Viðskipti erlent Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik. Viðskipti erlent 11.4.2023 19:53 Twitter ekki lengur til sem hlutafélag Twitter er ekki lengur til sem sjálfstætt hlutafélag eftir samruna þess við skúffufyrirtækið X Corp. Breytingin hefur vakið vangaveltur um framtíð samfélagsmiðilsins og hvað Elon Musk ætlar sér með hann. Viðskipti erlent 11.4.2023 14:20 Virgin Orbit stefndi á geiminn en lenti á hausnum Geimferðarfyrirtækið Virgin Orbit í eigu breska auðkýfingsins Richards Barnason óskaði eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í gær. Eldflaugarskot fyrirtækisins misheppnaðist fyrr á þessu ári og það hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna frekari tilraunir. Viðskipti erlent 4.4.2023 12:20 Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn. Viðskipti erlent 4.4.2023 11:49 Musk skiptir Twitter-fuglinum út fyrir Doge-hundinn Elon Musk hefur skipt Twitter-fuglinum Larry út fyrir Doge-hundinn Kabosu. Hundurinn er ein frægasta skopmynd heims og stendur Musk nú í málaferlum vegna rafmyntar sem notast við sömu mynd af hundinum, Dogecoin. Viðskipti erlent 4.4.2023 10:11 Gera ekki lengur greinarmun á áskrifendum og þekktum notendum Samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa dregið í land með fyrirhugaðar breytingar á staðfestingarmerkjum á síðunni. Til stóð að svipta þekkta notendur og stofnanir merkinu um mánaðamótin en það virðist að mestu ekki hafa gerst. Þess í stað er ekki lengur hægt að greina á milli þekktra notenda og þeirra sem greiddu áskrift til þess að fá merkið. Viðskipti erlent 3.4.2023 11:57 ChatGPT bannað á Ítalíu Yfirvöld á Ítalíu hafa ákveðið að banna gervigreind fyrirtækisins OpenAI, ChatGPT. Verður fyrirtækið rannsakað af yfirvöldum þar í landi áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Viðskipti erlent 31.3.2023 16:54 SBF ákærður fyrir að reyna að múta kínverskum stjórnvöldum Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, er sagður ætla að lýsa sig saklausan af ákæru um að hann hafi brotið bandarísk kosningalög og mútað kínverskum yfirvöldum. Hann hefur þegar lýst sig saklausan af ákærum um stórfelld fjársvik. Viðskipti erlent 30.3.2023 11:53 Frumkóða Twitter lekið á netið Hluta af frumkóða Twitter var lekið á netið nýverið og leikur grunur á að þar hafi verið á ferðinni fyrrverandi starfsmaður sem auðjöfurinn Elon Musk rak. Kóðinn var birtur á GitHub en fjarlægður þaðan þegar lögmenn Twitter sendu forsvarsmönnum síðunnar bréf. Viðskipti erlent 27.3.2023 12:21 Lohan og fleiri stjörnur látnar borga fyrir rafmyntarauglýsingar Leikkonan Lindsay Lohan og rapparinn Akon eru á meðal nokkurra stjarna sem gerðu sátt við bandaríska verðbréfaeftirlitið vegna ásakana um að þær hafi auglýst fjárfestingar í rafmyntum án þess að upplýsa að þær fengju greitt fyrir það. Þær þurfa að greiða tugi þúsunda dollara hver. Viðskipti erlent 23.3.2023 08:58 Bandaríski seðlabankinn hækkar líka vexti Bandaríski Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti í landinu þrátt fyrir áhyggjur manna af því að slík aðgerð gæti aukið á óróann á fjármálamörkuðum en þar í landi hafa bankar verið að lenda í miklum vandræðum. Viðskipti erlent 23.3.2023 07:46 Forstjóri TikTok mætir þingmönnum og varar við því að banna forritið Shou Zi Chew, forstjóri TikTok, mun mæta á þingfund í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á morgun, þar sem hann mun verjast ásökunum um að forriti hans sé ekki treystandi. Ráðamenn í Bandaríkjunum og þar á meðal þingmenn bæði Demókrata- og Repúblikanaflokksins vilja að forritið verði bannað í Bandaríkjunum eða selt. Viðskipti erlent 22.3.2023 14:58 167 ára „vandræðabarn bankakerfisins“ heyrir sögunni til 167 ára saga hins fornfræga banka Credit Suisse er á enda eftir að bankanum tókst ekki að standa af sér enn eina krísuna. Vandræði bankans, sem lýst hefur verið sem vandræðabarni bankakerfisins, hafa mallað árum saman áður en upp úr sauð um helgina. Nýleg saga svissneska bankans er stráð þyrnum af ævintýralegri stærð. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:34 Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:17 Sögulegur og sorglegur dagur sem vonast var til að kæmi aldrei Á blaðamannafundi í Sviss í kvöld var tilkynnt um kaup UBS, stærsta banka Sviss, á Credit Suisse, næst stærsta banka landsins. Upphaflega var talið að kaupverðið væri rúmir tveir milljarðar Bandaríkjadala en nú er ljóst að kaupverðið var nokkuð hærra, um 3,24 milljarðar Bandaríkjadala Viðskipti erlent 19.3.2023 23:55 Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku. Viðskipti erlent 19.3.2023 21:28 Forseti Sviss staðfestir kaup UBS á Credit Suisse Forseti Sviss hefur staðfest að UBS, stærsti banki Sviss, mun kaupa Credit Suisse, næst stærsta banka landsins. Ekki kom fram í máli hans hvert nákvæmt kaupverð er en það er sagt nema yfir tveimur milljörðum bandaríkjadala. Viðskipti erlent 19.3.2023 19:02 Samkomulag um kaupin sagt í höfn: „Sýnir hversu slæm staðan er“ UBS, stærsti banki Sviss, er sagður hafa samþykkt að kaupa Credit Suisse, sem er næst stærsti banki landsins. Kaupverðið er sagt vera yfir tveir milljarðar Bandaríkjadala. Yfirvöld í Sviss eru sögð ætla að breyta hlutafélagalöggjöf landsins til að koma í veg fyrr að hluthafa bankans fái að greiða atkvæði um söluna. Viðskipti erlent 19.3.2023 17:22 UBS sagður ætla að kaupa Credit Suisse fyrir allt að milljarð dala UBS, stærsti banki Sviss, er sagður ætla að kaupa Credit Suisse, sem er næststærsti banki Sviss og rambar á barmi falls, fyrir allt að einn milljarð Bandaríkjadala. Það er einungis brot af markaðsvirði bankans við lok markaða á föstudag. Viðskipti erlent 19.3.2023 12:25 Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver. Viðskipti erlent 18.3.2023 20:43 Bankar sameinast um að bjarga First Republic Nokkrir stórir bandarískir bankar hafa tekið sig saman og sett þrjátíu milljarða dollara inn í bankann First Republic til að forða honum frá falli. Viðskipti erlent 17.3.2023 07:24 Slær þúsunda milljarða króna lán frá seðlabanka Svissneski bankinn Credit Suisse ætlar að fá lánaða allt að fimmtíu milljarða svissneskra franka, jafnvirði hátt á áttunda þúsund milljarða íslenskra króna, frá seðlabankanum þar í landi til þess að styrkja stöðu sína. Hlutabréf í bankanum féllu um fjórðung eftir að stærsti hluthafi hans neitaði að setja meira fé í hann í gær. Viðskipti erlent 16.3.2023 08:36 Áfram lækkanir í kauphöllum Hlutabréf í bönkum og fjármálastofnunum hafa lækkuðu áfram við opnun markaða á suðurhveli jarðar í nótt. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:38 Stjórnvöld í Bandaríkjunum hóta að banna TikTok Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hótað því að banna samfélagsmiðilinn TikTok ef kínverskir fjárfestar selja ekki hlut sinn í fyrirtæknu. Áhyggjur eru uppi um að gögn fyrirtækisins endi í höndum yfirvalda í Kína. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:28 Credit Suisse dragbítur á evrópskum bönkum Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti erlent 15.3.2023 17:47 Verðbólgan rýfur hundrað prósenta múrinn Verðbólgan í Argentínu er komin í 102 prósent. Verðbólgan hefur verið yfir tuttugu prósent nú í fimm ár en aldrei hefur hún farið í þriggja stafa tölu áður. Viðskipti erlent 15.3.2023 10:16 Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14.3.2023 18:47 Segir aftur upp þúsundum manna Mark Zuckerberg, forstjóri Meta (áður Facebook) tilkynnti í dag að aftur væri verið segja upp fjölmörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Að þessu sinni eru það tíu þúsund manns verið er að segja upp og á ekki að ráða í fimm þúsund lausar stöður. Viðskipti erlent 14.3.2023 15:25 Bréf í bönkum taka dýfu Hlutabréf í bönkum hafa fallið talsvert í Asíu og í Evrópu þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta um að bandaríska fjármálakerfið sé öruggt þrátt fyrir fall tveggja banka á örfáum dögum. Viðskipti erlent 14.3.2023 07:16 Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. Viðskipti erlent 13.3.2023 23:14 « ‹ 6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 334 ›
Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik. Viðskipti erlent 11.4.2023 19:53
Twitter ekki lengur til sem hlutafélag Twitter er ekki lengur til sem sjálfstætt hlutafélag eftir samruna þess við skúffufyrirtækið X Corp. Breytingin hefur vakið vangaveltur um framtíð samfélagsmiðilsins og hvað Elon Musk ætlar sér með hann. Viðskipti erlent 11.4.2023 14:20
Virgin Orbit stefndi á geiminn en lenti á hausnum Geimferðarfyrirtækið Virgin Orbit í eigu breska auðkýfingsins Richards Barnason óskaði eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í gær. Eldflaugarskot fyrirtækisins misheppnaðist fyrr á þessu ári og það hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna frekari tilraunir. Viðskipti erlent 4.4.2023 12:20
Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn. Viðskipti erlent 4.4.2023 11:49
Musk skiptir Twitter-fuglinum út fyrir Doge-hundinn Elon Musk hefur skipt Twitter-fuglinum Larry út fyrir Doge-hundinn Kabosu. Hundurinn er ein frægasta skopmynd heims og stendur Musk nú í málaferlum vegna rafmyntar sem notast við sömu mynd af hundinum, Dogecoin. Viðskipti erlent 4.4.2023 10:11
Gera ekki lengur greinarmun á áskrifendum og þekktum notendum Samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa dregið í land með fyrirhugaðar breytingar á staðfestingarmerkjum á síðunni. Til stóð að svipta þekkta notendur og stofnanir merkinu um mánaðamótin en það virðist að mestu ekki hafa gerst. Þess í stað er ekki lengur hægt að greina á milli þekktra notenda og þeirra sem greiddu áskrift til þess að fá merkið. Viðskipti erlent 3.4.2023 11:57
ChatGPT bannað á Ítalíu Yfirvöld á Ítalíu hafa ákveðið að banna gervigreind fyrirtækisins OpenAI, ChatGPT. Verður fyrirtækið rannsakað af yfirvöldum þar í landi áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Viðskipti erlent 31.3.2023 16:54
SBF ákærður fyrir að reyna að múta kínverskum stjórnvöldum Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, er sagður ætla að lýsa sig saklausan af ákæru um að hann hafi brotið bandarísk kosningalög og mútað kínverskum yfirvöldum. Hann hefur þegar lýst sig saklausan af ákærum um stórfelld fjársvik. Viðskipti erlent 30.3.2023 11:53
Frumkóða Twitter lekið á netið Hluta af frumkóða Twitter var lekið á netið nýverið og leikur grunur á að þar hafi verið á ferðinni fyrrverandi starfsmaður sem auðjöfurinn Elon Musk rak. Kóðinn var birtur á GitHub en fjarlægður þaðan þegar lögmenn Twitter sendu forsvarsmönnum síðunnar bréf. Viðskipti erlent 27.3.2023 12:21
Lohan og fleiri stjörnur látnar borga fyrir rafmyntarauglýsingar Leikkonan Lindsay Lohan og rapparinn Akon eru á meðal nokkurra stjarna sem gerðu sátt við bandaríska verðbréfaeftirlitið vegna ásakana um að þær hafi auglýst fjárfestingar í rafmyntum án þess að upplýsa að þær fengju greitt fyrir það. Þær þurfa að greiða tugi þúsunda dollara hver. Viðskipti erlent 23.3.2023 08:58
Bandaríski seðlabankinn hækkar líka vexti Bandaríski Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti í landinu þrátt fyrir áhyggjur manna af því að slík aðgerð gæti aukið á óróann á fjármálamörkuðum en þar í landi hafa bankar verið að lenda í miklum vandræðum. Viðskipti erlent 23.3.2023 07:46
Forstjóri TikTok mætir þingmönnum og varar við því að banna forritið Shou Zi Chew, forstjóri TikTok, mun mæta á þingfund í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á morgun, þar sem hann mun verjast ásökunum um að forriti hans sé ekki treystandi. Ráðamenn í Bandaríkjunum og þar á meðal þingmenn bæði Demókrata- og Repúblikanaflokksins vilja að forritið verði bannað í Bandaríkjunum eða selt. Viðskipti erlent 22.3.2023 14:58
167 ára „vandræðabarn bankakerfisins“ heyrir sögunni til 167 ára saga hins fornfræga banka Credit Suisse er á enda eftir að bankanum tókst ekki að standa af sér enn eina krísuna. Vandræði bankans, sem lýst hefur verið sem vandræðabarni bankakerfisins, hafa mallað árum saman áður en upp úr sauð um helgina. Nýleg saga svissneska bankans er stráð þyrnum af ævintýralegri stærð. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:34
Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:17
Sögulegur og sorglegur dagur sem vonast var til að kæmi aldrei Á blaðamannafundi í Sviss í kvöld var tilkynnt um kaup UBS, stærsta banka Sviss, á Credit Suisse, næst stærsta banka landsins. Upphaflega var talið að kaupverðið væri rúmir tveir milljarðar Bandaríkjadala en nú er ljóst að kaupverðið var nokkuð hærra, um 3,24 milljarðar Bandaríkjadala Viðskipti erlent 19.3.2023 23:55
Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku. Viðskipti erlent 19.3.2023 21:28
Forseti Sviss staðfestir kaup UBS á Credit Suisse Forseti Sviss hefur staðfest að UBS, stærsti banki Sviss, mun kaupa Credit Suisse, næst stærsta banka landsins. Ekki kom fram í máli hans hvert nákvæmt kaupverð er en það er sagt nema yfir tveimur milljörðum bandaríkjadala. Viðskipti erlent 19.3.2023 19:02
Samkomulag um kaupin sagt í höfn: „Sýnir hversu slæm staðan er“ UBS, stærsti banki Sviss, er sagður hafa samþykkt að kaupa Credit Suisse, sem er næst stærsti banki landsins. Kaupverðið er sagt vera yfir tveir milljarðar Bandaríkjadala. Yfirvöld í Sviss eru sögð ætla að breyta hlutafélagalöggjöf landsins til að koma í veg fyrr að hluthafa bankans fái að greiða atkvæði um söluna. Viðskipti erlent 19.3.2023 17:22
UBS sagður ætla að kaupa Credit Suisse fyrir allt að milljarð dala UBS, stærsti banki Sviss, er sagður ætla að kaupa Credit Suisse, sem er næststærsti banki Sviss og rambar á barmi falls, fyrir allt að einn milljarð Bandaríkjadala. Það er einungis brot af markaðsvirði bankans við lok markaða á föstudag. Viðskipti erlent 19.3.2023 12:25
Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver. Viðskipti erlent 18.3.2023 20:43
Bankar sameinast um að bjarga First Republic Nokkrir stórir bandarískir bankar hafa tekið sig saman og sett þrjátíu milljarða dollara inn í bankann First Republic til að forða honum frá falli. Viðskipti erlent 17.3.2023 07:24
Slær þúsunda milljarða króna lán frá seðlabanka Svissneski bankinn Credit Suisse ætlar að fá lánaða allt að fimmtíu milljarða svissneskra franka, jafnvirði hátt á áttunda þúsund milljarða íslenskra króna, frá seðlabankanum þar í landi til þess að styrkja stöðu sína. Hlutabréf í bankanum féllu um fjórðung eftir að stærsti hluthafi hans neitaði að setja meira fé í hann í gær. Viðskipti erlent 16.3.2023 08:36
Áfram lækkanir í kauphöllum Hlutabréf í bönkum og fjármálastofnunum hafa lækkuðu áfram við opnun markaða á suðurhveli jarðar í nótt. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:38
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hóta að banna TikTok Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hótað því að banna samfélagsmiðilinn TikTok ef kínverskir fjárfestar selja ekki hlut sinn í fyrirtæknu. Áhyggjur eru uppi um að gögn fyrirtækisins endi í höndum yfirvalda í Kína. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:28
Credit Suisse dragbítur á evrópskum bönkum Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti erlent 15.3.2023 17:47
Verðbólgan rýfur hundrað prósenta múrinn Verðbólgan í Argentínu er komin í 102 prósent. Verðbólgan hefur verið yfir tuttugu prósent nú í fimm ár en aldrei hefur hún farið í þriggja stafa tölu áður. Viðskipti erlent 15.3.2023 10:16
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14.3.2023 18:47
Segir aftur upp þúsundum manna Mark Zuckerberg, forstjóri Meta (áður Facebook) tilkynnti í dag að aftur væri verið segja upp fjölmörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Að þessu sinni eru það tíu þúsund manns verið er að segja upp og á ekki að ráða í fimm þúsund lausar stöður. Viðskipti erlent 14.3.2023 15:25
Bréf í bönkum taka dýfu Hlutabréf í bönkum hafa fallið talsvert í Asíu og í Evrópu þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta um að bandaríska fjármálakerfið sé öruggt þrátt fyrir fall tveggja banka á örfáum dögum. Viðskipti erlent 14.3.2023 07:16
Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. Viðskipti erlent 13.3.2023 23:14