Skoðun

Barnamorðin í Beslan

Sjónarmið - Guðmundur Magnússon



Villimennskan og illgirnin sem hryðjuverkamennirnir í barnaskólanum í Beslan í Norður-Ossetíu sýndu í síðustu viku er svo skelfileg og lamandi að engin orð megna að lýsa sorg og fyrirlitningu heimsbyggðarinnar allrar á glæpnum sem leiddi til þess að um sex hundruð saklausir borgarar, flestir börn, létu lífið. Engin stjórnmálastefna eða þjóðfrelsisbarátta rís undir slíku voðaverki.

Atburðurinn er fjórða hryðjuverkið í Rússlandi á aðeins örfáum dögum. Fyrst voru tvær farþegaflugvélar með hundruð manna innanborðs sprengdar í loft. Síðan var sjálfsmorðsárás gerð í neðanjarðarlest í Moskvu. Mönnum er enn í fersku minni atburðurinn í leikhúsinu í Moskvu fyrir tveimur árum þegar hryðjuverkamenn tóku sjö hundruð manns í gíslingu og á annað hundruð féllu þegar rússneskar sérsveitir réðust til atlögu.

Hér virðast sem fyrr að verki ódæðismenn frá rússneska sjálfstjórnarríkinu Tsjetsjeníu. Ekki er talið útilokað að þeir njóti stuðnings hryðjuverkamanna annars staðar að, jafnvel al-kaída samtakanna, sem hvarvetna leita uppi vandræði. Rússar þurfa stuðning alþjóðasamfélagsins til að hafa uppi á glæpamönnunum sem standa á bak við þessi verk og uppræta samtök þeirra.

En rússnesk stjórnvöld með Pútín forseta í broddi fylkingarinnar geta ekki vikið sér undan ábyrgð á því sem hefur gerst. Fyrir tíu árum réðust rússneskar hersveitir inn í Grosníu, höfuðborg Tsjetsjeníu, til að bæla niður sjálfstæðishreyfingu landsmanna. Af því hlaust gífurlegt blóðbað; tugir þúsunda íbúa flúðu land og búa nú við frumstæð skilyrði í flóttamannabúðum. Síðan hefur sjálfstæðishreyfingin verið í hatrömu stríði við rússnesku leppstjórnina og beitt fyrir sig skæruhernaði og hryðjuverkum innan lands og utan.

Pútín forseti hefur ekki sýnt neina viðleitni til að koma til móts við andspyrnuöflin í Tsjetsjeníu eða ná samabandi við hina hófsamari forystumenn þeirra. Í stað þess að kljást við orsökina hefur hann tekist á við afleiðinguna með hefðbundum aðferðum frá tímum kommúnismans í Sovétríkjunum: miskunnarlausum gagnárásum, leynt rússneskan almenning og umheiminn allan staðreyndum um atvik og mannfall og notað hernaðarástandið til að réttlæta margvíslegar takmarkanir á lýðræðislegum réttindum fólks og frjálsri fjölmiðlun í Rússlandi. Slík viðbrögð og vinnubrögð eru aðeins til þess fallin að magna deiluna og ofbeldið en leysa hana ekki.

Um leið og alþjóðasamfélagið býður fram aðstoð til að hafa uppi á forsprökkum barnamorðanna í Beslan og koma þeim í hendur réttvísinnar verður að koma þeim skilaboðum skýrt á framfæri við Pútin forseta að aðferð hans og einstrengingsháttur er ófær um að leiða til friðar og sátta í Tsjetsjeníu. Pútín verður að snúa af braut hroka og drottnunarstefnu ef þjóðir Rússlands eiga að losna úr vítahring hryðjuverkanna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×