Dreifbýli megi síst við hækkunum 21. janúar 2005 00:01
Húshitunarkostnaður á Vestfjörðum hækkar um 70 til 80 milljónir króna á ári, eða um hátt í tíu þúsund krónur á hvert mannsbarn, í kjölfar breytinga á rekstrarumhverfi raforkufyrirtækja. Einar K. Guðfinnsson alþingismaður segir að strjálbýlið megi alls ekki við slíku og að leita verði allra leiða til að koma í veg fyrir þetta. Einar segir að ekki sé annað til ráða en að snúa þróuninni við. Vestfirðingar geti ekki látið það yfir sig ganga að uppstokkun á fyrirkomulagi á framleiðslu, sölu og dreifingu á rafmagni verði til þess að húshitunarkostnaður í þéttbýli á Vestfjörðum hækki um 12,5% og í dreifbýli um 45%. Sambærilegar tölur hafi heyrst vítt og breitt um landið. Aðspurður hvernig koma eigi því við ef ný lög banni niðurgreiðslu á rafmagni segir Einar að þær niðurgreiðslur sem hafi átt sér stað innan raforkukerfisins séu ekki lengur heimilar. Hins vegar banni ekkert aðrar niðurgreiðslur og ekki megir gleyma því að ríkisvaldið hyggist verja 900 milljónum króna til þess að lækka húshitunarkostnað á landsbyggðinni þar sem hann hafi verið mestur fyrir. Einar segir hækkanirnar íþyngjandi fyrir byggðirnar og hann vekur sérstaka athygli á því að húshitunarkostnaður í dreifbýlinu, í sveitum, hækki sérstaklega mikið. Öllum sé ljóst að fólk í sveitum megi síst af öllu við því þar sem lífskjörin þar hafi almennt verið talin lakari en á þéttbýlisstöðum sem hafi getað aflað tekna á annan hátt
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Innlent Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Innlent Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Erlent Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Innlent Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Innlent Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Innlent Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Erlent Lítill arfur á barnsaldri dró dilk á eftir sér Innlent Afturkalla átta friðlýsingar Innlent Fleiri fréttir Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Rifrildi, innbrot og eftirför Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Gátu loksins mætt aftur í skólann sinn á Selfossi „Menn ætla sér alla leið með þetta“ Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Afturkalla átta friðlýsingar Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Valkyrjustjórn, afkomukvíði og jóladans í beinni Lítill arfur á barnsaldri dró dilk á eftir sér Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólarhring Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Ráðuneytum fækkað og ljóst hvar stóru verkefnin liggja Bæjarstjóraskipti á áætlun í Hafnarfirði Gleðitár á hvarmi Fúsa við verðlaunaafhendingu Jón Ingi dæmdur í sex ára fangelsi í Sólheimajökulsmálinu Hámarksbið eftir barnabótum verður fjórir mánuðir Virðist útiloka samstarf með Samfylkingu Blandar sér í baráttuna um rektorinn Ragnar Þór hættur hjá VR og Halla tekin við „Fullkomlega galin“ fjárhagsleg ákvörðun að vera rithöfundur á Íslandi Fréttin öll Sigríður Júlía verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar „Ég er bara bjartsýnn“ Kristrún fær umboðið og boðar Ingu og Þorgerði á sinn fund Verði að virða það sem þjóðin vilji Umsóknir enn til meðferðar „á faglegum grunni“ Sjá meira