Matur

Þorskur Sigurveigar

1 kg þorskflök

2-3 súraldin (lime), safinn kreistur og notaður

5-6 stór hvítlauksrif, kramin

4-5 msk. rifin engiferrót

1-2 rauð chilli, fræhreinsuð og mjög smátt skorinn

2-3 msk. fiskisósa

3-4 tsk. sítrónugras (lemon grass paste)

3-5 tsk. grænt karrímauk (green curry paste)

lítil dós af kókosmjólk

4-5 stk. kaffi súraldinlauf (fást þurrkuð, má sleppa ef finnst ekki)

3 msk. taílensk sojasósa

smjör og olía til að steikja upp úr

hveiti til að velta fiskinum upp úr

Aðferð

Fiskurinn skorinn í bita, um það bil handarþykk stykki. Öllu öðru blandað saman fyrir utan hveiti og smjör. Fiskurinn settur út í löginn og látinn liggja í að minnsta kosti hálftíma. Ágætt að sjóða hrísgrjón á meðan. Ekki er verra að hafa brún hrísgrjón með. Þau taka um 45 mínútur í suðu og því ágætt að láta fiskinn liggja í leginum á meðan. Passa að fljóti yfir fiskinn í fatinu þannig að hann marinerist allur. Síðan er hann tekinn upp úr og velt upp úr hveiti. Gott að leyfa sem mestu kryddi að vera á honum undir hveitihjúpnum. Smjör og olía sett á pönnu og hitað. Fiskurinn steiktur á báðum hliðum þar til kemur smá skorpa á hann. Þá er hitinn lækkaður og leginum hellt yfir. Látið malla nokkra stund. þangað til fiskurinn er tilbúinn.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.