn undir frumsýningu. Farsímar verða bannaðir í salnum. Menning 5.5.2023 20:01
Fjölmenntu í prufur fyrir Fíusól í Borgarleikhúsinu Leitin að Fíusól og félögum hennar er í fullum gangi þessa dagana en lokað hefur verið fyrir skráningar. Prufur standa nú sem hæðst en fjölmargir krakkar mættu og spreyttu sig nú rétt fyrir helgi á hlutverkunum. Verkið verður frumflutt í Borgarleikhúsinu næsta vetur. Menning 4.5.2023 17:01
Hanna kynlífstæki úr íslenskum jarðefnum: „Horfum á náttúruna sem elskhuga“ „Með gerð kynlífsleikfanga úr íslenskum leir og postulíni vörpum við fram róttækum leiðum til að endurtengjast umhverfi okkar,“ segja listakonurnar Antonía Berg og Elín Margot. Þær standa að verkefninu Fró(u)n þar sem þær skapa fyrstu kynlífstækin sem búin eru til úr íslenskum jarðefnum. Sýningin er partur af HönnunarMars. Menning 3.5.2023 12:30
Til skoðunar að breyta nafni Hönnunarmars Stærsta hönnunarhátíð landsins, Hönnunarmars hefst í dag. Boðið verður upp á yfir hundrað sýningar víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Til greina kemur að breyta nafninu, enda hefur hátíðin ekki verið haldin í mars síðustu þrjú árin. Menning 3.5.2023 11:50
Þróaði með sér dellu fyrir míkrafónasmíði „Sýningin tengir saman myndlist, tónlist og eðlisfræði og kjarni hennar er að fanga útlit tónbilanna tólf á sínu myndræna formi,“ segir fjöllistamaðurinn Baldvin Hlynsson, sem opnar sýninguna Tónbil í Hörpu í dag klukkan 18:00. Sýningin er hluti af HönnunarMars og stendur til ellefta maí næstkomandi. Menning 3.5.2023 11:01
HönnunarMars í dag: DesignTalks, kynlífsleikföng og pítsustund HönnunarMars hefst með pomp og prakt í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu. Það verður ýmislegt listrænt og lifandi í boði næstu daga í tengslum við hátíðina en Lífið á Vísi fer fer hér í grófum dráttum yfir dagskrána fyrir daginn í dag. Menning 3.5.2023 08:01
HönnunarMars hefst á morgun: 100 sýningar og 400 þátttakendur Opnunarhóf HönnunarMars fer fram á morgun, miðvikudaginn 3. maí, í Hörpu klukkan 17:00. Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs setja hátíðina með formlegum hætti og eru öll velkomin. Menning 2.5.2023 14:00
„Mig langaði bara að leyfa geirvörtunni að njóta sín“ „Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt. Menning 1.5.2023 07:00
Mikki refur og Karíus og Baktus á Sólheimum í Grímsnesi Það eru margar litríkar persónur á Sólheimum í Grímsnesi þessa dagana eins og Mikki refur og Rauðhetta, Karíus og Baktus og ræningjarnir Kasper, Jesper og Jónatan. Hér erum við að tala um uppfærslu Leikfélags Sólheima á leikritinu „Skógarbrúðkaup“. Menning 28.4.2023 20:05
Ian Anderson getur ekki mælt með heiðni við nokkurn mann Þegar Vísir náði sambandi við Ian Anderson, forsprakka og prímusmótor hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Jethro Tull, benti hann þegar á í upphafi samtals að dagskrá hans væri þéttriðin, engra kynninga væri þörf. „Beint í fyrstu spurningu.“ Menning 26.4.2023 07:01
Krabbameinsbaráttan varð að dansverki Dansarinn, fjöllistakonan og flugeldahönnuðurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía eins og hún er alltaf kölluð, greindist með krabbamein fyrir tveimur árum. Þá með tvö lítil börn að útskrifast með meistaragráðu, sjálfstætt starfandi og nýflutt í draumahúsið á nesinu. Menning 25.4.2023 10:01
Stjörnufans á frumsýningu Öllu var tjaldað til á síðustu frumsýningu leikársins síðastliðið föstudagskvöld en um er að ræða verkið Svartþröst í Borgarleikhúsinu. Verkið er í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar og með aðalhlutverkin tvö fara þau Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Valur Freyr Einarsson. Menning 24.4.2023 20:03
Leikhúsið leitar að kátum krökkum Nú með vaxandi vormánuðum er haustdagskrá leikhúsanna óðum að taka á sig mynd. Ein af fyrirhuguðum frumsýningum næsta leikárs er fjölskyldusöngleikurinn Fíasól gefst aldrei upp, sem byggir á vinsælum bókaflokki Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Menning 24.4.2023 16:53
„Ég var stundum háskælandi að mála þessi verk“ „Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 22.4.2023 07:01
Áföll erfast: Taugaáfallið kom út með líkamlegum viðbrögðum Leikkonan Gunnella Hólmarsdóttir stendur um þessar mundir á sviðinu í Tjarnarbíói þar sem hún flytur einleikinn, „Hvað ef sósan klikkar?". Verkið byggir hún á eigin áföllum en hún skrifaði handritið sjálf ásamt því að leikstýra sýningunni. Menning 20.4.2023 11:01
Pétur Gautur er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023 Pétur Gautur Svavarsson myndlistarmaður er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2023. Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni síðan hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Portinu í Hafnarfirði árið 1993. Hefð hefur skapast fyrir því að halda síðasta vetrardag hátíðlegan í Hafnarfirði með vali á bæjarlistamanni ársins. Menning 19.4.2023 19:21
Óperudraugurinn hefur sungið sitt síðasta Sýningin um Óperudrauginn var sýnd í síðasta sinn á Broadway í gær. Óperan var sýnd í 35 ár í leikhúsum Broadway og enduðu sýningarnar á að vera tæplega fjórtán þúsund talsins. Menning 17.4.2023 14:51
Ferillinn fór á flug eftir örlagaríka listasýningu vestanhafs „Ég fór úr því að vera einn í kjallara heima hjá mér að mála í einhverju ströggli og yfir í að geta allt í einu farið að lifa á því að gera myndlist, sem virðist hafa gerst á einni nóttu,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason, sem hefur verið að gera góða hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur fer eigin leiðir í listinni og er óhræddur við að kafa djúpt inn á við í sinni listsköpun en hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 17.4.2023 07:00
Árni Tryggva allur Árni Tryggvason, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, andaðist í gær 99 ára gamall. Örn Árnason sonur hans greinir frá andláti föður síns á Facebook og fleiri minnast fallins meistara leiksviðsins. Menning 14.4.2023 13:17
Segir eitt að djamma niðri í bæ en allt annað að djamma á hálendinu Ljósmyndarinn Benjamin Hardman heillaðist af Íslandi frá fyrstu heimsókn og var staðráðinn í að flytja hingað, sem hann svo gerði. Hann er hugfanginn af landslaginu og grípur stórbrotin augnablik á filmu í starfi sínu sem ljósmyndari og tökumaður en það er honum afar minnisstætt að hafa heimsótt hálendið í fyrsta skipti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 14.4.2023 07:01
Gísli Örn leikstýrir Frozen á öllum Norðurlöndunum Söngleikurinn Frost byggður á Disney-myndinni Frozen verður settur á svið í Þjóðleikhúsinu næsta vetur. Gísli Örn Garðarsson er með réttinn að sýningunni á öllum Norðurlöndunum. Hann mun því ekki aðeins leikstýra uppfærslu söngleiksins hérlendis heldur einnig á hinum fjórum Norðurlöndunum. Menning 13.4.2023 06:01
Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 10.4.2023 07:01
Flutti úlpulaus til Íslands en fann lykilinn að listsköpunni Benjamin Hardman flutti úlpulaus til Íslands frá Ástralíu fyrir rúmum sjö árum með um það bil þúsund fylgjendur á Instagram og draum um að geta unnið sem ljósmyndari. Hann er nú með um 725 þúsund fylgjendur þar sem hann deilir ævintýrum sínum og sinnir ástríðu sinni á ljósmyndun og myndbandsgerð af fullum krafti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hann ræðir opinskátt um lífið, listina og mikilvægi þess að elta draumana sína. Menning 7.4.2023 09:00
Sextán ára farinn að spila á Hótel Sögu fyrir blindfullt fólk Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson fagnar sextugsafmæli sínu með stórtónleikum í Hörpu þann 22. apríl næstkomandi. Af því tilefni settist Jón niður með Ómari Úlfi og fór yfir magnaðan feril með hljómsveitunum Possibillies, Bítavinafélaginu og Nýdönsk. Þá er Jón einn af stofnmeðlimum Sálarinnar hans Jóns míns og hefur unnið mikið í leikhúsi. Menning 7.4.2023 07:01
Fólk mætti í skírteinismyndatöku og endaði í listrænu verkefni um bænina „Titill sýningarinnar er sóttur í kristna trú,“ segir listamaðurinn Sigurður Unnar sem er að opna sýninguna Lömb og Guðir á morgun, á föstudaginn langa. Blaðamaður tók púlsinn á honum. Menning 6.4.2023 10:01
Kollhnís og Eldgos tilnefndar Bækurnar Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Eldgos eftir Rán Flygenring eru tilnefningar Íslands til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Verðlaunin verða afhent í Osló í lok október. Menning 5.4.2023 08:00
„Þarna fer maður að hafa gaman af því að hafa augu“ „Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að verja miklum tíma í öræfum Íslands. Samferðafólk mitt hefur haft þakkarverða þolinmæði gagnvart mér og skrásetningu minni,“ segir myndlistarkonan Eva Schram, sem stendur fyrir sýningunni Þegar ljósið deyr, í samvinnu við Listval. Sýningin er staðsett í Norr11 á Hverfisgötu og stendur til 3. maí næstkomandi. Menning 3.4.2023 17:31
Einhverfufélagið blæs til listasýningar: „Við getum gert allt sem annað fólk getur gert“ Nóg verður um að vera í húsnæði Hamarsins ungmennahúss í Hafnarfirði um helgina þar sem Einhverfufélagið hefur sett upp listasýningu. Menning 31.3.2023 23:02